Morgunblaðið - 26.01.2002, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 11
kr.
Málband 5m m/reiknivél
Verð áður 1.541 kr.
Verkfæra
dagar
Sími 525 3000 • www.husa.is
925
TILLÖGUR um breytingar á lögum
um stjórn fiskveiða sem sjómanna-
samtökin og útvegsmenn kynntu á
fimmtudag, fela í sér takmörkun
framsals á aflamarki til og frá skipum
og eru fyrst og fremst til þess fallnar
að fækka í fiskiskipaflota lands-
manna, koma í veg fyrir þátttöku sjó-
manna í kvótakaupum og draga úr
brottkasti.
Tillögurnar ganga í veigamiklum
atriðum þvert á álit meirihluta nefnd-
ar sem sjávarútvegsráðherra skipaði
til að endurskoða lög um stjórn fisk-
veiða, einkum hvað varðar flutning á
aflamarki frá skipum en nefndin lagði
til að framsal aflamarks frá skipi yrði
miðað við 75% af úthlutuðu aflamarki.
Eins leggja sjómenn og útvegsmenn
til að aðeins verði unnt að skrá afla-
mark og aflahlutdeild á skip en ekki á
fiskvinnslustöðvar eins og nefndin
lagði til.
Friðrik Már Baldursson,
rannsóknaprófessor við Háskóla Ís-
lands, veitti endurskoðunarnefnd
sjávarútvegsráðherra forstöðu. Hann
segir jákvætt að sjómenn og útvegs-
menn komi sér saman um þessi atriði
og vonandi geti þessi sátt orðið til
þess að hægt verði að leysa fleiri
ágreiningsatriði.
Friðrik segir það samdóma álit
flestra að þróun fiskiskipaflotans hafi
ekki verið í rétta átt, alltof mörg skip
séu að eltast við of fáa fiska. Það setji
þrýsting á ráðgjöf um auknar afla-
heimildir og ýti einnig undir slæma
umgengni um auðlindina. Markmiðið
að fækka í flotanum sé því góðra
gjalda vert. „Það sem mér finnst hins
vegar athyglisvert er að útgerðar-
menn eru með tillögunum að skerða
frelsi sitt. Sveigjanleiki í framsali hef-
ur fram til þessa verið talin ein af
stoðum kvótakerfisins og einn af
meginþáttum aukinnar hagkvæmni.
En væntanlega eru útgerðarmenn
þarna að koma til móts við sjónarmið
sjómanna. Eins má ljóst vera að staða
kvótalítilla skipa þrengist mjög með
þessum tillögum. Í raun eru því inn-
herjar að styrkja sína stöðu. Eins
verður nánast útilokað fyrir nýliða að
komast inn í greinina,“ segir Friðrik.
Koma ekki í veg fyrir þátttöku
sjómanna í kvótakaupum
Jóhann Ársælsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, átti sæti í endur-
skoðunarnefnd sjávarútvegsráðherra
en skrifaði á sínum tíma ekki undir
meirihlutaálit nefndarinnar en skilaði
í stað þess séráliti. Hann segist þeirr-
ar skoðunar að samkomulag sjó-
manna og útvegsmanna sé skiljanlegt
frá sjónarhóli sjómanna til að tryggja
sínum umbjóðendum rétt hlutaskipti.
Hann segir að takmörkun á framsali
með þessum hætti komi hinsvegar
ekki í veg fyrir að sjómenn verði látn-
ir taka þátt í kvótakaupum. Hann seg-
ir að kvótakerfið sé einokunarkerfi og
tillögurnar séu leið til að loka enn
frekar á nýliðun í greininni. Þær hafi
auk þess í för með sér minna framboð
af aflamarki sem væntanlega leiði til
enn hærra leiguverðs. Þá verði enn-
fremur meira um hverskonar brask,
til dæmis með flutningi á varanlegum
heimildum á milli skipa. Jóhann telur
að fyrstu áhrif þessara hugmynda,
verði þær óbreyttar að lögum, verði
þau að byggðarlög sem hafa byggt á
útgerð með leigukvóta muni verða
fyrir verulegum samdrætti og nefnir í
því sambandi Grindavík og Snæ-
fellsbæ. „Eins velti ég því fyrir mér
hvort þessar hugmyndir standist
stjórnarskrá, sérstaklega með tilliti
til túlkunar Valdimarsdómsins sem
kvað á um að allir skyldu hafa rétt til
að fá veiðileyfi og að þeim yrði tryggð-
ur réttur til að keppa um veiðiheim-
ildir á markaði. Það er að mínu viti
fráleitt að loka kerfinu ennþá meira
og gera nýliðum nánast ómögulegt að
komast inn,“ segir Jóhann.
Menn munu finna leiðir
Kristinn H. Gunnarsson, þingmað-
ur Framsóknarflokksins, átti sæti í
endurskoðunarnefndinni en skilaði
einnig séráliti. Hann segir tillögur
sjómanna og útvegsmanna augljós-
lega kúvendingu frá meirihlutaáliti
nefndarinnar en einnig auðlinda-
nefndarinnar, þar sem í báðum tilfell-
um var gengið út frá því að viðskipti
með aflaheimildir yrðu sem frjálsust.
„Ég held að ef á að takmarka framsal
á aflamarki verði einnig að takmarka
framsal á aflahlutdeild. Skorður sem
settar hafa verið á viðskipti með afla-
mark í smábátakerfinu hafa verið
sniðgengnar með því að færa aflahlut-
deild fram og til baka. Sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur lagt blessun sína yf-
ir það. Staðreyndin er sú að
veiðiheimildir eru verðmæti sem
ganga kaupum og sölu og menn munu
finna sér leiðir til að ná fram viðskipt-
um ef þau leiða til hagstæðari afkomu
fyrir handhafana. Ætli menn að setja
stranga veiðiskyldu á þeim veiðiheim-
ildum sem útgerðarmenn hafa undir
höndum þá verður aðgangurinn að
heimildum að vera mun opnari en
hann er í dag.“
Kristinn segir augljóst að tillögurn-
ar miði að því að fækka þeim sem eru í
útgerð, einkum kvótalitlum skipum,
og loka þannig greininni með einka-
leyfafyrirkomulagi. Slíkir viðskipta-
hættir séu hvergi annars staðar
stundaðir. Hann segir að sú viðleitni í
tillögunum, sem á að tryggja sjó-
mönnum rétt hlutaskipti, taki ekki á
uppgjöri útgerða sem landa í eigin
vinnslu. Þær geri upp á jafnvel lægra
verði til sjómanna en þær útgerðir
sem þurfi að leigja til sín heimildir.
„Ég tel að tillögurnar stríði gegn al-
mennum viðurkenndum leikreglum í
viðskiptalífi. Við getum ekki rekið at-
vinnugrein með einhvers konar áætl-
unarbúskap. Það stenst ekki til lengri
eða skemmri tíma,“ segir Kristinn.
Margir verða að hætta í útgerð
„Mér lízt náttúrlega ekki vel á
þessar hugmyndir. Þær fela í sér
gríðarlegar breytingar fyrir þá, sem
hafa lifað af því að leigja til sín veiði-
heimildir. Það er ljóst að það verða
margir, sem verða hreinlega að hætta
útgerð, gangi þetta eftir. Þannig verð-
ur þetta víða um hina dreifðu byggðir
landsins. Það er stórmál,“ segir Árni
Steinar Jóhannsson, þingmaður
Vinstri grænna, en hann átti sæti í
endurskoðunarnefndinni en skilaði
þar séráliti. „Mér finnst svona sam-
komulag milli hagsmunaaðila í sjávar-
útvegi sögulegt. Það lýsir vel stöðunni
í greininni. Menn eru uggandi um af-
komu sína. Það skýrir afstöðu Far-
manna- og fiskimannasambandsins
og Vélstjórafélagsins. Þeir sem eru í
greininni eru að hugsa um sína mögu-
leika og reyna að tryggja þá.
Ég tel að þessi mál geti ekki farið
fram á þennan hátt og þau þurfi að
ræða í sjávarútvegsnefnd þingsins og
inni á Alþingi, því holskeflur af því
tagi sem þarna er lagt upp með, þjóna
engum tilgangi. Það verður að ræða
málefni sjávarútvegsins heildstætt í
sjávarútvegsnefnd þingsins og mér
finnst ekki viðeigandi að það séu
hagsmunaaðilar úti í bæ, sem kokka
svona upp með samkomulagi sín á
milli. Það verður að vera heildar-
stefna í málunum og menn verða að
gera sér grein fyrir því hvaða afleið-
ingar, það hefur sem þeir eru að
gera,“ segir Árni Steinar Jóhannsson.
Afleiðingar verði skoðaðar
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
sjávarútvegsnefndar Alþingis, segir
það mikil tíðindi að sjómenn og út-
vegsmenn hafi náð saman um þetta
veigamikla tillögu varðandi fiskveiði-
stjórnunarmálin. „Það eru mikil tíð-
indi að samtök útvegsmanna skuli
leggja þessum málstað lið. Þegar slík-
ir menn ná saman þá tel ég að stjórn-
völd og Alþingi hljóti að taka þetta
mjög alvarlega.“
Einar segir mikilvægt að hyggja
mjög vel að þessu máli og skoða ná-
kvæmlega hvaða afleiðingar það hafi,
enda hafi menn unnið eftir kerfinu
eins og það hefur verið. „Það kerfi
hefur heimilað leiguframsal á afla-
heimildum og það er augljóst mál að
menn hafa tekið ákvarðanir í ljósi
þess ástands sem hefur verið og tekið
á sig fjárhagsskuldbindingar með til-
liti til þess.
Áhyggjur mínar í þessu máli lúta
því ekki síst að þeim mönnum sem
hafa verið að vinna með kerfinu og
hafa tekið á sig fjárhagsskuldbinding-
ar án þess að geta séð það fyrir að ef
til vill yrði lokað fyrir það að þeir
gætu leigt sér veiðiréttindi til að fiska.
Þetta þurfum við að skoða betur.“
Um hvort tillögurnar geti orðið
grundvöllur sátta um fiskveiðistjórn
segir Einar: „Í ljósi þess að leigu-
framsalið hefur verið mjög harðlega
gagnrýnt af mjög mörgum ætti öld-
urnar að lægja frekar en hitt.“
Skerðir atvinnuréttindi
Svanfríður Jónasdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, segir greinilegt
að tillögunum sé stefnt gegn áliti
meirihluta endurskoðunarnefndar-
innar og augljóst að hagsmunaaðilar
vilji hafa áhrif á það hvernig frum-
varp sjávarútvegsráðherra muni líta
út. Ennfremur sé augljóst að uppi séu
skiptar skoðanir um hugmyndir sjó-
manna og útvegsmanna sem lúta að
flutningi aflamarks til skipa. „Ég
myndi vilja láta skoða hvort þessar
tillögur brjóti gegn stjórnarskránni.
Að minnsta kosti sýnist mér að þessi
tillaga brjóti gegn þeirri niðurstöðu
sem sérfræðingahópur ríkisstjórnar-
innar komst að í kjölfar Valdimars-
dómsins. Hann fól það í sér að allir
mættu eignast skip en allar veiði-
heimildir yrðu síðan að vera aðgengi-
legar með einhverjum hætti. Þarna
sýnist mér að verið sé að grípa inn í
atvinnuréttindi manna. Ég tel jafn-
framt að þessar tillögur muni gefa til-
lögum um uppboð veiðiheimilda byr
undir báða vængi. Umræðan mun
snúast um það á næstunni með hvaða
hætti þeir aðilar, sem ekki eru í hin-
um lokaða klúbbi þeirra útvöldu sem
fá úthlutað veiðiheimildum, eigi að
komast að í þessari grein. Tillögurnar
munu þrengja að möguleikum þess-
ara aðila og það kallar á frekari um-
ræðu um meðal annars fyrningarleið-
ina svokölluðu og að hluti af þeim
tillögum sem sjávarútvegsráðherra
leggur fram hlýtur að verða afbrigði
af einhverju slíku og að menn verði
látnir greiða eðlilegt gjald fyrir afnot
af sameiginlegri auðlind.“
Hún segist ekki eiga von á því að
tillögurnar séu til þess fallnar að
skapa sátt um fiskveiðistjórnunina.
„Á meðan við lýði er kerfi sem mis-
munar verður aldrei um það sátt.
Þarna er verið að reyna að slá á
óánægjuraddir en grundvallaratriðið
er að aðgengi að auðlindinni er ekki
jafnt,“ segir Svanfríður.
Stærð flotans vandamál
Kristján Pálsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, telur að með tillög-
unum sé nánast verið að loka fyrir alla
nýliðun í útgerð, enda ljóst að með
þessum tillögum þurfi verulegt fjár-
magn til að byrja útgerð í framtíðinni.
Hann segist vel skilja viðleitni sjó-
mannasamtakanna til að tryggja sín-
um umbjóðendum rétt uppgjör,
vegna þess að svo virðist sem ekki
þurfi allir að gera upp á því verði sem
Verðlagsstofa skiptaverðs kveði á um.
„Verðlagsstofa þarf að tryggja að allir
sitji við sama borð og að allir geri upp
á sama verði.“
Kristján segir að stærð fiskiskipa-
flotans sé vissulega vandamál. Hing-
að komi skip erlendis frá, þar sem
unnið sé að því að minnka flotann.
Valdimarsdómurinn komi hins vegar í
veg fyrir að gömul skip víki fyrir nýj-
um sem komi inn í flotann. „Valdi-
marsdómurinn kom róti á kvótakerfið
og er nú að leiða yfir menn ýmsar tak-
markanir. Þessu verða stjórnvöld að
taka á. Mér hugnast illa að taka fram-
salið af kvótakerfinu því þá er verið að
koma í veg fyrir þróun innan kerf-
isins. Almennt séð tel ég að leigukerf-
ið hafi leitt til heilbrigðra viðskipta
þar sem nýir menn hafa fengið að
spreyta sig og upp sprottið fisk-
vinnslur sem annars hefðu ekki átt
neinn rekstrargrundvöll. Það byggja
fleiri hundruð manns afkomu sína á
afla frá þessum skipum. Þessar tillög-
ur myndu hafa veruleg áhrif á atvinnu
og afkomu þessa fólks, allt vegna þess
að Valdimarsdómurinn er túlkaður
þannig að ekki megi takmarka inn-
flutning á fiskiskipum. Takmörkun á
framsali er að mínu mati hæpin að-
gerð og ég hefði viljað reyna allt ann-
að áður,“ segir Kristján.
Jákvætt að auka
veiðiskylduna
Guðjón A. Kristjánsson, þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, segir að til-
lagan um að ekki verði unnt að flytja
meira aflamark til skips en sem jafn-
gildir tvöfaldri kvótaúthlutun sé óá-
sættanleg. „Það voru sett lög um
frjálst framsal kvóta árið 1990, að
kröfu útgerðarmanna. Síðan hefur
orðið til mikið af kvótalausum skipum
en um leið kvótalausar byggðir. Þar
hefur fólk orðið að bjarga sér með því
að leigja réttinn af öðrum. Það geng-
ur því ekki upp að takmarka það sem
menn mega leigja til sín. Megintil-
gangur LÍÚ með þessum tillögum er
að losa sig við óæskilegar útgerðir, nú
þegar þeir eru búnir að koma kvóta-
setningunni yfir smábátana. Ef menn
ætla að hafa þessa útfærslu á fisk-
veiðistjórnuninni hlýtur það að kalla á
að ríkið taki til sín eitthvað af heimild-
unum og sjái til þess að þær verði á
leigumarkaði. Hinsvegar er ég sam-
mála því að auka veiðiskylduna,“ seg-
ir Guðjón.
Tillögur sjómanna og útvegsmanna ekki taldar grundvöllur sátta í sjávarútvegi
Sagðar loka á ný-
liðun í greininni
Morgunblaðið/RAX
Takmörkun á mögu-
leikum útgerða til að
leigja aflamark á skip
sín kemur í veg fyrir ný-
liðun í útgerð og þrengir
að rekstri kvótalítilla út-
gerða, að mati viðmæl-
enda Morgunblaðsins.