Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 1
21. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 26. JANÚAR 2002
Bush sagðist í gær vera „mjög von-
svikinn“ vegna frammistöðu Arafats
og sagði hann hafa „ýtt undir hryðju-
verk“. Ísraelsher stöðvaði skip með
50 tonna vopnafarm í Rauðahafi fyrr í
mánuðinum og veitti Bandaríkja-
stjórn upplýsingar um málið. Flest
gagnanna sem Bush sendi leiðtogum
arabaríkjanna komu frá bandarísku
leyniþjónustunni, CIA.
Gögnin voru send til Abdullah,
krónprins í Sádi-Arabíu, Hosni Mub-
araks, forseta Egyptalands, og Ab-
dullah II, konungs Jórdaníu.
Arafat hefur neitað því að hann hafi
vitað af vopnasmyglsáformunum og
samþykkt þau. Að sögn ísraelsku
embættismannanna útveguðu stjórn-
völd í Íran vopnin og þau voru flutt
þaðan með aðstoð Hizbollah-hreyf-
ingarinnar í Líbanon.
Bush ræddi málið við ráðgjafa sína
í Hvíta húsinu í gær og hermt er að
meðal annars hafi verið fjallað um
hvort loka ætti skrifstofum Frelsis-
samtaka Palestínumanna, PLO, í
Washington. Heimildarmenn sögðu
að refsiaðgerðir kæmu til greina ef
Arafat léti ekki handtaka þá sem
skipulögðu smyglið og Palestínu-
menn sem grunaðir eru um árásir á
Ísraela. Hermt er að Bandaríkja-
stjórn íhugi einnig að hætta öllum við-
ræðum við Arafat sjálfan en halda
áfram óformlegum viðræðum við aðra
embættismenn í heimastjórninni.
Bandarískir embættismenn segja
að samskipti Bandaríkjanna og Pal-
estínumanna hafi aldrei verið jafn
slæm og nú frá friðarsamkomulaginu
í Ósló 1993.
Spánverjar eru sem stendur for-
ystuþjóð Evrópusambandsins. Josep
Pique, utanríkisráðherra Spánar,
lýsti í gær yfir stuðningi við Arafat.
„Það getur verið að sumir í ríkisstjórn
Bandaríkjanna og meðal almennings
hafi sömu skoðun á Arafat og ísr-
aelskir ráðamenn. Við erum á öðru
máli. Palestínustjórn er lögmætur
fulltrúi palestínsku þjóðarinnar,“
sagði Pique á fundi með utanríkisráð-
herra Noregs, Jan Petersen.
Ísraelskar F-16 herþotur gerðu í
gærkvöldi árásir á Tulkarem á Vest-
urbakkanum og einnig Gazaborg í
hefndarskyni fyrir sjálfsmorðsárás er
gerð var í Tel Aviv í gærmorgun. Pal-
estínskur öryggisvörður féll í árásinni
á Tulkarem og tugir manna særðust.
Reuters
Palestínskur drengur við mynd af Yasser Arafat á mótmælafundi í borginni Ramallah á Vesturbakkanum í gær.
Bush íhugar refsi-
aðgerðir gegn PLO
Gögn sögð sanna aðild heima-
stjórnarinnar að vopnasmygli
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti hefur sent leiðtogum þriggja araba-
ríkja gögn sem þykja sanna að palestínska heimastjórnin hafi verið viðriðin
tilraun til vopnasmygls, að sögn bandarískra embættismanna. Þeir segja að
Bush hafi beðið leiðtogana að leggja fast að Yasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínumanna, að láta handtaka þá sem skipulögðu vopnasmyglið. Bandaríkja-
stjórn er sögð íhuga refsiaðgerðir gegn heimastjórninni.
Washington, Madrid. AP, AFP, Los Angeles Times.
MÁLARI klifrar upp Eiffel-turninn í París í gær. Mannvirkið, sem
reist var seint á nítjándu öld í tilefni heimssýningar, er úr járni og
er málað öðru hverju, verkið tekur rúmt ár og notuð eru 60 tonn af
málningu. Um sex milljónir ferðamanna heimsækja turninn ár hvert.
AP
Á brattann að sækja
LÖGREGLAN í Houston í Texas
skýrði frá því í gær að J. Clifford
Baxter, fyrrverandi aðstoðarstjórn-
arformaður orkufyrirtækisins Enron,
hefði fundist látinn í bíl sínum. Virtist
hann hafa skotið sig í höfuðið.
Baxter var 43 ára gamall og mun
hafa fundist bréf frá honum í bílnum
en ekki var skýrt frá innihaldi þess.
Enron sendi fjölskyldu hans samúð-
arkveðjur í gær. Fyrirtækið hefur
verið mikið í fréttum vegna gjald-
þrots þess fyrir skömmu sem talið er
hið mesta í sögu Bandaríkjanna.
Baxter sagði hins vegar af sér í maí í
fyrra, mörgum mánuðum fyrir hrun
fyrirtækisins.
Ráðamenn Enron eru sakaðir um
að hafa eytt bókhaldsgögnum og
blekkt hlutafjáreigendur fram á síð-
asta dag með yfirlýsingum um að fjár-
hagurinn væri með miklum blóma.
Fyrrverandi ráða-
maður hjá Enron
Sjálfsvíg
í bílnum
Houston. AP, AFP.FJÖGUR hundruð þúsund störf hafa
tapast í flugrekstrariðnaðinum á heims-
vísu frá árásunum á Bandaríkin 11.
september sl. Alþjóðavinnumálastofn-
unin, ILO, greindi frá þessu í gær en
þetta er versta kreppa í atvinnugrein-
inni í meira en fimmtíu ár.
Fulltrúar 200 ríkisstjórna, flugfélaga
og samtaka starfsmanna fyrirtækja er
starfa í greininni funduðu í vikunni.
Sagði Sally Paxton, framkvæmdastjóri
ILO, að árásirnar í september hefðu
haft áhrif á alla þætti – flugfélögin sjálf,
rekstur flugvalla, framleiðendur flug-
véla, þjónustufyrirtæki, bílageymslufyr-
irtæki og bílaleigur.
„Aðilar í atvinnugreininni voru sam-
mála um að þeir teldu að helstu afleið-
ingar árásanna væru nú komnar fram,“
sagði Paxton. „Þessi iðnaður er þó
áfram viðkvæmur fyrir áföllum og það
má gera ráð fyrir frekari endurskipu-
lagningu á fyrirtækjum og þjónustu.“
Er varað við því að þó að hugsanlega
muni störfum fjölga á ný sé ólíklegt að
það gerist fyrr en að ári liðnu eða þegar
iðnaðurinn tekur við sér á ný.
Áhrif 11. september
á flugiðnaðinn
400 þúsund
störf tapast
Genf. AFP.
RÍKISSTJÓRNIN og raunar danska
þingið allt virðast meta dugnaðinn
eftir fjölda nýrra laga og þau eru því
keyrð í gegn með heldur óheppileg-
um afleiðingum fyrir borgarana. Eru
ýmsir danskir lögfræðingar og sér-
fræðingar þessarar skoðunar.
Gefið ykkur mánuð í viðbót og
gangið sómasamlega frá lagasetning-
unni! Þetta er heilræðið, sem sér-
fræðingarnir gefa ríkisstjórninni og
þinginu og þeir geta nefnt mörg
dæmi um lög, sem eru svo illa úr
garði gerð, að þau eru næstum
óframkvæmanleg. Kom þetta fram í
Jyllands-Posten í gær.
„Það er vegna þess, að menn gefa
sér ekki þann tíma, sem til þarf.
Menn eiga að flýta sér þegar mikið
liggur við en hvort einhver lög koma
mánuðinum fyrr eða síðar skiptir yf-
irleitt engu máli. Það, sem máli skipt-
ir, er að vanda til þeirra,“ segir lög-
fræðingurinn Jon Stokholm. Hann
vill, að þingmenn verði skyldaðir til
að sækja námskeið í lagasiðfræði til
að þeir hafi manndóm í sér til að
hafna lögum, sem virðast hafa þann
eina tilgang að gera borgurunum líf-
ið leitt.
Allmikil umræða er um þessi mál í
Danmörku nú vegna þeirrar gagn-
rýni stjórnarandstöðunnar, að hin
nýja ríkisstjórn borgaraflokkanna
misnoti valdið og böðlist áfram í
lagasetningunni.
Fá minni umræðu en áður
Samkvæmt dönskum lögum verða
nú að líða að minnsta kosti 30 dagar
frá því lagafrumvarp er lagt fram og
þar til það er samþykkt en Tim Knud-
sen, prófessor við Kaupmannahafn-
arháskóla, segir að hugsanlega sé
rétt að lengja þennan tíma en gera
um leið ráð fyrir eðlilegum und-
antekningum. Eru lagasérfræðing-
arnir sammála um, að ný lög fái nú
minni umræðu en var á árum áður.
Hroðvirkni
við lagasmíð
♦ ♦ ♦