Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.01.2002, Blaðsíða 30
UMRÆÐAN 30 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í slendingar líta gjarnan á sig sem nútímalega þjóð sem aðhyllist frjálslynd viðhorf og jafnan rétt allra, óháð kynferði, lit- arhætti eða trúarbrögðum. Þetta má að vissu leyti til sanns vegar færa: hér búa kynin til dæmis við nokkuð jafna stöðu, tilkoma flokks þjóðernissinna og fordómafull ummæli þeirra hafa vakið hér hörð viðbrögð og starf- semi trúfélaga hefur ekki verið kveðin niður með valdi, eins og víða þekkist. Jafn réttur allra manna er aukinheldur tryggður í stjórnarskrá lýðveldisins og unn- ið hefur verið markvisst að því að nema úr gildi lagaákvæði sem mismunuðu fólki, t.d. eftir kynferði. En alvarleg mismunun er þó ennþá til staðar í lögum og meira að segja í stjórnarskránni sjálfri: þrátt fyrir að þar sé kveðið á um trúfrelsi er einum trúarbrögðum – hinu evangelísk-lúterska af- brigði kristni – gert hærra undir höfði en öðrum. Hér er meira að segja starfrækt ríkiskirkja á ev- angelísk-lúterskum grunni, sem ríkisvaldinu ber samkvæmt stjórnarskránni að „styðja og vernda“ sérstaklega. Í lögum um þjóðkirkjuna er meðal annars kveðið á um að rík- ið (það er að segja skattgreið- endur) greiði henni „árlegt fram- lag sem miðist við að það nægi til reksturs hennar“ og ennfremur er gert ráð fyrir að almenningur standi straum af launakostnaði klerka þessa trúfélags. Ýmis stjórnunarleg tengsl eru einnig fyrir hendi á milli kirkjunnar og ríkisvaldsins, til að mynda skipar forseti Íslands æðsta mann henn- ar, biskupinn. Þá má nefna að kristin messa og bænagjörð er fastur liður í setningu Alþingis, kristni er hampað umfram önnur trúar- brögð í trúarbragða- og siðfræði- kennslu í grunnskólum, opinber þjónusta og mestöll atvinnu- starfsemi liggur niðri á helgidög- um þjóðkirkjunnar og skattgreið- endur standa einnig undir menntun prestastéttar hennar, eins trúfélaga. Ekki þarf að hafa mörg orð um hversu óeðlilegt þetta fyr- irkomulag er. Þrátt fyrir að stór hluti þjóðarinnar játi þessa ákveðnu trú í orði er óréttlæt- anlegt að mismuna borgurunum með þessum hætti eftir trúar- skoðunum. Svo ekki sé talað um hversu mikil tímaskekkja það er að halda úti ríkisstofnun með það að markmiði að boða hindurvitni, nú þegar um 250 ár eru liðin síð- an Upplýsingin hélt innreið sína í Evrópu! Gallup hefur árlega kannað af- stöðu landsmanna til tengsla rík- is og kirkju og í nýjustu könn- uninni, sem gerð var á haustmánuðum, kemur fram að rúmlega 53% eru hlynnt aðskiln- aði, tæplega 13% eru hvorki hlynnt né andvíg og 34% eru andvíg. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eru höfuðborg- arbúar hlynntari aðskilnaði ríkis og kirkju en þeir sem búa úti á landi og stuðningurinn við að- skilnað minnkar með aldrinum. Þessi ólíka afstaða eftir aldri endurspeglast til dæmis í álykt- unum landsfundar Sjálfstæð- isflokksins annars vegar og þinga Sambands ungra sjálfstæð- ismanna hins vegar. Á síðasta SUS-þingi ítrekuðu ungliðarnir fyrri ályktanir sínar um að ríki og kirkju ætti að aðskilja að fullu, en á landsfundi Sjálfstæð- isflokksins í október kvað við annan tón. Þar var tillaga ungliða um aðskilnað ríkis og kirkju felld, en samþykkt ályktun sem ekki verður túlkuð öðruvísi en sem atlaga að trúfrelsi í landinu. Í ályktun landsfundarins um réttarfars- og stjórnskipunarmál segir meðal annars: „Sjálfstæð- isflokkurinn leggur áherslu á mikilvægi kristinnar trúar fyrir íslenskt samfélag og vill að trúar- leg og siðfræðileg gildi hennar verði kjölfestan í andlegu lífi þjóðarinnar.“ Auk ungra sjálfstæðismanna hafa að minnsta kosti ungir jafn- aðarmenn hvatt til aðskilnaðar ríkis og kirkju og með kyn- slóðaskiptum í íslenskum stjórn- málum hlýtur að mega gera ráð fyrir að nútímalegri viðhorf ryðji sér til rúms. Þess er þó að sjálfsögðu ósk- andi að ekki þurfi að bíða kyn- slóðaskipta á Alþingi til að „þjóð- ar“-forskeytið verði sneitt af hinni evangelísk-lútersku kirkju. Nú er til meðferðar á Alþingi frumvarp þriggja þingmanna um fullan aðskilnað ríkis og kirkju. Frumvarpið gerir ráð fyrir að all- ar kirkjudeildir og trúarsöfnuðir skuli njóta jafnréttis að lögum og sé gert jafn hátt undir höfði. Eins og fram kemur í grein- argerð með frumvarpinu er tekið fram í 62. grein stjórnarskrár- innar, þar sem mælt er fyrir um starfsemi þjóðkirkju, að þessu ákvæði megi breyta með lögum. Það þýðir að breytingar á grein- inni þurfa ekki að hljóta sam- þykki tveggja þinga, eins og al- mennt gildir um breytingar á stjórnarskránni. Hins vegar er kveðið á um að verði gerðar breytingar á kirkjuskipun rík- isins beri að leggja þær undir þjóðaratkvæði. Samkvæmt fyrrgreindum skoðanakönnunum Gallup eru talsverðar líkur á að þjóðin myndi samþykkja aðskilnað ríkis og kirkju í slíkri atkvæða- greiðslu. Víst er að það yrðu ekki einungis trúlausir og meðlimir annarra safnaða sem myndu greiða því atkvæði, heldur einnig margir fylgjendur hinnar evang- elísk-lútersku kirkju, sem telja að fullt sjálfstæði verði starfsemi hennar til góða (meðmælendur frumvarpsins á Alþingi voru til að mynda þeirrar hyggju). Vonandi bera alþingismenn gæfu til að samþykkja þessar breytingar, sem og landsmenn allir í þjóðaratkvæðagreiðslu. Því fyrr geta Íslendingar ekki að sönnu talist nútímaleg, frjálslynd þjóð. Trúhelsi á Íslandi Vonandi bera alþingismenn gæfu til að samþykkja þessar breytingar, sem og landsmenn allir í þjóðaratkvæða- greiðslu. Því fyrr geta Íslendingar ekki að sönnu talist nútímaleg, frjálslynd þjóð. VIÐHORF Eftir Aðalheiði Ingu Þorsteins- dóttur aith@mbl.is Í JÚNÍ næstkom- andi eru fyrirhuguð inntökupróf inn í læknadeild Háskóla Ís- lands. Síðustu ár hefur ótakmarkaður fjöldi stúdenta hafið nám í læknadeild á haustin og takmarkaður fjöldi fengið að halda áfram á aðra önn eftir sam- keppnispróf í desem- ber. Slíkt fyrirkomulag kallast numerus clau- sus. Þessi fyrsta önn reynist stúdentum oft mjög erfið á margan hátt og m.a. þess vegna eru inntökupróf að loknu stúdentsprófi mun betri kostur að ýmsu leyti. Því má í sjálfu sér fagna fyrirhuguðum breytingum. Hins vegar er undirbúningur fyrir þessi tilteknu inntökupróf í lækna- deild nú í júní næstkomandi engan veginn fullnægjandi og reyndar virð- ist hann mjög skammt á veg kominn. Nýlega var gefinn út listi yfir þá framhaldsskólaáfanga sem sagðir voru líklegir til að innihalda efni sem gæti komið á þessu prófi, en nú munu hafa verið gerðar breytingar á þess- um lista og þær standa enn yfir án þess að nokkrar upplýsingar um þær hafi borist almenningi eða þeim nem- endum sem málið varðar. Við sem tókum þátt í samkeppnisprófinu í desember sl. höfum því mjög óljósa hugmynd um hvernig við getum best búið okkur undir þetta væntanlega samkeppnispróf. Okkur finnst t.d. ótækt að áfangalistinn sé ekki betur ígrundaður en svo að á honum eru (eða voru) áfangar sem voru ekki kenndir þegar við vorum í framhalds- skóla. Á honum eru (eða voru) líka áfangar sem ekki var lögð nein áhersla á að við tækjum þegar við vorum í framhaldsskóla og leituðum til námsráðgjafa um það hvaða áfang- ar væru æskilegur undirbúningur undir læknanám. Loks má nefna að framhaldsskólar leggja efnið fram á mismunandi hátt af því að samræmd framhaldsskólanámskrá hefur ekki verið til fyrr en nýlega. Því er nær ómögulegt að gera prófið á sann- gjarnan hátt fyrr en ný aðalnámskrá hefur komið til framkvæmda. Listi yfir áfanga sem eru æskilegur und- irbúningur undir inntökupróf í læknadeild þarf að liggja fyrir í fram- tíðinni þegar fólk hefur nám í fram- haldsskóla og námsráðgjafar skól- anna þurfa að þekkja hann. Lánshæfi náms til inntökuprófs Annað sem er vert að athuga er það að í undirbúningi til fyrirhugaðs inntökuprófs nú í júní hlýtur öll áhersla að verða lögð á framhalds- skólanámsefni. Því er eðlilegt að stúdentar sem fóru í samkeppnispróf í læknadeild sl. haust og voru ekki meðal hinna útvöldu þá og hyggjast þreyta inntökuprófið í júní sjái ekki hag sinn í að skrá sig í námskeið við Háskóla Íslands nú í vor, þótt þeir gætu þannig í raun búið sig undir nám í læknadeild. Í staðinn er hyggi- legra fyrir þá að reyna að búa sig undir inntökuprófið með því að rifja upp framhaldsskólaefni eða kynna sér efni úr framhaldsskólaáföngum sem ekki voru á dagskrá þegar þeir voru í skóla eða ekki var mælt með þá sem undirbúningi fyrir læknanám. Fyrir þessa nemendur verður nær ómögulegt að fá námslán til fram- færslu á vormisseri þar sem fram- haldsskólanám er ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Í því kerfi sem gilt hefur til þessa sóttu allir nemendur sömu fyrirlestra og höfðu þá sama (eða svipaðan) und- irbúning fyrir samkeppnisprófin. Fyrir sumarinntökuprófin standa nemendur mjög misvel að vígi ef mið- að verður við stúdentsprófsefni, þar sem samræming stúdentsprófa er einungis á byrjunarstigi. Með hlið- sjón af öllu því sem hér hefur verið rakið teljum við að þessi fyrirhuguðu inntökupróf séu ótímabær. Lág- marksundirbúningstími með öllum upplýsingum fyrir nemendur hlýtur að teljast eitt ár. Málið er í hnút. Tíminn er að renna frá læknadeild og okkur sem höfum þegar hafið nám við Háskóla Íslands. Það eru hillingar einar að ætla sér að finna sanngjarna leið til að halda inn- tökupróf í læknadeild í júní næstkom- andi. Því teljum við læknadeild nauð- beygða til að haga inntöku nýnema á venjubundinn hátt næsta haust (nota numerus clausus fyrirkomulagið) og fresta inntökuprófunum þar til þau hafa verið skilgreind betur og ný námskrá hefur komið til fram- kvæmda í framhaldsskólum. Ef inn- tökuprófunum væri frestað um ár til dæmis gæfist nemendum kostur á því núna að velja á milli þess að hefja nám samkvæmt gamla kerfinu í haust eða að búa sig undir inntökupróf sum- arið 2003. Það myndi strax draga úr því misrétti sem nú blasir við. Inntaka eða aftaka í læknadeild Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir Inntökupróf Við teljum læknadeild nauðbeygða, segja Guð- rún Þuríður Höskulds- dóttir og Davíð Jens- son, til að haga inntöku nýnema á venjubundinn hátt næsta haust. Höfundar eru háskólanemar. Davíð Jensson LÍNA Langsokkur sagði einhvern tíma: „Æ, já, tíminn líður og maður byrjar að verða gamall. Í haust verð ég tíu ára og þá er maður búinn að lifa sína bestu daga.“ Hvað ætli sé mikill sannleikur í því, a.m.k. fyrir sum okkar? Við verðum þrítug, fer- tug og fimmtug og alltaf finnst okkur við vera orðin dálítið gömul og búin að missa af lífinu. Okkur finnst kannski of seint að láta draumana rætast af því það er dálítil áhætta. Og svo gleymum við okkur í kapp- hlaupinu við elli kerlingu, með því að hamast áfram við að ná sem lengst í lífinu áður en hún nær að toga of mikið í hrukkurnar. Ævintýrin sem leynast handan við hornið Lína kunni þá list að gera hvern dag að ævintýri. Og það sem meira er; hún var ekki að því fyrst og fremst fyrir sjálfa sig, heldur voru mörg af hennar skemmtilegustu æv- intýrum ætluð vinum hennar. En um leið naut hún hvers andartaks til hins ýtrasta. Ég vil að minnsta kosti trúa því af því að hún er ein af mín- um hetjum. Og ég verð að segja að ég verð afskaplega leið á sjálfri mér þegar ég er komin of langt frá Línu. Þá verð ég svo alvarleg og hugsi, hlæ ekki eins oft og græt ekki einu sinni heldur. Verð bara dálítið dofin fyrir lífinu og hætti að finna ævintýrin sem vissu- lega leynast handan við hvert húshorn ef maður hugsar eins og Lína Langsokkur. Líföndun Eitt af þeim tækjum sem hafa reynst mér vel við að tengjast sjálfri mér aftur þegar ég missi af lífinu og Línunni í mér er líf- öndun. Og þá er eðli- legt að spyrja: Og hvað er nú líföndun? Líföndun er leið til að finna fyrir kjarnanum í okkur sjálfum. Við not- um öndunina til að deyfa okkur nið- ur, til að finna ekki – með því að anda mjög grunnt og lítið. Á sama hátt, með því að dýpka öndunina og anda meira meðvitað, förum við að finna það sem við höfum bælt. Þegar við bælum tilfinningar sem okkur finnast óþægilegar erum við líka að minnka hæfileikann til að gleðjast og njóta. Þegar við stöndum á fjalls- tindinum og horfum yfir fallega sveitina förum við ósjálfrátt að anda dýpra. Þegar við verðum mjög glöð og líka þegar við grátum, þá öndum við djúpt og mjög líkt því sem við gerum í líföndun. Þegar við verðum hissa grípum við andann á lofti. Og þegar okkur líður vel þá erum við ekki bara að anda að okkur súrefni heldur líka orku. Það hvernig við öndum lýsir því mjög vel hvernig okkur líður og hvaða viðhorf við höf- um til okkar sjálfra og lífsins. Í líföndun fer maður í gegn um visst ferli sem felur í sér losun – spennulosun, kannski tilfinningalos- un, brjóstið opnast og allt í einu er meira pláss í brjóstinu til að fylla upp í með lífinu, hugurinn verður mjög skýr og að lokum finnur maður fyrir sátt og mjög djúpri slökun. Þetta er að minnsta kosti mín upp- lifun. Af því að líföndun er svo lík- amleg upplifun líka er hún aldrei eins. Þegar við öndum til fulls erum við að njóta til fulls. Um leið og við erum hætt að finna og njóta erum við ekki lengur til staðar og lífið verður bara að sjálfvirkum hreyfingum frá ein- um stað til annars og það er einmitt þetta sem verður síðan til þess að okkur finnst að við höfum misst af einhverju. Við missum nefnilega af stórum hluta af okkur sjálfum þegar við öndum ekki nóg. Og þá förum við að flýta okkur til að missa ekki af öllu lífinu. Kvíði og eftirvænting Þegar lífið verður of mikið til að okkur finnist við ráða við það förum Lína og líföndun Guðrún Arnalds Líföndun Lína Langsokkur kunni þá list, segir Guðrún Arnalds, að gera hvern dag að ævintýri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.