Morgunblaðið - 01.02.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Norræna umhverfismerkið
Umhverfispóli-
tískt stjórntæki
RÁÐSTEFNA verð-ur haldin í dag ogá morgun á vegum
Hollustuverndar ríkisins
og er umfjöllunarefnið að
stærstum hluta Norræna
umhverfismerkið. Yfir-
skrift fyrri dagsins, Góðar
vörur – betra umhverfi,
segir e.t.v. eitthvað um
efnið sem um ræðir, en til
að glöggva lesendur betur
ræddi Morgunblaðið við
Sigrúnu Guðmundsdótt-
ur, sem flytur m.a. þrjá
fyrirlestra á ráðstefnunni
um Norræna umhverfis-
merkið.
Sem fyrr greinir dreif-
ist ráðstefnan á tvo daga,
sá fyrri er á Grand hóteli
Reykjavík og stendur frá
klukkan 8.30 til 16.15.
Seinni daginn, þegar fyr-
irlestrarnir og aðrar uppákomur
eru ætlaðar almenningi, verður
haldið í Gerðuberg í Breiðholti
og er yfirskriftin þá Framtíðin er
í innkaupakörfunni og er skír-
skotun til efnisins, sem er heim-
ilisinnkaup og umhverfismál.
Ráðstefnan í Gerðubergi stendur
milli klukkan 12 og 16.30.
– Um hvað verður fjallað á ráð-
stefnunni?
„Sífellt fleiri gera sér grein
fyrir því að framleiðsla, sala og
neysla á vörum og þjónustu hafa
mikil áhrif á umhverfi og nátt-
úru, við ætlum að reyna að koma
víða við, skoða hvernig þessu er
háttað á Íslandi, hvar við stönd-
um og hvernig við viljum haga
þessum málum í framtíðinni.“
– Hvað er umhverfismerki...til
hvers er það?
„Í stuttu máli má segja að um-
hverfismerkin séu hugsuðu til
þess að gera neytendum auðvelt
að velja vistvæna vöru án mik-
illar fyrirhafnar og framleiðend-
um kleift að sýna með skýrum og
einföldum hætti að þeir hafi tekið
mið af stöðluðum umhverfissjón-
armiðum við framleiðslu á sinni
vöru. Þannig má líta á umhverf-
isverkin sem umhverfispólitískt
stjórntæki eða verkfæri, neyt-
endu, framleiðendum og nátt-
úrunni til hagsbóta.“
– Svanurinn hvíti, Norræna
umhverfismerkið...hefur hann
verið á íslenskum vörum?
„Já, þvottaefnið Maraþon milt
sem Frigg framleiðir ber Nor-
ræna svaninn og Prentsmiðjan
GuðjónÓ hefur leyfi til að setja
Norræna umhverfismerkið
Svaninn á prentað efni. Nú, fljót-
lega verður einnig hægt að fá ís-
lenska bílavöru og iðnaðar-
hreinsiefni.“
– Fyrir hvað stendur svanur-
inn?
„Norræna umhverfismerkið
Svanurinn, sem er hvít svans-
mynd á grænum grunni, var
stofnað af Norrænu ráðherra-
nefndinni árið 1989, en merki
Norrænu ráðherranefndarinnar
er einnig svanur, en á bláum
grunni. Norræna um-
hverfismerkið er sam-
eiginlegt umhverfis-
merki
Norðurlandanna og
því er ætlað að stuðla
að sjálfbærri þróun. Og eins og
ég sagði þá má líta á það sem
verkfæri ætlað neytendum. Í
raun er umhverfismerkið mjög
þægilegt fyrir neytendur. Við
þurfum ekki að komast að því
sjálf hvernig varan er framleidd
eða hvaða efni voru notuð í vör-
una. Merkið tryggir að allir
þættir vörunnar frá vöggu til
grafar, hráefni, framleiðsla,
notkun og förgun, eru skoðaðir
m.t.t. þess að umhverfisálag af
vörunni er takmarkað eins og
frekast er unnt.“
– Notfæra neytendur sér
svona merkingar?
„Já, víða gera þeir það. Nor-
ræna umhverfismerkið er vel
þekkt í Noregi, Svíþjóð og í Finn-
landi. Í Svíþjóð eru t.d. nær öll
fataþvottaefni umhverfismerkt.
Svíar vilja hreinlega ekki kaupa
annað. Stutt er síðan að Danir
hófu þátttöku í samstarfinu og
þeir eru allir að koma til líka.“
– Hvernig standa þessi mál á
Íslandi?
„Hér hafa umhverfismerkin
ekki enn náð fótfestu. Íslending-
ar eru svolítið á eftir hvað þetta
varðar eins og reyndar í um-
hverfismálum almennt, en mér
sýnist áhuginn fara vaxandi, sem
betur fer.“
– Hver er markhópur ráð-
stefnunar?
„Á ráðstefnunni sem haldin er
í dag erum við að höfða til versl-
unargeirans og framleiðenda. Á
morgun, laugardag, eru svo allir
velkomnir, stórir sem smáir. Lei-
skólakennarar frá Náttúruleik-
skólanum Krakkakot ætla að
sýna okkur hvernig megi endur-
vinna pappír, búa til
hljóðfæri úr efni sem
annars færi í ruslið og
fleira. Þannig að þetta
verður sannkölluð
endurvinnslusmiðja.
Nú, svo verða fyrirlestrar um líf-
ræna framleiðslu, hvernig við
getum haft áhrif á hvaða vörur
eru á boðstólum, sænskur fyrir-
lesari mun segja okkur á hvað
Svíar leggja áherslu varðandi
innkaup og umhverfismál. Loks
má nefna að krakkar úr Náttúru-
leikskólanum Krakkakot segja
okkur sitthvað um það hvernig
þau sjá heiminn fyrir sér.“
Sigrún Guðmundsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
fæddist 30. september 1964 í
Stuttgart. Stúdent frá Fjöl-
braut Akraness 1984. Lagði
stund á mannfræði, félagsfræði
og líffræði með hléum við Al-
bert-Lidwig-háskólann í Frei-
burg á árunum 1989–93 og
lauk fyrrihlutaprófi í mann-
fræði 1993. Stundaði líf-
fræðinám við HÍ 1994–97 og
lauk þá BS-prófi í greininni. Á
frásogsdeild Delta 1997–99 og í
Íslenskum lyfjarannsóknum ár-
ið 2000. Í janúar á síðasta ári
hóf hún störf við umhverf-
ismerkjaráð Íslands, en það er
undir armi Hollustuverndar.
Maki er Ævar Örn Jósepsson,
en börn þeirra eru Þórhildur
Sunna og Edda Karólína.
...mjög þægi-
legt fyrir
neytendur
Þú ert svona í nokkuð góðu lagi, almennt séð, Guðni minn, nema hvað þú þekkir ekki alla
bræður þína og svo hann Gylfa litla á Uppsölum.