Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fjárframlög streyma til HSÍ úr ýmsum áttum VEGNA frábærs árangurs íslenska landsliðsins í handknattleik á Evr- ópumeistaramótinu í Svíþjóð síðustu daga hefur Handknattleikssam- bandi Íslands, HSÍ, borist stuðn- ingur úr ýmsum áttum. Þá hefur síminn á skrifstofu HSÍ vart stopp- að vegna fyrirspurna frá fólki sem hefur viljað fá miða á leik í keppn- inni. Í gærkvöld ákvað Alþýðusam- band Íslands að gefa 250 þúsund krónur. Símasöfnun hefur verið í gangi til styrktar HSÍ. Hægt er að hringja í síma 970-2800 og þá skuldfærast sjálfkrafa 800 krónur af viðkomandi símreikningi. Samkvæmt upplýsing- um frá HSÍ hafði þessi söfnun skil- að um 700 þúsund krónum um miðj- an dag í gær og vonast var til að sú upphæð færi hækkandi ef landsliðið kæmist í undanúrslit. Ekki mun veita af því kostnaður HSÍ vegna þátttökunnar í Svíþjóð er áætlaður um 16 milljónir króna. Þá hafa sveitarfélög og fyrirtæki verið að styrkja handknattleiks- hreyfinguna. Reykjavíkurborg reið á vaðið með 500 þúsund króna styrk og fyrir íþróttaráði Hafnarfjarðar liggur tillaga bæjarráðs um 300 þús- und króna styrk. Áskorendakeppni meðal fyrirtækja hófst í dægurmála- útvarpi Rásar 2 í gær þar sem fjöl- margir tóku þátt. Íslandssími kom fyrst með 100 þúsund krónur og síð- an tóku við nokkur fyrirtæki með sömu upphæð og sum fóru ofar. Þegar yfir lauk höfðu safnast um 1,5 milljónir króna og ætlar Rás 2 að halda þessu áfram í dag. Fjögur efstu fá verðlaunafé Þar sem Ísland er komið í fjög- urra liða úrslit, eftir leikinn gegn Þjóðverjum í gærkvöld, fær liðið peningaverðlaun frá mótshöldurum. Heildarverðlaunaféð nemur 100 þúsund evrum, eða um 9 milljónum króna. Fyrir fyrsta sæti fást 3,6 milljónir, 2,7 milljónir fyrir annað sætið, 1,8 milljónir fyrir bronsið en fjórða sætið gefur aðeins 900 þús- und krónur í aðra hönd. SPENNAN var gífurleg meðal áhorfenda um land allt þegar við- ureign Íslendinga og Þjóðverja fór fram í gærkvöld en líklega var eftirvæntingin hvergi jafnmikil og í húsi einu í Fossvogsdalnum þar sem eiginkonur og unnustur handboltakappanna sjálfra hittust til að horfa á leikinn. Þær stöllur hafa hist fyrir alla leiki íslenska liðsins í Evr- ópukeppninni og hvatt sína menn áfram hverja einustu þeirra spennuþrungnu sextíu mínútna sem leikurinn tekur. Þegar blaðamann og ljósmynd- ara ber að garði tekur það hús- ráðanda örlítið lengri tíma en venjulega að koma til dyra, leik- urinn er í fullum gangi og spenn- an næstum allt of mikil til að hægt sé að rífa sig frá sjónvarps- skjánum. Þegar inn er komið sitja allar konurnar í hnapp fyrir fram- an sjónvarpið og það fer stuna um hópinn þegar einn Þjóðverjanna gerist aðgangsharður á línunni, hann kemst ekki í gegnum vörn Íslendinga og kastar sér í gólfið. „Æ, leikaraskapur er þetta, sáuð þið hvernig hann henti sér niður? Rugl er þetta... Það er ekkert að manninum,“ er öskrað á skjáinn og rétt eins og manngreyið inni á vellinum í Svíþjóð heyri í hand- boltaeiginkonunni lengst uppi á Íslandi stendur hann upp, hristir sig svolítið, og hleypur yfir í vörn- ina. Konurnar eru ekkert óvægn- ari á sína menn þar sem þær gjör- þekkja reglur leiksins og hver einasta þeirra tekur að sér hlut- verk leikstjórnanda heima í stofu. „Já, Gummi, koma svo, loka mark- inu, jááá, svona,“ er kallað og Guðmundur Hrafnkelsson heldur ró sinni og ver hvert skotið á fæt- ur öðru. „Við þurfum að halda út... rólegir bara, af hverju setti hann ekki í hina áttina? Patti á að spila boltanum þarna. Berjast, strákar! Maaark.“ Það er ekki bara talað um leik- inn, plástrar leikmanna og hugs- anleg meiðsl vekja umtal og yf- irvaraskegg þýska landsliðs- þjálfarans veldur vangaveltum. „Svakalegt skegg er hann með, þessi maður, hvað ætli lifi margar lýs í þessum ósköpum,“ heyrist sagt hugsandi röddu sem fær hlátrasköll að launum. Lítill strákhnokki kemur upp að mömmu sinni og spyr hvort hann megi fá djúsglas, mamman rétt slítur augun af skjánum, lítur ör- snöggt á stráksa og svarar: „Uss, elskan mín, bíddu augnablik, það er alveg að koma hálfleikur.“ Spurðar hvernig stemmningin sé í liðsmönnum úti í Svíþjóð segja þær strákana vera orðna svolítið þreytta en það gildi auðvitað um leikmenn allra liða þegar svo langt er liðið á keppni. Þær segja liðsheildina vera frábæra og „hetjurnar okkar hafa greinilega mjög gaman af þessu“. Mín- úturnar þjóta áfram og Íslend- ingar halda margra marka for- skoti allan seinni hálfleik. Það slaknar þó ekkert á spennunni í stofunni í Fossvoginum fyrr en dómarinn hefur flautað leikinn af. Sigurinn er í höfn og Íslendingar komnir í undanúrslit eftir æsi- spennandi keppni við Þjóðverja sem endar með verðskulduðum sigri með 29 mörkum gegn 24. Það er samtaka og sigurreifur kór landsliðseiginkvenna sem hrópar: „Glæææsilegt. Við erum best!“ Eiginkonur og unnustur leik- manna horfa saman á leikina Berjast, strákar! Maaark! Stemmningin var mikil í Sambíóhúsinu við Snorrabraut þar sem eldheitir handboltaáhuga- menn komu saman til að horfa á leikinn. Hverju marki var fagnað með miklum tilþrifum. Íslenska þjóðin fylgist spennt með handboltanum þessa dagana og var rólegt um að litast í Kringlunni í gærkvöldi þegar leikur Íslendinga og Þjóðverja stóð sem hæst. Morgunblaðið/Ásdís Konur íslensku landsliðsmannanna hafa horft á alla leiki liðsins og eru farnar að athuga með flug til Svíþjóðar til að fylgjast með úrslitaleiknum sem allra vonir standa til. Hér horfa þær áhyggjufullar á framvindu mála. Morgunblaðið/GolliMorgunblaðið/Golli Í VOR og sumar munu Heims- ferðir bjóða beint vikulegt flug til Veróna á Ítalíu. Flogið verð- ur með Azzurra flugfélaginu alla fimmtudaga frá 23. maí til 1. október. Að sögn Andra Más Ingólfssonar, forstjóra Heims- ferða, verða notaðar nýjar Boeing 737-700 vélar í flugið. Hins vegar verður ætíð íslensk- ur áhafnarmeðlimur um borð að sögn Andra Más. Þá munu Heimsferðir einnig vera með vikulegt flug til Rímini á Ítalíu í sumar, sem Samvinnu- ferðir-Landsýn buðu upp á ferð- ir þangað til margra ára, en fyr- irtækið varð gjaldþrota í fyrra „Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á beint flug frá Ís- landi til Veróna en borgin sem er heimsfræg fyrir hringleika- húsið sitt hefur mikinn sjarma og liggur miðsvæðis á Ítalíu. Við munum bjóða úrval hótelgist- ingar í Veróna og bílaleigubíla. Þá munum við einnig bjóða gist- ingu á öðrum stöðum á Ítalíu eins og í Róm, Písa og við Gardavatn.“ Bjóða vikulegt flug til Veróna í vor og sumar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.