Morgunblaðið - 01.02.2002, Qupperneq 16
AKUREYRI
16 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
STJÓRNENDUR Ako-Plastos hafa
ákveðið að flytja þá starfsemi fyrir-
tækisins sem verið hefur við Þórs-
stíg á Akureyri suður til Reykjavík-
ur. Öllu starfsfólki félagsins á
Akureyri, 27 manns, var sagt upp
störfum í gær. Vélum og tækjum
verður komið fyrir í húsnæði Plast-
prents við Fossháls í Reykjavík og
stefnt er að því að það verði sem
fyrst. Þó svo að þessi árstími þyki
óhentugur til flutnings á framleiðslu
félagsins sjá stjórnendur sér ekki
annað fært en flytja starfsemina og
má gera ráð fyrir að hún verði komin
suður á næstu mánuðum.
Plastprent keypti meirihluta í
Ako-Plastos fyrir rúmu ári, í desem-
ber árið 2000, en þá hafði rekstur fé-
lagsins Ako-Plastos gengið heldur
illa árin á undan. Árið 2000 tapaði fé-
lagið 250 milljónum króna, eða um
50% af veltu, og voru skuldir umfram
eignir um 250 milljónir króna. Þó svo
að félagið hafi í raun verið gjaldþrota
þótti stjórnendum Plastprents ýmis
verðmæti vera í fyrirtækinu, einkum
gott starfsfólk og viðskiptasambönd.
Strax var hafist handa við að end-
urskipuleggja reksturinn og félaginu
var forðað frá gjaldþroti þegar
nauðasamningar fengust samþykkt-
ir. Verulega hefur dregið úr tap-
rekstrinum á síðustu misserum og
stefnir í að skuldir umfram eiginir
verði innan við 100 milljónir króna á
miðju þessu ári.
Byggðastofnun og Akureyrarbær
eignuðust húsnæðið við Þórsstíg á
uppboði í byrjun október á síðasta
ári og hefur félagið ekki greitt leigu
fyrir húsið frá þeim tíma, að sögn
Hákons Stefánssonar, bæjarlög-
manns Akureyrar. Húsnæðið sem
um ræðir er um 3.800 fermetrar að
stærð og sagði Hákon að eðlileg leiga
fyrir húsnæði af þeirri stærð væri 1,5
til 2 milljónir króna, en verið er að
skoða ýmsar forsendur málsins á
vegum Fasteigna Akureyrarbæjar.
Krafðir um leigu
Félagið var krafið um greiðslu
leigunnar með bréfi sem sent var í
byrjun janúar og þá farið fram á 2
milljónir króna í leigu fyrir hvern
mánuð. Forsvarsmenn félagsins fóru
fram á að greiða lægri leigu, að sögn
Hákons, til að tryggja rekstur fyr-
irtækisins á Akureyri. Sagði Hákon
að ef á þá beiðni yrði fallist myndi
verða farið fram á heimild til að rýma
húsið með skömmum fyrirvara, því
eigendur þess hefðu þá hug á að
reyna að leigja það öðrum fyrir
hærra verð.
„Þetta er ein sorgarsagan enn í at-
vinnumálum á Akureyri,“ sagði
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar-Iðju, en hann sagði at-
vinnuástand um þessar mundir vera
með því versta í langan tíma. „Þarna
missa 27 manns vinnuna, það er stór
biti,“ sagði hann. Hann sagðist veru-
lega svekktur og sár yfir ástandinu.
Greinilegt væri að fólk vildi koma til
bæjarins, en því miður væri atvinnu-
ástandið ekki nægilega gott. „Það
eru dæmi þess að fyrirtæki komi að
sunnan og sveitarfélög greiða fyrir
þeim á ýmsan hátt en svo er blekið
varla þornað á pappírunum þegar
allt er á bak og brott. Það virðist allt
sogast suður, það er bara bein leið
inn á suðvesturhornið og allt tal um
byggðastefnu er innihaldslaust.
Maður sér ekkert af þessu í fram-
kvæmd, þetta eru bara orð en ekkert
er gert,“ sagði Björn.
Ako-Plastos hefur sagt
upp 27 starfsmönnum
Boðuð hækk-
un gjalda
kemur ekki til
framkvæmda
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
samþykkt að tillögur um hækkuð
gjöld í leikskólum, fyrir skólaþjón-
ustu og heimaþjónustu komi ekki til
framkvæmda.
Í tengslum við umræðu um fjár-
hagsáætlun Akureyrarbæjar kom
fram að til að mæta áhrifum verð-
lagshækkana í rekstri bæjarins
hefðu þjónustugjaldskrár bæjar-
stofnana þurft að hækka um 30
milljónir króna á þessu ári „Það eru
hækkanir sem þurft hefðu að koma
til eingöngu út af verðlagsbreyting-
um, en ef kjarasamningar hefðu
verið teknir með í reikninginn hefði
hækkunin þurft að vera enn meiri,“
sagði Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri.
Um áramót var gjaldskrá Norð-
urorku vegna heits vatns lækkuð en
það hefur í för með sér að tekjur
veitunnar lækka um 50 milljónir
króna í ár. Þá voru einnig gerðar
breytingar til lækkunar á álagning-
arhlutfalli í fasteignagjöldum. Til
að leggja sitt af mörkum til að
halda aftur af verðlagshækkun
leggur bæjarráð nú til að fallið
verði frá áður framkomnum tillög-
um um
hækkun á leikskólagjöldum,
skóla- og heimaþjónustu.
Bæjarráð Akureyrar
VÍFILFELL hóf í gær áfyllingu
Coca-Cola á einnota flöskur í verk-
smiðju fyrirtækisins á Akureyri.
„Þetta er stór dagur, enda í fyrsta
skipti í 60 ára sögu Vífilfells sem
Coke er framleitt utan Reykjavíkur.
Hér eftir fer öll glerframleiðsla fyr-
irtækisins fram á Akureyri,“ sagði
Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Víf-
ilfells, í samtali við Morgunblaðið.
Þorsteinn sagði að með því að flytja
framleiðsluna norður væri verið að
skjóta enn styrkari stoðum undir
verksmiðjuna á Akureyri. Hann
sagði að það fengi ekki hver sem er
að framleiða Coca-Cola en að verk-
smiðjan á Akureyri hefði staðist ýtr-
ustu kröfur og skoðun Coca-Cola
Company í Bandaríkjunum.
„Á síðustu árum hefur verið tölu-
vert lagt í endurnýjun tækja og hús-
næðis og við erum komnir hingað til
að vera,“ sagði Þorsteinn.
Vífilfell hefur fyllt á og selt Coke í
margnota flöskum allt frá upphafi
en einnota glerið leysir nú marg-
nota flöskur af hólmi. Það var Krist-
ján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri, sem ræsti áfyllivélina með
formlegum hætti í gær.
Sala á Coke í flöskum hefur farið
minnkandi hérlendis á meðan sala á
öðrum umbúðum hefur aukist. Þor-
steinn sagði að stefnt væri að því að
auka hlutdeild glerflöskunnar á nýj-
an leik. Liður í því væri að framleiða
250 ml einnota glerflösku í stað
margnota 190 ml og 300 ml. Þá er
nýja flaskan næstum helmingi létt-
ari en sú gamla, glerið er þynnra og
því umhverfisvænna. „Við stefnum
að því að ná fram betri nýtingu í
verksmiðjunni en þurfum þó að
fjölga um eitt til eitt og hálft stöðu-
gildi. Og ef Akureyringar verða
duglegir að drekka Coke í flösku
fjölgar störfunum enn frekar.“
Rúmlega 30 starfsmenn
eru á Akureyri
Þorsteinn sagði að skil á einnota
glerflöskum til Endurvinnslunnar
væru yfir 90% af seldum umbúðum
á meðan skil á margnota flöskum til
Vífilfells hefðu farið minnkandi og
væru nú aðeins um 20%. Við þessi
tímamót leggst flutningur á tómum
glerflöskum af, sem og áfylling á
þær, flokkun og þvottur.
Í verksmiðju Vífilfells á Akureyri
eru í dag framleiddar 10 tegundir
öls og léttöls og frá árinu 1993 hefur
framleiðslan verið í örum vexti.
Þorsteinn sagði að árið 1997 hefði
framleiðslan verið tæpar 3 milljónir
lítra og á liðnu ári var framleiðslan
um 5,2 milljónir lítra, sem var
stærsta ár í sögu verksmiðjunnar. Á
þessu ári er stefnt að framleiðslu 6
milljón lítra, að sögn Þorsteins, og
þar af er Coca-Cola um 10% fram-
leiðslunnar. Húsnæði Vífilfells á Ak-
ureyri er 2.500 fermetrar og þar
starfa 32 starfsmenn, þar af 17 við
framleiðslu.
Til ársins 1990 var gosdrykkja-
framleiðsla í sömu verksmiðju. Upp-
haf framleiðslu Coca-Cola á Ak-
ureyri er þó nýr kafli í sögu
drykkjaframleiðslu bæjarins, eins
og segir í fréttatilkynningu Víf-
ilfells.
Drykkurinn fyrst
á markað 1886
Frá því að Coca-Cola var fyrst
blandað árið 1886 hefur drykkurinn
farið sigurför um heiminn og er
þekktasta vörumerki heims, segir
ennfremur í fréttatilkynningunni.
Björn Ólafsson stórkaupmaður
gerði samning við Coca-Cola Comp-
any árið 1941 og öðlaðist leyfi til að
framleiða drykkinn á Íslandi. Í hús-
inu Haga við Hofsvallagötu í
Reykjavík tók verksmiðjan Vífilfell
til starfa 1. júní 1942. Fyrirtækið
varð þar með einkaframleiðandi
Coca-Cola á Íslandi og hefur verið
það allar götur síðan. Á síðari árum
hefur Vífilfell í auknum mæli fært
sig inn á önnur svið. Í fyrra samein-
uðust Vífilfell og Sól-Viking og þar
með bættust við nýir vöruflokkar.
Coca-Cola í nýjar einnota glerflöskur
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Vífilfells, stendur við stæðu af nýju ein-
nota coke-flöskunum í verksmiðju fyrirtækisins á Akureyri.
Framleiðsla á
glerflöskum flutt
til Akureyrar
Hádegistón-
leikar
BJÖRN Steinar Sólbergsson organ-
isti leikur á hádegistónleikum í Ak-
ureyrarkirkju á laugardag, 2. febr-
úar og hefjast þeir kl. 12.
Á efnisskrá tónleikanna verða
verk Johann Sebastian Bach, Mau-
rice Duruflé og Felix Mendelssohn-
Bartholdy. Lesari á tónleikunum er
sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og eru allir velkomnir.
Akureyrarkirkja
STELPUR úr listhlaupadeild
Skautafélags Akureyrar gerðu góða
ferð á Íslandsmeistaramót í list-
hlaupi sem haldið var í Reykjavík um
síðustu helgi. Þær tóku með sér
norður fimm af þeim sjö verðlaunum
sem í boði voru á mótinu.
Í flokki yngstu keppendanna varð
Kristín Helga Hafþórsdóttir í öðru
sæti og Jónína Björk Ingadóttir í því
þriðja. Í flokki iðkenda á aldrinum
14–18 ára, sem þó er háður getu,
varð Audrey Freyja Clarke Íslands-
meistari. Í öðru sæti varð Vanessa
Jóhannesdóttir og í því þriðja varð
Helga Margrét Clarke, allar úr SA. Í
flokki elstu iðkendanna var aðeins
einn keppandi frá Reykjavík.
Alls sendi SA átta keppendur til
mótsins og er þetta mjög góður ár-
angur hjá hópnum, eins og segir í
fréttatilkynningu listhlaupadeildar
en alls voru keppendur nítján á
mótinu. Keppendur þurfa að stand-
ast nokkuð strangar kröfur til að
komast á mótið, og sýnir það best þá
ástundun sem stelpurnar hafa sýnt í
vetur að þær voru nærri helmingur
keppenda.
Mikil fjölgun hefur orðið í hópi
iðkenda listhlaups hér á Akureyri
undanfarið eða frá því að Skautahöll-
in var opnuð og eru þeir nú á milli
áttatíu og níutíu á öllum aldri.
Næst á dagskrá hjá listhlaupa-
deild er að halda svokallað Vinamót
á Akureyri hinn 9. febrúar og munu
verða um hundrað keppendur á því
móti frá öllum skautafélögunum
þremur.
Þetta mót er ætlað yngri iðkend-
um sem ekki eiga þess kost að kom-
ast á mót eins og Íslandsmeistara-
mótið, en vilja gjarnan fá að spreyta
sig og sýna hvað í þeim býr.
Íslandsmeistaramótið í listhlaupi á skautum
Góður árangur
akureyrskra stúlkna
AKUREYRARBÆR býður upp á
troðnar skíðagöngubrautir fyrir
almenning á Akureyrarvelli. Hér
er um tilraun að ræða til að koma
til móts við þá sem styttra eru
komnir í gönguskíðaíþróttinni.
Reynir Friðfinnsson var á göngu-
skíðum á Akureyrarvellinum í
gær, þegar ljósmyndari Morg-
unblaðsins var þar á ferð og lét
hann vel af aðstöðunni. „Þetta er
alveg frábært, ég bý í Fjólugöt-
unni og get því tekið skíðin undir
hendina og gengið yfir á Akureyr-
arvöll. Það er mjög þægilegt að
hafa þessa aðstöðu við hendina og
hér er gott að ganga til að halda
sér í formi. Aðastaðan hér virðist
þó ekki mikið hafa verið notuð
ennþá,“ sagði Reynir.
Morgunblaðið/Kristján
Á göngu-
skíðum
♦ ♦ ♦