Morgunblaðið - 20.01.2002, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 19
garða; fyrir almennar flugvélar og svo
herflugvélar. Eru hinir síðarnefndu af
slíkri stærðargráðu að maður kemst
ekki hjá því að leiða hugann að þeim
peningum sem fara í hergagnafram-
leiðslu. Ekki það að maður skilji upp-
hæðirnar. Ég mæli með því að menn
geri sér leið á slíka staði bara til að
upplifa þá.
Kirkjugarður er kannski ekki rétt-
nefni því ekki eru allar flugvélar rifn-
ar niður heldur eru sumar flugvélar
einungis geymdar þarna í einhvern
tíma en sóttar síðar er verkefni skap-
ast fyrir þær. Slík er staðan í dag.
Eftir að mikil kreppa skapaðist í flug-
heiminum sl. haust hefur framboð á
flugvélum verið miklu meira en eft-
irspurnin eftir þeim. Hafa flugfélög
því gripið til þess ráðs að setja flug-
vélar í geymslu. Ekki ósvipað öðrum
atvinnugreinum virðist kreppa skella
á flugrekstri með u.þ.b. 10 ára milli-
bili. Þannig má merkja slíkt ástand
þegar meira er að gera á stöðum eins
og Pinal Airpark. Reyndar segja eldri
og vitrari menn mér lægð þessa sem
við erum nú í, krappari og dýpri en
þær sem á undan hafa gengið eins og
ég taldi mig geta skynjað í aðflugi
okkar inn á litlu flugbrautina úti í
eyðimörkinni.
Seinasti spottinn er floginn með
gamla laginu, engar sjálfstýringar,
heldur allt í höndunum. Niðri á jörð-
inni sé ég þotur innan um kaktusana.
Sennilega í hundraðatali. Einhvern
veginn verður hugtakið „flugkreppa“
raunverulegra við að sjá svona marg-
ar heillegar þotur standa eirðarlausar
í sandinum. Aðflugið er skemmtilegt,
krækt er fyrir risavaxinn klett sem rís
upp úr sandinum og hitauppstreymi
nuddar vélina léttilega. Flugstjórinn
tyllir vélinni niður á stutta flugbraut-
ina, bremsar kröftuglega og áður en
ég veit af er síðasta lending TF-ABT
að baki. Hugsa sér, eftir öll þessi ár,
eftir að hafa flutt tugi þúsunda
manna, lent á flugvöllum um allan
heim í alls konar veðurskilyrðum, er
þetta síðasta lendingin.
Við ökum í hlað þar sem flugvirkjar
skýla sér fyrir sólinni inní pallbíl.
Þeirra hlutverk er að ganga frá vél-
inni fyrir geymslu, s.s. að setja hlífar
yfir hjólabúnað og hreyfla til varnar
sandinum, ganga frá rafgeymum
o.s.frv.
Stuttu síðar, eftir að pappírar hafa
verið útfylltir samkvæmt kúnstarinn-
ar reglum, standa Jóhann, Nasir og
Max fyrir utan vélina. Svartur ein-
kennisbúningur þeirra drekkur í sig
hita frá eyðimerkursólinni. Íslending-
ur er fljótur að byrja að svitna hér.
Svalandi bjórkolla bíður þeirra nú í
Tucson. Og hér skilja leiðir okkar.
Héðan fer einn til Íslands gegnum
Baltimore, annar gegnum Minneapol-
is og sá þriðji flýgur til London frá
Los Angeles. Ég ætla hins vegar að
eyða meiri tíma og ljósmyndafilmu í
að skoða staðinn betur.
Það kom á óvart að manneskjan
sem opnaði dyrnar á vélinni eftir
lendingu, Scott flugvirki, átti föður
sem fæddist á Íslandi. „Komdu hind-
að amma,“ segir hann stoltur. Reynd-
ar misskilur hann eitthvað meiningu
þessara orða en frammistaða hans er
nógu tilkomumikil til að afla honum
harðfisksverðlaunanna sívinsælu.
Hvaða aðdráttarafl hefur flugvéla-
kirkjugarður annað en að svala flug-
dellu manns? Hvað er þetta annað en
risavaxinn öskuhaugur? Hvernig sem
við skilgreinum það er ekki hægt að
líta hjá því að staðurinn hefur að-
dráttarafl. Sjónarpilið er ríkulegt.
Andstæðurnar eru svo miklar. Þarna
standa ónýtar og líka stráheilar breið-
þotur í litskrúðugum röðum úti á
miðjum sandinum. Vélar sem kosta
meiri peninga en venjulegur launþegi
vinnur sér inn á allri starfsævi sinni,
þótt þær væru tvær. Vélar sem mörg
þúsund vinnustunda hafa farið í að
smíða og halda gangandi. Vélar sem
voru eitt sinn fullar af fólki og standa
nú eins og steinrunnir risar út í miðri
náttúrunni. Sannarlega einstakur
staður þar sem sagan stendur í stað
og ber á sinn óvenjulega máta vitni
um sögu tækniþróunar, um ris og föll
flugfélaga en síðast en ekki síst bera
þessir staðir vitni um ys og þys fyrri
tíma og framkvæmdagleði mann-
anna.
Höfundur er flugmaður.
Leikskóli 5-6 ára
Enskunámskeið 7-12 ára
Unglinganámskeið 13-14 ára
Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk
Opið hús 26. janúar kl. 10 til 14
Hringdu í síma
588 0303
Faxafeni 8
ENSKA FYRIR BÖRN
Námskeiðin hefjast
2. febrúar