Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 24
LISTIR
24 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þyngdarlausa
viðbitið
Létt & laggott er viðbit með litlu
fituinnihaldi og góðu smjörbragði.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
•
5
1
5
8
/
si
a.
is
„ÞEGAR ég var komin í fjögurra liða
úrslit með handritið ákvað ég að
kaupa mér bikar ef ég ynni keppnina.
Hann stendur nú inní stofu og er eini
bikarinn sem mér hefur hlotnast um
ævina,“ segir Elísabet Jökulsdóttir,
höfundur leikritsins Íslands þúsund
tár sem Nemendaleikhús Listahá-
skólans frumsýnir í kvöld.
Allt var ákveðið fyrirfram
Forsaga þessa máls með bikarinn
er sú að í fyrravor auglýsti leiklist-
ardeild Listaháskólans eftir hug-
myndum að leikriti fyrir Nemenda-
leikhúsið. Fjórar tillögur voru valdar
af þeim rúmlega 30 sem bárust og
loks var ein – leikrit Elísabetar – val-
in til fullvinnslu og sýningar.
„Mér fannst mjög gott að allar dag-
setningar voru fyrirfram ákveðnar. Í
samningnum var tiltekið hvenær ég
ætti að skila handritinu og hvenær
æfingar ættu að hefjast. Þetta stóðst
allt og ég er mjög ánægð með hvernig
að þessu var staðið,“ segir Elísabet.
Það kemur líklega fleirum en und-
irrituðum á óvart að þetta skuli vera
fyrsta leikrit fullrar lengdar eftir El-
ísabetu þar sem hún hefur fyrir löngu
getið sér orð sem rithöfundur skáld-
sagna, smásagna, ljóða og leikþátta.
Hún á reyndar annað leikrit í hand-
raðanum sem býsna lengi hefur beðið
þeirrar blessunar að finna sér svið við
hæfi.
„Þetta er leikrit um sögulega fortíð
og geggjaða nútíð. Við stöndum
frammi fyrir spurningum um sjálf-
stæði þjóðarinnar og sakleysi fólks-
ins. Mér er sagt að sterkasta ástar-
samband sem ein manneskja getur
upplifað sé við náttúruna. Sem þjóð
eigum við í ástarsambandi við ís-
lenska náttúru. En nú er hætta á
skilnaði milli þessara gömlu elsk-
enda.“
Hatur á náttúru
landsins
Eitt af sterkustu einkennum Elísa-
betar sem leikritaskálds er ást henn-
ar á myndrænum möguleikum tungu-
málsins. „Ég er að fara á fund í stjórn
Ó, guð vors landsvirkjun,“ segir Afi
hennar Krúsídúllu sem eytt hefur
allri ævinni í að berja niður náttúru
landsins. Hann bendir t.a.m. á þá
augljósu staðreynd að Reynistaðar-
bræður hefur ekki orðið úti ef þeir
„hefðu haft háspennulínu til að fikra
sig eftir til byggða“.
„Ég kalla það hatur á náttúru
landsins að vilja virkja allt hálendið
og breyta ásýnd þess. Þetta er hið
sama og að þola ekki maka sinn eins
og hann er, heldur vilja sífellt breyta
honum.“
Krúsidúlla býr í blokk með foreldr-
um sínum sem hafa auðvitað engan
tíma fyrir hana. Það er framinn glæp-
ur gegn henni sem hún reynir að upp-
lýsa áður en leikritið er búið. Sögu
hennar svipar til sögu ömmu hennar
sem var nauðgað fjórtán sinnum og
hún geymir öll fóstrin í sultukrukk-
um. „Þetta eru auðvitað skelfilegar
sýnir en þær eru samt mýkri en raun-
veruleikinn,“ segir Elísabet.
Átján tomma og sjö lítra kók
„Fjórtán kynslóðir Íslendinga voru
grafnar undir öskulögum,“ segir Af-
inn og krefst þess að nútíminn komi
til bjargar.
Krúsidúlla hefur klofnað í þrjár
persónur og þær lifa allar góðu lífi í
leikritinu. Hún reynir að grafa upp
sína eigin sögu, fá að vita hvað hafi
gerst í fortíðinni; hvað kom fyrir
ömmu, hvað kom fyrir mömmu og
hvar er pabbi? spyr hún. Um leið
reynir hún að afklæðast húðinni sem
hefur verið flekkuð og kveðst þekkja
konu sem syngur fyrir húðir og
hreinsar; kannski getur hún þvegið
sig af því sem fyrir hana hefur komið.
Inn kemur pabbi hennar með
typpakippu og amman stillir þeim
upp í von um að Krúsidúlla þekki
typpið sem kom nálægt henni.
Amman er reyndar löngu dáin en
það kemur ekki að sök, hún er jafnlif-
andi fyrir því. Í blokkinni er ráðvilltur
pizzusendill frá Bíldudal í stöðugum
sendiferðum með átján tommu pizzu
og sjö lítra kók milli hæða. Hann
heldur því fram að sama fjölskyldan
búi í öllum íbúðunum. Mamman full-
yrðir hinsvegar að hún hafi ekki
skrifað Njálu. Hver gerði það þá?
Sungið fyrir húðirnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Krúsidúlla rólar sér með ömmu sinni og spjallar við annað sjálfið sitt.
Nemendaleikhús Leiklistardeildar Listahá-
skóla Íslands frumsýnir í kvöld í Smiðjunni
við Sölvhólsgötu nýtt leikrit eftir Elísabetu
Jökulsdóttur. Hávar Sigurjónsson hitti höf-
undinn daginn fyrir frumsýningu.
eftir Elísabetu Kristínu
Jökulsdóttur.
Leikarar: Arnbjörg Hlíf Vals-
dóttir, Brynja Valdís Gísladótt-
ir,
Gísli Pétur Hinriksson, Ívar
Örn Sverrisson, Ólafur Egill
Egilsson,
Tinna Hrafnsdóttir, Unnur
Ösp Stefánsdóttir, Vigdís
Hrefna Pálsdóttir.
Leikstjóri: Steinunn Knúts-
dóttir.
Dramatúrg: Magnús Þór
Þorbergsson.
Ljósahönnun: Egill Ingibergs-
son.
Búningar: Þórunn Sveinsdóttir
ásamt nemendum myndlist-
ardeildar.
Leikmynd: Finnur Arnar
Arnarson ásamt nemendum
myndlistardeildar.
Tónlist: Jón Hallur
Stefánsson.
Íslands
þúsund
tár
havar@mbl.is
RAÐMORÐINGINN Kobbi kvið-
ristir eða „Jack the Ripper“ hefur
öðlast allt að því goðsagnakenndan
sess meðal Vesturlandabúa. Þessi
huldumaður, sem risti nafn sitt í
spjöld sögunnar með hrottafengnum
morðum á vændiskonum í Whitecha-
pel-hverfi Lundúna á níunda áratug
nítjándu aldar, hefur löngum vakið í
senn óhug og forvitni í hugum
manna. Morðin sem hann framdi
brenndu sig svo djúpt í vitund
manna, ekki vegna fjölda þeirra,
(enda hafa morð á vændiskonum
vart þótt merkilegur viðburður á
þessum tíma), heldur vegna aðferð-
anna sem morðinginn beitti. Fórn-
arlömbin höfðu verið rist á hol á
kerfisbundinn hátt sem virtist vís-
indalegur og ritúalískur í senn.
Þessar aðferðir hins óþekkta
morðingja og kenningar rithöfunda
og Ripper-fræðimanna um tengsl við
innstu valdakjarna bresku krúnunn-
ar verða höfundum samnefndu
myndasögunnar sem From Hell er
byggð á tilefni heimspekilegra
vangaveltna um hugarfar nútímans.
Ómannúðleg grimmd beisluð í kerf-
ishugsun vísindanna og afsökuð í
nafni þeirra er eitt þeirra einkenna
sem 20. öldin með öllum sínum
mannskæðu styrjöldum hefur verið
kennd við. Umrædd myndasaga er
hrein snilld í nálgun sinni að við-
fangsefninu, þar sem morðmálið er
látið birta lagskiptingu og valdaátök
bresks samfélags í hugmyndasögu-
legu ljósi.
Hughes-bræðurnir bandarísku
hafa áður tekist á við samfélags-
dreggjar í verkum sínum, en í þess-
ari kvikmyndaaðlögun á myndasög-
unni merku tekst þeim einkar vel til.
Myndin hefur sjónrænan og frá-
sagnarlegan þunga og forðast það að
falla inn í þá vinsælu raðmorðingja-
formúlu sem efnið býður upp á. Hér
ná leikstjórar með aðstoð færra
handritshöfunda að miðla hinni
sterku samfélagsgreiningu mynda-
sögunnar mjög vel, jafnframt því
sem þeir nálgast efnið á sjálfstæðan
hátt sem hentar takmörkum og
möguleikum kvikmyndamiðilsins.
Það er til dæmis einungis vísað til
„myndasögustílsins“, sem margir
hafa gert tilraunir með í kvikmynd-
um, í afmörkuðum atriðum, þar sem
sýndar eru yfirlitsmyndir yfir Lund-
únaborg. Það andrúmsloft grimmrar
stéttskiptingar sem holdgerist í
Whitechapel-fátækrahverfinu verð-
ur einkar magnað í meðförum
bræðranna, og myndar þekkt kirkja
í hverfinu dramatískan miðpunkt
þess. Leikarar eru jafnframt sterkir
og þeim breytingum sem gerðar eru
á persónum myndasögunnar er hald-
ið innan skynsamlegra marka.
Hugarfar
nútímans
KVIKMYNDIR
Smárabíó
Leikstjóri: Albert og Allen Hughes. Hand-
rit: Terry Hayes og Rafael Yglesias.
Byggt á myndasögu eftir Alan Moore og
Eddie Campbell. Kvikmyndataka: Peter
Deming. Tónlist: Trevor Jones og Marilyn
Manson. Aðalhlutverk: Johnny Depp,
Heather Graham, Ian Richardson og Ian
Holm. Sýningartími: 121 mín. Bandarík-
in/Tékkland. 20th Century Fox, 2001.
FROM HELL (ÚR HELJU) Heiða Jóhannsdóttir