Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Lítill drengur að dyrum ber Drottinn sjálfur sendi hann þér gættu hans vel því gull hann er, og gæfu þína hann ber með sér. (Hans klaufi.) Með þessum línum Haraldar Á. Sigurðssonar var hann Krummi boð- inn velkominn í jarðvist. Hann fædd- ist á sólbjörtum septemberdegi og hann var sjálfur alla tíð bjartur og fagur eins og sá dagur. Hann var lag- legur, rólegur, vel gefinn, hrekklaus, umhyggjusamur og mikill dýravinur. Öllum þessum góðu Guðs gjöfum fékk hann að halda út sitt æviskeið, þrátt fyrir það að krumla eiturlyfja- bölsins næði heljartaki á honum. Sál- in var tær og hrein jafnt á síðasta degi sem þeim fyrsta. Fyrir það þakka ég nú. Ég þakka drengnum mínum fyrir góðu stundirnar og þá ást sem hann gaf mér. Og ég mun ylja mér við þær góðu minningar. Það er ólýsanlega sárt að þurfa að sjá á eftir barninu sínu í klær eitur- lyfja og að þurfa að lifa við þann stöð- uga ótta sem því fylgir. Það skiptast á stundir vonar og ótta og oft hefur þurft að taka á öllu sínu við að halda í vonina. Nú er sú von úti, vonin um að Krummi kæmist úr fjötrunum og ætti sér eðlilegt líf. Ég veit að hans er vel gætt núna, hann er laus við þján- inguna og hans bjarta ljós mun ef- laust lýsa þeim sem eiga um sárt að binda. Ég veit að það eru margir þarna úti sem eru á barmi örvænt- ingar vegna barnanna sinna og þeir eiga alla mína samúð. Eins veit ég að dauði Krumma er veruleg áminning til þeirra sem enn eru að berjast við að lifa lífinu allsgáðir, einn dag í senn. Mín samúð er og hjá þeim með ósk um að þeir finni styrk til að sigrast á þessum vágesti vorra tíma. Á erfiðustu stundu lífs míns stóðu læknar og hjúkrunarfólk gjörgæslu- deildar Borgarspítalans, svo og séra Sigfinnur sjúkrahúsprestur, hjá mér eins og klettur. Þau voru til staðar af öllu hjarta og fyrir það þakka ég þeim innilega. Að finna svo einlægt og skilningsríkt viðmót á slíkri stund er ómetanlegt. Systkini mín, makar þeirra og Guð- rún mín gengu með mér þessi erfiðu spor. Þau hefði ég ekki komist án þeirra. Séra María Ágústsdóttir og Loftur Erlingsson gerðu okkur sem eftir stöndum með söknuð í hjarta minn- ingarstundina í Fossvogskirkju að SIGURÐUR HRAFN JENSEN ✝ Sigurður HrafnJensen fæddist í Reykjavík 18. sept- ember 1975. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvogi 14. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Gréta Ósk Sigurðar- dóttir, myndlistar- maður á Vaði í Skrið- dal, f. 10. apríl 1956, og Jörg Szemkus, tónlistarmaður í Hamborg í Þýska- landi. Sambýlismað- ur Grétu er Guð- mundur Ármannsson, bóndi á Vaði, f. 6. október 1945. Systkini Sigurðar sammæðra eru Kari Ósk Ege, f. 16. janúar 1981, Júlíana Garðarsdóttir, f. 7. október 1990, og Garðar Örn Garðarsson, f. 18. mars 1992. Útför Sigurðar fer fram frá Þingmúlakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. ógleymanlega ljúfri og lærdómsríkri stund. Þökk sé ykkur. Ég kveð drenginn minn með þakklæti í huga. Mamma. Krummi var mjög góður bróðir og honum líður örugglega mun betur í himnaríki en hér á jörðinni eftir eiturlyf- in. Einu sinni fóru ég og Krummi í sama gallann og þegar mamma kom heim fór hún að skellihlæja. Við litum út eins og skrímsli með tvo hausa og fjögur augu. Kisan hans Krumma er mjög mikið skass og nú er hún mjög döpur. Krummi var mjög góður að spila á gítar og hann lærði mörg lög af plöt- um og kassettum. Kæri Guð, ég vona að þú og engl- arnir passið Krumma mjög vel og lát- ið honum líða vel. Garðar Örn Garðarsson. Krummi, ég vil þakka þér fyrir að vera svona góður bróðir. Það er rosa- lega leiðinlegt að þú ert dáinn. Ég og Ísis söknum þín mjög mikið. Við gleymum þér aldrei. Júlíana Garðarsdóttir. Nú ertu komin á betri stað elskan mín. Ég elska þig. Við vorum stöðugt í hjarta hvors annars, töluðum saman á hverjum degi, ef við vorum frá hvort öðru en þegar við vorum saman, nægði okkur alltaf bara að halda utan um hvort annað. Ég var einkasirk- usinn þinn og ég naut þess svo að horfa í augun á þér, þegar þér leið vel, full af lífi. Mér fannst svo erfitt þegar þér leið illa og það var svo oft. En elsku Krummi minn, bíddu eftir mér, ég kem til þín. Þú ert sá eini sem ég hef algjörlega elskað. Við ætluðum alltaf að eignast barn saman og það hefði orðið svo yndislegt barn. Með alla þína kosti, blíðleika og einlægni, nefið þitt og tennur, sameinað með augun- um okkar. Algjörlega fullkomið. Ég fékk að kalla þig Krums, mr. Krumble og Krumpi, öllu svaraðirðu, ástin mín. Án þín væri ég sennilegast í fangelsi eða komin til himna. Þú bjargaðir mér alveg. Ég er svo þakk- lát fyrir að hafa fengið að eyða með þér þessum árum. Með þér var ég fullkomnuð. Eða eins og dr. Evil sagði: Mini me, you complete me. Ég elskaði að hjala við þig, þó ég hafi sjálf oft verið erfið við þig, þá gastu alltaf fyrirgefið mér. Ég mun aldrei gleyma þér ástin mín, og mig langar til að þú vitir að ég ætla að spjara mig, því þér fannst ég alltaf svo falleg edrú. En veistu hvað, þú varst alltaf fallegur og blíður, alltaf, alltaf. Ég mun alltaf elska þig. Þú varst hinn helmingurinn af mér. Ég hitti þig fljótlega. Ég elska þig og þú varst alltaf mér trúr, Amitu main phalobasin sabaker! Þín að eilífu. Hulda Björk. Með þessum örfáu línum langar mig að minnast Sigurðar Hrafns eða Krumma eins og hann var oftast kall- aður. Lífið fór ekki alltaf mjúkum hönd- um um þennan ljúfa fallega dreng sem hefði átt að eiga góða og bjarta framtíð. En því miður villtist Krummi af beinu brautinni og lenti á hrjóstr- ugum og þröngum stíg síðustu árin. Krummi var vel gefinn, átti auðvelt með að læra, var skemmtilegur og vinsæll, fallegur og góður, kannski of góður fyrir þennan þennan harða heim sem við lifum í. Því miður koma „sölumenn dauð- ans“ víða við, en það voru eiturlyf sem urðu Krumma bani. Það er sorg í mínu hjarta því ég veit að Krummi vildi og reyndi marg- sinnis að komast út úr þeim vítahring sem hann eins og allt of mörg ung- menni lenda í, en það er eins og fíknin hafi alltaf orðið viljanum yfirsterkari. Og nú á nýbyrjuðu ári efir að hafa verið laus við fíkniefnin um nokkurra vikna skeið féll hann enn á ný, og nú verður ekkert aftur tekið. Það eru ómældar áhyggjur, ótti, vonleysi en jafnframt væntingar sem lagðar eru á nánustu aðstandendur fíkniefnaneytenda, og erfitt að setja sig í þeirra spor. Samband Krumma og Grétu móður hans var þrátt fyrir allt mjög náið og gott og tenging þeirra afar sterk, en áhyggjur hennar yfir sínum efnilega syni sem Krummi var eru ólýsanlegar og álagið á fjöl- skylduna mikið. Ég held að Krummi hafi gert sér grein fyrir að hann yrði ekki gamall í þessari jarðvist og að hverju stefndi, því nokkrum dögum áður en hann dó sagði hann við ömmu sína „elsku amma mín, ég verð farin löngu á und- an þér yfir móðuna miklu“. Nú hefur sálin fengið eilífan frið en eftir standa aðstandendur harmi slegnir, ekki síst yfir hlutskipti Krumma, að hann hafi ekki fengið að njóta alls þess góða sem lífið hefur upp á að bjóða. En dauðinn er aðeins efnislegur, sálin lifir og minningin um fallega Krumma. Elsku Gréta, Karí, Júlíanna, Garð- ar, Guðmundur og aðrir ættingjar og vinir, ég veit að söknuður ykkar er mikill, en ef til vill örlítil huggun að vita að Krummi þjáist ekki meir og er kominn í annan heim, heim ljóss og friðar. Ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið Guð að styrkja ykkur. Guðrún Þórðardóttir. Elsku Krummi eða mr. Krömbuls eins og þú vildir oft kalla þig. Ég kynntist þér 2. nóvember sl., það var mjög góður dagur. Við náðum strax mjög vel saman og gátum spjallað heilmikið um lífsreynslu okk- ar og hvaða takmarki við vildum ná í lífinu. Við töluðum um hvað lífið væri í raun yndislegt, við hefðum bara aldr- ei tekið eftir því, og að nú væri kom- inn tími til að njóta þess og alls sem það hefur uppá að bjóða. Allt þetta hefur nú verið tekið frá þér af sjúk- dómi sem þú hefur barist hetjulega við. Ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir þér, Krummi, þú ert einlægur og kemur til dyranna eins og þú ert klæddur. Þrátt fyrir stutt kynni þá skynjaði ég strax að þú ert vinur vina þinna og fyrir mér eru það forréttindi að hafa kynnst þér, og mikill heiður að geta sagt „Krummi er vinur minn“. Þú veittir mér innsýn í sjálfan mig og lífið. Þú veist ekki hvað þú hjálp- aðir mér mikið og þykir mér leitt að geta ekki endurgoldið þér þá hjálp sem þú gafst mér. Ég mun biðja fyrir þér eins og þú baðst fyrir mér þegar mér leið illa, og reyndar baðstu fyrir allri fjölskyldu minni og ófædda barni mínu líka. Það sýnir hversu gott hjarta og góðan mann þú hefur að geyma. Ég mun aldrei gleyma þér, Krummi, og þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu, elsku vinur. Takk fyrir að vera vinur minn. Ég bið Drottin að geyma þig og við munum hittast aftur. Þinn vinur, Kári Hallsson. Elsku Krummi, ég þekkti þig ekki neitt. En þú varst kærasti og besti vinur vinkonu minnar. Þótt ég þekkti þig ekki varst þú eins og ég, með sama sjúkdóm, sem að lokum sigraði.                                     !"# " $    #  % &  #    '  &   (    #  % &                                    !      "    # $%!    !"" ! &                  ' ()  ' *+ , "    (   )     *        '  !     !   !    !      ! &            -.)/0$10 2 3 4  *         +     *  5 #5 #   #2" ,   6+"7  #   8 #   7+  9 -5" #   !75         ! &       :.).' *;%& 4 <             *  # 5   **55"  $ !5"   5" &       17  = >? 7 <%   &  ,  ) & & !- & #  .   ,,/ 7      % %  &                    0  $ / )() ' *;"*%  % ,"@A / "  ; "   (   1  "  &   ,   !7 +   :7 ,   *6:$4   8 ,   %  2&%      !      !   * !4;&

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.