Morgunblaðið - 22.01.2002, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 22.01.2002, Qupperneq 40
MINNINGAR 40 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Kveðja frá Trésmiðafélagi Reykjavíkur Það ríkir söknuður. Fallinn er frá góður fé- lagi og samstarfsmaður til margra ára, Sigurjón Pétursson. Sigurjón gekk í Trésmiðafélag Reykjavíkur árið 1962 og varð strax atkvæðamikill félagsmaður. Áður hafði Sigurjón verið þátttakandi í starfi iðnnemasamtakanna. Tré- smiðafélagið hafði þá þegar opnað starfsemi sína fyrir iðnnemum og veitt þeim málfrelsi og tillögurétt og það nýtti Sigurjón sér, hann var því ekki ókunnugur félaginu þegar hann gekk til liðs við það. Hann var virkur félagi allt til 1996 er hann réð sig til starfa hjá Sambandi íslenskra sveit- arfélaga en þar starfaði hann sem deildarstjóri er hann lést. Það duldist engum að Sigurjón var vel til forystu fallinn, hann var glögg- ur og útsjónarsamur, fljótur að átta sig á málum og greina hismið frá kjarnanum. Hann var ávallt málefna- legur, hvort sem var í rituðu eða töl- uðu máli. Sigurjón valdist því fljótt í trúnaðarstörf innan félagsins, var í trúnaðarmannaráði bæði áður og eft- ir að hann sat í stjórn félagsins en þar átti hann sæti á árunum 1964– 1974, þar af í sex ár sem varaformað- ur. Sigurjón veitti Trésmiðafélaginu þjónustu sína og starfskrafta á fjórða áratug. En það sóttust fleiri eftir kröftum hans en smiðirnir og verka- lýðshreyfingin. Segja má að hálfgert stríð hafi staðið um hann milli félags- ins og vinstrihreyfingarinnar í borg- arstjórnarmálum. Hann sagði sjálfur sögu af því þegar hann var sóttur á vinnustað, þar sem hann var að slá upp fyrir húsi, til þess að mæta á fund vegna bæjarstjórnarkosninga. Hann lagði frá sér svuntuna, án þess þó að vita að verkefnið framundan væri að leiða kosningabaráttu vinstrimanna. Trésmiðafélagið varð SIGURJÓN PÉTURSSON ✝ Sigurjón Péturs-son fæddist á Sauðárkróki 26. október 1937. Hann lést af slysförum 10. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hallgríms- kirkju 21. janúar. þá að deila kröftum Sig- urjóns með öðrum Reykvíkingum en Sig- urjón sinnti félaginu alltaf, þótt minna hafi borið á því út á við með- an hann sinnti stjórn- málunum. Sigurjón var virkur talsmaður fé- lagsins og verkalýðs- hreyfingarinnar í heild í stjórnmálum. Á árun- um 1960–1970 voru hörð spjótalögin gagn- vart hreyfingunni og þá var Sigurjón ekki ónýt- ur liðsmaður heldur virkur talsmaður þeirra sjónarmiða sem hann barðist fyrir. Á félagsfund- um bar Sigurjón ævinlega hagsmuni félagsins og félagsmanna fyrir brjósti, einnig eftir að hann sjálfur hætti stjórnarþátttöku. Það var ekki svo að Sigurjón væri einungis góður forystumaður, hann var einnig góður félagi. Hann var lífsglaður, skemmti- legur og orkumikill félagi. Menn minnast hans ekki síður sem glað- sinna skemmtilegs vinnufélaga, það var létt yfir honum hvort sem var í félagsstarfinu eða úti á mörkinni. Það ríkir söknuður í samfélaginu, en það lifir eftir mynd af manni sem var ósínkur á sjálfan sig og tíma sinn og verk hans eiga sér víða stað á meðal okkar. Trésmiðafélag Reykjavíkur og vinnufélagar hans í gegnum tíðina þar senda Rögnu, sonum hans, barnabörnum og öðrum aðstandend- um samúðarkveðju. Kveðja frá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis Kvaddur er samstarfsmaður til margra ára og góður vinur. Leiðir okkar Sigurjóns Pétursson- ar lágu fyrst saman vorið 1970, þegar hann leiddi félaga sína í borgar- stjórnarkosningum. Hjá Reykjavík- urborg störfuðum við síðan saman í 24 ár, hann lengst af sem oddviti minnihluta borgarstjórnar, en um tíma einnig sem leiðtogi meirihlut- ans. Jafnt við embættismennirnir sem kjörnir stjórnendur kynntumst og lærðum að meta góðan og vand- aðan dreng, sem vann störf sín á veg- um borgarinnar af alúð og með hags- muni hennar og íbúanna eina að leiðarljósi. Saman sátum við í stjórn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga í fjögur ár og á þeim vettvangi einnig starfaði Sigurjón af heilindum og beitti aldrei afli borgarinnar á kostnað hagsmuna annarra sveitarfélaga, sem minna máttu sín. En mest og best kynntist ég Sig- urjóni Péturssyni í stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, þar sem við störfuðum saman í 22 ár. Þetta voru ár mikilla breytinga og vaxandi umsvifa í sögu sparisjóðsins. Glöggur skilningur Sigurjóns á þörfum og við- horfum hins almenna manns, eðlis- greind hans og hæfileiki til að greina aðalatriði hvers máls mótuðu störf hans fyrir sparisjóðinn. Á þeim vett- vangi veit ég, að Sigurjóni þótti vænt um að starfa og við hin mátum til- lögur hans og holl ráð. Stjórn og starfsfólk sparisjóðsins minnist Sig- urjóns með þökk og söknuði. Hvar sem Sigurjón Pétursson starfaði ávann hann sér traust og vin- áttu samstarfsmanna, hvort sem skoðanir á þjóðmálum féllu að öllu leyti saman eða ekki, enda var af- staða hans einatt málefnaleg og vel grunduð. Hann kunni einnig þá list að lífga upp á umhverfið með söng og græskulausum húmor og átti mikið að gefa öðrum. Við erum því mörg sem metum mikils að hafa notið sam- vista við Sigurjón, vináttu hans, lífs- gleði og léttrar lundar. Gamlir samstarfsmenn hjá Reykjavíkurborg og við hjá Spari- sjóði Reykjavíkur og nágrennis sendum Rögnu og öðrum ástvinum einlægar samúðarkveðjur. Jón G. Tómasson. Sigurjón Pétursson var framar öðru drengur góður. Í stjórnmála- baráttunni á síðari helmingi liðinnar aldar átti ég meðal samherjanna marga góða félaga, en engan betri fé- laga og vin en Sigurjón. Sigurjón gekk að hverju verkefni með opnum huga og vann af kostgæfni og þol- gæði að málum, var snarpur og öruggur í sókn og vörn, en eðlislæg hlýja og glaðværð var aldrei langt undan. Það er því ekki að undra, að hann var vinsæll maður, ekki aðeins meðal samherja heldur einnig meðal mótherja. Við Sigurjón glímdum sameigin- lega við hin margvíslegu verkefni borgarfulltrúa í 16 ár. Við deildum sigrum og ósigrum. Stundum voru verkefni líðandi stundar erfið og þá kom sér vel að maður gæddur eðl- iskostum Sigurjóns var oddviti okkar borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins. Á öðrum tímabilum voru verkefnin ánægjuleg og okkur fannst þokast nokkuð í framfaraátt og þegar glað- værðin ríkti var Sigurjón manna glaðastur. Í borgarstjórn takast flokkar og fylkingar á, en margt er þar líka unnið í sátt og samstarfi, ekki síst á undirbúningsstigi í borg- arráði og öðrum nefndum borgar- stjórnar. Á þeim vettvangi geta fulltrúar minnihluta haft veruleg áhrif. Sigurjón var í borgarráði í tutt- ugu ár og þar nutu hæfileikar hans og mannkostir sín vel. Lengst af var hann þar í fulltrúaliði minnihluta, en í fjögur ár var hann einn þriggja leið- toga í meirihlutasamstarfi. Alþýðubandalagið vann stórsigur í borgarstjórnarkosningum 1978 og fékk fimm fulltrúa kjörna. Á örfáum dögum þurfti að ganga frá meiri- hlutasamstarfi þriggja flokka. Það tókst og ég sé enn fyrir mér upphaf fyrsta fundar nýrrar borgarstjórnar. Við ákváðum að tínast ekki eitt og eitt í salinn en gengum til sæta okkar í röð. Aldrei þessu vant voru áheyr- endapallar fullir af fólki og eftirvænt- ing lá í loftinu. Sigurjón var kosinn forseti borgarstjórnar og því starfi gegndi hann með sóma allt kjörtíma- bilið. Það reyndi auðvitað verulega á krafta borgarfulltrúa Alþýðubanda- lagsins að standa skyndilega frammi fyrir því að bera meginábyrgð á stjórn Reykjavíkurborgar og þar gegndi Sigurjón veigamesta hlut- verkinu. Ég geri enga tilraun til að hefja upptalningu á öllum þeim störfum, sem Sigurjón vann fyrir borgar- stjórn og borgarbúa. Það er skyndi- lega og óvænt komið að kveðjustund. Þegar aldurinn færist yfir gerist það eðlilega æ tíðar að kveðja þarf jafn- aldra og sér eldra fólk. Samt er það alltaf sárt, en mun sárara er að kveðja þá sem yngri eru. Samstarf okkar Sigurjóns í borg- arstjórn hófst árið 1970. Að beiðni kjörnefndar Alþýðubandalagsins tók ég að mér að vera í öðru sæti listans í borgarstjórnarkosningum og ungur maður úr forystusveit trésmiða hafði fallist á að skipa fyrsta sætið. Ég hafði þá lítil persónuleg kynni af þessum unga manni, hafði aðeins hitt hann stöku sinnum á fundum, en úr því var auðvelt að bæta. Sigurjón og kona hans Ragna voru í hópi fólks, sem hafði komið sér upp húsnæði með nýbyggingu í blokk við Fells- múla. Í þessum hópi var einnig bróðir minn Stefán og kona hans Sigrún. Ég heimsótti þau á köldum vordegi, og þegar mig bar að garði stóð Sigurjón í nöprum norðannæðingi við smíðar útivið. Hann vissi sem var að nú færi tómstundum til þess að sinna fram- kvæmdum við húsið fækkandi. Mér finnst að þegar á þessari stundu höf- um við bæði skynjað að við ættum auðvelt með að starfa saman. Ég hafði áður setið í borgarstjórn og var því í hlutverki leiðbeinandans í sam- skiptum okkar til að byrja með, en nemandinn var fljótur að átta sig enda vaxinn upp í verkalýðshreyfing- unni, hafði verið í forystu iðnnema og í stjórn Trésmiðafélags Reykjavíkur. Kjörnefndin hafði greinilega valið vel í fyrsta sætið. Á kveðjustund leita gamlar og góðar minningar fram í hugann eins og myndir á blaði. Ég nefni aðeins eina. Hún er frá fallegum sumardegi. Alþýðubandalagið er í sumarferða- lagi. Sigurjón og fjölskylda hans er í sömu rútu og ég. Það er glatt á hjalla og mikið sungið. Fólkið hans Sigur- jóns hefur fallegar og samhæfðar raddir og Sigurjón sjálfur kann ekki aðeins vísur og lög heldur einnig langa kvæðabálka. Við borðum nesti í fallegri brekku og mér líður vel í ná- vist þessa myndarlega fjölskyldu- hóps. Ég vissi það áður, en sé það nú, að Sigurjón á marga góða að. Að lokum vil ég koma á framfæri þakklæti mínu og systkina minna, Huldu og Stefáns, fyrir dýrmæt störf Sigurjóns í þágu Sigfúsarsjóðs. Hann var í stjórn sjóðsins frá 1968 til dauðadags og alltaf í þeim forystu- hópi, sem dagleg störf, framkvæmdir og samningar hvíldu á. Ég votta Rögnu, sonum hennar og allri fjölskyldunni innilega samúð á þessum þungbæru dögum og bið þeim blessunar. Megi minningin um góðan dreng veita þeim styrk. Adda Bára Sigfúsdóttir. Sigurjón Pétursson var ungur maður þegar hann tók að sér að ger- ast leiðtogi Alþýðubandalagsins í borgarstjórn Reykjavíkur. Við því hlutverki tók hann af Guðmundi Vig- fússyni. Um svipað leyti bar fundum okkar Sigurjóns saman eða nánar til tekið fyrir borgarstjórnarkosning- arnar 1970. Síðan áttum við Sigurjón eftir að starfa saman að borgarmálum í meira en hálfan annan áratug, bæði sem samherjar við stjórn borgarinn- ar og leiðtogar flokka okkar í borg- arstjórn. Við fyrstu kynni kom mér Sigur- jón fyrir sjónir sem hressilegur og sjálfsöruggur, góður ræðumaður og auðsjáanlega með trú á þeim málstað sem hann talaði fyrir. Við síðari kynni komst ég að raun um að hann var orðheldinn og traustur og gat verið hrókur alls fagnaðar á góðri stund. Sigurjón var ekki langskólageng- inn. Það háði honum þó ekki mjög, að ég hygg. Hann var eðlisgreindur, fljótur að glöggva sig á málum, skýr í framsetningu og rökfastur í besta lagi. Slíkir hæfileikar nýtast hverjum stjórnmálamanni vel. Sigurjón hafði ótvíræða forystuhæfileika enda óum- deildur leiðtogi félaga sinna þann tíma sem hann starfaði í borgar- stjórn. Að því er mér virtist leiddi hann hjá sér þær deilur um menn og málefni sem gjarnan settu svip á Al- þýðubandalagið á þessum árum. Mjög reyndi á hæfileika Sigurjóns á vordögum 1978 þegar Sjálfstæðis- flokkurinn, þvert á allar kosninga- spár, missti meirihlutann í borgar- stjórn. Þá þurfti að leiða saman þá þrjá flokka sem verið höfðu í minni- hluta og höfðu satt að segja ekki bú- ist við að þurfa að taka við stjórn borgarinnar. Sem leiðtogi stærsta flokksins lenti það á Sigurjóni að hafa forystu í því samstarfi sem þá var myndað. Varð hann forseti borgar- stjórnar og gegndi því í fjögur ár. Margir spáðu illa fyrir hinum nýja meirihluta og töldu að hann mundi setja borgina á hausinn á skömmum tíma. Reyndin varð hins vegar önnur. Sjaldan eða aldrei hefur fjármálum borgarinnar verið eins vel stjórnað og árin 1978–1982. Má í því sambandi vitna til úttektar sem Ólafur Nílsson endurskoðandi gerði á fjárreiðum borgarinnar að loknu kjörtímabilinu. Þó var við ramman reip að draga þar sem verðbólgan var á þessum ár- um frá 40–60% árlega. Slík verðbólga var að því leyti erfiðari fyrir sveit- arfélögin en ríkið að útgjöld komu ári síðar en teknanna var aflað. Óhætt er að segja að séu fjármálin í góðu lagi hjá sveitarfélagi þá fari annað eftir því. Vissulega átti Sigurjón sinn stóra þátt í því hversu vel tókst til með stjórn borgarinnar umrætt kjörtíma- bil þótt ýmsir aðrir ættu þar hlut að máli eins og gefur að skilja. Þessi ár voru hins vegar toppurinn á ferli Sig- urjóns sem stjórnmálamanns. Á því er enginn vafi. Nú að leiðarlokum þakka ég Sig- urjóni góð kynni og farsæla sam- vinnu að málefnum Reykjavíkur- borgar. Rögnu og afkomendum þeirra Sigurjóns sendum við Svana dýpstu samúðarkveðjur. Kristján Benediktsson. Fjórir eru þeir einstaklingar er lengst leiddu forystusveit íslenskra sósíalista í borgarstjórn Reykjavíkur á öldinni sem leið; fyrst Sigfús Sig- urhjartarson, þá Guðmundur Vigfús- son í 20 ár, síðan og samhliða Adda Bára Sigfúsdóttir og loks Sigurjón Pétursson uns yfir lauk; hann skipaði efsta sæti á lista Alþýðubandalagsins í Reykjavík til borgarstjórnar í 24 ár. Hérna er ég að fjalla um þann tíma meðan Alþýðubandalagið bauð sjálf- stætt fram en það bauð fram sjálf- stætt til 1994, frá 1954 og bar höfuð og herðar yfir aðra vinstriflokka nær allan þann tíma; fór upp í fimm borg- arfulltrúa vorið 1978 þegar Sigurjón varð forseti borgarstjórnar Reykja- víkur, sjálfur þá rétt liðlega 40 ára. Í fyrsta sinn í sögunni stýrði Sjálf- stæðisflokkurinn ekki málefnum Reykjavíkur. Það varð erfitt hlut- skipti sem þau Sigurjón, Adda Bára og félagar stóðu frammi fyrir; fyrst vegna þess að sigurinn kom svo á óvart og enginn minnihlutaflokkanna hafði gert ráð fyrir að Alþýðubanda- lagið færi úr þremur mönnum í fimm og þar með breyttist minnihutinn í meirihluta. Í annan stað vegna þess að hinir nýju meirihlutaflokkarnir áttu ákaflega erfitt með að una Al- þýðubandalaginu sannmælis og með að virða styrk þess í raun. Það aftur leiddi til óánægju innan okkar hóps. En í þriðja lagi var verkefnið flókið vegna þess að embættismannalið borgarinnar var í öllum meginatrið- um andvígt hinum nýja meirihluta og beitti sér jafnvel gegn honum. Þrátt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.