Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6, 8 og 10.40. Vit 334. B.i. 14. Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15. B.i 12 ára. Vit 339.
1/2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.20. Vit 319
Sýnd í Lúxus VIP kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
Sjóðheitasta mynd ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz.
Myndin er hlaðin frábærri tónlist
en Sigur Rós á þrjú lög í myndinni. Frá leikstjóra Jerry Maguire.
KEVIN SPACEY JEFF BRIDGES
Sýnd kl. 8.30 og 10.20. Vit 333. B.i.14 ára
Strik.is
RAdioX
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 4 . Ísl. tal. Vit 320
1/2
Kvikmyndir.com
strik.is
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 325
Sýnd kl. 4. Enskt. tal. Vit 307
1/2
RadíóX
1/2
Kvikmyndir.is
SV MBL
Sýnd kl. 8 og 10.20. Vit 327
Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Vit 328
HJ MBL
ÓHT Rás 2 DV
HK DV
Hann er gæddur þeim hæfileika að geta séð
fortíðina, að geta spáð fyrir um framtíðina og að geta
látið hæfileika sína öðrum í te.
FRUMSÝNING
HJ MBL
ÓHT Rás 2
DV
Frá leikstjóra Sea
of Love kemur
fyrsta
spennumynd
ársins. Með
töffaranum, John
Travolta
(Swordfish,
Face/Off), Teri Polo
(Meet the
Parents), Vince
Vaughn (The Cell,
Swingers) og
Steve Buscemi
(Armageddon,
The Big Lebowski).
Sýnd kl. 6.
Edduverðlaun6
Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára
ÞÞ Strik.is
ÓHT Rás 2
HL Mbl
Sýnd kl. 10.
Ó.H.T Rás2
Strik.is
Strik.is
HK DV
Kvikmyndir.com SG. DV
HL:. MBL
Sýnd kl. 4.45. Sýnd kl. 5.45 og 8.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i 14. Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12.
Sjóðheitasta mynd ársins er komin.
Tom Cruise + Penelope Cruz=Heitasta parið í dag.
Ásamt ofurskutlunni, Cameron Diaz.
Myndin er hlaðin frábærri tónlist
en Sigur Rós á þrjú lög í myndinni. Frá leikstjóra Jerry Maguire.
RAdioX
SG DV
FRUMSÝNING
Lord of the Rings:
The Fellowship of the
Rings/Hringadróttinssaga
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Peter Jackson.
Aðalleikendur: Elijah Wood, Ian McKellen,
Christopher Lee, Cate Blanchett. Þessi
fyrsti hluti kvikmyndalögunar Ný-Sjálend-
ingsins Peters Jackson á Hringadróttins-
sögu J.R.R. Tolkiens er hrein völundarsmíð.
Aðrar ævintýra- og tæknibrellumyndir fölna
í samanburði, um leið oghvergi er slegið af
kröfunum við miðlun hins merka bók-
menntaverks Tolkiens yfir í kvikmyndaform.
(H.J.) Smárabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó,
Akureyri.
Moulin Rouge/
Rauða myllan
Bandarísk. 20001. Leikstjórn og handrit:
Baz Luhrman. Aðalleikendur: Nicole Kid-
man, Ewan McGregor, Jim Broadbent.
Sannkölluð himnasending í skammdeginu.
Stórfengleg afþreying sem er allt í senn:
Söng- og dansamynd, poppópera, gleði-
leikur, harmleikur, nefndu það. Baz Luhr-
man er einn athyglisverðasti kvikmynda-
gerðarmaður samtímans sem sættir sig
ekki við neinar málamiðlanir og uppsker
einsog hann sáir; fullt hús stiga.(S.V.)
Regnboginn.
From Hell /
Úr helju
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Hughesbræð-
ur. Aðalleikendur: Johnny Depp, Robbie
Coltrane, Heather Graham, Ian Holm. Frá-
bær aðlögun Hughes-bræðra á samnefndri
myndasögu sem vakið hefur athygli. Mynd-
in hefur sjónrænan og frásagnarlegan
þunga og miðlar á snallan og sjálfstæðan
hátt hinni sterku samfélagsgreiningu
myndasögunnar.(H.J.) Smárabíó.
Amélie
Frönsk 2001.Leikstjóri: Jean-Pierre Jeunet.
Aðalleikendur: Audrey Tautou, Mathieu
Kassovitz, Yolande Moreau, Dominique Pin-
on. Yndislega hjartahlý og falleg kvikmynd
um það að þora að njóta lífsins. Stórkost-
legur leikur, frábær kvikmyndataka og sterk
leikstjórn Jeunet gera myndina að góðri og
öðruvísi skemmtun en við flest erum vön.
(H.L.) Háskólabíó.
The Man Who Wasn’t
There/Maðurinn sem reykti
of mikið
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Joel Coen. Að-
alleikendur: Billy Bob Thornton, Frances
McDormand, James Gandolfini, Tony
Shaloub. Billy Bob fer hamförum sem
keðjureykjandi undirtylla á rakarastofu sem
hefnir sín á þeim sem hafa hann undir að
öllu jöfnu. Sér ekki fyrir afleiðingarnar. Co-
enbræður í fágaðri og meinfyndinni, s/h
filmnoir sveiflu með afburða leikhópi.(S.V.)
Stjörnubíó.
Elling
Noregur 2001. Leikstjóri: Peter Næss. Að-
alleikendur: Per Christan Ellefsen, Sven
Nordin, Pia Jacobsen. Norsk mynd tvo létt
geðfatlaða náunga sem fá íbúð saman og
þurfa að læra að bjarga sér. Bráðfyndin og
skemmtileg mynd með fullri virðingu fyrir
aðalpersónunum.(H.L.) Háskólabíó.
Harry Potter og
viskusteinninn/
Harry Potter and
the Sorcerer’s Stone
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Chris Columb-
us. Aðalleikendur: Daniel Radcliffe, Rupert
Grint, Emmu Watson, Robbie Coltrane,
John Cleese.Aðlögun hinnar lifandi sögu
J.K. Rowling um galdrastrákinn Harry Potter
yfir í kvikmyndahandrit tekst hér vel. Út-
koman er ekki hnökralaus en bráðskemmti-
leg ævintýramynd engu að síður.(H.J.)
Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri,
Háskólabíó.
Jalla Jalla
Sænsk. 2001. Leikstjórn: Fares Fares. Að-
alleikendur: Fares Fares, Torkel Peterson,
Tuva Novotny, Laleh Pourkarim. Bráðfyndin
og falleg rómantísk gamanmynd, þar sem
bakgrunnurinn er innflytjendur í Svíþjóð og
samruni tveggja menningarheima. Örlítið
farsa- og formúlukennd mynd en þrælgóð
skemmtun fyrir alla.(H.L.) Regnboginn.
K-PAX
Bandarísk. 2001. Undarlegur náungi lendir
á geðspítala, segist geimvera. Binst vina-
böndum við lækninn sinn sem reynir allt til
að fá botn í málin. Slakar aðeins á undir
lokin, en athyglisverð, vel skrifuð og for-
kunnarvel leikin.(S.V.) Sambíóin.
Mávahlátur
Tilkomumikil kvikmynd Ágústs Guðmunds-
sonar byggð á samnefndri skáldsögu Krist-
ínar Marju Baldursdóttur. Þar skapar leik-
stjórinn söguheim sem er lifandi og
heillandi, og hefur náð sterkum tökum á
kvikmyndalegum frásagnarmáta. Frammi-
staða Margrétar Vilhjálmsdóttur og Uglu
Egilsdóttur er frábær.(S.V.) Háskólabíó.
Regína
Íslensk. 2001. Leikstjóri: María Sigurðar-
dóttir. Aðalleikendur: Sigurbjörg Alma Ing-
ólfsdóttir, Benedikt Clausen, Baltasar Kor-
mákur, Halldóra Geirharðsdóttir. Fyrsta
íslenska dans- og söngvamyndin. Bráð-
skemmtileg mynd fyrir alla aldurshópa, vel
skrifuð og uppfull af ferskum listrænum
víddum.(H.J.) Háskólabíó, Sambíóin.
Shallow Hal/
Grunnhyggni Hallur
Bandarísk. 2001. Leikstjórar: Bobby og
Peter Farrelly. Aðalhlutverk: Gwyneth Palt-
row, Jack Black, Jason Alexander. Hlýlegri
og rómantískari en áhorfendur eiga að
venjast frá þeim bræðrum í dæmisögu um
að oft býr flagð undir fögru skinni – og öf-
ugt. Black og Paltrow fara á kostum í bestu
mynd bræðranna Farrelly um hríð.(S.V.)
Smárabíó, Regnboginn.
Enigma/
Dulmál
Bresk. 2001. Leikstjóri: Michael Apted. Að-
alleikendur: Dougray Scott, Kate Winslet,
Jeremy Northam og Saffron Burrows. Mjög
vönduð mynd um áhugaverða einstaklinga
í seinni heimstyrjöldinni. Leikararnir standa
sig frábærlega, öll tæknivinna er óaðfinn-
anleg en sagan ekki alveg að finna sig og
aðeins of flókin.(H.L.) Sambíóin.
Heist/
Ránið
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: David Mamet.
Aðalleikendur: Gene Hackman, Delroy
Lindo, Danny De Vito, Rebecca Pidgeon.
Mamet fæst enn við hug og hendur glæpa-
manna með misjöfnum árangri. Góð tilsvör,
of snjöll stundum. Sterkur leikur karla en
framvindan meingölluð og kjánaleg, menn
sjá jafnan næsta leik.(S.V.) Sambíóin.
Atlantis: Týnda borgin /
Atlantis: The Lost Empire
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John McHarris.
Teiknimynd með enskri og íslenskri talsetn-
ingu. Af þessari teiknimynd um týndu borg-
ina Atlantis má sjá að Disney-risinn færist
sífellt nær hinni stöðluðu Hollywood-
spennumynd í teiknimyndagerð sinni.
Myndin er víða bráðfyndin en heildin er
óttaleg samsuða.(S.V.) Sambíóin, Háskólabíó.
Ocean’s Eleven/
Ellefumenningar Oceans
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Steven Soder-
bergh. Aðalleikendur: George Clooney,
Brad Pitt, Matt Damon, Julia Roberts. Sod-
erbergh setur á svið meiriháttar útspekúler-
að rán í spilavítum Las Vegas. Myndin er
stórum stjörnum prídd, og meira en laglega
gerð en nær aldrei að verða nógu spenn-
andi.(H.L.) Sambíóin.
Vanilla Sky/
Opnaðu augu þín
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Christopher
Crowe. Aðalleikendur: Tom Cruise, Penél-
ope Cruz, Cameron Diaz. Áferðarfalleg
Hollywoodútgáfa hinnar spönsku Abre Los
Ojos, hefur litlu við að bæta nema hvað
helst myndugum leik Diaz. Fjöldaframleidd
eftirlíking.(S.V.) Sambíóin.
Domestic Disturbance /
Heimilisófriður
Bandarísk. Leikstjóri: Harold Becker. Aðal-
leikendur: John Travolta, Vince Vaughn, Teri
Polo, Steve Buscemi. Einkar slappur tryllir
sem er í senn leiðinlegur og klisjukenndur.
Travolta, sem leikur hetjuna í myndinni,
virðist hafa óeðlilega næmt nef fyrir léleg-
um kvikmyndaverkefnum um þessar mund-
ir.(H.J.)
Sambíóin.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Shallow Hal þeirra Farelly-bræðra er að mati Sæbjörns Valdimarssonar „hlý-
legri og rómantískari en áhorfendur eiga að venjast frá þeim bræðrum“.