Morgunblaðið - 26.01.2002, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 26.01.2002, Qupperneq 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002 25 LEIKRITIÐ Slavar!, sem hefur undirtitilinn „Heilabrot um hinn langvarandi vanda dyggðar og ham- ingju“, sver sig í ættina við fræg- asta verk höfundar síns, Englar í Ameríku. Fyrri hluti verksins, Nýtt árþúsund nálgast, var sýnt í Borg- arleikhúsinu í október 1993 og var það fyrsta frumsýningin í Evrópu á eftir London (1992). Slavar! á rætur að rekja til seinni hluta tvíleiksins, Perestrojku (London og New York 1993), sem aldrei hefur verið sýndur hér, og á eina persónu og ræðu hennar sameiginlega með því verki. Þátturinn um slavana var klipptur úr Perestrojku og aukinn og end- urbættur uns hann gat staðið sjálf- stætt og leikritið svo frumsýnt 1995. Eins og í tvíleiknum mikla (stytt- ur tekur hann sjö klukkustundir í flutningi) er hlaupið á milli atriða sem virðast við fyrstu sýn eiga lítið sameiginlegt, nema hvað einstaka persónur skolast á milli kafla sem fjalla um fólk við ólíkar aðstæður. Það er ekki fyrr en í lokin sem áhorfandinn skynjar hin undirliggj- andi tengsl og hin samtengjandi þemu. Slavar! er að mörgu leyti heildstæðara verk eins og við er að búast: enda er hér bandarískur höf- undur að tjá sína skoðun á þjóð- félagi sem hann þekkir bara af af- spurn en ekki að brjóta til mergjar þjóðfélag sem hann hefur alið allan sinn aldur í. Það eru sjö ár síðan verkið var frumsýnt svo augljóst er að þetta verk sló ekki í gegn eins og tvíleik- urinn. Samt á verkið enn brýnt er- indi við nútímann, sérstaklega nú þegar fréttir eru að berast um að valdhafar í Rússlandi séu að þagga niður í síðustu óháðu sjónvarps- fréttastöðinni. Það er líka gaman að í uppsetningunni takist svo vel að koma boðskap höfundar á framfæri. Þetta er á engan hátt auðveld sýning, enda er fátt jafnfjarri höf- undi og að fylgja í fótspor forvera sinna í leikskáldastétt. Hann vill hreyfa við fólki og fjalla um mál sem eru efst á baugi. Hann hefur í nokkur ár verið að skrifa verk sem fjallar um talibanana í Afganistan og í stað þess að draga það til baka þegar hryðjuverkin náðu til Banda- ríkjanna gerði það hann staðráðnari í að koma verkinu á svið. Home- body/Kabul var svo frumsýnt í des- ember í New York. Það væri gaman ef það verk yrði tekið til sýninga hér á landi á meðan Afganistan er enn efst á baugi. Þessi flókna sýning er að miklu leyti verk Halldórs E. Laxness. Auk þess að leikstýra henni hannar hann líka leikmynd og velur búninga. Það hefur komið fyrir þegar á þetta ráð er tekið að einhver einn þessara þátta líði fyrir ætlaða fjölhæfni eins manns, en hér er því þveröfugt far- ið: Halldór veldur öllum þessum hlutverkum. Niðurstaðan er óvenju ríkt samræmi milli leikstjórnar og útlits sýningarinnar, en öll þessi at- riði eru unnin til hlítar. Sama má segja um alltumvefjandi hljóðmynd og fjölbreytt ljós auk frábærlega unninna gerva, sem setja tóninn hvað persónusköpunina varðar. Það er ótrúlegt hvað Halldór nær fram skemmtilegum leik hjá leik- hópi Leikfélags Akureyrar – svona sterk sýning hefur ekki sést þar á fjölunum síðan leikarar félagsins brugðu sér í gervi Suðurríkjalýðs í Tobacco Road sællar minningar. Á stundum orkar tvímælis hve Hall- dór gefur einstökum leikurum laus- an tauminn, t.d. Aðalsteini Bergdal sem Popolitipov í öðrum þætti. Þar notaði Aðalsteinn trúðleiksþjálf- unina til að ná fram endurteknum hlátrasköllum, en hann náði líka slægðarblandinni dýpt í ástarsorg- arraunum persónunnar. Það er ekki spurning að þessi lausn og fleiri álíka gerðu sýninguna fjölbreyttari og áhorfsvænni án þess að skyggja á harmrænni þætti hennar. Þor- steinn Bachmann sýndi sterkari leik en nokkru sinni áður og margir aðr- ir leikarar öðluðust nýja vídd við að takast á við verk sem greinilega kveikti áhuga þeirra. Saga Jóns- dóttir átti feikigóðan leik sem móð- irin reiða, Skúli Gautason var skemmtilegur í tveimur gerólíkum hlutverkum, Eyvindur Erlendsson átti góða spretti í frábæru gervi og kjarnyrt þýðing Sigurðar Hróars- sonar lék í munni Þráins Karlsson- ar, það standa honum fáir á sporði hvað framburð íslenskrar tungu varðar. María Pálsdóttir og Laufey Brá Jónsdóttir voru staðföst þunga- miðja verksins – vonin í miðri ver- öld þar framtíðarhorfur virðast eng- ar. Ekki má gleyma Matthildi Brynju Sigrúnardóttur sem bæði kom ótrúlega á óvart í leiknum og sómir sér vel á kápu leikskrárinnar. „Allt-búið-landið“ LEIKLIST Leikfélag Akureyrar Höfundur: Tony Kushner. Þýðandi: Sig- urður Hróarsson. Leikstjóri, leikmynda- og búningahönnuður: Halldór E. Laxness. Hljóðmynd: Gunnar Sigurbjörnsson. Lýs- ing: Ingvar Björnsson. Gervi, hár og förð- un: Linda B. Óladóttir og Halldóra Vé- björnsdóttir. Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, Eyvindur Erlendsson, Laufey Brá Jónsdóttir, María Pálsdóttir, Matt- hildur Brynja Sigrúnardóttir, Saga Jóns- dóttir, Skúli Gautason, Þorsteinn Bach- mann og Þráinn Karlsson. Föstudagur 25. janúar. SLAVAR! Ljósmynd/Gunnar Sverrisson Góðar sálir í helvíti: María Páls- dóttir og Laufey Brá Jónsdóttir í hlutverkum sínum. Sveinn Haraldsson ÞÚ SKALT EKKI hafa aðra Guði en mig. Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma. Halda skaltu hvíldardaginn heilagan. Heiðra skaltu föður þinn og móður. Þú skalt ekki morð fremja. Þú skalt ekki drýgja hór. Þú skalt ekki stela. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns. Þú skalt ekki girn- ast konu náunga þíns, þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það sem náungi þinn á. Þannig hljóma boðorðin tíu sem Móses færði mannkyninu og kristin menning ku vera grundvölluð á. Það þarf víst ekki að hafa mörg orð um þá staðreynd að breytni manneskjunnar í vestrænu nútímasamfélagi hefur fjarlægst þennan grundvöll kristn- innar í stóru sem smáu. Í sínu nýja leikverki, Boðorðunum níu, leikur Ólafur Haukur Símonarson sér að því að sýna í mörgum stuttum atrið- um hvernig ósköp „venjulegar“ manneskjur brjóta gegn boðorðun- um, svo að segja við hvert fótmál, og uppskera tómleika, reiði, sjálfsfyrir- litningu, sorg og óhamingju. Það er þó langt frá því að þessi heimsósómi sé klæddur í búning tragedíu eða í form „vandamálaleik- rits“. Þvert á móti er umgjörðin gleðileg; áhorfendum er boðið til brúðkaupsveislu þar sem ungu brúð- hjónin Andri (Björn Ingi Hilmars- son) og Birna (Jóhanna Vigdís Arn- ardóttir) skemmta sér með vinum og vandamönnum á þessum stóra degi vona og glæstra fyrirheita. Mikið fjör ríkir í veislunni, framan af, það er sungið og dansað – og skálað ótæpi- lega. Leikritið hefur undirtitilinn „– hjónabandssaga á augabragði“ og form þess minnir á verk Ólafs Hauks, Vitleysingarnir, sem sýnt var í Hafn- arfjarðarleikhúsinu í fyrra: Tími verksins er stuttur, eða sá tími sem veislan stendur yfir, en innan þess tíma er brugðið á leik og brugðið upp atriðum úr fortíðinni sem og úr mögulegri framtíð ungu hjónanna og á augabragði rennur hugsanlegt líf þeirra fyrir sjónum áhorfenda. Og sú mögulega framtíð er ekki alltaf glæst. Brúðguminn á sér þann draum að verða listmálari, en sá draumur pass- ar illa að framtíðarhugmyndum brúðarinnar (og föður hennar) um hversdagslegt fjölskyldulíf og ver- aldleg gæði og sýnt er að lítið þarf til þess að draumar hans bíði skipbrot í þeim öldusjó sem lífsgæðakapp- hlaupið siglir. Frá vissu sjónarhorni má því segja að verkið fjalli um það hvernig listamaðurinn er krossfestur í efnishyggjunni og er sú túlkun ítrekuð með táknrænni framsetningu undir lok sýningarinnar. Viðar Eggertsson leikstjóri hefur farið afar skemmtilega leið með þetta verk. Honum tekst að skapa lifandi og bráðskemmtilega sýningu á köfl- um og jafnframt tekst honum að ná því besta fram hjá mörgum í leikara- hópnum og fóru sumir beinlínis á kostum. Sýningin í heild er litrík og fjörleg og er þar ekki síst tónlistinni fyrir að þakka. Tónlistarflutningur sýningarinnar er allur fluttur lifandi og setti hljómsveitin mjög skemmti- legan svip á hana. Tónlistin er úr ýmsum áttum: óperuaríur og íslensk og erlend dægurlög í bland. Meðal leikaranna eru margir hörku söngv- arar og fer þar brúðurin, Jóhanna Vigdís, fremst í flokki en aðrir áttu einnig góða einsöngsspretti. Stóra svið Borgarleikhússins er af- ar vel nýtt í þessari sýningu og bar ekkert á vandræðagangi með þetta mikla rými líkt og oft hefur viljað brenna við á sýningum þar. Leik- mynd Snorra Freys Hilmarssonar er afar vel heppnuð í alla staði og nýting leikstjórans á rýminu alltaf vel heppnuð. Búningar Filippíu Elísdótt- ir eru glæsilegir að vanda og lýsing Elfars Bjarnasonar glæsileg á köfl- um, ekki síst þegar hún flæddi út um allan sal. Eins og áður sagði stóð leikara- hópurinn sem heild sig frábærlega þótt vissulega mætti stundum merkja nokkurt frumsýningarstress og ónákvæmni í innkomum og sam- leik. Að öðrum ólöstuðum átti Edda Björg Eyjólfsdóttir hreinan stjörnu- leik í hlutverki Ásu, hjákonu hins kaldlynda föður brúðarinnar, Agn- ars, sem Eggert Þorleifsson fór óað- finnanlega með. Edda Björg sýndi strax í Nemendaleikhúsinu að hæfi- leikar hennar sem gamanleikkonu eru einstakir. Fylliríiseinræða henn- ar í síðari hluta sýningarinnar var hreint út sagt stórkostleg, enda upp- skar hún bæði hlátursrokur og húrrahróp úr salnum. Hanna María Karlsdóttir var frábær í hlutverki hinnar kúguðu og sviknu móður brúðarinnar. Þessi geðveika, óham- ingjusama kona var drottningarleg í glæsilegri túlkun Hönnu Maríu. Ólaf- ur Darri og Theodór Júlíusson voru eftirtektarverðir í hlutverkum sínum og skiluðu afar sannfærandi per- sónum sem uppskáru mikla samúð hjá áhorfendum. Ellert A. Ingimund- arson, Gísli Örn Garðarsson og Katla Margrét Þorgeirsdóttir voru í hlut- verkum vina brúðhjónanna og áttu öll sinn djöful að draga sem þau komu ágætlega til skila. Jóhanna Vigdís og Björn Ingi eru bæði glæsilegir leikarar sem að vissu leyti má segja að séu í burðarhlut- verkum verksins. Þótt þau ættu bæði frábæra spretti var eins og nokkurr- ar þreytu gætti hjá þeim báðum inn á milli. Jóhanna Vigdís lifnaði einna mest í söngatriðunum, enda er hún þar á heimavelli. Hlutverk Björns Inga er kannski það erfiðasta í verk- inu. Hann þarf að túlka listamanninn sem ætíð lýtur í lægra haldi fyrir of- urvaldi eiginkonunnar og tengdaföð- urins. Hann var sannfærandi í und- anhaldinu en einhvern veginn vantaði allan listamannsneista í hann. Þegar allt kemur til alls er það kannski akkilesarhæll sjálfs verksins líka: Hér er vissulega á ferðinni verk sem má skemmta sér konunglega á, en það er eins og höfundinum liggi kannski ekkert mjög mikið á hjarta. Hann hefur sagt þessa sögu áður og ítrekar reyndar í pistli í leikskrá að „allar sögur hafa verið sagðar áður“. Ólafur Haukur er að sýna okkur að- stæður sem hann hefur oft sýnt okk- ur áður: manneskjurnar svíkja, ljúga, pretta og halda fram hjá. Gott og vel, en kannski mætti fiska meira á djúp- miðum þessara aðstæðna og þeirra tilfinninga sem þær kalla fram. Niðurstaða: Boðorðin níu er fjör- legur kabarett sem hafa má af af- bragðsskemmtun eina kvöldstund en skilur kannski ekki mikið eftir í hug- um áhorfenda þegar tjaldið fellur. (Hvaða boðorð er undanskilið í titli verksins er ágætis ráðgáta fyrir hvern og einn áhorfanda að glíma við.) Syndakabarett í Borgarleikhúsinu Morgunblaðið/Ásdís „Boðorðin níu er fjörlegur kabarett sem hafa má af afbragðs skemmtun eina kvöldstund en skilur kannski ekki mikið eftir.“ LEIKLIST Leikfélag Reykjavíkur Höfundur: Ólafur Haukur Símonarson. Leikstjóri: Viðar Eggertsson. Leikarar: Björn Ingi Hilmarsson, Edda Björg Eyj- ólfsdóttir, Eggert Þorleifsson, Ellert Ingi- mundarson, Gísli Örn Garðarsson, Hanna María Karlsdóttir, Jóhanna Vigdís Arn- ardóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Theodór Júl- íusson. Leikmynd: Snorri Freyr Hilm- arsson. Búningar: Filippía Elísdóttir. Leik- gervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Dans: Peter Anderson. Lýsing: Elvar Bjarnason. Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen. Hljóm- sveitarstjóri: Óskar Einarsson. Tónlist- armenn: Óskar Einarsson, píanó og harm- óníka, Jóhann Ásmundsson, kontrabassi, Matthías Stefánsson, fiðla, og Stefán Már Magnússon, gítar, mand- ólín og ásláttarhljóðfæri. Stóra svið Borgarleikhússins 25. janúar 2002. BOÐORÐIN NÍU Soffía Auður Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.