Morgunblaðið - 01.02.2002, Page 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, segir ljóst að lággjalda-
flugfélagið Go-fly hafi ekki hætt flugi
til Íslands vegna hárra gjalda á
Keflavíkurflugvelli, enda hafi flug-
völlurinn verið í fimmta lægsta sæti
af tólf flugvöllum í Evrópu í könnun
sem utanríkisráðherra lét fram-
kvæma. „Það er tiltölulega ódýrt að
fljúga inn á Keflavíkurflugvöll miðað
við þennan samanburð og miðað við
þotu af gerðinni Boeing 737-300,“
sagði utanríkisráðherra við utandag-
skrárumræður á Alþingi í gær um
málefni flugfélagsins Go-fly.
Málshefjandi var Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylkingarinn-
ar. Hann sagði það slæm tíðindi fyrir
almenning og ferðaþjónustu í land-
inu að Go-fly hafi hætt að bjóða ferð-
ir til Íslands. Að sögn Össurar sýna
kannanir að 70% farþega, sem fljúga
með lággjaldafélögum, ferðist bein-
línis vegna lágra fargjalda og því
hefði flug Go-fly eflaust skilað hingað
þúsundum farþega sem annars hefðu
ekki komið til landsins. Varpaði Öss-
ur þeirri spurningu til samgönguráð-
herra, hvort hann teldi þetta ekki al-
varleg tíðindi fyrir íslenska
ferðaþjónustu.
Össur sagði forráðamenn Go hafa
gefið þá skýringu að afgreiðslu- og
lendingargjöld væru um fjórðungi
hærri hér á landi en í þeirri borg sem
væri næstdýrust af þeim borgum
sem þeir skipta við. Samkvæmt
reynslu þeirra væru afgreiðslugjöld
á Keflavíkurflugvelli einnig ríflega
tvisvar sinnum hærri en í Kaup-
mannahöfn og fjórum sinnum dýrari
en í Munchen.
„Ástæðan fyrir þessu, herra for-
seti, er fyrst og fremst skortur á
samkeppni. Það er einfaldlega þann-
ig að það er bara eitt fyrirtæki, ISG,
sem hefur samninga við flugstöðina
um aðstöðu til þess að afgreiða stór-
ar farþegaþotur. Og þetta er í mínum
huga ekkert annað en skýrt dæmi
um hreina og klára einokun,“ sagði
Össur.
Skaðar íslenska ferða-
þjónustu og þjóðarhag
Þá benti Össur á að skortur á sam-
keppni væri ekki eina ástæðan held-
ur kæmu þar einnig til ákaflega háir
skattar á hvern farþega. „Þetta eru
flugvallarskattur, innritunargjald og
síðan er nýlega komið á öryggiseft-
irlitsgjald. Þetta nemur samtals um
2.500 krónum á hvern farmiða og það
segir sig sjálft að það er giska há
upphæð þegar menn eru að tala um
farmiða á bilinu 15-20 þúsund krón-
ur. Af sjálfu leiðir þá, að þegar af-
greiðslugjöld eru há, þegar lending-
argjöld eru há, þegar skattar hins
opinbera eru háir, þá beina lág-
gjaldaflugfélög á borð við Go-fly far-
kostum sínum annað. Það skaðar
hins vegar kaupmátt alls þorra al-
mennings, það skaðar íslenska ferða-
þjónustu og það skaðar íslenskan
þjóðarhag,“ sagði Össur.
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra, sagði að gerður hefði verið
samanburður fyrir utanríkisráðu-
neytið á flugvallargjöldum á nokkr-
um flugvöllum í Evrópu og niður-
stöður þeirra könnunar leiddu í ljós
að Keflavík væri í fimmta lægsta
sæti af tólf flugvöllum í Evrópu. Því
væri tiltölulega ódýrt að fljúga inn á
Keflavíkurflugvöll miðað við þotu af
gerðinni Boeing 737-300.
„Þá kostar það á vél 274.334 krón-
ur en er ódýrast í París, 156.144. Það
verður líka að taka tillit til þess að af
þessu er tæpur helmingur flugvall-
arskattur sem ekki rennur til Kefla-
víkurflugvallar. Hann rennur til upp-
byggingar flugvalla í landinu
samkvæmt ákvörðun Alþingis. Ef sá
skattur væri ekki fyrir hendi, sem ég
er ekki á nokkurn hátt að leggja til að
verði lagður af því hann er mikilvæg-
ur til uppbyggingar á öðrum flugvöll-
um, þá væri kostnaður á Keflavíku-
flugvelli lægstur. Lendingargjöld
eru 46.794 krónur og farþegagjöld
57.041 króna og öryggisgjald 33.000,
eða samtals 146.834 krónur.“
Rætt verði við Go um flug til
Akureyrar og Egilsstaða
Utanríkisráðherra sagði þetta
staðreyndir sem lægju fyrir og það
mætti taka fram að flugfélagið Go
hefði aldrei leitað eftir viðræðum við
yfirvöld hér á landi um þessi mál.
Þá sagði Halldór það ekki rétt að
aðstaða til samkeppni væri ekki til
staðar í flugstöðinni, því öll fyrirtæki
hefðu aðgang að búnaði til þess að
stunda þar sína starfsemi.
„Það er mikilvægt að staðreyndir
málsins séu hafðar á borðinu og það
liggi ljóst fyrir af hverju viðkomandi
aðili hætti að fljúga hingað. Það er að
minnsta kosti ekki vegna þess að
Keflavíkurflugvöllur sé dýrasti flug-
völlur í Evrópu. Staðreyndir í þess-
ari úttekt segja allt annað og á því
ber að byggja en ekki einhverjum
sögusögnum,“ sagði utanríkisráð-
herra.
Fleiri þingmenn tóku þátt í um-
ræðunum og sakaði m.a. Árni Stein-
ar Jóhannsson, þingmaður Vinstri-
grænna, stjórnvöld um andvaraleysi
í málinu. Þá beindi hann þeirri
spurningu til samgönguráðherra
hvor hægt væri að skoða þann mögu-
leika að hefja viðræður við Go-fly um
flug til Akureyrar eða Egilsstaða.
Össur Skarphéðinsson gagnrýndi
Sturlu Böðvarsson fyrir að taka ekki
til máls við umræðurnar og svara
þeim spurningum sem til hans væri
beint. Samgönguráðherra sagðist
ekki hafa komist að, en vera „að sjálf-
sögðu reiðubúinn til að svara þeim
spurningum síðar sem hér komu upp
varðandi ferðamál og fleira“.
Utandagskrárumræða á Alþingi um málefni flugfélagsins Go-fly
Segir Keflavíkurflugvöll
með þeim ódýrari í Evrópu
Reuters
Landssím-
inn ekki
seldur á
undirverði
STURLA Böðvarsson (D) sam-
gönguráðherra segir að stjórnvöld
hafi gengið til viðræðna um sölu á
hlut í Símanum af fullum styrk
þess sem á það fyrirtæki og ekki
þurfi að hafa áhyggjur af að fyr-
irtækið verði selt á undirverði.
Þetta kom fram í máli ráðherrans
á Alþingi í gær.
Guðmundur Árni Stefánsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
kvaddi sér hljóðs við upphaf þing-
fundar og vildi ræða þá breyttu
stöðu sem hann sagði hafa orðið
eftir að tveir þingmenn Framsókn-
arflokksins, þeir Magnús Stefáns-
son og Kristinn H. Gunnarsson,
sögðu í umræðum um sölu Símans
á miðvikudag að hugsanlega þyrfti
að endurskoða söluferilinn. Sturla
sagði að fram hefði komið í máli
þingmannanna að þeir hefðu ekki í
höndunum forsendur sem gæfu til-
efni til breytinga. Hann sagði að
eðlilegt væri jafnan að gá til veð-
urs áður en næstu skref væru stig-
in en við söluna væri einkanlega
hugsað um hagsmuni eiganda fyr-
irtækisins og notenda þjónustunn-
ar.
Ríkisendurskoðun
sett í mjög erfiða stöðu
Fleiri þingmenn stjórnarand-
stöðunnar tóku til máls og gagn-
rýndu stöðu mála. Kölluðu þeir
m.a. eftir svörum frá forustu
Framsóknarflokksins en enginn
þingmaður flokksins tók til máls.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður vinstri grænna, gerði í um-
ræðunni grein fyrir óskum þing-
flokks VG um að
Ríkisendurskoðun geri úttekt á
störfum einkavæðingarnefndar í
tengslum við sölu Landssímans.
Samgönguráðherra gagnrýndi
harkalega slíka beiðni til forseta
Alþingis þar sem einkavæðingar-
nefnd hefði með höndum pólitíska
vinnu stjórnarflokkanna og Ríkis-
endurskoðun væri sett í mjög erf-
iða stöðu með því að fara fram á að
hún rannsakaði störf nefndarinnar.
Þessi rök ráðherrans sagði Stein-
grímur aldeilis fráleit og taldi al-
veg eins gott að leggja Ríkis-
endurskoðun niður mætti ekki fela
henni slíkar úttektir á vinnubrögð-
um stjórnvalda.
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR er
í níunda sæti af þrettán flugvöllum
hvað kostnað vegna flugvallargjalda
snertir samkvæmt samanburði
Deloitte og Touche, sem gerður er
fyrir stjórnvöld. Jón Hákon Magn-
ússon, talsmaður Go flugfélagsins
hér á landi, segir að þarna sé um
samanburð við dýra flugvelli að
ræða sem lággjaldaflugfélög fljúgi
ekki inn á.
Samkvæmt samanburðinum er
París- CDG ódýrastur en þar eru
samanlögð flugvallargjöld miðað við
ákveðnar forsendur 156.144 kr.
Sambærileg gjöld á Keflavíkurflug-
velli eru 274.334 kr. Dýrastur þess-
ara flugvalla er hins vegar Kennedy
flugvöllur í New York en þar eru
flugvallagjöldin 699.240 kr.
Unnið er að gerð skýrslu þar sem
borinn er saman kostnaður á flug-
völlum, en í minnisblaði Deloitte og
Touche, þar sem þessar upplýsing-
ar koma fram, segir að uppbygging
gjaldskrár flugvalla sé með ólíkum
hætti sem geri samanburð mjög
erfiðan. Gjaldskrárstofn byggi ým-
ist á fjölda farþega eða flugtaks-
þyngd, en aðrar forsendur séu einn-
ig notaðar, svo sem hávaði, árstími
og tímasetning flugtaka og lend-
inga. Einnig geti gjaldtaka verið
mismunandi eftir því hvort um sé
að ræða lággjaldaflug eða ekki. Þá
sé einnig mismunandi hversu mikil
þjónusta sé innifalin í gjaldskrá.
Fram kemur síðan að í saman-
burðinum sé miðað við Boeing 737-
300 vél en sú vél sé mjög algeng
meðal lággjaldaflugfélaga og sum-
artíma. Miðað sé við 110 farþega, 64
tonna flugtaksþyngd, lendingar og
brottfarir milli miðnættis og sex á
morgnana, flug innan EES, að bið-
tími á flugvelli sé ein klukkustund
og að um engan „transit“-farþega
sé að ræða.
Jón Hákon Magnússon, talsmað-
ur lággjaldaflugfélagsins Go hér á
landi, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þarna væri um samanburð
að ræða við dýra flugvelli og lág-
gjaldaflugfélögin notuðu ekki þessa
dýru flugvelli nema þau þyrftu
þess. Hér væri enginn annar flug-
völlur en þessi dýri Keflavíkurflug-
völlur. Go og Ryan Air og fleiri
flygju til dæmis ekki á Heathrow,
De Gaulle eða Frankfurt. Þau
flygju til flugvalla í grenndinni sem
væru ódýrari.
Keflavíkur-
flugvöllur í
níunda sæti
Talsmaður Go segir samanburðinn
gerðan við dýra flugvelli
!"#$%
"
&
"
' (
) *
(
!
+
,
-
"
.(/0
"
+
1
23+
2
4567488
49:7:;4
<=474<8
<8;76;9
<;87==8
<;5798;
=8675<;
=687=;4
=9<7:6;
=9<794=
=>87965
6::786=
6>>7<8:
?+?+? 177,B?+,
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra hefur fallist á afsögn
Hreins Loftssonar úr fram-
kvæmdanefnd um einkavæð-
ingu miðað við 10. febrúar
næstkomandi.
Í bréfi sem forsætisráð-
herra hefur ritað til Hreins
Loftssonar af þessu tilefni
segir: „Vísað er til bréfs dags.
28. þ.m. þar sem þú segir af
þér nefndarstörfum í fram-
kvæmdanefnd um einkavæð-
ingu.
Störf þín í þágu einkavæð-
ingar á undanförnum árum
hafa verið framúrskarandi og
þakka ég kærlega þátt þinn í
þeirri breytingu sem einka-
væðing hefur komið til leiðar í
samfélagi okkar.
Ég felst á afsögn þína úr
nefndinni miðað við 10. febr-
úar nk.“
Fellst á
afsögn úr
einka-
væðing-
arnefnd