Morgunblaðið - 01.02.2002, Qupperneq 18
LANDIÐ
18 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SUNNLENSKA fréttablaðið hélt
upp á tíu ára afmæli sitt með flutn-
ingi í nýtt húsnæði á Selfossi, á
Eyravegi 25. Samfelld útgáfa blaðs-
ins hefur staðið yfir frá því í janúar
1992. Fyrstu tölublöð þess komu út
1991 og líta eigendur á þau sem til-
raunatölublöð þar sem útgefendur
voru að reyna fyrir sér og þreifa á
markaðnum. Nú hefur blaðið haslað
sér völl á Suðurlandi og kemur
reglulega út einu sinni í viku og er
selt í áskrift og lausasölu á öllu Suð-
urlandi.
Bjarni Harðarson hefur verið rit-
stjóri blaðsins frá upphafi. Hann
sagði þetta hafa verið skemmtilegan
tíma en ekki áreynslulausan. Það
væru óneitanlega góð tímamót fyrir
blaðið að ná tíu ára aldri og ánægju-
legt að litið væri á blaðið sem ómiss-
andi héraðsfréttablað. Sunnlenska
hefði því náð markmiði frumkvöðl-
anna sem hófu útgáfuna fyrir tíu ár-
um. Auk reglulegrar útgáfu Sunn-
lenska fréttablaðsins hefur
útgáfufélag þess, Sunnan 4, annast
útgáfu blaða fyrir félög og flokka á
Suðurlandi. Könnun á dreifingu
blaðsins innan héraðs á Suðurlandi
sýnir að það hefur meiri dreifingu á
Suðurlandi en aðrir prentmiðlar.
Í tilefni tímamótanna var gestum
boðið að skoða hið nýja húsnæði
blaðsins og starfsmenn tóku á móti
gestum með kaffi og kleinum auk
þess sem nokkur skemmtan í þjóð-
legum stíl var höfð í frammi. Nú
starfa hjá Sunnlenska sex starfs-
menn.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Starfsmenn Sunnlenska fyrir framan nýja húsnæðið á Selfossi. Baldur Kristjánsson, Helgi Valberg blaðamaður,
Alda Árnadóttir, Elín Gunnlaugsdóttir, Bjarni Harðarson ritstjóri og Atli Steinarsson blaðamaður.
Sunnlenska í nýtt húsnæði
Selfoss
SUÐURNES
LEIKFÉLAG Keflavíkur og Vox
Arena, leiklistarklúbbur Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja, hafa tekið höndum
saman og æfa nú söngleikinn Gretti
eftir Egil Ólafsson, Þórarin Eldjárn
og Ólaf Hauk Símonarson. Jón Páll
Eyjólfsson leikstýrir verkinu og verð-
ur verkið frumsýnt í Frumleikhúsinu
við Vesturbraut í Keflavík í byrjun
marsmánðar.
Söngleikurinn var frumfluttur af
Leikfélagi Reykjavíkur og þá við
undirleik Þursaflokksins. Leikfélag
Keflavíkur sýndi söngleikinn í Fé-
lagsbíói fyrir þrettán árum við met-
aðsókn og góða dóma.
Aðalsöguhetjan er Breiðhyltingur-
inn ungi; Grettir Ásmundarson, ein-
lægt meinleysisgrey, sem gengur illa
að passa inn í lífsins púsluspil. Ekki
hjálpar til að fjölskylda hans, hin
hreingerningaróða Ásdís móðir hans,
launaþrællinn Ásmundur faðir hans,
frjálshyggjumaðurinn Atli bróðir
hans og Gullauga litla systir hans sem
gengur í gegnum veggi og er í sam-
bandi við huliðsheima, en þau vilja öll
leiða Gretti inn á „rétta“ braut. Gretti
dreymir bara um Siggu, mestu skvís-
una í bænum en hún setur skilyrði
fyrir ást sinni og leggur fyrir hann
þrjár þrautir sem leiða Gretti á vit af-
brota, vöðvaræktar og loks heims-
frægðar. En Grettir á sér fylgju úr
heimi skugganna, drauginn Glám
sem setur strik í reikninginn. Söng-
leikurinn tekur að láni minni úr m.a
Íslendingasögunum og Eddukvæð-
um og notar þau til að bera spegil að
samtímanum og öllum hans „bólum“.
Það er mikill fjöldi ungs fólks af
Suðurnesjum sem tekur þátt í sýn-
ingunni og eru það bæði nemendur
Fjölbrautaskólans og Leikfélagar
ásamt öðru góðu fólki. Stemningin er
góð í hópnum, segir í fréttatilkynn-
ingu frá félögunum, og stefnir allt að
ferskri og frumlegri sýningu.
LK og Vox Arena starfa saman
Æfa söngleik-
inn Gretti
Keflavík
BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar ákvað
í gærmorgun, eftir að fulltrúar Al-
þýðusambands Íslands komu á fund
þess að draga til baka hækkanir sem
urðu á gjaldskrám nokkurra þjón-
ustuþátta. Kostar það bæjarsjóð rúm-
ar 5 milljónir á árinu. Varaforseti ASÍ
segist sáttur við niðurstöðuna, hún sé
spor í rétta átt.
Halldór Björnsson, varaforseti
ASÍ, og Halldór Grönvold skrifstofu-
stjóri mættu á fund bæjarráðs
Reykjanesbæjar í gærmorgun til að
kynna óskir verkalýðshreyfingarinn-
ar um að Reykjanesbær, eins og önn-
ur sveitarfélög, leggi sitt af mörkum
til að halda verðbólgunni í skefjum.
Verkalýðsfélögin á Suðurnesjum hafa
áður sent áskoranir sama efnis til
bæjarins. Fram kemur í fréttatil-
kynningu frá bæjarráði að gagnleg
skoðanaskipti hafi farið fram á fund-
inum og að aðilar hafi verið sammála
um mikilvægi stöðugleika í þjóðfélag-
inu.
Varaforseti sáttur
Bæjarráð ákvað af þessu tilefni að
lýsa yfir vilja sínum til að taka þátt í
þjóðarátaki til að halda verðbólgu í
skefjum og samþykkti að draga til
baka ákveðnar hækkanir á gjald-
skrám sem tóku gildi um áramót. Þar
er um að ræða tímagjald í vistun í
leikskólum, tímagjald í gæslu í
grunnskólum og aðgangseyri að
sundstöðum. Að sögn Ellert Eiríks-
sonar bæjarstjóra er kostnaður
vegna þessara breytinga áætlaður
rúmar 5 milljónir kr. og verður hon-
um mætt með lækkun á óráðstöfuð-
um tekjum.
Flestir liðir almennrar gjaldskrár
hjá Reykjanesbæ hækkuðu um 5%
um áramót. Ellert segir að þeir liðir
sem ákveðið hafi verið að lækka aftur
séu mikilvægir fyrir fjölskyldur, ekki
síst þar sem mörg börn séu í heimili.
Hann segir að ekki hafi þótt fært að
lækka matarkostnað í leikskólum og
grunnskólum sem einnig hafi hækkað
um 5% um áramót því hráefnisverð
hafi hækkað mun meira og hækkunin
um áramót aðeins náð að standa und-
ir hluta hækkunarinnar. Þá vekur
hann athygli á því að strætisvagnaf-
argjöld og aðgangur að gæsluvöllum
hafi ekki hækkað um áramót og verið
að lækka að raungildi á síðustu árum.
Halldór Björnsson, varaformaður
ASÍ, segist sáttur við niðurstöðu bæj-
arráðs Reykjanesbæjar, hún sé nokk-
uð í samræmi við það sem til dæmis
hafi verið ákveðið hjá Reykjavíkur-
borg. Hann segir að fleiri liðir hafi
hækkað hjá Reykjanesbæ og helst
vilji ASÍ að allar hækkanir séu dregn-
ar til baka en þetta sé skref í rétta átt.
Morgunblaðið/Hilmar Bragi Bárðarson
Fulltrúar ASÍ mættu á fund bæjarráðs í gærmorgun, Jónína Sanders
formaður, Hjörtur Zakaríasson fundarritari, Böðvar Jónsson, Halldór
Björnsson, Halldór Grönvold, Jóhann Geirdal, Kristmundur Ásmunds-
son, Kjartan Már Kjartansson og Ellert Eiríksson bæjarstjóri.
Reykjanesbær
Lækka leik-
skólagjöld og
aðgang að
sundstöðum
SVEITARSTJÓRN Norður-Héraðs
samþykkti fjárhagsáætlun sína með
halla upp á 10 milljónir.
Rekstrartekjur eru áætlaðar 78
milljónir en rekstrargjöld 88 millj-
ónir. Gert er ráð fyrir 20 milljónum í
fjárfestingar. Sveitarstjórn leggur
til 5 milljóna lántöku og að teknar
verði 5 milljónir af eignareikningi
upp í rekstrarhallann.
Langstærsti gjaldaliðurinn í fjár-
hagsáætluninni er til fræðslumála,
alls um 50 milljónir.
Fjárhagsáætl-
un samþykkt
með halla
Norður-Hérað
UMHVERFISNEFND Borgar-
fjarðarsveitar veitti nýlega um-
hverfisverðlaun sveitarfélagsins
fyrir árið 2001. Verðlaunin eru
veitt lögbýlum fyrir snyrtilega
umgengni og reisuleg býli. Að
þessu sinni hlaut garðyrkjustöðin
Varmaland II í Reykholtsdal
þessa viðurkenningu og tók eig-
andi hennar, Sveinn Björnsson,
við verðlaunum úr hendi for-
manns umhverfisnefndar, Þór-
unnar Reykdal. Þórunn sagði við
það tækifæri að á Varmalandi
væri einstaklega snyrtilegt.
Sveinn tók við stöðinni árið
1972 og ræktar þar tómata, papr-
ikur og sumarblóm. Hann segir í
samtali við blaðið að árið 1938 hafi
nokkrir bændur stofnað félag og
byggt upp stöðina í Reykholti
undir tómatarækt, þar sem
fjárbúskapur dróst saman vegna
mæðiveiki. Stöðin hafi nokkrum
árum síðar verið keypt af föður
hans.
Ekkert stendur eftir af upphaf-
legum gróðurhúsum, en þá rúmu
1.700m² sem nú eru í notkun hef-
ur Sveinn reist. Hann neitar ekki
þeirri sögu að hafa sjálfur grafið
grunna fyrir húsunum, með
skóflu og hjólbörur við höndina.
„Maður var ungur og með óþrjót-
andi krafta þá,“ segir hann.
Nú eru framundan breytingar í
markaðsmálum hjá garðyrkju-
bændum og telur Sveinn að erfitt
sé að segja til um hvernig fram-
tíðin verði. Hann segir að nú í vor
verði ekki settir verndartollar á
innflutt grænmeti og ef til vill
komi niðurgreiðslur í staðinn,
svipað og tíðkast hefur í öðrum
landbúnaði. „Það á eftir að koma í
ljós hvernig þetta kemur út, en
við sem komum inn með græn-
meti í verslanir snemma á vorin
höfum hingað til náð betri heild-
arinnkomu vegna hærra verðs á
þeim tíma,“ segir Sveinn.
Sveinn hefur ekki notað raflýs-
ingu í sínum húsum nema við upp-
eldi á plöntum. Hann segist hafa
sloppið þokkalega frá veðurtjóni.
Í janúar 1995 hafi þó brotnað mik-
ið hjá sér í fárviðri, en þá hafi upp-
eldi á plöntum verið í öðru húsi.
Snyrtilegast á
garðyrkjubýl-
inu Varmalandi
Reykholt
Þórunn Gestsdóttir sveitarstjóri, Þórunn Reykdal, formaður um-
hverfisnefndar, og Sveinn Björnsson garðyrkjubóndi.