Morgunblaðið - 20.01.2002, Page 49

Morgunblaðið - 20.01.2002, Page 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 49 Allir fylgihlutir fyrir dömu og herra Mikið úrval af samkvæmisfatnaði Efnalaug og fataleiga Garðabæjar Opið alla daga frá kl. 10-19, laugardaga frá kl. 10-14. Garðatorgi 3, sími 565 6680 Glæsilegir brúðarkjólar Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500 Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937 Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is n t v .i s nt v. is n t v .i s Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þjálfun í sölumennsku og notkun tölvutækninnar á þeim vettvangi. -Sölu og tölvunám Hlutverk sölumanns Vefurinn sem sölutæki Tölvupóstur og Internetið Mannleg samskipti Sölu- og viðskiptakerfi Verslunarreikningur Windows - Word - Excel - Power Point Tímastjórnun Markaðsfræði Sölutækni Auglýsingatækni Myndvinnsla og gerð kynningarefnis Lokaverkefni Helstu námsgreinar Rúnar Ívarsson Sölumaður á fasteignasölunni Húsin í bænum Frá árinu 1990 starfaði ég að mestu leyti sem sendibílstjóri. Ég hafði alltaf sterka löngun til að mennta mig meira og eftir að hafa kynnt mér það sem var í boði ákvað ég að fara á Sölu- og tölvunám hjá NTV. Eftir námið kom ég tvíelfdur út á markaðinn með góðan grunn og innsýn í það sem góður sölumaður þarf að hafa. Námið opnaði hjá mér nýja möguleika til að komast inn á vinnumarkaðinn aftur í störf sem voru mér fjarlæg áður. Takk fyrir mig! Nýtt 264 stunda kvöldnámskeið hefst 26. janúar. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00-22:00 og laugardögum kl 13:00-17:00 Upplýsingar og innritun í símum 544 4500 og 555 4980 og á www.ntv.is Kennd er gerð og uppsetning auglýsinga, blaða og bæklinga. Vinnuferlið er rakið, allt frá hugmynd að fullunnu verki. Námið er 156 kennslustundir. Enn eru sæti laus á kvöldnámskeið sem byrjar 2. febrúar og síðdegisnámskeið sem byrjar 29. janúar. Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 Hlíðasmára 9 - 201 Kópavogi - Sími: 544 4500 Eyravegi 37 - 800 Selfossi - Sími: 482 3937 Póstfang: skoli@ntv.is - Veffang: www.ntv.is Atækni Myndvinnsla í Photoshop Teikning í Freehand Umbrot í QuarkXpress Samskipti við prentsmiðjur og fjölmiðla Meðferð leturgerða Meðhöndlun lita Lokaverkefni Helstu námsgreinar uglýsinga- n t v . is nt v. is n tv .i s K la p p a ð & k lá rt / ij KÖNNUN Gallup fyrir Morgun- blaðið á viðhorfi landsmanna til auðlindanýtingar gefur vísbend- ingar um afstöðu þjóðarinnar í þessum efnum. Til þess að fá ná- kvæma vitneskju um viðhorfin þarf þó ítarlegri rannsókn þar sem spurt væri fleiri spurninga og helst yfir ákveðið tímabil líka til þess að athuga hvort viðhorfs- breytingar hafa orðið í þessum efnum, sem gera má ráð fyrir að hafi orðið, að sögn Ólafs Harð- arsonar, prófessors í stjórnmála- fræði við Háskóla Íslands. Um síðustu helgi sagði Morg- unblaðið frá niðurstöðum viðhorfs- könnunar Gallup fyrir Morgun- blaðið gagnvart nýtingu auðlinda hafsins, nýtingu fallvatna og nýt- ingu jarðhita. Ólafur sagði að þessar spurningar væru tiltölulega almennar og einar sér segðu nið- urstöðurnar ekki mjög mikið. Samt sem áður mætti ráða af nið- urstöðunum að meðal þjóðarinnar væru umtalsverðar áhyggjur vegna ofveiði og töluverður hluti þjóðarinnar hefði efasemdir um mjög auknar virkjanir. Aftur á móti væri ekki fyrirliggjandi vitn- eskja um hvað þetta væru fastar skoðanir. Vaxandi umhverfis- hyggja virtist birtast í að það væru umtalsverðar efasemdir um að minnsta kosti mikla frekari nýt- ingu fallvatna en menn virtust hafa miklu minni efasemdir um jarðhitann. Þegar hann var spurður um hvort þörf væri á ítarlegri rann- sóknum á þessu sviði með reglu- legu millibili sagði Ólafur að þær væru mjög forvitnilegar. Umhverf- ismál hefðu komið með vaxandi þunga inn í stjórnmálaumræðuna og það væri mjög æskilegt að gera athuganir af þessu tagi með reglu- legu millibili. Reyndar væru ýmsar upplýsingar fyrir hendi aftur í tím- ann hvað þetta snerti og það væri mjög gagnlegt að taka þær saman til þess að reyna að átta sig á því hvernig viðhorfin hafa breyst. Hann ætti reyndar einhver gögn í þessum efnum sem hann væri að vinna í og niðurstöðurnar ættu að koma út á bók áður en mjög langt um líður. Þar yrði farið dálítið aft- ur í tímann, en langtímarannsókn- ir væru forvitnilegastar hvað þetta snerti til að sjá sveiflur og einnig til þess að sjá hvort afstaðan í þessum efnum breytist eftir efnahagsástandi, sem væri ekki vitað. Það væri mjög fróðlegt að sjá hvort samband væri á milli skoðana í þessum efnum og hag- sveiflna. „Þetta er mjög verðugt og merkilegt rannsóknarefni. Þetta tengist líka því sem við höfum ekki skoðað nógu vel, hvort afstaðan á þessu sviði hefur til dæmis haft áhrif á hvað menn kjósa í kosn- ingum. Ég ætla að reyna að varpa einhverju ljósi á það,“ sagði Ólafur ennfremur. Athyglisverður munur hvað varðar einstakar auðlindir Hafsteinn Már Einarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Gallup, sagði að í könnuninni hefði verið athugað viðhorf fólks til nýtingar auðlinda hafsins, fallvatna og jarð- hita og athyglisverður væri sá munur sem kemur í ljós hvað varð- ar einstakar auðlindir. Hvað auð- lindir hafsins snertir væru fleiri sem telja þær ofnýttar en vannýtt- ar og rúmlega helmingur teldi nýt- inguna hæfilega. Þetta snerist við þegar spurt væri um nýtingu fall- vatna og enn frekar þegar spurt væri um nýtingu jarðhitans. Mjög fáir teldu auðlindirnar vera ofnýtt- ar í báðum tilvikum. Hafsteinn sagði að einnig væri athyglisvert hvað sú skoðun væri gegnumgangandi í öllum hópum, hvort sem litið væri til aldurs eða kyns, að ekki mætti ganga nær auðlindum hafsins en þegar hefur verið gert. Hvað nýtingu fallvatna varðar kæmi fram að um helm- ingur aðspurðra telur þau hæfilega mikið nýtt og stór hópur eða 45% telur þau vannýtt en einungis lítill hópur eða 5% telur þau ofnýtt. Segja mætti því að samkvæmt þessari viðhorfskönnun væri inn- eign fyrir frekari nýtingu fallvatna meðal íslensku þjóðarinnar og ganga mætti lengra í nýtingu þeirra almennt. Hér væri þó auð- vitað ekki verið að tala um ein- hverja eina framkvæmd eða taka afstöðu til einhverrar ákveðinnar virkjunar. Síðan væri auðvitað allt- af spurning hvar jafnvægið væri milli þeirra hópa sem telja ein- hverja auðlind vannýtta og of- nýtta. Þannig hefði til dæmis verið mikið í umræðunni að náttúran ætti að njóta vafans og í því ljósi þyrfti sá hópur kannski alltaf að vera talsvert stærri sem teldi auð- lindir vannýttar en ofnýttar. Hafsteinn sagði að hvað jarðhit- ann varðaði væri síðan greinilegt að fólk teldi hann mjög vannýtta auðlind. Það gilti hins vegar bæði um fallvötnin og jarðhitann að karlmenn væru hlynntari frekari notkun en konur. Þá væri einnig athyglisvert að yngsta kynslóðin, sem væri móttækilegust fyrir nýj- um viðhorfum, teldi í meiri mæli en aðrir hópar að bæði fallvötnin og jarðhitinn væru hæfilega mikið nýtt eða ofnýtt. Það snerist síðan við þegar auðlindir hafsins væru skoðaðar því að þetta væri sá hóp- ur sem teldi síst að auðlindir hafs- ins væru ofnýttar. „Þetta endur- speglar kannski svolítið umræðuna um umhverfisvernd á Íslandi und- anfarin ár. Hún hefur snúist miklu meira um fallvötn og virkjanir heldur en hafið og fiskinn í sjón- um. Mér þykir athyglisvert að sjá þetta því að sú umræða sem hefur verið í samfélaginu kemur oft sterkt fram í gegnum þennan yngsta hóp,“ sagði Hafsteinn Már ennfremur. Könnun á viðhorfum landsmanna til auðlindanýtingar Ítarlegri rannsókn þarf til að fá nákvæmari vitneskju Þrek og tár í Hörgárdalnum ÆFINGAR á verkinu Þrek og tár, eftir Ólaf Hauk Símonar- son, standa nú yfir hjá Leik- félagi Hörgdæla, í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Saga hefur leikstýrt fjölda verka, m.a. þessu verki Ólafs Hauks í Færeyjum veturinn 1997. Leikritið gerist í byrjun sjö- unda áratugarins í vesturbæ Reykjavíkur. Þrek og tár var sýnt í Þjóðleikhúsinu veturinn 1995–1996 og hlaut verkið frá- bærar undirtektir en sýningar urðu yfir níutíu talsins, segir í fréttatilkynningu frá Leik- félagi Hörgdæla. Æfingar á verkinu hófust í desember og er fyrirhugað að frumsýna í byrjun mars. Gylfi Jónsson stjórnar tónlist og Þórarinn Blöndal sér um útlit. Frá því um 1970 hafa leiksýn- ingar verið settar upp reglu- lega annað hvert ár á Melum og stóð leikdeild Ungmenna- félags Skriðuhrepps fyrir þeim allt til ársins 1997 er Leikfélag Hörgdæla var stofn- að.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.