Morgunblaðið - 20.01.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 20.01.2002, Síða 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Beinn sími sölumanna 5628501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 274 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2002 BIC Atlantis penni Verð 91 kr/stkk NOVUS MASTER gatar 25 blöð. Verð 382 kr Skilblöð númeruð, lituð, stafróf eða eftir mánuðum. Ljósritunarglærur. 100 stk í pakka. Verð 1.867kr/pk TRICOM reiknivél með strimli Verð 7.900 kr/stk Fuji disklingar 10 stk í pakka. Verð 399 kr/pk V-DAGSSAMTÖKIN eru alþjóðleg baráttusamtök stofnuð af Eve Ensl- er, höfundi leikritsins Píkusögur (Vagina Monologues). Leikritið, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þess- ar mundir, hefur vakið gífurlega at- hygli í Bandaríkjunum og Evrópu, en þar er fjallað um viðhorf til kvenna og reynslu þeirra af eigin kynferði. Fyrir ritun verksins ferð- aðist Ensler um heiminn og tók við- töl við rúmlega 200 konur um kyn- ferðisupplifun þeirra. Í kjölfar þeirrar reynslu ákvað hún að stofna samtök sem hafa það að markmiði að binda enda á ofbeldi gegn konum í heiminum, og er átakið kennt við V- daginn („Victory-day“). Þannig er árlega efnt til dagskrár, sem sam- anstendur af viðburðum sem vekja athygli á málstaðnum, m.a. með um- ræðum og listviðburðum, og geta fyrirtæki og einstaklingar lagt bar- áttunni lið, með fjárstuðningi eða annars konar framlagi. Samtökin hafa frá stofnun árið 1998 beitt sér víða, m.a. innan Bandaríkjanna, í Asíu og Afríku, og leggja þau áherslu á að vekja athygli á þeim aðstæðum sem konur búa við. Samtökin voru upphaflega stofnuð í New York, en síðan hafa sífellt fleiri bæst í hóp samtakanna og er V- dagur nú haldinn um allan heim. Vilja breyta hugarfarinu Það eru þau Birta Ósk Gunnars- dóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Edda Jónsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Logi Unnarson Jónsson og Þórey Vilhjálmsdóttir sem hafa tekið hönd- um saman um stofnun V-dagssam- taka á Íslandi í samvinnu við Borg- arleikhúsið, en verkefnið verður unnið með aðstoð og ráðgjöf Stíga- móta. Blaðamaður mælir sér mót við Þóreyju, Eddu og Björn Inga til að forvitnast um markmiðið með stofn- un samtakanna. „Markmiðið með deginum verður það sama og á hinum alþjóðlegu V- dögum, þ.e. að vekja fólk til umhugs- unar um hinar ólíku birtingarmyndir ofbeldis gegn konum í heiminum og vinna að því að binda enda á það. Á fyrsta V-deginum, sem haldinn verð- ur í Borgarleikhúsinu hinn 14. febr- úar, verða samtökin formlega stofn- uð, en þau munu vinna á móti ofbeldi gegn konum á Íslandi. – Að hvaða leyti greinir starfsemi V-dagssamtakanna sig frá samtök- um á borð við Stígamót, sem vinna að sama markmiði? „Það má segja að leiðirnar sem farnar eru að markmiðinu séu ólíkar. Við veljum eitt málefni til að vinna að í einu, og leitumst við að vekja at- hygli á því með ýmsum leiðum. Þar munum við nýta okkur fjölmiðla, lista- og menningarvettvang, efna til átaks í framhaldsskólum og reyna þannig að ná til breiðs hóps fólks. Þannig vonumst við til að styðja það góða starf sem Stígamót hafa unnið, og efla umræðuna,“ segir Þórey. „Málefnið sem við munum byrja á að einbeita okkur að eru nauðganir,“ heldur Björn Ingi áfram. „Sú leið sem við munum fara í því að vinna gegn nauðgunum er að vekja athygli á málinu og ýmsum hliðum þess. Fólk er alls ekki nógu meðvitað um hin neikvæðu áhrif nauðgana. Fæst- ir leiða hugann að því áfalli sem felst í kynferðisglæpum fyrr en þeir sjálf- ir, eða einhver nákominn þeim, verða fyrir því. Það er hins vegar mikil- vægt að fólk verði meðvitað um þessi mál, án þess að hafa beinlínis orðið fyrir nauðgun. Það er mikilvægt að skilja að kynferðisglæpir eru ekki einungis einstaklingsvandamál, heldur vandamál samfélagsins í heild.“ Edda bendir á að einnig sé mik- ilvægt að bætt verði úr þeirri með- ferð sem nauðgunarmál fái í réttar- kerfinu. „Við þurfum að byrja á að líta á almenn viðhorf fólks til kyn- ferðisglæpa og spyrja hvers vegna svo fáar nauðganir eru kærðar og enn færri nauðgarar eru dæmdir. Fyrsta skrefið er því hugarfars- breyting og öflugri umræða um þessi mál, og þarf umræðan að fara fram oftar en í kringum verslunarmanna- helgina,“ segir Edda. Fjölbreytt dagskrá og forvarnarsamkeppni – Og hvernig mun starfsemin fara af stað? „Fyrsta skrefið er að halda V-dag- inn á Íslandi í fyrsta sinn. Efnt verð- ur til dagskrár 14. febrúar í sam- vinnu við Borgarleikhúsið, þar sem flutt verður fjölbreytt dagskrá þar sem tvinnað er saman skemmtiatrið- um og umræðum og mun stór hópur fólks, allt frá sviðsfólki til þjóð- þekktra einstaklinga, leggja fram vinnu sína,“ segir Þórey. „Meðal at- riða verður upplestur úr Píkusögum, þar sem þekktar konur fara með ein- töl ásamt leikkonum úr verkinu. Þar að auki verður ljósmyndasýning til styrktar samtökunum. Þá leggja samtökin ekki síst áherslu á að ná til ungs fólks og höf- um við því efnt til samstarfs við framhaldsskóla á höfuðborgarsvæð- inu um forvarnarsamkeppni gegn kynferðisglæpum. Samkeppni verð- ur sem sagt haldin meðal framhalds- skólanema um hvernig best megi fyrirbyggja nauðganir. Besta hug- myndin verður kynnt á V-deginum og í kjölfarið munu samtökin sjá um að fjármagna hugmyndirnar í sam- ráði við sigurvegarana,“ segir Þórey. „Auk þess munum við leitast við að virkja sem flesta og verða versl- anir, kaffihús, gallerí og listasöfn hvött til að taka þátt í V-deginum á einn eða annan hátt. Hugmyndin er sú að dagurinn einkennist af gleði og ákveðni, þó svo að verið sé að taka fyrir mjög alvarlegt mál, því við vilj- um byrja á því að rjúfa þá þögn sem hvílir yfir kynferðisglæpum,“ bætir Björn Ingi við. Viðmælendur eru spurðir að lok- um hvert framhaldið verði á starf- semi samtakanna eftir V-daginn. „Við munum fylgja málefnum V- dagsins eftir, m.a. með því að hrinda af stað auglýsingaherferðum með það að markmiði að halda um- ræðunni áfram,“ svarar Þórey. „V- dagurinn verður hins vegar fastur punktur í starfseminni, og verður haldinn á hverju ári héðan í frá. Við munum auðvitað spila úr þeirri að- stöðu og fjármagni sem við höfum, en V-dagurinn er mikilvægur þáttur í fjármögnun, og vonumst við til þess að fyrirtæki og stofnanir sýni mál- efninu stuðning. Enda er hér um að ræða málefni sem varðar alla. Það má kannski álykta um að fólk upplifi sig varnarlaust og vanmáttugt gagn- vart þessum glæpum og vægum við- brögðum dómskerfisins. Hér gefst fólki því vonandi tækifæri til að leggja sitt af mörkum,“ segir Þórey að lokum. Hún bætir við að nú liggi fyrir að virkja sem flesta til að leggja hinum nýstofnuðu samtökum lið. heida@mbl.is Vilja binda enda á ofbeldi gegn konum Hópur ungs fólks hyggst efna til V-dags í Borgarleikhúsinu um miðjan febrúarmánuð og leggja með því lið baráttunni gegn of- beldi á konum. Heiða Jóhannsdóttir ræddi við hugsjónafólkið á bak við framtakið. Morgunblaðið/Þorkell Björn Ingi Hilmarsson, Ingibjörg Stefánsdóttir, Þórey Vilhjálmsdóttir, Logi Unnarsson Jónsson, Birta Ósk Gunnarsdóttir og Edda Jónsdóttir. LISTAMENN hafa næmt auga fyrir því sem fallegt er enda er eitt mikilvægasta hlutverk þeirra í samfélaginu að hjálpa öðrum að sjá fegurðina í öllu, hversu lítil- mótlegt sem það kann að vera. Í sýningarskrá segist Helga Kristrún vera að vinna með feg- urðina, feril fegurðar eins og hún upplifir hana á þeim degi sem hún vinnur verkið. Verkin eru gerð með hvítu akrýlkítti sem smurt er á striga og í kíttinu sitja álplötur sem Helga hefur rispað í línur. Línurnar, sem liggja eins og fín- gerðir silfurþræðir ofaná plötunni, minna um margt á sjóndeildar- hring, fjöll eða sjó eða árfarvegi séða úr lofti. Eins og Helga bendir á er hún að vinna með hvern dag fyrir sig og upplifun fegurðinnar á því andartaki. Því er ekki úr vegi að ímynda sér að hún sitji stundum við eldhúsborðið, horfi á fjalla- hringinn út um gluggann og rispi í plötur sínar. Helga hefur ekki verið mjög virk á sýningarvettvangi frá því að hún útskrifaðist úr Myndlista- og hand- íðaskólanum 1995 en í skólanum var sykur hennar helsti efniviður og gjörningar áberandi miðill. Hún hefur greinilega lagt sykurinn á hilluna og snúið sér að öðrum efn- um, en hvíti liturinn er þó áfram ríkjandi í verkunum. Verkin eru 12 talsins og bera nöfn mánaðanna. Verk númer eitt heitir janúar, númer tvö heitir febrúar o.s.frv. Helst má leiða get- um að því að titlarnir vísi til þess mánaðar sem verkin voru unnin í. Listamaðurinn bregður út af vananum í tveimur verkum og leggur eggjárnið frá sér. Í öðru þeirra, „Desember“, sem jafnframt er skemmtilegasta verk sýningarinnar, festir hún litla „demanta“ beint í kíttið sem kem- ur þá út eins og að hún hafi misst glitrandi eðalsteinana í desem- bersnjóinn. September eftir Helgu Kristrúnu Hjálmarsdóttur. Desem- bersnjór MYNDLIST Gallerí Sævars Karls Opið á verslunartíma til 24. janúar. LÁGMYNDIR HELGA KRISTRÚN HJÁLMARSDÓTTIR Þóroddur Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.