Morgunblaðið - 20.01.2002, Page 12

Morgunblaðið - 20.01.2002, Page 12
12 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Flak lögreglubíls og leifar annarra bíla er eyðilögðust er turnarnir hrundu. Flakið af gulum leigubíl sem eyðilagðist er World Trade Center hrundi liggur hér við hliðina á flaki slökkviliðsbíls er hlaut sömu örlög. Rannsóknarfulltrúar kanna brak úr rústum World Trade Center á færibandi á Fresh Kills þar sem leitað er að vísbendingum og líkamsleifum. Reuters Rannsóknarfulltrúar skoða eitt af rúmlega þúsund bílflökum sem flutt hafa verið til Fresh Kills úr rústum World Trade Center. Alls hafa rúmlega milljón tonn af braki verið flutt úr rústunum. Empire State og Manhattan í baksýn, en í forgrunni er hluti af brakinu sem flutt hefur verið til Fresh Kills. Leifar af skammbyssum lögreglumanna eru meðal þess sem fundist hefur í rústum World Trade Center. Leitað í brakinu New York. AP. Á MANNGERÐRI hæð, um 20 kílómetra frá Manhattan, er hópur lögreglumanna, alríkislögreglu- fulltrúa, sorphreinsunarmanna og byggingaverkamanna að leita í mold, grjóti, stáli og steinsteypu, brakinu úr World Trade Center- turnunum. Þarna er unnið 20 tíma á dag á uppfyllingu við Staten- eyju. Svæðinu var lokað í fyrra, en var opnað á ný í kjölfar hryðju- verkanna 11. september. Stað- urinn heitir Fresh Kills, og dregur nafn sitt af hollensku orðunum yf- ir lindá. Yfir ein milljón tonna af braki hefur verið flutt þangað og verður flokkað og skoðað kerf- isbundið. Þegar líkamsleifar finn- ast eru þær settar í plastpoka, merktar og sendar til DNA- greiningar. „Þetta eru ekki sorp- haugar,“ sagði yfirmaður lög- regluliðsins á staðnum, William Allee. „Fyrir okkur öll er þetta helgur staður. Hér erum við að vinna verk Guðs og okkur er heið- ur að því.“ Reuters Krítarkort og önnur skilríki sem fundist hafa í rústunum eru flokkuð á skrifstofu alríkislögreglufulltrúanna á Fresh Kills.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.