Morgunblaðið - 20.01.2002, Síða 35

Morgunblaðið - 20.01.2002, Síða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 35 ✝ Halldór Jóhann-esson fæddist á Hóli í Höfðahverfi 14. mars 1939. Hann lést af slysförum 11. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigrún Guð- jónsdóttir, f. 1905, d. 1989, og Jóhann- es Jónsson, f. 1904, d. 1999. Systkini Halldórs eru Árni, f. 1929, Sigríður, f. 1932, Jón Valgarð- ur, f. 1933, Sveinn, f. 1937, Þórsteinn Arnar, f. 1933, Anna, f. 1944, og Tómas, f. 1953. Halldór var ókvæntur og barn- laus. Halldór tók landspróf frá Hér- aðsskóla Suður- Þingeyinga á Laug- um og lauk prófi frá Samvinnuskól- anum á Bifröst. Hann vann við skrifstofustörf, lengst af hjá Sjáv- arafurðadeild SÍS. Útför Halldórs fer fram frá Greni- víkurkirkju á morg- un, mánudaginn 21. janúar, og hefst athöfnin klukkan 14. Af öllum þeim gæðum sem okkur veitir viturleg forsjá til ánægjuauka er vináttan dýrmætust. (Epikuros.) Það er engu líkara en aldrei ætli að linna þeirri slysaöldu sem gengið hef- ur yfir þjóðina að undanförnu. Fólk er harmi slegið. Mig setti hljóðan er mér barst til eyrna sú sorgarfrétt að vinur minn til 40 ára, Halldór Jó- hannesson, hefði látist í umferðar- slysi í Kömbunum. Við slíkar fregnir fer ekki hjá því að upp rifjast upp í huganum myndir frá liðinni tíð. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast Halldór fyrir vin og hefur aldrei skuggi fallið á vináttu okkar þau 40 ár sem við höfum þekkst. Upphaf vináttu okkar má rekja til ársins 1959 þegar Halldór settist í 1. bekk Samvinnuskólans á Bifröst. Það sem laðaði mig að Halldóri voru hinir fjölmörgu mannkostir er prýddu hann. Halldór var hæglátur maður og hæverskur og fór ekki mikið fyrir honum en við nánari kynni kom í ljós hvílíka mannkosti hann hafði til að bera. Fyrir utan það að vera farsæll námsmaður var hann hjálpsamur og greiðvikinn og vildi hvers manns vandræði leysa. Halldór var hnyttinn í tilsvörum og hrókur alls fagnaðar þegar það átti við. Það að kynnast Halldóri gerði hvern og einn að betri manni. Ég sá það á okkar löngu kynnum að hann gaf bæði ráð og lagði lið þeim sem minna máttu sín. Halldóri var margt til lista lagt og stundaði hann til dæmis íþróttir af kappi á sínum yngri árum. Hann var dágóður langhlaupari og keppti á landsmótum fyrir HSÞ meðan hann var búsettur hér norðanlands, en gerðist KR-ingur þegar hann flutti suður yfir heiðar. Halldór hafði einn- ig áhuga á knattspyrnu og fylgdist grannt með félögum sínum í KR og einnig var hann einlægur aðdáandi Manchester United og átti það til að skreppa yfir hafið til að horfa á leiki þeirra. Þá er ótalinn sá áhugi sem hann hafði á brids og sú íþrótt tengdi okkur félagana saman. Halldór helgaði Samvinnuhreyf- ingunni krafta sína og gerðist starfs- maður Sjávarafurðadeildar SÍS og síðan Íslenskra sjávarafurða þegar þeir tóku við. Halldór var fyrst bók- ari en síðan tók hann við gjaldkera- stöðu og sinnti því starfi þar til hann lét af störfum síðla árs 2000. Árlegar bridskeppnir í yfir 30 ár voru háðar milli SÍS og KEA og lét Halldór sig aldrei vanta í þær keppn- ir. Þessar keppnir styrktu vináttu- böndin milli manna. Halldóri þótti það heldur ekki ónýtt að heimsækja ættingja sína í leiðinni hér norðan heiða. Eitt af áhugamálum Halldórs var ferðalög og átti ég því láni að fagna að vera ferðafélagi hans í allmörg ár. Við vorum fimm saman í ferðaklúbbi, þ.e.a.s. Stefanía, Kristín, Halldór og við hjónin, og ferðuðumst við saman bæði erlendis og innanlands og var það venja okkar að fara eina viku á sumri í sumarbústaði hér og þar á landinu. Þessar ferðir veittu okkur ómælda gleði og fáum við seint full- þakkað þær ánægjustundir er við átt- um saman. Nú að leiðarlokum vil ég þakka vináttu og tryggð sem Halldór sýndi okkur hjónum. Ég vil færa ættingj- um og vinum Halldórs mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Í Guðs friði. Gunnlaugur Guðmundsson. Þegar okkur barst til eyrna skyndilegt og óvænt brottkall vinar okkar Halldórs Jóhannessonar setti okkur hljóða. Við gerðum okkur gleggri grein en áður fyrir því að morgundaginn eigum við aldrei vís- an. Margt kemur upp í hugann þegar komið er að kveðjustund vinar, vinar til áratuga. Fyrstu kynni okkar af Halldóri voru á hlaupabrautinni á Landsmótinu á Laugum 1961. Þar var háð hörð og eftirminnilega skemmtileg keppni. Þarna hófst vin- átta sem fór vaxandi alla tíð síðan. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síð- an og margir eru kílómetrarnir sem við höfum hlaupið saman hlið við hlið frá þeim tíma, bæði í keppni svo og á síðari árum okkur til heilsubótar og skemmtunar. Samverustundirnar treystu vináttuböndin og aldrei bar skugga á. Halldór var mikill áhuga- maður um allar íþróttir. Hann var um margra ára skeið góður hlaupari og keppti fyrir Íslands hönd í lands- keppnum. Hann hafði gaman af skák og var bridsspilari góður. Hann gerði sér glögga grein fyrir gildi íþróttanna fyrir sál og líkama. Halldór var sérstakur maður fyrir margra hluta sakir. Hann var stilltur vel og sérdeilis prúður í allri fram- komu svo leitun var á öðru eins. Hann var áberandi orðvar, hallaði aldrei orði á nokkurn mann svo sómi var af. Hann var drengur góður og ljúfur í allri viðkynningu og vann sér traust og virðingu allra sem kynntust honum. Ef þjóðmál bar á góma var gaman að rökræða við Halldór því hann var fastur fyrir og rökvís og það var lyndiseinkunn hans að halda sig við sannleikann. Samviskusamur var hann svo af bar og því fylgir gjarnan traust og ábyrgð og hana axlaði hann um langt árabil í starfi sínu. Fyrst hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga og síðar hjá Íslenskum sjávarafurðum. Gott var að vera með Halldóri í góðra vina hópi því þá var hann jafnan glettinn og glaðvær og átti þá oft eft- irminnilega hnyttin tilsvör. Það er alltaf sárt að kveðja góðan vin, ekki síst í svartasta skammdeg- inu þegar myrkrið hylur móður jörð en við trúum því og treystum að góð- ur Guð leiði góðan dreng til meiri birtu á þeirri elífðar braut sem fram- undan er. Við þökkum allar samverustund- irnar. Góðar minningar lifa. Systkinum, ættingjum og vinum sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Góður Guð blessi minningu Hall- dórs Jóhannessonar. Hafsteinn og Þórarinn. Vinur minn og fjölskyldunnar, Halldór Jóhannesson frá Hóli í Höfð- ahverfi í S-Þingeyjarsýslu, er látinn. Það er söknuður og sorg í hugum fjöl- margra vina hans og kunningja yfir sviplegu fráfalli hans í umferðarslysi að kvöldi 11. jan. sl. Fréttin um and- lát hans kom sem reiðarslag og um hana má segja það margsagða að hvert eitt slys er einu of mikið. Halldór var fæddur 14. mars árið 1939 á Hóli í Höfðahverfi, skammt frá Grenivík, að austanverðu við Eyja- fjörðinn. Hann brautskráðist frá Samvinnuskólanum á Bifröst árið 1960 og hóf störf í sjávarafurðadeild Sambands ísl. samvinnufélaga árið 1962, fyrst í bókhaldi deildarinnar en síðan sem gjaldkeri og áfram í því starfi eftir að Íslenskar sjávarafurðir höfðu tekið við starfsemi sjávaraf- urðadeildar sem sjálfstætt fyrirtæki. Halldór naut mikils álits í starfi sem sérstaklega traustur og nákvæmur en engu að síður varð Halldór einn af þeim er misstu vinnu fljótlega eftir sameiningu ÍS og SÍF eftir langan og farsælan starfsaldur hjá samvinnu- hreyfingunni og fyrirtæki hennar. Hafði hann nýlega hafið störf á nýj- um vettvangi þegar hann lést. Mér er ákaflega ljúft og skylt að minnast Halldórs og það hlýt ég að gera með miklu þakklæti fyrir 40 ára kunningsskap sem hófst eftir að ég hóf störf hjá Sambandinu haustið 1962. Varð okkur vel til vina og veitti Halldór mér nýja innsýn bæði til lík- amlegra og huglægra íþrótta þar sem ég stóð Halldóri nokkuð langt að baki enda var Halldór um það leyti einn fremsti þolhlaupari landsins og ákaf- lega liðtækur bridsspilari. Leigði ég um tíma herbergi í íbúð Halldórs í Hraunbænum og síðar eftir að ég hafði eignast eigin fjölskyldu áttum við fasteignaviðskipti þar sem Hall- dór fékk íbúð mína í Austurbrún en ég flutti með fjölskylduna í Hraunbæinn. Halldór átti ekki lengi heima í Austurbrún og keypti íbúð í Vesturbergi 120 þar sem hann bjó síðan alla tíð. Hann var mikill og góð- ur heimilisvinur okkar hjóna þótt samskiptin hafi verið mismikil eftir tímabilum og búseta hafi stundum fremur skapað vík milli vina. Eftir að ég kynntist Halldóri varð mér fljótlega ljóst að hann var mjög óvenjulegur maður. Hann var rétt meðalmaður á hæð og grannur, rauð- hærður og hálfsköllóttur frá unga aldri. Hann var prúðmenni hið mesta og næsta laus við hroka og yfirlæti, kvikur og fjörlegur í fasi og breyttist ótrúlega lítið í útliti með árunum. Vina- og kunningjahópur hans var fjölmennur. Þeir komu úr hópi skóla- félaga frá Laugum og Bifröst, úr heimi frjálsíþróttanna og bridsspila- mennsku og síðast en ekki síst af vettvangi starfa hans í gamla Sam- bandshúsinu í Reykjavik. Yfir þessu öllu var nokkur ævintýrablær í upp- hafi kynna okkar enda fylgdu íþrótta- ferli Halldórs stöðug ferðalög erlend- is á tímabili og naut Halldór þess í ríkum mæli að skoða sig um í heim- inum á þessum árum en hjúskap lét hann sitja á hakanum og niðurstaðan var sú að Halldór varð maður ein- hleypur og barnlaus. Þess voru dæmi að vinir Halldórs hvettu hann til dáða í þessu efni og því tók hann vel enda einhver sá allra snjallasti grínisti sem fólk getur kynnst á lífsleiðinni og kom sífellt á óvart með sínum tilsvör- um. Aldrei skipti Halldór skapi en var jafnlyndur og þægilegur og hann var einn þeirra sem örugglega aflaði sér ekki neinna óvildarmanna. Eitt mesta ævintýri lífs míns á ég Halldóri að þakka. Það var á fyrstu árum mínum hjá Sambandinu og vann ég þá að verkefnum úti á landi. Fékk ég þá upphringingu frá Hall- dóri og sagði hann mér að sér byðust miðar með skemmtiferð Karlakórs Reykjavíkur með skipinu Baltiku til Miðjarðarhafs og Svartahafs. Niður- staðan varð sú að við fórum þrír ung- ir menn úr Sambandinu sem klefa- félagar í þessa ferð sem tók á annan mánuð. Ferðin varð ógleymanleg enda komið til tíu landa þar sem gafst tækifæri til þess að skoða eitt og ann- að einstakt og framandi. Halldór var sökum þekkingar sinnar erlendis sjálfkjörinn leiðtogi okkar í ferðinni sem varð ærið viðburðarík. Mest eyddum við félagar tímanum við spil um borð í skipinu þá er siglt var. Mik- ið var keypt af minjagripum í ferðinni og varð Halldór fyrir þeirri ógæfu að kaupa stóran. uppstoppaðan úlfalda sem ekki fékk heimfararleyfi til Ís- lands og var að lokum varpað fyrir borð af miklu miskunnarleysi ásamt ýmsu dóti farþeganna. Ef ég man rétt teiknaði Sigmund þennan atburð og lét hjörðina vera að svamla heim til Afríkustranda. Halldór taldi hins vegar vel farið að hafa sloppið við frekari félagsskap úlfaldans enda hafði hann aldrei ætlað að kaupa hann en prúttaði um hann í gamni með smáupphæð og sat uppi með fyr- irbærið. Nú verður ekki slegið á létta strengi með Halldóri lengur. Slíkt er lífsins gangur þar sem engu verður um breytt. Það verður að segjast að enginn kemur fyllilega í staðinn fyrir hann Dóra. Mér og fjölskyldunni er nokkurs virði að hafa fengið þennan góða vin ásamt fleirum heim til okkar til þess að taka bridshring um hátíð- arnar. Mér væri það kært að fá brids- hring síðar með Halldóri í framhalds- lífinu handan móðunnar miklu. Mér er enn og aftur ofarlega í huga ómælt þakklæti fyrir það að hafa fengið að kynnast slíkum manni Ég votta ætt- ingjum hans og nánum vinum mína einlæga samúð. Blessuð sé minning Halldórs Jóhannessonar. Sigurður Kristjánsson. Um helgina barst mér sú harma- fregn heiman frá Íslandi að góður vinur og samstarfsmaður í meira en tvo áratugi, Halldór Jóhannesson, hefði farist í bílslysi í Kömbunum föstudagskvöldið 11. janúar. Enn eitt bílslysið, enn eitt dauðsfallið. Góður drengur og hvers manns hugljúfi fall- inn frá aðeins 62 ára gamall og enn stækkar sá hópur sem syrgir og á um sárt að binda vegna hörmulegra slysa í umferðinni. Halldór, eða Dóri gjaldkeri eins og við kölluðum hann í daglegu tali, var fæddur og uppalinn í norðlenskri sveit en eftir langa búsetu í höfuð- borginni má segja að hann hafi verið eins og góð blanda af sveitastrák og borgarbarni. Halldór stundaði nám í Samvinnuskólanum á Bifröst og hóf störf hjá sjávarafurðadeild Sam- bands íslenskra samvinnufélaga í upphafi árs 1962. Leiðir okkar Halldórs lágu fyrst saman sumarið 1976 þegar undirrit- aður réð sig til starfa hjá sjávaraf- urðadeildinni, en síðan fluttumst við báðir, ásamt samstarfsmönum okkar, til Íslenskra sjávarafurða hf. við stofnun þess félags árið 1991 og áfram til SÍF hf. þegar Íslenskar sjávarafurðir hf. og Sölusamband ís- lenskra fiskframleiðenda sameinuð- ust árið 1999. Sá tiltölulega litli hópur sem starf- aði í sjávarafurðadeild Sambandsins undir forustu Sigurðar Markússonar á árinu 1976 og árin þar á eftir var einstakur. Þar var valinn maður í hverju rúmi, starfsandi góður og metnaður og áræði í fyrirrúmi. Góður árangur deildarinnar í útflutningi og sölu á sjávarafurðum víða um heim vakti verðskuldaða athygli og starfs- mennirnir nutu þess að byggja upp öfluga starfsemi og vinna saman að spennandi verkefnum. Þessi hópur stóð saman og hélt saman í mörg ár og innan hans mynduðust sterk bönd ævilangrar vináttu, virðingar og trausts. Í þessum hópi lék Halldór stórt hlutverk og þar var hann mikils met- inn fyrir ósérhlífni, fagmennsku og trausta vináttu. Starf hans var mikið og erilsamt, en segja má að á árunum í sjávarafurðadeildinni hafi Halldór verið allt í senn, fjármálastjóri, gjald- keri og bókari, en deildin var ábyrg fyrir u.þ.b. hálfri veltu alls Sam- bandsins sem þá var stærsta fyrir- tæki á Íslandi. Það er ekki erfitt að ímynda sér að starfsdagur Halldórs hafi verið langur á þessum árum og vinna um helgar var frekar regla en undantekning, enda leysti hann öll verkefni af hendi án tafar og hélt sínu borði hreinu á hverju sem gekk. Það er ekki alveg út í hött að halda því fram að Halldór hafi á þessum ár- um verið margra manna maki, enda ljóst að í nútímanum og með hjálp bestu tölvutækni myndi enginn einn maður leysa öll þau verkefni sem hann hafði með höndum og leysti átakalaust og hljóðlega. Þegar árin liðu og viðskiptin héldu áfram að aukast kom tæknin til hjálp- ar og að auki réð Halldór sér til að- stoðar Guðrúnu Helgadóttur gjald- kera, en frábær samvinna þeirra ásamt aukinni tækni leiddi til þess að Halldór gat leyft sér að vinna eðlileg- an vinnudag og taka sér frí um helg- ar. Þegar samstarfsmenn í sjávaraf- urðadeild og síðar hjá ÍS gerðu sér glaðan dag var Halldór með sinni fal- legu framkomu aufúsugestur. Glað- værð, glettni og hnyttin tilsvör hans vöktu góðan anda í hópnum og minntu á þá góðu vináttu sem mynd- ast hafði í gegnum árin. Veiðiferðir með vinnufélögum í fjármála- og bók- haldsdeild voru oft rifjaðar upp í góðu tómi þar sem fram kom að framlag Halldórs til eflingar vinátt- unni var oft meira en veiðin sjálf. Áhugamál Halldórs tengdust íþróttum og sjálfur var hann góður íþróttamaður, langhlaupari og knatt- spyrnumaður. Hann var KR-ingur og studdi sína menn á hverju sem gekk og lét sig sjaldan vanta á völlinn. Halldór var einnig mikill áhugamað- ur um enska fótboltann og ferðaðist til Englands með sínum góða vini og samstarfsmanni, Sveini Hreinssyni, og fleirum, til þess að fylgja eftir sínu uppáhaldsliði, Manchester United. Það er margs að minnast frá liðn- um árum og margar minningarnar tengjast vinnunni og því sem henni fylgir, enda sá staður þar sem fólk er hvað mest samvistum. Ég veit að við sem störfuðum með Halldóri í mörg ár munum finna til saknaðar og tóm- leika við þá tilhugsun að þessi kæri vinur okkar og samstarfsmaður sé allur. Við minnumst hans með virð- ingu og trega og biðjum Guð að blessa minninguna um góðan dreng. Benedikt Sveinsson. Í kvöld, þegar ysinn er úti og annríkið hverfur og dvín, þá komum við saman og syngjum, unz sjöstjarna á himninum skín. Því andinn á heiðríkan himin í hvíld eftir stormþungan dag, og allt, sem er göfugt til gleði, það geymist í söngvum og brag. Þótt vindsvalur vetur sé úti og vorblíðan langt suðr í geim, þá syngjum við sólskin í bæinn og sumarið til okkar heim! (Fr. G.) Farinn ertu, Dóri minn, það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti þeg- ar hringt var í mig á laugardaginn og mér tilkynnt að þú værir látinn. Þú ert annar með stuttu millibili sem hverfur á braut úr Fótboltaklúbbn- um BJÓÐUM UPPÁ F----- og báðir hélduð þið með Man. Utd. Engum hefði dottið þetta í hug fyr- ir eins og þremur mánuðum. Hlut- irnir eru ekki lengi að gerast. Ég kynntist þér haustið 1994 en þá fór- um við til Manchester til þess að horfa á leik í enska boltanum og taka lagið í Bítlabænum Liverpool. Það voru engin leiðindi í þeirri ferð þar sem þú og Svenni voruð hrókar alls fagnaðar. Það sem svo kom frá þér voru svo miklir gullmolar að þeir gleymast seint. Við höfum farið í þær nokkrar ferðirnar á þessum árum og sú síðasta var í fyrra þegar við fórum til London. Þú lést þig ekki vanta þegar þú heyrðir eitthvað minnst á fótbolta, hvort sem það var KR eða Manchest- er United, í ferðina skyldir þú fara, svo mikið dálæti hafðir þú á þessari íþrótt. Mér er líka minnisstætt þegar þú og Svenni fóruð til Newcastle á undan hinum ásamt Gogga og Hörpu svona rétt til þess að hita borgina upp áður en við hinir kæmum. Það er svolítið skrítið að hugsa til þess að þú og Goggi hafið kvatt þetta líf, en þið hittist nú alveg örugglega á ný þar sem þið munuð verða í góðum félagsskap hvor annars og fylgist spenntir með gengi ykkar manna. Þið verðið með okkur í anda og ávallt í huga þegar farnar verða fótbolta- ferðir í framtíðinni og verður minn- ing ykkar höfð í heiðri. Ég skal sjá til þess. Dóri minn, þú hafðir góðan mann að geyma, alltaf hress og kátur og alveg hafsjór af fróðleik um boltann. Mig langar að senda öllum að- standendum, ættingjum og vinum mínar innilegustu samúðarkveðjur, minning um góðan dreng lifir. Jón Helgi Sigurðsson. HALLDÓR JÓHANNESSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.