Morgunblaðið - 20.01.2002, Qupperneq 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Unnur Ingólfsdóttir 467 3149
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Heimisdóttir 465 1117
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
BÆNIN er furðuleg smíð,undarlegt tæki. Maðurspennir greipar, lýturhöfði og er fyrr en varirkominn í samband við
almættið, Guð sjálfan.
En þetta er framandi sann-
leikur í augum margs nútíma-
mannsins, hálfgert vafaatriði. Í
raun ætti það að vera algjörlega á
hinn kantinn, þ.e.a.s. að maðurinn
ætti ekki að þurfa að efast um
þetta í byrjun 21. aldar, þar sem
hver múrinn af öðrum, sem
löngum var talinn óvinnandi vígi,
er að hrynja fyrir tilstilli vís-
indanna. Og allt virðist mögulegt.
En með bænina virðist gegna öðru
máli á þeim bæ. Mönnum hættir
til að merkja hana forneskjunni,
þeim tíma, er myrkur grúfði yfir
heimi þekkingarinnar og mann-
kynið „vissi ekkert í sinn haus“.
En þetta viðhorf margra hinna
lærðu nú til dags minnir óneit-
anlega á líkinguna um bjálkann og
flísina, sem Jesús kennir okkur í
Nýja testamentinu. Nútímamað-
urinn telur sig greina flísina, sem í
þessu tilfelli er bæn hins trúaða
manns, en fattar ekki bjálkann í
auga sér. Ef við skoðum þetta nán-
ar verður þetta svo augljóst.
Vísindin segja: Nú virðist ekki
nokkur vafi leika á því, að hugs-
anaflutningur geti átt sér stað.
Miðlar eru t.a.m. álitnir, vitandi
eða óafvitandi, geta lesið hugsanir
þess fólks, sem kemur til þeirra í
von um að ná sambandi við látna
ástvini. Og gerðar hafa verið til-
raunir af svipuðum toga, þar sem
maður hefur verið í lokuðu her-
bergi, en annar víðs fjarri. Og
mælanlegur árangur hefur náðst.
Meira að segja hafa menn gert
þessa tilraun þar sem annar að-
ilinn hefur verið á norðurheim-
skautinu, en hinn í einhverri stór-
borg Bandaríkjanna, og fengið
marktækar sannanir fyrir hugs-
anaflutningi. Og þá spyr ég: Ef
menn geta haft samband inn-
byrðis á þennan máta, hvers vegna
ætti þá maðurinn ekki að geta haft
samband við Guð með sömu að-
ferð?
Hér er annað dæmi. Þú lyftir
upp símtóli, gerðu af mennsku
hugviti, stimplar inn ákveðnar töl-
ur, og þér er svarað umsvifalaust.
Hér skiptir engu máli hvort þú
ætlar að hringja vestur á firði,
norður á Kópasker, til Ástralíu
eða Kína. Fjarlægðin er engin
hindrun. Og ég spyr aftur: Ef þú
getur tekið upp símtól og rætt við
mann úti í heimi, rétt eins og að
drekka vatn, hvers vegna ættir þú
ekki að geta náð sambandi við al-
mættið, höfund þess einstaklings,
sem fann upp símann? Því skap-
arinn hlýtur að vera máttugri
sköpun sinni, Guð fremri mann-
inum. Eða hvað?
Fyrir mér er þetta ekkert
vandamál. Ég sé hvað maðurinn
getur, almættið hlýtur að geta
meira. Svo einfalt er það.
En vísindin eru því miður ekki á
þessu sama máli, a.m.k. hef ég
ekki rekist á neina allsherjar yf-
irlýsingu að því lútandi, kannski
vegna þess, að Guð er ekki til að
þeirra skilningi. Þó eru í hópi vís-
indamanna margir, sem eru farnir
að draga þann sannleik í efa, og
vilja meina, að þessi tilvera fái
hreint ekki staðist, nema að á bak
við hana sé alheimsvitund, einhver
hugur, er stjórni. Albert Einstein,
sá vitri maður, var í þessum hópi,
og fullyrti einmitt þetta, að veröld
án Guðs væri óhugsandi mögu-
leiki. Eitthvað hlyti að liggja að
baki þessari furðusmíð, alheim-
inum.
Og það er trú mín, að fleiri eigi
eftir að ganga í þennan hóp. Því
fyrr eða síðar munu vísindin rek-
ast á múr, sem ekki er hægt að
brjótast í gegnum; almættið verð-
ur ekki rannsakað eins og einhver
torkennileg fluga.
Samband okkar við Guð á að
vera eins og samband okkar við
foreldrana. Það á ekki að vera
þögn og afskiptaleysi, heldur
ævarandi samtal í gleði jafnt sem
raun, í sæld og þraut. Og til þess
er bænin okkur gefin. Hún er lífs-
þráður trúarinnar, lífæð krist-
indómsins. Því meir sem hún er
notuð, þeim mun sterkari verður
hún. Þetta er eins og með æða-
kerfi líkama þíns. Ef ekki er stöð-
ugt blóðrennsli til líffæranna
skemmast þau fljótt og líkaminn
deyr. Fái þau hins vegar súrefni
og næringu munu þau styrkjast og
duga vel þegar á bjátar.
Margir spyrja: Hvers vegna
ætti ég að biðja? Ég er vel krist-
inn, mæti á sunnudögum í kirkju
og hlusta á Guðs orð, og reyni að
hegða mér eins og kristnum manni
sæmir. Þá er svarið: Mundu hvað
Jesús gerði. Hann var margfalt
betri en þú og ég, hann var sonur
Guðs, en hann taldi sig ekki of góð-
an til þess að falla á kné í bæn. Og
ef honum var þörf að biðja föður
sinn um aðstoð, hversu miklu
fremur ættum við þá ekki að gera
hið sama? Ef meistarinn gerir eitt-
hvað fylgir lærisveinninn í spor
hans. Það liggur í hlutarins eðli.
Og annað hitt, að við erum stærst
þegar við krjúpum í auðmýkt og
neyð við fótskör almættisins.
Vísdómurinn, sem fólginn er í
þessum merka degi, er sumsé
þessi, að bænin er taug sem má
ekki slitna, farvegur sem má ekki
stíflast. Án hennar visnar trúin
nefnilega og deyr.
Bænasíminn
Í dag er bænadagur að vetri, samkvæmt
fornu tímatali. Af því tilefni veltir Sigurður
Ægisson fyrir sér þessum undraþræði,
bæninni, sem trúin getur ekki verið án,
eigi hún að lifa og dafna.
saeson@islandia.is
HUGVEKJA
SKIPULAG bráðalækninga utan
sjúkrahúsa er ekki nógu vel sam-
ræmt hér á landi og þörf er á að bæta
þjálfun heilsugæslulækna og koma á
betra samræmi í þessum efnum.
Þetta kom fram í umræðu um skipu-
lag bráðalækninga utan sjúkrahúsa
á læknadögum sem lauk á föstudag.
Þórir B. Kolbeinsson, formaður
Félags ísl. heimilislækna, stýrði mál-
þingi um bráðalækningar og sagði
hann í inngangsorðum að skipulag
þessara mála væri ekki nógu vel
samræmt hérlendis. Colville Laird,
breskur sérfræðingur í heimilis-
lækningum, sagði frá uppbyggingu
þjálfunar og símenntunar í Skotlandi
sem hann starfar einnig við. Hann
sagði góð viðbrögð lækna utan
sjúkrahúsa nauðsynleg og ekki síst
væri nauðsynlegt fyrir lækna í dreif-
býli að geta tekið á ýmsum vanda
sem upp kemur enda væri við því bú-
ist af íbúum. Þeim væri mikilvægt að
hafa fullt sjálfstraust því að annars
væri hætta á að þeir hyrfu frá störf-
um í dreifðum byggðum og afskekkt-
um.
Laird sagði reglulega boðið uppá
námskeið fyrir landsbyggðarlækna í
Skotlandi og væri af því góð reynsla.
Þar væri farið í endurlífgun eftir
ýmsa áverka og veikindi, ýmis atriði í
barnalækningum og fæðingarfræði,
meðferð við losti og sársauka og
ýmsum vanda sem tengist slysum.
Sagði hann nauðsynlegt að læknar
sæktu námskeið sem þessi jafnvel á
þriggja ára fresti til að halda sér vel
við.
Þórir B. Kolbeinsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að nauðsynlegt
væri að auka þjálfun heilsugæslu-
lækna hérlendis á þessum sviðum.
Hann sagði hverja heilsugæslustöð
hafa ákveðið vaktsvæði og ákveðinn
búnað og nauðsynlegt væri að sam-
ræma þjálfun og skipulag bráða-
lækninga. Segir Þórir lækna veigra
sér við að fara til starfa á lands-
byggðinni ef þeir eru ekki vel búnir
undir bráðalækningar. Jón Baldurs-
son, yfirlæknir á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi, segir ýmislegt
vera gert í símenntun lækna en ekki
hefði kannski verið nóg gert hvað
varðar landsbyggðarlækna sérstak-
lega og sagði hann æskilegt að þjóna
þeim betur. Báðir töldu læknarnir of
naumt skammtað í þessum efnum í
læknanáminu. Jón Baldursson sagði
brýnt að þróa sérstakt skipulag fyrir
Ísland varðandi bráðalækningar ut-
an sjúkrahúsa. Sjálfsagt væri að taka
mið af ýmsu sem Skotar bjóða upp á,
t.d. námskeiðunum.
130 þyrluflug á síðasta ári
Friðrik Sigurbergsson þyrlulækn-
ir kynnti starf þyrlulækna sem nú
eru sex og starfa með þyrluáhöfn
Landhelgisgæslunnar. Þyrlurnar
fóru í 130 útköll á síðasta ári, 74 ferð-
ir yfir land, sjö yfir sjó og í 49 skipti
var farið í leit og björgun bæði yfir
landi og sjó. Hann sagði þyrluna vera
kallaða til þegar önnur farartæki
komast ekki á vettvang og að oft
væri mun fljótlegra að koma sjúk-
lingum á spítala með þyrlunni.
Þyrlusveitin væri fær um að veita
læknishjálp og flytja nauðsynleg
tæki á vettvang. Hann sagði ástæður
útkalla skiptast nokkurn veginn í
þrennt: fólk í lífshættu, fólk sem væri
nokkuð slasað og fólk sem hefði hlot-
ið minni meiðsli, t.d. beinbrotnað.
Vilja betra skipulag á bráða-
lækningum utan sjúkrahúsa
450 þúsund plöntur
gróðursettar á vegum
Norðurlandsskóga
Áætlað að 90
skógarbænd-
ur taki þátt
ÁÆTLAÐ er að um 12 ársverk hafi
skapast á Norðurlandi á liðnu ári í
tengslum við Norðurlandsskóga.
Alls gróðursettu 43 skógarbændur
um 450 þúsund plöntur á síðasta ári
á vegum þessa verkefnis. Að með-
altali var gróðursett í um fjóra hekt-
ara á hverri jörð.
Verkefnið Norðurlandsskógar
hefur verið kynnt sem öflugt skóg-
ræktar- og byggðaverkefni og þykir
því brýnt að byggja verkefnið áfram
upp. Þannig hafa um 16% lögbýla í
ábúð í Norður-Þingeyjarsýlsu sótt
um þátttöku í verkefninu og mun það
því án efa hafa góð áhrif á búsetu
fólks á svæðinu. Í suðursýslunni er
hlutfallið 8,7%, 4,7% í Eyjafirði, 8,7%
í Skagafirði, 8,3% í Austur-Húna-
vatnssýslu og 9,9% í vestursýslunni.
65 jarðir á biðlista
Síðasta sumar voru 44 nýjar skóg-
ræktarjarðir kortlagðar á vegum
Norðurlandsskóga og um haustið
var 31 ný jörð tekin inn í verkefnið.
Staðan í lok árs var sú að alls eru 65
jarðir á biðlista þannig að greinilegt
er að áhugi er fyrir hendi meðal
bænda á að taka þátt í verkefninu,
enda getur það skapað verulegar
viðbótartekjur á búunum
Á þessu ári, 2002, er áætlað að um
90 skógarbændur taki þátt í Norður-
landsskógaverkefninu. Gert er ráð
fyrir að fjárveiting nemi 80 milljón-
um króna. Af þeirri upphæð er áætl-
að að um 26 milljónir króna fari í
plöntukaup og um 24 milljónir vegna
gróðursetningar, girðinga og jarð-
vinnslu. Þá er í fjárhagsáætlun
Norðurlandsskóga gert ráð fyrir
skjólbeltarækt, áætlanagerð og
skipulagsvinnu, launum, húsnæði og
tækjakaupum.
Lýst eftir
vitnum
LÝST er eftir vitnum að umferðar-
óhappi er varð á bifreiðastæði fram-
an við Síðumúla 13 mánudaginn 14
janúar sl. milli kl. 13 og 15 Þar var
ekið utan í hægri hlið bifreiðarinnar
VF-571 sem er Hyundai Coupe
svartur að lit. Vitni og/eða tjónvald-
ur að óhappinu eru beðin um að hafa
samband við umferðardeild lögregl-
unnar í Reykjavík.