Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 20
Morgunblaðið/Kristinn
Fjallað var um niðurstöður meistaraprófsritgerðar varðandi fákeppni á
matvörumarkaði á málstofu í viðskiptafræði við Háskóla Íslands í gær.
NIÐURSTÖÐUR úr meistararit-
gerð Einars G. Einarssonar um mat-
vörumarkaðinn á Íslandi voru tals-
vert gagnrýndar af fundarmönnum á
málstofu í viðskiptafræði hjá Há-
skóla Íslands í gær.
Einar skoðar meðal annars í loka-
ritgerð sinni hlutverk heildsala í
samhengi við fákeppni á matvöru-
markaði. Kemst hann að þeirri nið-
urstöðu að fákeppni á íslenskum
matvörumarkaði og verðhækkanir á
matvöru megi að stórum hluta rekja
til þess sem hann kallar afsláttar-
kerfi heildsala, þar sem stærstu við-
skiptavinum þeirra, þ.e. stærstu
smásölunum, er veittur mjög mikill
afsláttur. Þetta kerfi hafi mjög nei-
kvæð áhrif á samkeppnisstöðu minni
smásala sem ekki séu í þeirri stöðu
að geta beitt heildsalana kúgunum.
Þörf á miklu
eftirliti og aðhaldi
Einar telur að við þessi skilyrði fá-
keppni sé þörf á miklu eftirliti og að-
haldi frá samkeppnisyfirvöldum og
leggur til að tekið verði í notkun
ákveðið reiknilíkan til að stemma
stigu við þessari þróun. Líkanið
byggist á flatari uppbyggingu af-
sláttar þar sem heildsölum gefst ekki
kostur á að veita stærri smásölum
eins háa afslætti og nú tíðkast.
Leiðbeinandi Einars við meistara-
verkefnið var Guðmundur Ólafsson,
lektor við HÍ. Prófdómari var Brynj-
ólfur Sigurðsson, prófessor við HÍ.
Allt of stórtækar túlkanir
Nokkrir fundarmanna kvöddu sér
hljóðs eftir kynningu Einars í gær og
efuðust mjög um réttmæti ályktana
hans.
Snjólfur Ólafsson, prófessor við
viðskipta- og hagfræðideild, telur
túlkanir Einars alltof stórtækar.
Verkefni hans hafi verið skilgreint
of þröngt en hann túlki niðurstöð-
urnar eins og viðfangsefnið hefði
verið skoðað á mun víðtækari hátt.
„Sumar ályktanir sem hann dró í
niðurstöðum sínum eru ekki rök-
studdar með ritgerðinni. Sumar eru
villandi og beinlínis rangar eða ekki
á rökum reistar,“ að mati Snjólfs.
Á algjörum villigötum
Gylfi Magnússon, dósent við við-
skipta- og hagfræðideild, tók undir
gagnrýnina og sagði Einar á algjör-
um villigötum. Í máli Gylfa á málstof-
unni kom fram að gagnslaust væri að
einblína á samskipti heildsala og
smásala. Gylfi lýsti einnig verulegum
efasemdum um að niðurstöður
meistaraverkefnisins væru réttar
eða vörpuðu einhverju ljósi á þennan
markað sem verið var að skoða.
Gagnrýni skortir
fyrr á ferlinu
Snjólfur Ólafsson er einn þeirra
sem staðið hafa að uppbyggingu
meistaranáms viðskiptaskorar frá
upphafi. Hann telur að meistararit-
gerð Einars hefði ekki átt að komast
þetta langt án þess að fleiri hefðu
tækifæri til að gagnrýna hana.
„Við stefnum að því að málstofur
verði haldnar fyrr á ferlinu, áður en
viðkomandi lýkur við vinnu sína.
Uppbygging meistaranámsins er
mjög hröð og við stöndum faglegar
að því með hverju árinu en það eru
enn veikleikar í þessu ferli. Það er að
þróast.“
Hann bendir þó á að niðurstöður
úr slíku verkefni séu sjaldnast réttar
eða rangar enda jafnan skiptar skoð-
anir á meðal fræðimanna um hvernig
meta beri heiminn og fræðin.
Gagnrýni á meistararitgerð
um matvörumarkaðinn
Sumar álykt-
anirnar bein-
línis rangar
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÝHERJI tapaði 55 milljónum
króna á síðasta ári en árið 2000 var
hagnaður félagsins 289 milljónir
króna. Afkoman versnaði því um 344
milljónir króna, en þegar litið hefur
verið til þess að söluhagnaður ársins
2000 var 198 milljónir króna eftir
skatta má segja að afkoman hafi
versnað um 146 milljónir króna.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
kemur fram að vörusala hafi aukist
um 15% milli ára sem megi að
stærstum hluta rekja til aukinnar
sölu á IBM tölvum auk góðrar sölu á
skrifstofutækjalausnum. Þá hafi
þjónustutekjur á árinu verið 5%
hærri en árið áður.
Eins og sjá má í meðfylgjandi
töflu minnkaði hagnaður fyrir af-
skriftir um 59% milli ára og sú þróun
varð til þess að framlegðin lækkaði
úr 6,3% í 2,3%.
Mikil umskipti til hins verra urðu í
fjármunaliðum, en neikvæður við-
snúningur þar var 371 milljón króna.
Þetta ræðst að stærstum hluta af því
að söluhagnaður áhættufjármuna
nam 276 milljónum króna árið 2000
en var enginn í fyrra. Þá tvöfölduð-
ust vaxtagjöld, úr 40 milljónum
króna í 80 milljónir króna, og geng-
istap, sem var 22 milljónir króna árið
2000 var komið í 81 milljón króna í
fyrra.
Lækkun tekjuskattshlutfalls
bætir afkomuna
Áhrif lækkunar tekjuskattshlut-
falls úr 30% í fyrra í 18% í ár bætir
afkomu félagsins um 46 milljónir
króna vegna lækkaðrar tekjuskatts-
skuldbindingar, og án þess liðar í
uppgjörinu hefði tap félagsins verið
rúmar eitt hundrað milljónir króna.
Starfsmönnum fækkaði um 4% en
laun og launatengd gjöld hækkuðu
um 3% og voru samtals rúmur einn
milljarður króna.Veltufjárhlutfall
batnar milli ára, fer úr 1,31 í 1,47, en
frá 1997 hefur það sveiflast á milli
1,41 og 2,23.
Gengi hlutabréfa Nýherja lækkaði
um 64% á árinu 2001, fór úr 14,0 í 5,0.
Frá áramótum hefur gengið svo far-
ið hækkandi á ný og lokagengi í gær
var 6,1, sem þýðir að bréfin hafa
hækkað um 22% á þessu ári.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að verkefnastaða og söluhorfur
í upphafi árs séu vænlegar og gefi
vonir um batnandi afkomu.
Afkoma Nýherja snýst
úr hagnaði í tap
,
#
,
!!
!!
! - #
.
+!
#
#
+#!
!
/!0
.# "
# 1#!0!
$
!0! /! +#!
! (
!
!
C +
+
+ B?<::4
" #
:4
" # " #
::
/
<75:6
/
0
1
/ 222
2& $$%
3
&'(
&
)&'
" %&'
32
23
23
&% 4
&2
&*+
&,+
-,(+
,$+
-((+
-&&(+
-)+
-$+
-,+
-)+
-(%+
-$*(+
-)+
GENGIÐ hefur verið frá samn-
ingi við hluthafa Hugins ehf. í
Vestmannaeyjum um aukin kaup
SR-mjöls hf á hlutum í félaginu.
Samhliða þessum kaupum var
hlutafé Hugins ehf aukið og
keypti SR-mjöl hf þá aukningu
alla. Eftir þessi kaup verður eign-
arhluti SR-mjöls hf í Hugin ehf
45,53%. Huginn ehf gerir út Hug-
in VE 55 og Hugin VE 65. Lönd-
unarsamningur milli SR-mjöls hf
og Hugins ehf hefur verið í gildi
og á síðasta ári var mestum afla
skipanna landað í verksmiðjur
SR-mjöls hf., að því er fram kem-
ur í tilkynningu til Verðbréfa-
þings Íslands.
SR-mjöl eykur
hlut sinn í Hugin
REKSTUR Guðmundar Runólfs-
sonar hf. í Grundarfirði skilaði
26,1 milljónar króna hagnaði á síð-
asta ári. Árið 2000 varð hins vegar
63,3 milljóna króna tap af rekstr-
inum.
Gengistap upp á 230 milljónir
króna og verkfall sjómanna hafði
neikvæð áhrif á rekstur félagsins,
eins og fram kemur í tilkynningu
frá Guðmundi Runólfssyni hf.
Framlegð af rekstri félagsins var
30% og gert er ráð fyrir áfram-
haldandi góðri afkomu á árinu
2002. Rekstrartekjur fyrirtækisins
námu alls 1.013 milljónum króna.
Að meðtöldum innlögðum eigin
afla og veiðafærasölu til eigin nota
nam heildarvelta félagsins 1.312
milljónum króna.
Hagnaður
30% af veltu
Hagnaður fyrirtækisins fyrir af-
skriftir og vexti nam 304 millj-
ónum sem samsvarar 30% af veltu.
Veltufé frá rekstri jókst úr 132,2
milljónum króna í 194,4 milljónir á
milli áranna, eða um 47%. Tekju-
skattsskuldbinding nam í árslok
162 milljónum króna. Bókfært eig-
ið fé í árslok nam 457 milljónum
og þar af er hlutafé 137 milljónir.
Aðalfundur Guðmundar Runólfs-
sonar hf. verður haldinn 19. apríl
nk.
Úr tapi í 26
milljóna hagnað
,
#
,
!!
!!
! - #
. /0
.
!
/!0
.# "
# 1#!0! /! +#!
! C +
+
+<::4
/ / /
<7=:6
<7=:6
&
%
3%
"23
" "%3
%'&
23
%'&
2
"4
12+
13+
1&%+
1,+
13$+
1&,+
-&&+
13'(+
-&)&+
*+
1&'+
-3+
*+
1)2+
" # " # " #
:4 ::
NAFNI svissneska flugfélagsins
Swissair verður breytt í Swiss í lok
mars og var nýtt vörumerki félags-
ins kynnt í gær.
Swissair óskaði eftir gjald-
þrotaskiptum í október á síðasta ári
og verður nýja félagið byggt á
grunni dótturfélags Swissair,
Crossair, og tekur við flugleiðum
þess. Ákvörðunarstaðir Swiss verða
123 talsins í 60 löndum og verður
flugfloti þess 128 vélar. Áætl-
unarflug Swiss verður heldur minna
í sniðum en samanlagt flug Swissair
og Crossair síðastliðið sumar og er
samdrátturinn um 30 af hundraði.
Swissair var óskabarn svissnesku
þjóðarinnar og var það mikið reið-
arslag þegar tilkynnt var um gjald-
þrotabeiðni félagsins í fyrra. Í ný-
legri skoðanakönnun kemur fram
að einungis 7% svissnesku þjóð-
arinnar telur að hið nýja félag eigi
framtíð fyrir sér. Þrátt fyrir það
hefur félaginu tekist að fá nýtt fjár-
magn að rekstrinum sem nemur
rúmum 160 milljörðum íslenskra
króna á tæplega fjórum mánuðum.
Reuters
Framkvæmdastjóri Crossair,
Andre Dose, kynnti í gær nýtt flug-
félag, Swiss, sem verður til í kjölfar
gjaldþrotabeiðni Swissair.
Swissair
verður
Swiss