Morgunblaðið - 01.02.2002, Side 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐJÓN Auðunsson hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Olíufé-
lagsins ehf., frá og með deginum í dag.
Guðjón tekur við af Ragnari Bogasyni.
Ragnar sagði í samtali við Morgunblaðið
að hann hefði ekki
ákveðið hvað hann
myndi taka sér fyrir
hendur. Ástæðan fyrir
því að hann væri að
hætta væri sú að eftir 8
ár í umræddu starfi
finndist honum kominn
tími til að skipta um
starfsvettvang.
Guðjón fæddist á Blönduósi árið 1962 og
lauk prófi frá Samvinnuskólanum á Bifröst
1983 og Cand. merc. gráðu í alþjóða-
viðskiptum og markaðssetningu frá Ála-
borgarháskóla 1989. Hann var fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýnar
hf. er rekstri ferðaskrifstofunnar var hætt í
nóvember á síðasta ári.
Breytingar á fyrir-
tækjasviði ESSO
LÍNA.NET hefur sent kvörtun til
Samkeppnisstofnunar á hendur
Landssíma Íslands vegna meintrar
misnotkunar á markaðsráðandi
stöðu fyrirtækisins með tilliti til
ólögmætrar undirverðlagningar á
gagnaflutningsneti Landssímans. Í
kvörtuninni er vísað til leiðbein-
andi reglna Póst- og fjarskipta-
stofnunar og Samkepnisstofnunar
um meðferð og úrlausn fjarskipta-
og póstmála nr. 265 frá árinu 2001.
Eiríkur Bragason, fram-
kvæmdastjóri Línu.Nets, segir að
fyrirtækið telji ekki að það hafi
eftirlitshlutverki að gegna varð-
andi það hvort önnur fyrirtæki séu
að vinna í samræmi við lög og
reglugerðir. Þar sem ekkert hafi
hins vegar verið aðhafst í sam-
bandi við undirverðlagningu Sím-
ans á gagnaflutningsneti hans hafi
þótt rétt að benda á þetta í formi
kvörtunar.
Gagnaflutningskerfi
rekin með tapi
Eiríkur segir að í bréfi Línu.-
Nets til Samkeppnisstofnunar
komi fram að fyrirtækið hafi verið
stofnað 1999. Tilgangur þess sé
aðallega rekstur gagnaflutnings-
kerfa og sé félagið helsti keppinut-
ur Símans á því sviði. Skömmu eft-
ir að Lína.Net hafi hafið rekstur
hafi Síminn lækkað gagnaflutn-
ingsgjöld sín um rúmlega 40% og
muni það hafa gerst í október
2000.
Eiríkur segir að í bréfinu til
Samkeppnisstofnunar sé bent á að
samkvæmt útboðslýsingu Símans
frá síðasta ári komi fram að um
2% af tekjum félagsins séu vegna
gagnaflutningsþjónustu. Af þess-
um gögnum megi einnig ráða að
gagnaflutningskerfi Símans séu
rekin með tapi, sem sé áætlað um
300 milljónir króna fyrir skatta.
„Þetta ætti að brjóta í bága við
3. grein leiðbeinandi reglna Póst-
og fjarskiptastofnunar og Sam-
keppnisstofnunar,“ segir Eiríkur
Bragason.
Lína.Net kvartar til
Samkeppnisstofn-
unar vegna Símans
HÓLMABORG SU frá
Eskifirði hefur komið
með mestan afla af
loðnu að landi á vetr-
arvertíðinni, alls 12.491
tonn, samkvæmt upp-
lýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslu-
stöðva. Jón Kjartansson
SU kemur næstur með
7.819 tonn og Börkur
NK í þriðja sæti með
7.251 tonn. Júpiter ÞH
hefur hins vegar borið
mestan afla á land að
sumar- og haustvertíð-
unum meðtöldum, sam-
tals 15.900 tonn. Það
sem af er vetrarvertíð-
inni hafa íslensku fiski-
mjölsverksmiðjurnar
samtals tekið á móti
rúmum 128 þúsund
tonnum af loðnu. Þar af
hafa íslensku skipin
veitt um tæp 126 þús-
und tonn. Þar með er
búið að veiða um 273
þúsund tonn af heild-
arkvóta vertíðarinnar
og því rúm 695 þúsund
tonn eftir af heildarkvótanum.
Loðnuskipin hafa síðustu daga
verið að veiðum norðarlega í Rósa-
garðinum svokallaða, allt út að
miðlínu Íslands og Færeyja. Þá hef-
ur einnig verið ágæt veiði innan
lögsögu Færeyja en veður hefur þó
hamlað nokkuð veiðum færeysku
skipanna. Íslensku skipin hafa einn-
ig fengið góðan afla, einkum þau
sem veiða í troll en bræla hefur
gert nótaskipunum mjög erfitt fyr-
ir undanfarnar tvær vikur. Þau
fengu þó ágætan afla á þriðjudag
og eins var góð veiði hjá þeim í
fyrrakvöld. Nokkur þeirra lentu þó
í erfiðleikum vegna veðurs og
sprengdu næturnar. Mörg náðu þá
góðum köstum og lönduðu full-
fermi í gær.
Allt á réttri leið
Júpiter ÞH fékk um 1.000 tonn í
fyrrakvöld og var Jón Axelsson
skipstjóri vongóður um að nú færi
vertíðin að hefjast fyrir alvöru.
„Loðnan er að þoka sér aðeins
norður eftir og það er aðeins spurn-
ing um einhverja daga hvenær hún
gengur upp á landgrunnið. Hún er
farin að þyngjast mjög í nótinni og
hrognahlutfallið í henni eykst dag
frá degi. Þetta er því allt á réttri
leið og vonandi gengur hún upp að
landinu með minnkandi straumi. Þá
gerast hlutirnir hratt og þá ríður á
að við fáum gott veður, því við þurf-
um að halda okkur vel við efnið ef
við eigum að ná öllum kvótanum,“
sagði Jón.
Davíð Már Árnason, skipverji á Hörpu VE, landar
fullfermi af loðnu í Vestmannaeyjum á dögunum.
Hólmaborgin
aflahæst
Morgunblaðið/Þorgeir
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
HÓPUR hátt settra herforingja í Ísr-
ael hefur lagt til að Ísraelar hernemi
aftur sjálfstjórnarsvæði Palestínu-
manna til að knésetja heimastjórn
Yassers Arafats og uppræta hryðju-
verkahópa, að sögn ísraelska dag-
blaðsins Haaretz í gær.
Herforingjarnir hafa samið „póli-
tíska öryggisáætlun“ þar sem þeir
leggja til að innrás verði gerð í palest-
ínska bæi til að gera vopn upptæk og
handtaka hryðjuverkamenn. Þeir
vilja einnig að heimastjórnin verði
leyst upp og segja jafnvel koma til
greina að ráða Yasser Arafat af dög-
um.
Stuðningsmenn áætlunarinnar
segja að hún geti borið tilætlaðan ár-
angur innan viku og hún njóti stuðn-
ings meðal æðstu manna hersins, að
sögn Haaretz.
Boða nýjan hægriflokk
Undirhershöfðinginn Effi Eitam,
sem fer fyrir hópnum, segir að Ísrael-
ar standi frammi fyrir ógn sem sé ólík
innrás erlends ríkis að því leyti að
mjög erfitt sé að henda reiður á henni.
„Ísrael er núna eins og maður sem er í
lífshættu vegna krabbameins, en ekki
byssukúlu,“ sagði hann. „Þetta er í
fyrsta sinn sem hægrimenn leggja
fram pólitíska öryggisáætlun sem
einskorðast ekki við að hindra áform
Palestínumanna heldur felur í sér
lausn á vandamálinu.“
Herforingjarnir leggja meðal ann-
ars til að arabískum Ísraelum verði
bannað að sitja á ísraelska þinginu,
Knesset.
Haaretz hefur eftir Eitam að hóp-
urinn hyggist stofna nýjan, hægri-
sinnaðan stjórnmálaflokk og ætli að
birta áætlunina á næstu vikum.
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr-
aels, hefur ekki lýst yfir stuðningi við
tillögurnar. Arafat hefur verið haldið í
eiginlegu stofufangelsi í Ramallah í
tæpa tvo mánuði en stjórn Sharons
hefur sagt að hún hafi ekki í hyggju að
ráða hann af dögum.
Tveir Palestínumenn
skotnir til bana
Ísraelskir hermenn skutu tvo vopn-
aða Palestínumenn til bana á Gaza-
svæðinu í gær eftir að sprengja
sprakk á vegi að Ganei Tal, byggð
gyðinga. Taílenskur farandverka-
maður særðist í sprengingunni.
Palestínumennirnir eru sagðir hafa
flúið eftir að hafa komið sprengjunni
fyrir. Hermenn veittu þeim eftirför
og skutu þá til bana.
Palestínsk svæði
verði hernumin
Ísraelskir herfor-
ingjar leggja til
að heimastjórnin
verði leyst upp
Jerúsalem. AFP.
Reuters
Palestínumaður í Al-Amari-flóttamannabúðunum, skammt frá Ramal-
lah á Vesturbakkanum, heldur vopni sínu á loft við táknræna útför Wafa
Idris sem sprengdi sig í Jerúsalem á sunnudag. Auk Idris lét aldraður
Ísraeli lífið og nokkrir særðust. Líkamsleifar Idris eru í höndum Ísraela.
ÞÚSUNDIR manna komust loks
leiðar sinnar í gær eftir miklar tafir
á flugi frá alþjóðaflugvellinum í
San Francisco í Bandaríkjunum
þegar um fjórðungur flugstöðvar-
innar var rýmdur í um tvær og
hálfa klukkustund. Hafði vaknað
grunur um að sprengjuefnisagnir
hefði verið að finna á skóm eins far-
þeganna. Maðurinn var á bak og
burt þegar lögregla hugðist yfir-
heyra hann og var gripið til þess að
ráðs í öryggisskyni að rýma um 30
útgönguhlið.
Eftir að Bretinn Richard Reid
var handtekinn í desember fyrir að
koma fyrir sprengiefni í skóm sín-
um, að því er talið er til að sprengja
millilandaflugvél í loft upp, hefur
öryggisgæsla verið hert mjög á
flugvöllum í Bandaríkjunum. Þurfa
farþegar nú m.a. að fara úr skóm
sínum svo rannsaka megi hvort í
þeim séu falin sprengjanleg efni.
Sagði Mike McCarron, talsmað-
ur flugvallarins, sagði hugsanlegt
að skór mannsins hefðu einfaldlega
nýlega komist í návígi við áburð,
flugelda, byssupúður eða jafnvel
nítróglusserín, sem er ýmist notað
sem sprengiefni eða lyf.
Talsmaður flugvallarins sagði að
maðurinn hefði ef til vill fengið
áburð í skóna af grasflöt. „Hann er
ekki brjálaður sprengjumaður eða
hryðjuverkamaður.“
Lokað vegna áburðar í skóm?
San Francisco. AFP, AP.
FÁTÆKT, efnahagssamdráttur og
hryðjuverk verða í brennidepli á ár-
legum fundi Alþjóðaefnahagsráðs-
ins, WEF, sem hófst í New York í
gær. Ýmsir mótmælahópar hafa
skipulagt aðgerðir þá daga, sem ráð-
stefnan stendur, en talsmaður lög-
reglunnar í New York sagði í gær, að
ekki yrði tekið neinum vettlingatök-
um á þeim, sem reyndu að efna til
ófriðar.
Klaus Schwab, forseti WEF, seg-
ir, að í fyrsta sinn í 32 ár hafi verið
ákveðið að hafa ráðstefnuna annars
staðar en í bænum Davos í Sviss og
hafi það verið gert vegna hryðju-
verkanna 11. september og í virðing-
arskyni við íbúa New York.
„Viðfangsefni ráðstefnunnar eiga
svo margt skylt með því, sem verið
hefur að gerast,“ sagði Schwab en yf-
irskrift fundarins er: „Forysta á
óvissum tímum.“
Um 2.700 manns munu taka þátt í
ráðstefnunni, sem fram fer á Wal-
dorf Astoria-hótelinu, þar á meðal
meira en 300 stjórnmálaleiðtogar og
frammámenn í atvinnulífinu, fulltrú-
ar trúfélaga og fjölmiðlafyrirtækja.
Verða helstu málin rædd í 48 vinnu-
hópum, fátækt, efnahagssamdrátt-
ur, hryðjuverk, sammannleg gildi og
menningarmunur og hugmyndir um
nýja leiðsögn eða stjórnunaraðferð-
ir.
Frederic Sicre, framkvæmdastjóri
WEF, sagði, að fulltrúar íslamskra
ríkja yrðu nú fleiri en nokkru sinni
en meðal þeirra eru Hamid Karzai,
leiðtogi bráðabirgðastjórnarinnar í
Afganistan, Abdullah, konungur
Jórdaníu, og Mahathir Mohammed,
forsætisráðherra Malasíu.
Allt ofbeldi kveðið niður
Raymond Kelly, lögreglustjóri í
New York, vildi ekkert segja í gær
um fréttir um, að 200 manns, sem
kunnir væru fyrir ofbeldi, ætluðu að
taka þátt í mótmælum í tilefni af ráð-
stefnunni en hann minnti á, að allir
hefðu málfrelsi. Hins vegar yrðu all-
ar tilraunir til að beita ofbeldi kveðn-
ar niður af fullri hörku. Hefur heilum
her af lögreglumönnum, 41.000
manns, verið falið að halda uppi lög-
um og reglu. Meðal annars verða
þeir teknir úr umferð umsvifalaust,
sem hylja andlit sitt eða eru með
bakpoka. Hefur það verið bannað.
Alþjóðaefnahagsráðstefnan, WEF, hófst í New York í gær
Rætt um fátækt, sam-
drátt og hryðjuverk
41.000 lögreglumenn eiga að halda uppi lögum og reglu
New York. AFP.