Morgunblaðið - 20.01.2002, Síða 28

Morgunblaðið - 20.01.2002, Síða 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ www.yogastudio.is Auðbrekku 14, Kópavogi, sími 544 5560 og 864 1445 Yoga Studio – Halur og sprund ehf., Umboðsaðili fyrir Custom Craftworks nuddbekki og Oshadhi ilmkjarnaolíur o.fl. YOGA - breyttur lífsstíll með Daníel Bergmann hefst 21. janúar — Mán. og mið. kl. 18.30 4ra vikna grunnnámskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu spor í jóga. Lögð er áhersla á jógastöður (asana) og öndunaræfingar sem hjálpa að losa um spennu auk slökunar. Hentar fólki á öllum aldri, reynsla af jóga ekki nauðsynleg. Næsta jógakennaraþjálfun með Ásmundi Gunnlaugssyni hefst helgina 1.—3. febrúar. Daníel VLADIMIR Ashkenazy leikur á tvennum tónleikum með Kamm- ersveit Reykjavíkur, annars veg- ar í Fjölbrautaskóla Garðabæjar annað kvöld kl. 20.00 og hins veg- ar í Salnum í Kópavogi á þriðju- dagskvöld kl. 20.00. Á tónleik- unum leikur Ashkenazy á píanó og stjórnar jafnframt Kamm- ersveitinni. Á efnisskránni eru verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Adagio og fúga KV 546, Píanókonsert í A-dúr KV 414 og Píanókonsert í d-moll KV 466. Tónleikarnir eru tvímælalaust stór viðburður fyrir tónlistarunn- endur því langt er um liðið frá því að Ashkenazy spilaði síðast á Íslandi. Ashkenazy er án efa þekktastur íslenskra ríkisborgara í heimi sígildrar tónlistar í heim- inum í dag. Hann bjó á Íslandi um árabil og var á þeim tíma einn af helstu hvatamönnum að stofnun Listahátíðar í Reykjavík og hefur verið heiðursforseti Listahátíðar frá árinu 1982. Hann hefur einnig lagt sitt lóð á vogarskálarnar svo bygging tónlistarhúss geti orðið að veruleika. Ashkenazy hóf feril sinn sem píanóleikari og hefur leikið á öll- um helstu tónleikastöðum heims, ýmist einleikstónleika eða með hljómsveit. Frá árinu 1970 hefur Ashkenazy snúið sér meira að hljómsveitarstjórn sem er nú helsti starfsvettvangur hans. Hann hefur stjórnað ýmsum þekktum hljómsveitum og verið aðalstjórnandi Tékknesku fíl- harmóníusveitarinnar frá árinu 1998. Samhliða gegnir hann stöðu tónlistarstjóra Ungmenna- hljómsveitar Evrópusambandsins og er heiðursstjórnandi Fílharm- óníusveitar Lundúna. Ashkenazy heldur enn einleikstónleika um heim allan. Auk þess má njóta pí- anóleiks hans á hljómplötum og geisladiskum en hann hefur tekið upp öll helstu píanóverk tónlistar- sögunnar. Sonur hans, Vovka, sem leikur í Kammermúsíkklúbbnum með ís- lenskum tónlistarmönnum í kvöld sagði frá því í viðtali við Morg- unblaðið í gær, að von væri á geisladiskum á þessu ári þar sem Ashkenazy léki annars vegar fjór- hent með Vovka í verkum eftir Rakhmaninov, og hins vegar verk fyrir sex hendur þar sem eig- inkona hans Þórunn Jóhanns- dóttir léki með þeim feðgum. Kammersveit Reykjavíkur hef- ur í aldarfjórðung flutt kamm- ertónlist frá ýmsum tímum, bæði barokktónlist og nútímatónlist. Sveitin hefur frumflutt fjölda kammerverka á Íslandi og mörg tónskáld hafa samið verk fyrir hana. Sveitin heldur árlega nokkra tónleika á Íslandi og hef- ur auk þess haldið fjölda tónleika erlendis á starfsferli sínum. Menningarmálanefnd Garðabæjar sér um undirbúning tónleikanna í Garðabæ, en tónleikarnir í Kópa- vogi eru hátíðartónleikar í tón- leikaröðinni Tíbrá. Kammersveit Reykjavíkur starfsárið 2001 til 2002. Vladimir Ashkenazy leikur með og stjórnar Kammersveit Reykjavíkur Halda tvenna tón- leika Vladimir Ashkenazy píanóleik- ari og hljómsveitarstjóri leikur nú eftir langt hlé hér á landi. DAGSKRÁ Listaklúbbsins á mánudagskvöld kl. 20.30 er helguð minningu Vals Gísla- sonar sem hefði orðið hundrað ára hinn 15. janúar sl. Af því til- efni verður sýnt, í samvinnu við RÚV, fyrsta leikritið sem Ís- lenska sjónvarpið tók upp og sendi út árið 1967, Jón gamli eftir Matthías Johannessen, en þar lék Valur titilhlutverkið á móti Lárusi Pálssyni og Gísla Alfreðssyni. Leikstjóri var Benedikt Árnason. Leikmynd- ina gerði Lárus Ingólfsson. Einnig verður sýnt brot úr sjónvarpsmyndinni Jóni í brauðhúsum eftir Halldór Lax- ness með hinum ástsælu leik- urum, Vali Gíslasyni og Þor- steini Ö. Stephensen, í leikstjórn Baldvins Halldórs- sonar. Steindór Hjörleifsson, fyrsti dagskrárstjóri Sjónvarpsins, fylgir sýningunum úr hlaði með stuttu spjalli. Gísli Alfreðsson, fyrrverandi þjóðleikhússtjóri, rifjar upp minningar um Val. Listaklúbbur Leikhúskjallarans Valur Gíslason fór með tit- ilhlutverk í sjónvarpsleik- ritinu Jón gamli eftir Matthías Johannessen. Dagskrá helguð Vali Gíslasyni JÓNÍNA Hilmarsdóttir víólu- leikari kvaddi sér hljóðs í fyrsta sinn á tónleikum hér á landi á mið- vikudagskvöld. Þar lék hún bæði einleiksverk fyrir víóluna, en einnig kammerverk, og fékk þar til liðs við sig hóp valinkunnra tón- listarmanna. Jónína hefur um ára- bil verið við nám erlendis; fyrst í Belgíu og síðar í Amsterdam og Berlín, en hún lauk á sínum tíma prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, þar sem Ingvar Jón- asson var aðalkennari hennar. Fyrstu tónleika tónlistarmanna á heimavelli er jafnan beðið með eftirvæntingu, bæði af fjölskyldu, vinum og samferðamönnum í tón- listinni, og þótt hinn almenni tón- leikagestur væri hvergi sjáanleg- ur, voru áheyrendur þó nokkuð fjölmennir úr fyrrgreindum hóp- um, og var eftir því tekið að sjald- an hafa jafn margir víóluleikarar sést samankomnir á einum tón- leikum. Fyrir einleikarann hlýtur þessi stuðningur að vera ómetan- legur. Leikur Jónínu var í heild skín- andi góður. Hún byrjaði á gömbu- sónötu nr. 3 í g-moll eftir Bach, þar sem Helga Ingólfsdóttir lék með á sembal. Tónn víólunnar var hlýr og ákaflega fínlegur og mjúk- ur. Jónína lék Bach af öryggi og mjög músíkalskt, en hefði mátt sýna meira skap og draga betur fram andstæður með styrkleika- breytingum eða blæbrigðum í hendingamótun, sérstaklega í fyrsta og síðasta þættinum. Helga fylgdi Jónínu vel og samleikur þeirra var góður. Capriccio op. 55 eftir Henri Vieuxtemps er fallegt einleiksverk sem Jónína lék með mýkt og þokka, en eins og í Bach, hefði snerpan eða ákveðnin mátt vera aðeins meiri. Na Carenza eft- ir Karólínu Eiríksdóttur hefur ekki heyrst oft hérlendis, en það var sérdeilis ánægjulegt fyrir gagnrýnanda og eflaust fleiri að heyra það í fyrsta sinn. Verkið er samið við miðaldaljóð konu, um konur; Ásgerður Júníusdóttir söng og Peter Tompkins lék á óbó auk þess sem Jónína lék á víóluna. Víólan skapar seiðandi forna stemmningu með fimmundum og saman vefa hljóðfærin þokkafull- an og dálítið mystískan vef um ákaflega fallegan söngpart, sem Ásgerður söng hreint frábærlega vel. Í víólulögum Jóhannesar Brahms söng Ásgerður ekki síður vel, tónninn þykkur og flauels- mjúkur og stef víólunnar, sem Brahms fær að láni úr þýska þjóð- laginu Josef, lieber Josef mein, var vel dregið fram af Jónínu. Steinunn Birna Ragnarsdóttir lék með á píanóið og gerði það mjög vel. Fantasíusónata ópus 11 nr. 4 eftir Hindemith, fyrir víólu og pí- anó, var síðasta verkið á efnis- skránni; þrælerfitt fyrir bæði hljóðfærin, og þar sýndi Jónína sannarlega sitt besta. Píanópart- urinn er gríðarmikill og Steinunn Birna lék hann fantavel, en of sterkt á nokkrum stöðum þar sem mikið lá við að víólan fengi að skína í gegn. Jónína lék verkið framúrskarandi vel og sýndi að hún er mikill hljóðfæraleikari. Jónína Hilmarsdóttir hefur lok- ið námi og hefur þegar hafið störf í útlöndum við víóluleik. Hún hef- ur allt til að bera til að ná góðum árangri; músíkgáfur og innsæi í þá tónlist sem hún fæst við. Tónn hennar á víóluna er sérstaklega fallegur og hlýr, og víbratóið áberandi mjúkt og eðlilegt. Hún naut sín vel hvort sem var í einleik eða samleik, en þyrfti helst að hleypa skapinu út og taka meiri áhættu í leik sínum. Þess má geta að sjaldan hefur gagnrýnandi séð svo vandaða tón- leikaskrá. Þar voru ítarlegar upp- lýsingar um flytjendur, tónskáld- in og verk þeirra og söngtextar sunginna verka. Auk þess var að finna þar forvitnilega hugleiðingu Jónínu um tónlistina og lífið og að- draganda þess að hún heldur nú þessa tónleika. Það er ekki al- gengt að tónlistarmenn skrifi svona hugleiðingu frá eigin brjósti, en gaman væri ef fleiri þeir sem finna sig knúna til að eiga þannig orð við hlustandann létu það eftir sér. Góður víóluleikari TÓNLIST Salurinn Jónína Auður Hilmarsdóttir víóluleik- ari lék verk eftir Bach, Vieuxtemps, Karólínu Eiríksdóttur, Brahms og Hin- demith. Með henni léku Helga Ingólfs- dóttir á sembal, Peter Tompkins á óbó, Steinunn Birna Ragnarsdóttir á píanó og Ásgerður Júníusdóttir söng. Miðvikudag kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Bergþóra Jónsdóttir Jónína Hilmarsdóttir: „Hefur allt til að bera til að ná góðum árangri; músíkgáfur og innsæi í þá tónlist sem hún fæst við.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.