Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er nú í fjórða skipti sem Íslend-
ingur er meðal ungra leikarar sem
kynntir eru sem upprennandi evr-
ópsk kvikmyndastjarna á kvik-
myndahátíðinni í Berlín. Ingvar Sig-
urðsson, Hilmir Snær Guðnason og
Baltasar Kormákur hafa áður verið
valdir til þátttöku.
Kynningin er heiður
Dagana 8.–11. febrúar mun Mar-
grét Vilhjálmsdóttir leikkona taka
þátt í þessari dagskrá sem nefnist
„Shooting Stars“. Þá er vegur þess-
ara ungu leikara gerður sem mestur,
og margir þeirra hafa náð langt eftir
að hafa verið kynntir í Berlín.
Flestir Íslendingar þekkja Mar-
gréti, en hana má sjá þessa dagana í
kvikmyndinni Mávahlátur eftir
Ágúst Guðmundsson, en sýningum
fer nú fækkandi.
„Ég er aðallega stolt af því að hafa
verið valin sem fulltrúi Íslands á
þessa kynningu, og að vera fyrsta
konan,“ segir Margrét sposk, þegar
hún er spurð hvað henni finnist mest
spennandi við að fara til Berlínar.
„Strákarnir eru allir búnir að fara og
það er ekki eins og við stelpurnar
höfum ekki sést í kvikmynd!“
Hún segir dagskrána vera mjög
spennandi og að hún hlakki til að
hitta aðra leikara sem eru að gera
það sama og hún. Hún eigi að funda
með framleiðendum og leikstjórum,
og að þetta sé mjög vinsæll staður til
að fara á og skoða leikara.
„Á sunnudagskvöldinu verður há-
tíðardagskrá. Sýnt verður úr kvik-
myndunum sem við höfum verið að
vinna við. Síðan verðum við dregin
upp á svið og kynnt. Þetta á samt
ekkert sameiginlegt með fegurðar-
samkeppni, þetta er frekar heiður og
ég er mjög stolt að taka þátt.“ Mar-
grét gerir sér ekki sérstakar vonir
um að fá strax vinnutilboð, en ætlar
vissulega að athuga það ef ske kynni.
Næst fá Íslendingar að berja leik-
konuna augum í kvikmyndinni Fálk-
ar eftir Friðrik Þór Friðriksson, en
enn er óvíst hvenær hún verður
frumsýnd. Einnig er hún að æfa
hlutverk Önnu Karenínu fyrir Þjóð-
leikhúsið sem brátt verður frumsýnt.
Stolt að vera
fyrsta konan
Margrét Vilhjálmsdóttir
sem Freyja.
Fjölskylduleyndarmál
Familjehemligheter
Drama
Svíþjóð 2001. Myndform VHS. Bönnuð
innan 12 ára. (101 mín.) Leikstjórn og
handrit Kjell-Åke Andersson. Aðal-
hlutverk Rolf Lassgård, Maria Lundqvist.
LÍKT OG önnur öllu kunnari
mynd, Tilsammans, á þessi mynd sér
stað á gullaldarárum sænska vel-
ferðarkerfisins, áttunda áratug síð-
ustu aldar. Björn Borg var þá best-
ur, Olof Palme sanngjarnastur,
Ingmar Bergman útpældastur,
ABBA vinsælust, Volvo öruggastur,
IKEA hagkvæm-
ast og Britt Ekland
sætust.
Sænska fjöl-
skyldan átti ef til
vill líka að vera sú
hamingjusamasta.
Í það minnsta gafst
henni kannski besti
kosturinn til þess
með þeirri öflugu
fjölskylduvænu velferðarpólitík sem
þá var rekin. En hér er sögð dæmi-
saga af því að það var samt ýmislegt
sem velferðarkerfið gat ekki reddað.
Hér er fjallað um falskt öryggi, yf-
irborðsmennsku og værukærð sem
átt getur sér stað við slík fyrirmynd-
ar ytri skilyrði sem á undan var lýst.
Anderson (Min store tjocke far)
naut þess mjög greinilega að hverfa
aftur til þessa tíma og dregur upp
mjög ýkta mynd af öllum kenjum
sem þá réðu ríkjum. Hann er óvæg-
inn í þessu uppgjöri sínu en líka á
stundum kvikindislega fyndinn þrátt
fyrir að ná aldrei sömu hæðum í
hæðninni og landi hans Lucas
Moodysson. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Í velferð-
arvíti
Sími 552 3030
Sýnd kl. 1.45, 3.50 og 5.55. Vit 328
HJ MBL
ÓHT Rás 2
DV
„Leikararnir standa sig
einstaklega vel, ekki aðeins
stórleikararnir Spacey og hinn
óviðjafnanlegi Bridges, heldur er
valið af slíkri kostgæfni í hvert og
einasta aukahlutverk, að minnir á
Gaushreiðrið.“
SV MBL
Sýnd kl. 3, 6, 8 og 10.40. Vit 334. B.i. 14.
Frá leikstjóra Sea of Love kemur fyrsta spennumynd ársins.
Með töffaranum, John Travolta (Swordfish, Face/Off), Teri
Polo (Meet the Parents), Vince Vaughn (The Cell, Swingers)
og Steve Buscemi (Armageddon, The Big Lebowski).
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit 319
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Íslenskt tal. Vit 320
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
Sýnd kl. 1 og 4. Ísl tal. Vit 325
Sýnd kl. 4. Enskt. tal. Vit 307
1/2
RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
Vit 292
Sýnd kl. 8 og 10.30. Vit 327
Sjóðheitasta mynd ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz.
Myndin er hlaðin frábærri tónlist
en Sigur Rós á 3 lög í myndinni. Frá leikstjóra Jerry Maguire.
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 333. B.i. 14 ára
Frumsýning
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.
SV MBL
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
HJ MBLÓHT Rás 2
DV
Frá leikstjóra Sea of Love kemur fyrsta
spennumynd ársins. Með töffaranum, John
Travolta (Swordfish, Face/Off), Teri Polo (Meet
the Parents), Vince Vaughn (The Cell,
Swingers) og Steve Buscemi (Armageddon,
The Big Lebowski).
Sýnd kl. 4 og 6.
Edduverðlaun6
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 áraSýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. B.i 14 ára
ÞÞ Strik.is ÓHT Rás 2HL MblSG DV
Sýnd kl. 8.
Sjóðheitasta mynd ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope Cruz=Heitasta parið í dag,
ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz.
Myndin er hlaðin frábærri tónlist
en Sigur Rós á 3 lög í myndinni. Frá leikstjóra Jerry Maguire.
Frumsýning
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2. ísl tal
Ó.H.T Rás2
Strik.is
Kvikmyndir.com
Ein persóna getur
breytt lífi þínu að eilífu.
Frá leikstjóra Delicatessen
SG. DV
HL:. MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
ATH.: bre
yttur sýn
ingartími
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is 1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2. Ísl. tal.