Morgunblaðið - 01.02.2002, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 11
VERSLUNARKEÐJAN Konsum í
Svíþjóð hefur náð undraverðum ár-
angri í að markaðssetja lífrænt
ræktaða matvöru á undanförnum
árum. Á árunum 1991 til 2000 tí-
faldaðist salan á slíkri matvöru og á
sama tíma jókst velta fyrirtækisins
um 500 milljónir sænskra króna.
Johan Ununger umhverfisráðgjafi
hefur starfað fyrir fyrirtækið frá
árinu 1995 og í dag heldur hann fyr-
irlestur á ráðstefnu Landverndar
sem ber yfirskriftina Góðar vörur –
betra umhverfi, en hana sækja
fulltrúar fyrirtækja í framleiðslu og
verslun.
Johan starfrækir ráðgjafafyrir-
tæki í Stokkhólmi á sviði umhverf-
ismála sem heitir Ununger og
Wrenfelt AB og er Konsum versl-
anirnar einn af stærri viðskiptavin-
um þeirra með um 450 verslanir um
alla sunnanverða Svíþjóð. „Ég er
ráðgjafi í því hvernig maður getur
nýtt sér umhverfisvæna hugsun í
versluninni og hvernig umhverfis-
málin geta hjálpað fyrirtækinu.
Konsum hafði lengi verið að velta
umhverfismálum fyrir sér þegar
við byrjuðum að vinna fyrir þá og
var meðal þeirra fyrstu sem unnu
að greiningu á því hvað væri mik-
ilvægast fyrir fyrirtækið í þessum
efnum.“
Konsum er matvöruverslunar-
keðja og að sögn Johans kemur
stærsti hluti matarins frá landbún-
aði en fiskmeti telur aðeins örfá
prósent. „Þess vegna hefur Kons-
um lagt aðaláherslu sína á landbún-
aðinn og hefur haft þann kost fram-
yfir aðra að fyrirtækið hefur lengi
vel haft gott samband við þá bænd-
ur sem hafa verið að prófa sig
áfram með umhverfisvænni aðferð-
ir en gengur og gerist í hefðbundn-
um landbúnaði eða það sem við
köllum lífræna ræktun. Þar hafði
Konsum einstakt tækifæri því það
hafði verið með í að byggja upp líf-
ræna ræktun í landinu. Konsum
hafði einnig tekið þátt í að byggja
upp þá eftirlitsstofnun sem sam-
þykkir framleiðsluna og gefur út
sérstaka merkingu þar að lútandi.“
Auglýst eftir bændum
Johan segir að þetta samband
Konsum við þá bændur sem stunda
lífræna ræktun hafi skipt sköpum
því strax þar hafði fyrirtækið
ákveðið forskot á samkeppnisaðil-
ana. „Hugmyndin var sú að kenna
viðskiptavinunum að velja ekki ein-
ungis mat út frá verði heldur einnig
út frá því hvernig hann væri fram-
leiddur. Tækist fyrirtækinu að fá
viðskiptavinina til að meta lífrænt
ræktaða vöru þannig að þeir veldu
hana fram yfir aðra, þá þyrftu þeir
að snúa sér að Konsum því það
hefði miklu meira að bjóða á því
sviði en aðrir. Þannig yrði Konsum
á undan í samkeppninni.“
Johan segir margar aðferðir
mögulegar við að ná til viðskipta-
vinanna þótt það sé ekki beinlínis
einfalt. „Grundvallaratriðið er að
vera trúverðugur í markaðssetn-
ingunni,“ segir hann. „Það nægir
ekki að auglýsa vöruna heldur
verður fyrirtækið sjálft að vera um-
hverfisvænt og markaðssetja sig
sem slíkt. Og það getur tekið lang-
an tíma að byggja upp þennan trú-
verðugleika.“
Hann segir fyrsta skrefið hafa
verið tekið þegar Konsum birti
auglýsingu í sænsku landbúnaðar-
tímariti þar sem óskað var eftir
bændum sem vildu beita umhverf-
isvænum aðferðum við búskapinn
og framleiða lífrænt ræktaða mat-
vöru. „Þeirri auglýsingu var beint
til bændanna árið 1985 því strax þá
fundu menn fyrir því að eftirspurn-
in eftir lífrænni ræktun var meiri
en framboðið. Fjöldi bænda tók þá
við sér þar sem mörgum þeirra
fannst rangt að úða eitri á matinn
og annað slíkt. Með þessu náði
maður fram trúverðugleika meðal
þeirra bænda sem vildu eitthvað
annað en hefðbundinn búskap.“
Eitri úðað á súpu
Varðandi neytendurna hefur
Konsum þróað sitt eigið vörumerki
fyrir lífrænan mat sem kallast
Änglamark. Í ár hefur Konsum
staðið fyrir áleitinni auglýsingaher-
ferð í dagblöðum og sjónvarpi sem
að sögn Johans hefur valdið tölu-
verðu uppnámi meðal bænda sem
stunda hefðbundinn búskap. „Í
einni sjónvarpsauglýsingu mátti sjá
par á veitingastað að borða súpu.
Þjónustustúlka kemur að borðinu
með eiturúðara í hendi og úðar svo-
litlu í súpuna. Parið spyr forviða
hvað gangi á, hversvegna hún
sprauti eitri í súpuna og hún svarar
því til að það sé það sem allir hinir
vilja. Þannig að samhliða því að
byggja upp lífræna ræktun hafa
verið mjög skýr skilaboð til al-
mennings um sannfæringu fyrir-
tækisins þannig að við erum trú-
verðugir í þessum efnum.“
Hann segir að salan á vörumerk-
inu Änglemark hafi gengið vonum
framar og í fyrra hafi söluaukning-
in á því numið 40 prósentum. Eft-
irspurnin á sænska markaðinum
eftir lífrænt ræktuðum mat sé mikil
og árlega seljist lífrænt ræktaðar
vörur fyrir um það bil einn milljarð
sænskra króna. Það hafi verið
reiknað út að ef framboðið svaraði
eftirspurninni væri hægt að selja
lífræna ræktun fyrir um tvo og
hálfan milljarð sænskra króna.
„Þannig að eftirspurnin er miklu
meiri en framboðið enda hefur hún
vaxið gríðarlega undanfarin ár.“
Johan vísar einnig til söluaukning-
arinnar á lífrænum vörum í Kons-
um en þar tífaldaðist salan frá
árinu 1991 til ársins 2000. Á sama
tíma batnaði afkoma fyrirtækisins
um 500 milljónir sænskra króna.
Hann tekur þó fram að vissulega
eigi fleiri þættir en lífrænn matur
þátt í afkomunni en þetta fari þó
saman.
Johan segir eftirspurnina eftir
lífrænum vörum einnig vera meiri
en framboðið þegar litið er á heims-
markaði og því sé mikilvægt fyrir
þá, sem vilja vinna markaði erlend-
is, að tileinka sér lífræna búskap-
arhætti. „Þegar litið er á lífræna
ræktun í heiminum er hún enn sem
komið er lítill hluti af heildinni en
hún vex af miklum krafti. Jafnvel í
Brasilíu, þar sem ég þekki svolítið
til, eru heilu fylkin sem mæla sér-
staklega með því að bændur innan
þeirra stundi lífrænan búskap. Og í
Englandi er mikið um lífræna
ræktun, t.d. hefur Karl Bretaprins
eigið vörumerki á þessu sviði.
Þannig að veröldin er virkilega að
koma til hvað þetta varðar,“ segir
Johan að lokum.
Markaðssetning á lífrænt ræktuðum matvörum hefur tekist vonum framar í Svíþjóð
Trúverðug-
leiki grund-
vallaratriði
Morgunblaðið/Ásdís
Johan Ununger: „Það nægir ekki að auglýsa vöruna heldur verður
fyrirtækið að vera umhverfisvænt og markaðssetja sig sem slíkt.“
NOKKUR sveitarfélög tilkynntu í
gær um ákvarðanir varðandi gjald-
skrárlækkanir og aðrar breytingar
sem eiga að miða að því að halda
verðlagi í landinu stöðugu.
Hafnarfjörður
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur
samþykkt að lækka gjaldskrá fyrir
þjónustu grunnskóla bæjarins um
25%, frá og með deginum í dag. Þá
hefur bæjarráð ákveðið hækka
tekjumörk ellilífeyrisþega úr 8% í
12% vegna niðurfellingar fasteigna-
skatts og holræsisgjalda frá og með
síðustu áramótum.
Í fréttatilkynningu frá bænum
segir að þessar gjaldskrárlækkanir
leiði að óbreyttu til um 6 milljóna
króna aukinna útgjalda bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar.
Áður hefur komið fram að leik-
skólagjöld í Hafnarfirði hafa verið
óbreytt frá 1. janúar 2001 og að raf-
orkuverð í bænum lækkaði um 14%
á síðasta ári. Þá hefur álagning fast-
eignaskatta á íbúðarhúsnæði verið
lækkuð úr 0,375% af fasteignamati
niður í 0,32% og lóðarleiga verið
lækkuð úr 1% af fasteignamati niður
í 0,5%. Segir í fréttatilkynningu frá
bænum að heildarálögur á skatt-
greiðendur að þessu leyti hafi því
ekki hækkað.
Kópavogur
Bæjarráð Kópavogs hefur einnig
samþykkt tillögur sem miða að því
að stemma stigu við verðlagsþróun.
Var ákveðið að falla frá fyrirhugaðri
gjaldskrárhækkun á leikskólum á
árinu 2002 auk þess sem styrkur til
einkarekinna leikskóla verður auk-
inn í því augnmiði að þeir geti einnig
fallið frá gjaldskrárhækkunum á
árinu. Þá verður fallið frá fyrirhug-
aðri hækkun á dvalargjaldi „Dæg-
urdvalar“ í grunnskólum bæjarins.
Loks verður veittur 7,5% afsláttur
af námsgjaldi Skólahljómsveitar
Kópavogs.
Í fréttatilkynningu frá bænum
segir að þessar ákvarðanir komi
barnafjölskyldum sérstaklega til
góða. Langveigamesta ákvörðunin
fyrir bæjarbúa hafi hins vegar verið
tekin við gerð síðustu fjárhagsáætl-
unar þegar samþykkt var að nýta
ekki til fulls heimilaða útsvarsálagn-
ingu sem er 13,03% heldur halda
henni óbreyttri í 12,7%.
Árborg
Bæjarráð Árborgar hefur ákveðið
að draga til baka áður samþykkta
5,3% hækkun á álagningarhlutfalli
holræsagjalds og verður það því
óbreytt frá fyrra ári eða 0,15%. Eins
var ákveðið að draga til baka 15%
hækkun á sorpgjaldi á íbúðarhús-
næði og verður það óbreytt eða
9.000 krónur á íbúð á ári. Loks
ákvað bæjarráð að veita 15% afslátt
af lóðarleigu vegna íbúðar- og at-
vinnulóða í sveitarfélaginu vegna
hækkunar á lóðarmati milli ára.
Akranes
Bæjarráð Akraness hefur sam-
þykkt að lækka dagvistargjöld leik-
skólanna frá og með 1. mars næst-
komandi þannig að þau verði þau
sömu og fyrir 1. október síðastlið-
inn. Þá samþykkti bæjarráð að
sundlaugagjöld verði óbreytt út ár-
ið.
Kemur fram í fréttatilkynningu
frá bæjarráði að verð á heitu vatni
hafi lækkað um 34% að meðaltali 1.
desember síðastliðinn og um leið
hafi verð á rafmagni til heimila
lækkað um 11%. Verðlækkun heita
vatnsins nemi um 60–70 milljónum
króna á Akranesi „og er því ein sér
drjúgur skerfur í baráttunni gegn
verðbólgu,“ segir í tilkynningunni.
Mörg sveitarfélög tilkynna
gjaldskrárlækkanir