Morgunblaðið - 20.01.2002, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Yana-E, Selfoss, Árni
Friðriksson, Trinket
og Vædderen koma í
dag. Selfoss fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl 9 vinnustofa og
leikfimi, kl 13 vinnu-
stofa, kl 14 spilavist.
Jóganámskeið hefst
þriðjud. 22. jan. og
verður á þriðju- og
fimmtudögum kl. 17.
Um er að ræða átta
tíma, lágmarksþátttaka
er 10 manns.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia,
kl. 13.30 –16.30 opin
smíðastofan/útskurður,
kl. 13.30 félagsvist, kl.
16 myndlist. Allar upp-
lýsingar í síma 535-
2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10–17 fóta-
aðgerð, kl. 10
samverustund, kl.
13.30–14.30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Eldri borgarar Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið Hlaðhömr-
um er á þriðju- og
fimmtudögum kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Jóga á föstudögum kl.
11. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ á
Hlaðhömrum, fimmtu-
daga kl. 17–19. Uppl.
hjá Svanhildi í s. 586-
8014 kl. 13–16. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fóta-
aðgerð og myndlist, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
verslunin opin, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna, kl.
13.30 enska framhald.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Á
morgun kl. 9 böðun og
hárgreiðslustofan opin.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Þorrablótið
er 24. jan. kl. 19.30 í
Fjölbrautaskóla Garða-
bæjar. Rúta frá Hlein-
um og Kirkjuhvoli og
Holtsbúð. Mánud. 21.
jan. kl. 9 leir, kl. 9.45
boccia, kl. 11.15 og
12.15 leikfimi, kl. 13.05
róleg leikfimi (stóla-
leikfimi), kl. 13. gler/
bræðsla, kl. 15.30 tölvu-
námskeið. Þriðjud. 22.
jan. kl. 9 vinnuhópur
gler, kl. 13 málun, kl.
13.30 opið hús spilað
bridge, vist og lomber,
kl. 16 bútasaumur.
Miðvikud. 23. jan. kl.
11.15 og 12.15 leikfimi,
kl. 13.05 róleg leikfimi,
kl. 13.30 handa-
vinnuhornið. Fimmtud.
24. jan. kl. 9 vinnuhóp-
ur gler, kl. 9.45 boccia,
kl. 12.15 spænska, kl.
13. postulínsmálun, kl.
14. málun. Fösud. 25.
jan. kl. 9 snyrting, kl.
11 dans.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum, boðið
verður upp á sparidaga
á Hótel Örk dagana
14.-19. apríl. Áhuga-
samir hafi samband við
ferðanefnd sem fyrst.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50. Á
mánudag pútt í Bæj-
arútgerð kl 10–11:30 og
Félagsvist kl 13:30
Sæludagar á Örkinni 3.
– 8. mars. Skráning í
Hraunseli í síma 555-
0142. Þorrablót félags-
ins verður í Hraunseli
laugardaginn 26 jan.
n.k. kl 19. Skráning í
Hraunseli í síma 555-
0142 Áríðandi að miðar
verði sóttir á mánudag-
in 21. jan milli kl. 13–
16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Sunnudagur:
Félagsvist kl. 13. Dans-
leikur kl. 20. Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Mánudagur: Brids kl.
13. Danskennsla Sig-
valda fyrir framhald kl.
1 og byrjendur kl.
20.30. Þriðjudagur:
Skák kl. 13 og alkort
spilað kl. 13.30. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45. Leikfélagið Snúð-
ur og Snælda sýnir í
Ásgarði í Glæsibæ, fé-
lagsheimili Félags eldri
borgara Söng og gam-
anleikinn „Í lífsins
ólgusjó“ Frumsýning
sunnud. 3. febrúar.
Sýningar: Sunnud. kl.
16, miðvikud. kl. 14 og
föstud. kl. 14. Mið-
apantanir í s: 588-2111,
568-8092 og 551-2203.
Brids fyrir byrjendur
hefst í febrúar. Stjórn
Ólafur Lárusson. Skrif-
stofan er flutt að Faxa-
feni 12 sama síma-
númer og áður.
Félagsstarfið er áfram
í Ásgarði Glæsibæ.
Uppl. á skrifstofu FEB.
kl. 10–16 s.588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi. Á morg-
un kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, handavinna
og föndur, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 14 fé-
lagsvist.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á morgun kl.9–16.30
vinnustofur opnar frá
hádegi, spilasalur opinn
kl. 14 kóræfing hjá
Gerðubergskórnum, kl.
15.30 dans hjá Sig-
valda, allir velkomnir.
Fimmtudaginn 24. jan-
úar kl. 13.15 verður fé-
lagsvist í samstarfi við
börn úr Seljaskóla,
stjórnandi Eiríkur Sig-
fússon, vegleg verð-
laun. Allir velkomnir.
Myndlistarsýning
Bryndísar Bjarnadótt-
ur opin sunnudag kl.
13–16. Veitingar í veit-
ingabúð. Upplýsingar
um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720. félagsvistin.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun kl. 9–17
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum,
kl. 9.30 gler og postu-
línsmálun, kl 13 lomber
og enska, kl.13.30 skák,
kl. 15.30 spænska, kl.
17.15 æfing hjá Söngv-
inum kór aldraðra.
Uppl. í síma 554-3400.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9. 55
róleg stólaleikfimi, kl.
13 brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Á
morgun kl. 9 perlu-
saumur, postulíns-
málun og kortagerð, kl.
10 bænastund, kl. 13
hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia, kl.
13 frjáls spilamennska,
kl. 13:30 gönguferð.
Fótaaðgerð. Nú stend-
ur til að bjóða upp á
námskeið í ensku og
fjölbreyttum tréskurði.
Upplýsingar gefur
Kristín Hraundal í
síma 588-9335.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Myndlista-
kennsla hefst föstudag-
inn 1. febrúar leiðbein-
andi Hafdís
Benediktsdóttir. Uppl.
og skráning hjá Birnu
og ritara s. 568-6960.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9–16 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12:15–13:15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði og hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og sund, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og
spilað.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids að
Gullsmára 13 alla
mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12,45. Spil
hefst kl. 13. Bridsdeild
FEBK í Gullsmára.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Kristniboðsfélag karla
Fundur verður í
kristniboðssalnum má-
nudkvöldið 21. janúar,
kl. 20. Sr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson flytur
biblíulestur um efnið:
Guð-faðir. Allir karl-
menn velkomnir.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist spiluð í dag
og hefst kl. 14.
Kvenfélag Garðabæjar
heldur sitt árlega
þorrablót laugard. 26.
jan.á Garðaholti kl.19.
Afhending miða og
laufabrauðsbakstur
23.1. kl.17 á Garðaholti.
Í dag er sunnudagur, 20. janúar,
20. dagur ársins 2002.
Agnesarmessa. Orð dagsins:
Vinur elskar ætíð og í nauðum er
hann sem bróðir.
(Orðskv. 17, 17.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 karlmennska, 8 kemur
seinna, 9 hryggð, 10 ill-
mælgi, 11 geta, 13 pen-
ingum, 15 sloka í sig, 18
vísa, 21 reyfi, 22 álitið, 23
lands, 24 spekin.
LÓÐRÉTT:
2 rík, 3 gabba, 4 hugaða,
5 ótti, 6 mynnum, 7 púk-
um, 12 ferskur, 14 blóm,
15 pest, 16 hanga, 17 tóm-
an, 18 láti hætta, 19
óhreinkaði, 20 kvenfugl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 molda, 4 þvarg, 7 goðin, 8 selur, 9 alt, 11 rauf,
13 grói, 14 ostra, 15 hólk, 17 tólg, 20 kná, 22 fokku, 23
launa, 24 ráin, 25 undum.
Lóðrétt: 1 magur, 2 liðnu, 3 Anna, 4 þúst, 5 aflar, 6
gerði, 10 lútan, 12 fok, 13 gat, 15 hófur, 16 lokað, 18
ólund, 19 glaum, 20 kunn, 21 álku.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
MÁLNOTKUN fjölmiðlamannafer stundum í taugarnar á Vík-
verja, ekki í pirrurnar á honum eins-
og nú virðist algengt að segja, heldur í
taugarnar á honum. Einstaka fjöl-
miðlamenn eru frábærir eins og allir
vita, en misjafn sauður er í mörgu fé á
þessum vettvangi eins og öðrum.
Eitt orðasamband sem fáránlega
algengt er að notað sé sem skrípi er
að eitthvað sé alveg út í Hróa hött!
„Þetta er alveg út í Hróa hött,“ sagði
dagskrármaður í síðdegisþætti Bylgj-
unnar á fimmtudaginn. Þetta fór að
heyrast fyrir nokkrum árum eftir að
einhver spaugarinn blandaði Hróa
hinum enska í málið og síðan er vinur
litla mannsins úr Skírisskógi við
Nottingham einhver umtalaðasti
maður á Íslandi. Væri ekki ráð að
stemma stigu við þessum ósköpum?
x x x
Á ÞAÐ MÁ benda að skv. HalldóriHalldórssyni íslenskufræðingi
er orðasambandið út í hött notað með
nokkrum sögnum, en er algengast
með svara, tala og líta og öðrum sömu
merkingar. Halldór bendir á að orð-
takið sé kunnugt frá 18. öld: að svara
út í hött. Hann svarar og horfir út í
hött, in omnibus absurditatem prodit,
han svarer og stirrer hen í Vejret
(sem en Fjante).
Halldór telur að höttur hafi á land-
námsöld og fyrr verið haft um fjalls-
tind og upprunaleg merking orðtaks-
ins sé samkvæmt því „að svara út í
fjallið“, þ.e. svara ekki þeim sem spyr
heldur út í fjallið, út í buskann.
x x x
ÁRLEG rýrnun í verslunum hér álandi vegna þjófnaða og mistaka
er um 2,5 til 3 milljarðar ef miðað er
við meðaltalstölur frá öðrum löndum í
Vestur-Evrópu, skv. fréttum á föstu-
daginn. Víkverja þykir með ólíkind-
um að ætla má að stærsti hluti þess-
arar upphæðar sé vegna þjófnaðar,
eða um 2 milljarðar. Er þetta ekki al-
veg með ólíkindum?
x x x
VÍKVERJI skoðar annað slagiðheimasíðu Mjólkursamsölunnar
og þar er m.a. að finna svör við ýms-
um algengum spurningum sem tengj-
ast afurðum fyrirtækisins.
Þar er þetta til dæmis að finna:
„Er mjólk ekki fitandi?
Mjólk og afurðir hennar eru mis-
munandi orkuríkar allt eftir því hvaða
mjólkurafurð er um að ræða. Rjómi
er fiturík vara en léttmjólk og fjör-
mjólk eru fitulitlar. Ýmsar mjólkuraf-
urðir eru alveg fitusnauðar eins og
t.d. skyr og undanrenna. En munið,
fita er nauðsynlegur hluti mataræð-
isins. Of lítil fituneysla getur valdið
vanþrifum barna og hægt á vexti. Hér
gildir sem annars staðar að allt er
gott í hófi. Getur gerilsneydd mjólk
valdið ofnæmi eða óþoli? Ofnæmi er
svörun ónæmiskerfis líkamans sem
sumir mynda gegn ákveðnum pró-
teinum. Mjólkurofnæmi er ofnæmi
fyrir próteinum í mjólk og er algjör-
lega óháð gerilsneyðingu eða fitu-
sprengingu. Óþol gefur svipuð ein-
kenni og ofnæmi en á sér stað án
íhlutunar ónæmiskerfisins. Mjólkuró-
þol er óþol fyrir mjólkursykri og staf-
ar af skorti á ensíminu laktasa. Sumir
hópar fólks (víða í Afríku og Asíu)
þola ekki mjólkursykur á fullorðins-
árum. Mjólkuróþolið hefur hins vegar
ekkert með vinnslu mjólkurinnar að
gera (byggt á upplýsingum dr. Ingu
Þórsdóttur næringarfræðings).“
MIG langar til að koma á
framfæri þökkum til
mannsins, sem bjargaði
tveim ungum drengjum,
sem voru fastir í drullu og
gátu sig hvergi hreyft fyrir
neðan KFUM- og KFUK-
húsið við Sunnuveg
fimmtudaginn 17. janúar sl.
Þakklát móðir.
Leiðbeiningar
með tækjum
MIÐVIKUDAGINN 16.
janúar sl. skrifaði María í
Velvakanda og benti á að
oft væru ekki íslenskar leið-
beiningar með tækjum.
Hún sagði frá reynslu sinni
þegar húnkeypti GPS-tæki
frá R. Sigmundssyni og
engar leiðbeiningar voru
með tækinu.
Við hjá Aukarafi höfum í
gegnum árin lagt mikla
áherslu á að skrifa íslensk-
ar leiðbeiningar með öllum
GPS-tækjum sem við selj-
um sem og mörgum öðrum
vörum sem krefjast leið-
beininga. Við viljum því
bjóða Maríu velkomna í
verslun okkar.
Með kveðju frá Aukarafi,
Ingimundur Þór
Þorsteinsson frkvstj.
Afgreiðslutími
apóteka
MIG langar að koma með
fyrirspurn til þess er málið
varðar í sambandi við af-
greiðslutíma apótekanna.
Eitt apótek hafði alltaf opið
allan sólarhringinn, en eftir
2. janúar 2002 skertist þessi
þjónusta þannig að nú er
eingöngu opið frá kl. 8–24.
Er ekki hægt að lengja af-
greiðslutímann og hafa opið
allan sólarhringinn eins og
áður?
Ólafur Þór Friðriksson.
Lækkun skatta
SÆMUNDUR Kristjáns-
son hafði samband við Vel-
vakanda og vildi beina þeim
tilmælum til heilbrigðisráð-
herra, að til þess að draga
úr fátækt hjá sér, væri best
að ráðherra lækkaði skatt-
inn úr 15.000 kr. á mánuði í
6.000 kr. á mánuði. Þá
myndi hann hafa aðeins
meira í vasanum.
Hækkun bifreiða-
trygginga
ÉG er með 75% bónus hjá
einu af tryggingafélögun-
um. Á síðasta ári greiddi ég
um 50.000 kr. í bifreiða-
tryggingar en á þessu ári
greiði ég 60.635 kr. í trygg-
ingar.
Þetta þýðir um 20%
hækkun á einu ári. Spurn-
ing mín er, hvað veldur
þessari hækkun og hvort
ekki sé hægt að fá útskýr-
ingar á þessari hækkun?
Kristján.
Tapað/fundið
Giftingarhringur
í óskilum
GIFTINGARHRINGUR
fannst við bensínstöðina
Shell við Suðurfell í Breið-
holti fyrir stuttu. Upplýs-
ingar í síma 896-8396.
Nokia GSM-sími
tapaðist
NOKIA GSM-sími tapaðist
þriðjudaginn 15. janúar sl.
Síminn gæti hafa tapast hjá
Verslunarskólanum, RÚV
við Efstaleiti eða á veitinga-
húsinu Ítalíu við Laugaveg.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 552-6961.
Dýrahald
Páfagaukur
í óskilum
PÁFAGAUKUR fannst við
Norðurbrún 1, fimmtudag-
inn 17. janúar sl. Upplýs-
ingar í síma 568-6960.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Þakklæti
NÚ þegar starfsemi
lungnadeildar Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss
flyst frá Vífilsstöðum í
Fossvoginn langar mig
að þakka frá innstu
hjartarótum öll þau ár
sem ég hef notið þar frá-
bærrar umönnunar hve-
nær sem heilsa mín hefur
krafist þess. Hámenntað,
þrautþjálfað starfslið,
sem veit alveg hvað það
er að gera, ófaglærðir
starfsmenn, sem gera sér
ljóst hversu hættulegt
það er, ef ekki er vel
þrifið. Fossvogsdalurinn
er fagur en tilfinning-
arnar eru fasthnýttar við
Vífilsstaðaspítala, þessa
glæsilegu byggingu, þar
sem kærleikurinn liggur
í veggjunum og um-
hyggjan andar til mín í
hvert skipti sem ég kem
þar. Ég nefni ekki nöfn
starfsmanna, sem skilið
hafa eftir spor sín á Víf-
ilsstöðum, en þeir eiga
virðingu mína og þakkir
skilið fyrr og nú og æv-
inlega. Ég vona að þau
komi öll í Fossvoginn.
Með kveðju,
Svanlaug Alda
Árnadóttir
kt. 060537-4889.
Þakkir til starfsfólks
lungnadeildar Landspítala
á Vífilsstöðum