Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 14
! "
#$
"%
&' (%
" "%
)*+ " ,
-
. + + ,
BÆJARYFIRVÖLDUM í Garðabæ
hafa borist bréf og undirskriftalistar
frá íbúum í bænum sem mótmæla
staðsetningu á veitingastofu sem
samkvæmt nýrri deiliskipulagstil-
lögu mun rísa í landi Sveinatungu við
Litlatún og Vífilsstaðaveg. Á lóðinni
er gert ráð fyrir 42 bílastæðum og
yrði innkeyrslan frá Litlatúni.
Veitingastofan of
nálægt skólunum
Tæplega tvö hundruð íbúar hafa
sent bæjaryfirvöldum bréf eða skrif-
að nafn sitt á undirskriftalista vegna
deiliskipulagstillögunnar. Þar er því
mótmælt að veitingastofa verði á lóð-
inni sem er gegnt Garðaskóla og
Flataskóla.
Í mörgum bréfanna segir að íbúar,
foreldrar og kennarar barna óttist
aukna slysahættu við skólana vegna
aukinnar umferðar með tilkomu
staðarins, auk þess sem staðsetning
hans sendi ekki heilsusamleg skila-
boð til barna og ungmenna í skól-
anum. Þá segir í athugasemdum að
ákjósanlegra væri að svæðið yrði
skipulagt sem útivistar- eða íþrótta-
svæði.
Í mörgum bréfanna segir að mót-
mælt sé fyrirhugaðri veitingastofu
McDonald’s í skipulagsreitnum, en
Laufey Jóhannsdóttir, formaður
skipulagsnefndar Garðabæjar, segir
það misskilning að ákveðið sé að
veitingastaður McDonald’s muni
rísa á lóðinni. Hins vegar hafi eig-
andi veitingastaðakeðjunnar óskað
eftir því að fá að opna stað á lóðinni.
„Aðeins er í deiliskipulagstillögunni
talað um að þarna verði lóð fyrir veit-
ingastofu, ekki hvaða veitingastaður
komi til með að rísa,“ segir Laufey.
Nauðsynlegt að horfa
á svæðið í heild
Á þessu svæði eiga að koma mis-
læg gatnamót samkvæmt staðfestu
aðalskipulagi Garðabæjar. „Þessi
gatnamót munu koma, frá því verður
ekki vikið. Þau eru hluti af því að
greiða fyrir umferð í gegnum og inn-
an Garðabæjar. Í bréfunum er bent á
að nota eigi þetta svæði frekar sem
t.d. grænt svæði. Auðvitað munum
við skoða það í heild sinni, en græna
svæðið yrði þá innan í slaufu vegna
mislægra gatnamóta. Það þarf að
horfa á svæðið í heild, út frá þessum
mislægu gatnamótum, til þess að
átta sig á deiliskipulagstillögunni.“
Húsið Sveinatunga, þar sem nú er
rekin dagvistun fyrir grunnskóla-
börn, mun víkja fyrir þeim fram-
kvæmdum.
Ekki er búið að samþykkja deili-
skipulagið endanlega, áður en það
verður gert verður farið ítarlega yfir
allar athugasemdir, að sögn Lauf-
eyjar. „Það verður að vega og meta
athugasemdirnar og skoða hvort það
er ástæða til að skoða það nánar sem
fram kemur í þessum bréfum. Fyrr
verður þessu ekki vísað til bæjar-
stjórnar.“
Íbúar mótmæla fyrir-
hugaðri veitingastofu
Skipulagsreiturinn sem um ræðir er bleikur á kortinu og drög að mislægum gatnamótum eru í rauðum lit. Bíla-
stæði og staðsetning fyrirhugaðrar veitingastofu eru merkt með bláum lit.
Garðabær
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Dúndur-
útsala
fyrir verðandi
mæður
Peysur frá 1.900
Kjólar frá 1.900
Buxur frá 1.900
Hverfisgötu 105
sími 551 6688
Njálsgötu 86 - sími 552 0978
20-50% afsláttur
af tilboðsvörum
10% afsláttur
af allri annarri vöru
Tilboðsdagar
Mikið úrval
af skápa-
og skúffuhöldum
Laugavegi 29 • Sími 552 4320
Höldur
Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050
Tilboð á
sængurverasettum
á Löngum laugardegi
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur
samþykkt áskorun til þingmanna
Reykjaneskjördæmis um afnám
kaupskyldu félagslegra íbúða. Í
áskoruninni segir að árið 1999, hafi
gamla félagslega eignaríbúðakerfinu
verið lokað. „Eigendum félagslegra
eignaríbúða hefur samt sem áður
verð gert að hlíta innlausn íbúða sinna
áfram í 10 til 15 ár frá afhendingu
þeirra, en geta ekki lengur keypt ann-
að húsnæði á sömu verðlagsforsend-
um, heldur verða að sæta verðlagi á
almennum fasteignamarkaði. Mark-
aðsverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu
hefur þróast þannig að stórum hluta
þessara fjölskyldna er ókleift að
skipta um húsnæði í dag.“ Þá kemur
fram að Íbúðalánasjóður hafi veru-
legan fjárhagslegan ávinning af því að
félagslegu lánin sem á íbúðum þess-
um hvíla séu greidd upp. Bæjarráðið
skorar því á þingmenn að beita sér
fyrir breytingum á lögum um hús-
næðismál svo að eigendum fé-
lagslegra eignaríbúða verði heimiluð
sala þeirra á almennum markaði enda
greiði þeir þá upp þau félagslegu lán
sem á þeim hvíla. Í öðru lagi að hluti
hagnaðar Íbúðalánasjóðs af upp-
greiðslu lánanna verði færður til
Varasjóðs viðbótarlána.
Bæjarráð
skorar
á þingmenn
Hafnarfjörður
VINNA við uppsetningu inniklif-
urveggja í nýju klifurhúsi við
Skútuvog 1 stendur nú sem hæst og
er stefnt að opnun hússins í febrúar.
Húsið nefnist Klifurhúsið og er á
vegum Íslenska alpaklúbbsins og
Sportklifurfélags Reykjavíkur.
Boðið verður upp á fjóra mismun-
andi klifurveggi og verður aðstaðan
öllum opin. Hægt verður að spreyta
sig á lóðréttum klifurvegg, tveimur
yfirhangandi veggjum og að síðustu
manngerðum helli. Allir veggirnir
eru 4,50 m á hæð og verða alsettir
þar til gerðum handfestum. Vegg-
irnir eru hannaðir með það í huga
Klifurhúsið rís
Morgunblaðið/Kristinn
að líkja eftir aðstæðum sem kletta-
klifrarar mæta við raunverulegar
aðstæður úti í náttúrunni, nema
hvað hæðin er minni en menn eiga
að venjast öllu jafna. Húsnæðið
sjálft er 300 fermetrar að flatarmáli
og er stefnt að því að hafa opið öll
virk kvöld og um helgar. Ekki hefur
verið endanlega ákveðið hvaða ald-
urstakmark verður sett en hug-
myndir eru uppi um 12-14 ára ald-
urstakmark og komi yngri í fylgd
fullorðinna. Vegna þess hve lítil
fallhæðin er úr veggjunum verða
dýnur settar undir þá í stað þess að
tryggja öryggi klifrara með örygg-
islínu eins og tíðkast í hærri veggj-
um.
Vogar