Morgunblaðið - 20.01.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.01.2002, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                               !!"#  $     "     & "    '!!"#  $    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. HINN árlegi Biblíudagur er sunnu- daginn 3. febrúar og er þá í kirkjum landsins minnst þess hlutverks sem Hið íslenska Biblíufélag gegnir fyrir hönd íslenskrar kristni sem er út- gáfa og dreifing heilagrar ritningar. Hið íslenska Biblíufélag er þátttak- andi í Hinum sameinuðu Biblíu- félögum sem eru samtök þeirra 137 Biblíufélaga sem eru starfandi í heiminum. Söfnunarstarf hefur alla tíð verið mikilvægur og gefandi þáttur í starfsemi Biblíufélaganna. Alls staðar þar sem kristin trú er boðuð er þörf fyrir Biblíuna. Starf Bibl- íufélaganna hefur því aldrei einskorð- ast við eigið land heldur alla tíð verið alþjóðlegt. Hið íslenska Bibl- íufélag hefur í tengslum við Biblíu- daginn ár hvert efnt til söfnunar. Að þessu sinni er safn- að til styrktar Bibl- íufélaginu í Rúmen- íu sem er í samvinnu við heim- ili götubarnanna í Búkarest um að út- vega Barnabiblíur og að kenna börn- unum að þekkja boðskap hennar. Í miðri Búkarest er rekið heimili fyr- ir götubörn og dyr þess standa alltaf opnar, hvort sem er að degi eða nóttu. Þangað geta börnin komið og fengið heita máltíð og farið í bað. Og þar er les- ið fyrir þau úr Biblí- unni. Eftirfarandi frásögn lýsir heim- sókn fulltrúa Sam- einuðu Biblíufélaganna á heimilið: Það var mánudagsmorgunn, og 10 börn sátu saman og tóku við Biblí- unum úr höndum starfsmanns Bibl- íufélagsins í Rúmeníu. Síðan byrj- uðu þau að lesa úr Biblíunni til skiptis. Þegar kom að hinni 12 ára Alexöndru las hún reiprennandi úr 1. kafla Lúkasarguðspjalls: „Vald- höfum hefur hann steypt af stóli og upp hafið smælingja, hungraða hef- ur hann fyllt gæðum, en látið ríka tómhenta frá sér fara.“ Þessi orð hafa alveg sérstaka merkingu fyrir Alexöndru, sem þekkir vel hvað hungur er og, þrátt fyrir sína stuttu ævi, hefur mátt þola miklar þjáningar. Silvia Dea- conu, sálfræðingur, sem starfar á heimilinu þekkir vel til sögu Alex- öndru. „Alexandra veit ekki hver faðir sinn er og hún sér næstum aldrei áfengissjúka móður sína. Einn dag þegar hún þoldi harðræðið ekki lengur hljópst hún að heiman. Á akri rétt fyrir utan Búkarest bjó hún sér til sinn eigin kofa úr spýtum sem hún breiddi plast yfir. Hún vinnur fyrir sér með betli og selur ýmsan varning á götuhornum þar sem bílar bíða á rauðu ljósi eftir að komast yfir. Þetta er svo harð- neskjulegt líf að við getum varla ímyndað okkur það,“ heldur dr. Deaconu áfram og leggur handlegg- inn hlýlega utan um litlu stúlkuna. „En Alexandra er dugleg stúlka og staðráðin í að mennta sig. Eld- snemma á hverjum morgni fer hún á fætur, fer í slitnu úlpuna sína og setur á sig rauðu prjónahúfuna sem hún vill alltaf ganga með og heldur af stað í skólann og er mætt þar klukkan 8 tilbúin fyrir kennslustund dagsins. Allir þeir fullorðnu sem tengjast Alexöndru hafa brugðist henni, en hér á heimilinu reynum við að vinna traust hennar og hjálpa henni að byggja upp sjálfstraust og öryggi. Við kennum öllum börnunum sem hingað koma hvað Biblían segir okk- ur um Guð, að hann skapaði okkur og er annt um okkur öll. Og raunin er sú, að götubörnin eru mjög mót- tækileg fyrir trúna og þau kenna jafnvel hvert öðru bænir sem þau hafa lært hér. Orð Guðs veitir þeim huggun í sínum erfiðu aðstæðum, en það gefur þeim einnig meiri per- sónulegan og siðferðilegan styrk sem hefur hjálpað mörgum þeirra til að yfirgefa götuna.“ Þeir fjármunir sem safnast hér á Íslandi verða notaðir til kaupa á Barnabiblíum sem rúmenska Biblíu- félagið mun dreifa á heimilum götu- barnanna í Búkarest og í skóla. Ein Barnabiblía kostar ekki nema 400 kr. Söfnunarreikningur félagsins er nr. 0101-26-3555 JÓN PÁLSSON, framkvæmda- stjóri Hins íslenska Biblíufélags. Biblíudag- urinn 2002 Frá Jóni Pálssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.