Morgunblaðið - 01.02.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 9
Allir fylgihlutir fyrir dömu og herra
Mikið úrval af samkvæmisfatnaði
Efnalaug og fataleiga Garðabæjar
Opið alla daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.
Garðatorgi 3, sími 565 6680
Glæsilegir
brúðarkjólar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
20%
viðbótarafsláttur
af öllu
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Allt á útsölu
Frábært úrval
Stærðir 36-52
ÚTSALA
Síðustu
dagar
Opið
laugardag
kl. 10-16
LAURA ASHLEY
Útsölunni fer að ljúka
15%
aukaafsláttur
af útsölufatnaði
Ýmiss önnur tilboð í gangi
Bæjarlind 14-16,
sími 551 6646,
Kópavogi
á horni Laugavegs og
Klapparstígs, sími 552 2515
Sígild verslu
n
Útsala•Útsala
Nú fer hver
að verða síðastur
Verð áður 12.990 kr.
5.900
Verð áður
2.900 kr.
990
ÚTSALA
Verð áður
14.900 kr.
9.900
GLERÁRGATA 34, AKUREYRI, SÍMI 462 7788
LJÓSGAFINN
Buxur - Pils
-- 50%
Hverfisgötu 6
101 Reykjavík
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hafnaði í gær kröfu lögmanns um að
dómkvaddur yrði hæfur og óvilhall-
ur matsmaður til að svara því hverj-
ar líkurnar væru á dauðsföllum í
hlutfalli við fjölda neytenda á e-töfl-
um, amfetamíns og heróíns.
Þess var óskað að gerð yrði grein
fyrir líkunum á dauðsfalli með hlið-
sjón af niðurstöðum íslenskra rann-
sókna og erlendra rannsókna sem
fram hafi farið.
Lögmaðurinn, Björn L. Bergsson
hrl., er verjandi manns sem ásamt
öðrum er ákærður fyrir að flytja inn
tæplega 2.800 e-töflur til landins
síðastliðið vor.
Áður hafði verið lögð fram í mál-
inu matsgerð prófessoranna dr.
Magnúsar Jóhannssonar læknis og
dr. Sveinbjarnar Gissurarsonar
lyfjafræðings. Þar svöruðu þeir
ýmsum spurningum um eiginleika
ofangreindra fíkniefna og komust
m.a. að þeirri niðurstöðu að neysla á
e-töflum væri hættulegri fyrir
venjulega neytendur eiturlyfja en
neysla heróíns og amfetamíns.
Matsmennirnir voru m.a. beðnir um
að gera grein fyrir því hversu tíð
dauðsföll væru í hlutfalli við fjölda
neytenda fíkniefnanna. Í matsgerð-
inni segir um þetta: „Hér eru mats-
menn beðnir að upplýsa fjölda neyt-
enda efnanna. Enginn veit fjölda
neytenda, hvorki hér á landi né ann-
ars staðar, nema þá söluaðilarnir, ef
þeir hafa hugmynd um það sjálfir.
Matsmenn hafa því engin tök á að fá
þessar upplýsingar og geta því ekki
svarað þessari beiðni matsbeið-
enda.“
Ekki forsendur til að
svara spurningum
Ragnheiður Harðardóttir, sak-
sóknari hjá ríkissaksóknara, mót-
mælti matsbeiðninni enda væri hún
óþörf. Þá hefði hvorugur þeirra
matsmanna sem lögmaðurinn nefndi
forsendur til að svara þeim spurn-
ingum sem settar voru fram.
Í úrskurðinum kemur fram að
maðurinn sem er ákærður fyrir inn-
flutninginn er ekki sáttur við þessa
niðurstöðu og telur hana ekki eiga
við rök að styðjast. Er það rökstutt
nánar og m.a. vísað í erlendar vef-
slóðir.
Í úrskurði sínum segir Guðjón St.
Marteinsson héraðsdómari að ekki
sé um beiðni um eiginlegt mat að
ræða heldur lúti beiðnin að því gera
grein fyrir rannsóknum sem þegar
hafa verið unnar. Sé verjandanum í
lófa lagið að afla þessara gagna á
venjulegan hátt.
Matsmaður leggur ekki
mat á tíðni dauðsfalla
RÉTTINDASKRIFSTOFA stúd-
enta hefur sent Háskólaráði erindi
þar sem óskað er eftir því að ráðið
endurskoði ákvörðun sína um inn-
tökupróf við læknadeild sem fara
eiga fram í vor.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, for-
maður Stúdentaráðs, segir ástæð-
una þá að ein meginforsenda þess
að þetta hafi verið samþykkt á sín-
um tíma sé nú brostin. „Það var bú-
ið að margítreka það af hálfu lækna-
deildar að gott samstarf hefði verið
við framhaldsskólana um inntöku-
prófin og gerð þeirra. En síðan lýsir
skólameistarafélag framhaldsskól-
anna því yfir nú í janúar að nem-
endur muni ekki geta uppfyllt þær
kröfur sem læknadeild hafi sett
fram. Það kom sem sagt á daginn að
ekki hafði verið nægjanlegt sam-
starf á milli þessara aðila. Þá var
farið í það að gera breytingar á
kröfunum og starfshópur hefur skil-
að drögum að niðurstöðum um
hvaða námskeið í framhaldsskólun-
um eigi að leggja til grundvallar í
inntökuprófunum. Við teljum hins
vegar að þetta sé allt of seint á ferð-
inni.“
Þorvarður Tjörvi segir að Stúd-
entaráð leggist ekki gegn inntöku-
prófum við læknadeild. Sátt sé um
að inntökupróf séu mun hentugri en
numerus clausus. „Við viljum ein-
faldlega að það sé vandað til verks
og förum því fram á að prófunum
verði frestað um eitt ár. Það var
fjallað stuttlega um erindið í Há-
skólaráði í vikunni og rektor falið að
kanna málið. Það er síðan fundur á
fimmtudag í næstu viku þar sem
tekin verður afstaða til óska um
frestun á inntökuprófunum.“
Vilja fresta
inntöku-
prófum við
læknadeild
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir það hafa verið til
skoðunar í samgönguráðuneytinu að
gæta þess að halda niðri gjöldum
flugfélaga. Hjálmar Árnason alþing-
ismaður hefur sett fram þá hugmynd
að gjöld ríkisins á flugfélög sem
fljúga vilja næturflug til og frá land-
inu verði felld niður.
Samgönguráðherra segir erfitt í
gjaldtöku að gera upp á milli flug-
félaga sem vilja stunda næturflug og
annarra. Þá segir hann líka dýrara
að sinna afgreiðslu véla að nætur-
lagi. Honum finnist hins vegar koma
til greina að skoða sérstaklega af-
slátt ef flugfélög vildu t.d. nýta Eg-
ilsstaðaflugvöll meira utan háanna-
tíma og draga þar með úr álagi
annars staðar. Ráðherra benti einnig
á að gjaldtaka stórra flugvalla hlyti
alltaf að vera hagstæðari en á fáförn-
um völlum eins og Keflavík.
Samgönguráðherra
um afslátt gjalda
í næturflugi
Erfitt að gera
upp á milli
flugfélaga
♦ ♦ ♦