Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 15
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 15 KÝRIN Perla á Kvíabóli í Ljósa- vatnshreppi er stigahæsta kýr landsins hvað varðar útlit en brjóstmál hennar er vel yfir tveir metrar og hlaut hún 91 stig í heild þegar hún var skoðuð og mæld. Perla er eign Marteins Sigurðs- sonar, bónda á Kvíabóli, og konu hans, Kristínar B. Bragadóttur, sem lengi hafa búið með nautgripi en hjá þeim eru 60 mjólk- andi kýr. Perla er ekki bara afburðakýr að allri gerð og skapi heldur skilar hún gríð- arlega efnaríkri mjólk og var prót- ínhlutfall hjá henni í fyrra 3,95% og fitu- hlutfall 4,78%. Faðir Perlu er Klaki sem er landsþekkt naut en móðir hennar er einnig mjög mikil kýr og mjólkaði á síðasta ári yfir 8.000 kg. Hún er tólf ára og hefur því enst mjög vel. Þingeysk kýr með hæsta útlits- dóm landsins Laxamýri Morgunblaðið/Atli Vigfússon Marteinn Sigurðsson og Kristín Björg Braga- dóttir á Kvíabóli með kúna Perlu sem hlotið hef- ur mjög hátt kynbótamat. Morgunblaðið/Guðrún Vala Starfsfólk Skessuhorns frá vinstri: Sigurður Már Harðarson, Guðrún Björk Friðriksdóttir, Gísli Einarsson ritstjóri og Sigrún Sigurðardóttir. Á myndina vantar Hjört Hjartarson og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur. Útbreiðsla Skessu- horns vaxandi Borgarnes ÚTBREIÐSLA héraðsfréttablaðs Vesturlands, Skessuhorns, hefur farið vaxandi. Blaðið teygir anga sína út á Snæfellsnes, inn í Dali og á Akranes, en höfuðstöðvarnar eru hér í Borgarnesi. Útbreiðsla blaðsins er víðtæk en samkvæmt upplýsing- um Gísla Einarssonar ritstjóra er það eitt af þremur útbreiddustu hér- aðsfréttablöðum á landinu. Blaðið byggist bæði á áskrift og auglýsing- um og þar starfa fimm manns í fullu starfi auk eins í hlutastarfi. Í lok síðasta árs var gert markaðs- átak sem meðal annars fólst í því að Skessuhorni var dreift á höfuðborg- arsvæðinu með Morgunblaðinu. Átakið skilaði talsverðum árangri en hinsvegar segir Gísli að mestu hafi ýmis uppátæki skilað eins og t.d. Halifax-ævintýrið. ,,Það kom til þannig að þegar Íslendingar voru að kaupa Stoke, fór öll sú umfjöllun í taugarnar á okkur þannig að við fór- um á stúfana og fundum lið sem var í neðsta sæti í neðstu deild og kynnt- um það á okkar vef. Af þessu varð til netklúbbur til stuðnings Halifax og eru í honum um 700 manns, bæði Ís- lendingar, Englendingar og fleiri. Síðan kom ensk útgáfa af vefnum og við höfum farið tvisvar á leiki með Halifax og Stoke, en framtakið hefur vakið athygli á Englandi þar sem BBC fjallaði um þetta í aðalfrétta- tíma sínum. Þetta hefur kynnt vefinn og Skessuhorn vel og verið góð aug- lýsing fyrir okkur,“ segir Gísli. Fyrsta tölublað Skessuhorns kom út fyrir fjórum árum og var þá gefið út af Skessuhorni ehf. Í árslok 1999 sameinaðist Skessuhorn tölvufyrir- tæki og úr varð Íslensk upplýsinga- tækni sem ásamt útgáfu blaðsins rak tölvuþjónustu og hélt uppi vefsíðu. Um áramótin 2000-2001 var það að- skilið aftur og nýtt fyrirtæki, Tíð- indamenn ehf., stofnað. Það er al- hliða útgáfuþjónusta sem tekur að sér ýmis verkefni. ÖKUMAÐUR fólksbíls slapp með smávægileg meiðsli þegar bíll hans valt ofan í fjöru við Bolabás í sunn- anverðum Reyðarfirði á fimmtu- dagsvöld. Hálka var á veginum þegar bíllinn fór út af og valt fram af allháum bakka ofan í fjöruborðið. Ökumaður hringdi sjálfur í Neyð- arlínu og flutti lögregla hann á heilsugæslustöðina á Eskifirði til læknisskoðunar. Hann fékk að fara heim að henni lokinni. Að sögn lögreglunnar á Eskifirði er bíllinn gjörónýtur og ljóst að mun verr hefði farið hefði maðurinn ekki verið í bílbelti. Valt ofan í fjöru við Bolabás Reyðarfjörður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.