Morgunblaðið - 20.01.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.01.2002, Blaðsíða 44
FRÉTTIR 44 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Opið hús í dag milli kl. 14-17 Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050 www.hofdi.is Brautarás 1 Í dag býðst þér og þínum að skoða þetta fallega 213 fm endaraðhús sem er á tveimur hæðum. Parket og flísar eru á gólfum, glæsilegur arinn er í stofu, fjögur góð svefnherbergi. Tvöfaldur 42 fm bílskúr er við húsið. Verð 22,5 millj. Jón og Helga bjóða ykkur velkomin. Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali F A S T E I G N A S A L A SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK SÍMI 533 1616 FAX 533 1617 DEILDARÁS 2 - EINBÝLI OPIÐ HÚS Í DAG 14 -17 OPIÐ Á LUNDI Í DAG KL. 12-14 Þetta vinalega og sjarmerandi eldra einbýlishús er til sölu. Það stend- ur á 1.100 fm eignarlóð á frábærum útsýnisstað rétt við Elliðaárdalinn. Húsið er skráð 131 fm og skiptist í neðri hæð með stofu, borðstofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi og efri rishæð með miðrými og 4 góðum svefnherbergjum. Húsið hefur töluvert verið endurnýjað á smekklegan hátt á allra síðustu árum. Bílskúrinn er 39 fm og þarfnast standsetningar. Verð 17,9 millj. HÚSIÐ ER TIL SÝNIS Í DAG MILLI KL.14 OG 17. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Vel staðsett 346 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 48 fm innbyggð- um bílskúr. Á neðri hæð eru stór forstofa, gesta wc, hol, alrými, 3 her- bergi og geymsla. Uppi eru stórar stofur, arinnstofa, eldhús, þvotta- herb., 1 svefnherbergi auk fataherbergis og flísalagt baðherbergi. Svalir, fallegt útsýni yfir Reykjanesfjallgarð. 1.174 fm ræktuð lóð. Áhv. húsbr. 6,8 millj. Verð 29,5 millj. Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin. Sunnuflöt 35, Garðabæ Opið hús frá kl. 14-16 Nýkomin skemmtileg ca 80 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýli. Rúmgóð herbergi. Parket. Þvottahús á hæðinni. Íbúðin er laus nú þegar. Verð 9,7 millj. 87146 Hraunhamar, Bæjarhrauni 10, sími 520 7500 Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764 Sléttahraun - Hf. Laus strax Vorum að fá í sölu ca 190 fm glæsilegt einbýlishús á einni hæð. Húsið er vel skipulagt að innan og allar innréttingar mjög vandaðar. Góð gólfefni og garður í mikilli rækt. Mjög rúmgóður sólskáli m. parketi. Rúmgóður innbyggður bílskúr. Verð 21,9 millj. áhv. 8 millj. í húsbr. Sjón er sögu ríkari. Verið velkomin. Sölumaður á staðnum. OPIÐ HÚS í dag kl. 15-17 Aratún 5 - Garðabæ www.holtfasteign.is Í glæsilegu og reisulegu húsi á þessum frábæra stað eru við með til sölu ca 152 fm (gólfflötur stærri) efri sérhæð og ris auk bílskúrs. Hús og íbúð hafa verið mikið endurnýjuð m.a. er öll rishæðin byggð 1994. Íbúðin er mjög björt og falleg og með þrennum svölum og útsýni. Opið hús er á eigninni í dag milli klukkan 14 og 17 og taka Már og Halla vel á móti fólki. Nánari upplýsingar gefur Einar Guðmundsson sölustjóri í síma 896 8767. Flókagata 39, hæð og ris auk bílskúrs Opið hús í dag www.holtfasteign.is Sími 575 8500 • Fax 575 8505 Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík BREIÐAVÍK 21 - OPIÐ HÚS Í DAG Í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16 verður til sýnis stórglæsileg og óvenju vönduð 3ja herb. 95 fm íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýli. Íbúðin er m.a. stofa m. rúmgóðum suðursv., (svalir 16,2 fm), tvö rúmgóð svefnherb., glæsilegt eld- hús með sérsmíðaðri kirsuberjainnr., afar vandað flísalagt bað í hólf og gólf. Flísalagt þvottaherb. í íbúð. Parket (hlynur) og flísar á gólfum. Áhv. 8,3 m. húsbréf. Verð 13,6 m. Vönduð íbúð fyrir fagurkera. Myndir á netinu. Selj- endur eru Arnar og Ásthildur, sími 898 3940. BLÁSALIR - KÓPAVOGI Nútímalegar og glæsilegar íbúðir í háhýsi á glæsilegum útsýnisstað í Kópavogi. 2ja herb. 78 fm, 3ja herb. 100 fm og 4ra herb. 124 fm. Allar íbúðir afh. tilbúnar án gólfefna. Mjög góð- ur útifrágangur. Opið í dag frá kl. 13–16. Sími 551 7270 og 551 7282. Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. fasteignasali. SIGRÍÐUR Þorgeirsdóttir heim- spekingur heldur fyrirlestur í hádeg- isfundaröð Sagnfræðingafélags Ís- lands sem hún nefnir „Hver erum „við“?“, þriðjudaginn 22. janúar kl. 12.05–13, í stóra sal Norræna húss- ins. Hann er opinn öllu áhugafólki um sögu og menningu. Í fyrirlestrinum verður spurt: Hver erum „við“ í evrópsku sam- hengi? Hafa Evrópubúar nógu sterk samkenni til að réttlætanlegt sé að tala um þá sem einn hóp? Getur skapast samstöðuvitund meðal hinna ólíku þjóða sem byggja álfuna? Sigríður Þorgeirsdóttir er dósent í heimspeki við Háskóla Íslands. Doktorsritgerð hennar um heim- speki Friedrichs Nietzsche, sem hún varði við Humboldt-háskólann í Berlín 1993, var gefin út í Þýskalandi 1996. Hún kenndi heimspeki við há- skólann í Rostock 1993–97. Út hefur komið greinasafn um feminíska heimspeki eftir hana, „Kvenna meg- in“, í ritröð Hins íslenska bók- menntafélags um íslenska heim- speki, segir í fréttatilkynningu. Evrópsk vitund og samveldi Evrópu KLETTURINN í Hafnarfirði hefur gengið inn í samstarf með Hvíta- sunnuhreyfingunni á Íslandi og starfar sem sjálfstæð kirkja með að- setur í Hafnarfirði undir nafninu Hvítasunnukirkjan Kletturinn. Alfa námskeið hefst með kynningu sunnudaginn 20.janúar kl.13, en kennsla hefst síðan fimmtudaginn 24. janúar kl.19. Einnig er væntan- legur til Klettsins frá Ástralíu Dave Smethurst frá Ástralíu og mun hann dvelja hér á landi til 10. febrúar. Hvítasunnukirkjan Kletturinn er með fjölskyldusamverur alla sunnu- daga kl.11 með efni sem höfðar til allrar fjölskyldunar. Allir þeir sem áhuga hafa eru velkomnir á samver- ur klúbbsins, segir í fréttatilkynn- ingu. Námskeið og fundir hjá Klettinum SPRON opnar tvö ný útibú í Ár- múla 13a mánudaginn 21. janúar. Annars vegar er um að ræða útibú þar sem lögð er áhersla á að veita einstaklingum og fjölskyldum per- sónulega þjónustu og ráðgjöf í fjár- málum. Útibússtjóri er Ari Berg- mann Einarsson sem jafnframt er útibússtjóri hjá SPRON í Skeifunni. Í Ármúla 13a verður einnig sér- stakt fyrirtækjaútibú þar sem fyrir- tæki og félagasamtök munu njóta sérhæfðrar þjónustu hjá starfsfólki sem býr yfir mikilli þekkingu á mál- efnum fyrirtækja. Útibússtjóri fyrirtækjaútibús er Lárus Sigurðs- son, en hann hefur undanfarin ár veitt Fyrirtækjaþjónustu SPRON forstöðu. Mjög einfalt verður fyrir fyrirtæki að færa viðskipti sín yfir í hið nýja fyrirtækjaútibú og munu þau halda sömu reikningsnúmerum, segir í fréttatilkynningu. Þjónusta fyrir fyrirtæki verður áfram í boði á öllum afgreiðslustöðum SPRON. Samhliða opnun útibúanna flytja yf- irstjórn og fagsvið SPRON í Ármúla 13a. SPRON opnar tvö ný útibú Veggklukka aðeins 2.000 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.