Morgunblaðið - 20.01.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2002 51
DAGBÓK
Meðvirkni
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti
og tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið
1. febrúar og laugardaginn 2. febrúar
í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafiNánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Hef opnað lækningastofu í Lágmúla 5.
Tímapantanir alla virka daga
frá kl. 9.00-16.00
í síma 533 3131.
Kristján Óskarsson, sérgrein barnaskurðlækningar
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
50% afsláttur
af öllu í búðinni, bara í dag
Sigurstjarnan - Stórútsala
Opið í dag, sunnudag, frá kl. 13-16
Rýmum fyrir vörum - allt á að seljast
Eitt kvöldnámskeið, 28. jan., 4., 7. og 11. febr.
Hentar fólki sem vill neyta grænmetisfæðis.
Komum saman og höfum gaman.
Upplýsingar hjá Shabana í símum 581 1465 og 659 3045.
Indversk matargerð
SEX spaðar er prýðileg
slemma, en þó ekki fullkom-
lega örugg með trompi út.
Fáðu þér sæti í suður með
tvær hendur uppi:
Norður
♠ KD4
♥ Á652
♦ 43
♣K873
Suður
♠ ÁG10983
♥ --
♦ ÁD62
♣Á105
Útspil r smár spaði.
Hvernig viltu spila?
Rökrétt byrjun er að taka
fyrsta slaginn í blindum og
svína tíguldrottningu. Ef
hún heldur slag, er viss stíll
yfir því að spila litlum tígli
frá báðum höndum. Þá er
ýtrasta öryggis gætt, sem
líklega kostar þó einn IMPa.
En vandi spilsins felst fyrst
og fremst í því að vestur
drepi á tígulkóng og trompi
aftur út. Nú er best að taka
slaginn í borði, henda laufi í
hjartaás og stinga hjarta.
Taka svo tígulás, trompa
tígul og hjarta til baka. Spila
því næst síðustu spöðunum:
Norður
♠ --
♥ 6
♦ --
♣K87
Suður
♠ 8
♥ --
♦ 6
♣Á10
Helsta vonin er sú að sami
mótherjinn sé með fjórlit í
laufi og hæsta tígul. Hjarta-
sexan hefur örlítið hótunar-
gildi, en þá þarf vestur að
hafa byrjað með sexlit. All-
tént hendir sagnhafi hjarta í
síðasta spaðann (nema það
sé orðið frítt!) og vonar það
besta.
Þessi slemma kom upp í
áttundu umferð Reykjavík-
urmótsins síðastliðinn
þriðjudag, en legan var hag-
stæð, tígulkóngur réttur,
svo spilið lá upp í sjö.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert jarðbundinn og
hjartahlýr og tekur lífinu
með jafnaðargeði. Þú hefur
gott skopskyn og nýtur vin-
sælda. Nýja árið mun færa
þér mikilvæga þekkingu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það getur verið gott að fá ráð
hjá einhverjum eldri. Oft
þurfum við ekki annað en
svolitla uppörvun til að sjá
hlutina í nýju ljósi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það kemur fólki á óvart hvað
þú ert kraftmikill í dag. Þú
finnur ekki endilega fyrir
breytingu á líðan þinni en
fólk öfundar þig af einhverju.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt njóta góðs af auði
einhvers annars í dag. Vinur
gæti boðið þér út eða fært
þér gjöf sem gleður þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ferðaáætlanir með nánum
vini hljóma vel. Þú nýtur vin-
áttu ykkar. Hún vermir
hjarta þitt og veitir þér full-
nægju.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nýjar hugmyndir og tæki-
færi til að læra nýjar aðferð-
ir vekja áhuga þinn í dag.
Þetta minnir þig á að lær-
dómur er skemmtilegasta
leiðin til þroska.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Samskipti þín við aðra færa
þér heim sanninn um það að
vinir þínir kunni að meta þig.
Þú veist þetta innst inni en
óöryggi þitt getur fengið þig
til að efast um hvað sem er.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það sem við kemur börnum
og þjónustu getur komið þér
til góða í starfi í dag. Þú gæt-
ir fengið atvinnutækifæri á
nýjum vettvangi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert að velta fyrir þér leið-
um til að bæta heilsu þína og
líkamlegt atgervi. Ekki
reyna að gera allt í einu.
Veldu eitthvert eitt atriði
sem getur orðið góð byrjun.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nýjar hugmyndir um það
hvernig þú getur aukið
tekjur þínar gætu tengst
heimilinu. Það er einnig
hugsanlegt að fjölskyldu-
meðlimur lumi á góðum ráð-
um.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Treystu því að þú hafir já-
kvæða orku í dag. Allir sem
þú talar við munu taka vel í
hugmyndir þínar og sam-
þykkja það sem þú segir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur alltaf haft þörf fyrir
að bæta heiminn. Í dag
muntu fá tækifæri til að rétta
einhverjum hjálparhönd.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú nýtur þess að stunda lík-
amlegt athæfi á borð við leik-
fimi og dans með vinum þín-
um í dag. Þú lítur ekki á góða
vináttu sem sjálfsagðan hlut.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Gullsmárabrids
Eldri borgarar spiluðu tvímenn-
ing á þrettán borðum fimmtudaginn
17. janúar sl. Miðlungur 264. Efst
vóru:
Ns
Karl Gunnarsson – Ernst Backmann 321
Hinrik Lárusson – Haukur Bjarnason 316
Sigurpáll Árnas. – Sigurður Gunnlaugss. 299
Av
Heiður Gestsdóttir – Þórhallur Árnason 343
Unnur Jónsdóttir – Jónas Jónsson 303
Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbj. 298
Eldri borgarar spila brids að Gull-
smára 13 alla mánudaga og fimmtu-
daga. Mæting kl. 12.45 á hádegi.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Íslandsmót í parasveitakeppni
Vinsælasta mót vetrarins, Ís-
landsmótið í parasveitakeppni, verð-
ur haldið helgina 2.–3. febrúar næst-
komandi. Þetta er fyrsta mótið sem
spilað verður í nýju húsnæði Brids-
sambands Íslands, Síðumúla 37, 3.
hæð. Fyrirkomulagið verður með
sama sniði og undanfarin ár. Spil-
aðar eru 7 umferðir með 16 spila
leikjum og raðað í umferðir með
Monrad fyrirkomulagi.
Spilamennska hefst kl. 11.00 báða
dagana. Skráning er hafin í s. 587
9360 eða www.bridge.is
LJÓÐABROT
MORGUNBÆNIN
Nóttin hefur níðzt á mér,
nú eru augun þrútin,
snemma því á fætur fer
og flýti mér í kútinn.
Við það augun verða hörð,
við það batnar manni strax.
Það er betra en bænagjörð
brennivín að morgni dags.
Páll Ólafsson
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 20. jan-
úar, er sextug Íris Jónína
Hall, Sörlaskjóli 50, eigin-
maður hennar er Heiðar
Steinþór Valdimarsson.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4.
Rc3 Bb7 5. a3 d5 6. cxd5
exd5 7. g3 Bd6 8. Bg2 O-O 9.
O-O Rbd7 10. Bf4 Bxf4 11.
gxf4 c5 12. e3 Hc8
13. Hc1 Re4 14. Re2
De7 15. Rg3 Hfd8
16. Bh3 Hc7 17. De2
Rf8 18. Hfd1 Bc8 19.
Bg2 Bg4 20. dxc5
bxc5 21. Dc2 Hd6 22.
He1 Rg6 23. b4 h6
24. Rd4 Rh4 25. bxc5
Hxc5 26. Dd3 Rxg2
27. Kxg2 Dh4 28.
Kg1
Staðan kom upp í
bandaríska meist-
aramótinu sem lauk
fyrir skömmu.
Larry Christiansen
(2571) hafði svart gegn Al-
exander Shabalov (2606).
28... Rxf2! 29. Df1 Hxc1 30.
Hxc1 Re4 31. Rxe4 dxe4 32.
Df2 Dh5 33. f5 Kh7 34. Df4
Hf6 35. Hf1 Bh3 36. Hc1
Bxf5 37. Rxf5 Hxf5 og hvít-
ur gafst upp.
Skák
Umsjón: Helgi Áss Grét-
arsson
Svartur á leik.
Með morgunkaffinu
Við erum ekkert að
sökkva. Það er bara
háflóð.
Þetta með býflug-
urnar og blómin
svarar ekki spurn-
ingunni, pabbi.
Hvað áttu
við með að
þú ættir að
fara að
koma þér
heim? Þú
ert heima
hjá þér.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
90 ÁRA afmæli. Í dag,20. janúar, verður
níræð Sigríður Guðjóns-
dóttir, Dvalarheimilinu
Seljahlíð. Hún tekur á
móti gestum í safnaðar-
heimili Seltjarnarnes-
kirkju í dag sunnudag milli
kl. 15 og 18 í dag.