Morgunblaðið - 01.02.2002, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 51
DAGBÓK
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 1. febr-
úar, er fimmtugur dr. Þór
Gunnarsson lífeðlisfræð-
ingur, Nesvegi 48, Reykja-
vík. Eiginkona hans er Sig-
rún Ása Sturludóttir líf-
fræðingur. Þau eru að
heiman í dag.
1. Rf3 Rf6 2. d4 e6 3. c4 b6
4. a3 Bb7 5. Rc3 Be7 6.
Bg5 0–0 7. Bxf6 Bxf6 8. e4
d6 9. Be2 c5 10. d5 Bxc3+
11. bxc3 Df6 12. Dc2 Ra6
13. 0–0 Rc7 14. Hfe1 h6 15.
a4 Ba6 16. a5 Hab8 17.
Heb1 bxa5 18. Hxb8 Hxb8
19. Hxa5 Hb6 20. g3 exd5
21. exd5 g6 22.
Rd2 Kg7 23. Bf1
De7 24. Ha1 Re8
25. Rb3 Rf6 26.
Ra5 Rg4 27. Rc6
Df6 28. Rxa7 Re5
29. Rb5 Rxc4
Ellefta og síð-
asta umferð
Skákþings
Reykjavíkur
hefst kl. 19.30 í
kvöld, 1. febrúar.
Sævar Bjarnason
(2.255) og Arnar
Gunnarsson
(2.325) hafa
innan og utan
skákborðsins háð margar
rimmur en í stöðunni hafði
sá fyrrnefndi hvítt. 30.
Rc7! Mun sterkara en 30.
Hxa6 Hxa6 31. Bxc4 þótt
hvítur standi betur í þeirri
stöðu. 30... Re3? Svartur
átti meiri möguleika á að
grugga eftir 30... Kh7 en
hvítur hefði þá getað unnið
eftir 31. Dc1! Hb2 32. Df4!.
31. fxe3 De7 32. Rxa6
Dxe3+ 33. Kg2 og hvítur
vann nokkru síðar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
TIL SVÖLU LITLU
Hverri nýjársnóttu á,
nú og seinni tíða,
mundu, að árin eru fá
og ósköp fljót að líða.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
HOLLENSKI bragðaref-
urinn Bas Pintermans er
hér í hlutverki sagnhafa í
sex gröndum.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ G9
♥ K87532
♦ K74
♣G9
Vestur Austur
♠ 1073 ♠ K85
♥ D9 ♥ G4
♦ DG1096 ♦ 532
♣1086 ♣ÁD742
Suður
♠ ÁD642
♥ Á106
♦ Á8
♣K53
Vestur Norður Austur Suður
– 2 hjörtu Pass 3 grönd
Pass 6 grönd ?! Pass Pass
Pass
Það er engin furða að
maðurinn sé snjall blekk-
ingasmiður, úr því hann
endist til að spila á móti
makker sem svona meldar.
Vestur kom út með tígul-
drottningu og Bas þakkaði
makker fyrir sitt framlag og
staldraði við í skamma
stund. Síðan tók hann á tíg-
ulás, lagði niður hjartaás,
spilaði hjartatíu og … gaf
vestri slaginn á drottn-
inguna!
Tilgangurinn með þessu
blasir alls ekki við, jafnvel
með allar hendur uppi. En
AV voru betur að sér í
spilinu en norður og vestur
hugsaði sinn gang þegar
hann var inni á hjarta-
drottningu. Suður hlaut að
hafa byrjað með Á10 tvíspil í
hjarta, því ella hefði hann
aldrei dúkkað. Austur átti
því hjartasexu eftir og hafði
sett gosann í slaginn til að
kalla í spaða – hæsta litnum.
Nema hvað!
Vestur skipti því yfir í
spaða frá tíunni þriðju og
það var einmitt það sem
þurfti til að gefa sagnhafa
fimm slagi á litinn og tólf í
allt.
Þetta er hreinasta snilld.
Gengi er valt, þar fé er falt,
fagna skalt í hljóði.
Hitt varð alltaf hundraðfalt,
sem hjartað galt úr sjóði.
GENGI ER VALT …
Ljósmynd/Sissa
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 14. júlí sl. í Háteigskirkju af
sr. Sigurði Arnarsyni Emma Marie Swift og Ívar Meyvants-
son.
KIRKJUSTARF
SÖNGKVARTETTINN Út í vorið
mun halda tónleika í Laugarnes-
kirkju föstudaginn 1. febrúar kl.
20:00. Undir söng kvartettsins leik-
ur Bjarni Þór Jónatansson á píanó
en Ásgeir Böðvarsson er annar
bassi, Einar Clausen og Halldór
Torfason eru fyrsti og annar tenór,
en Þorvaldur Friðriksson syngur
fyrsta bassa. Hefur kvartett þessi
getið sér gott orð að undanförnu og
tilhlökkun að hlýða á þá félaga
syngja og leika í Laugarneskirkju,
þar sem hljómburður er með fá-
dæmum góður. Aðgangseyrir eru
kr. 1.500.- og rennur hann óskiptur
til Orgelsjóðs kirkjunnar.
Biblíumaraþon
í Árbæjarkirkju
ÞAÐ er alltaf nóg um að vera í ung-
lingastarfinu í Árbæjarkirkju og í
föstudagskvöldið 1. febrúar kl.
18:00 ætla um 50 félagar í æsku-
lýðsfélaginu Lúkasi að láta gott af
sér leiða og hefja áheitasöfnun með
Biblíumaraþonlestri til styrktar
Hjálparstarfi kirkjunnar. Ungling-
arnir munu skiptast á að lesa úr
ritningunni í samtals 15 tíma eða til
laugardagsmorgunsins 2. febrúar
kl: 9:00.
Þetta er 7. árið í röð sem ungling-
arnir í Árbæjarkirkju standa fyrir
áheitasöfnun með lestri Guðs orðs
og hefur um hálf milljón króna
runnið til ólíkra líknarfélaga á
tímabilinu.
Unglingarnir hafa á undan-
förnum dögum leitað til fyrirtækja
og einstaklinga í hverfinu eftir
áheitum en einnig geta áhugasamir
lagt sitt að mörkum til söfnunar-
innar með því að leggja inná söfn-
unarreikning í Árbæjarútibúi
Landsbankans nr. 0113-05-064620
kt. 420169-4429.
Prestarnir og starfsfólk
í æskulýðsstarfi Árbæjarkirkju.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugarneskirkja út í vorið
Háteigskirkja. Samverustund eldri borgara
kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufulltrúa.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05 alla virka daga nema mánudaga.
Mömmumorgunn kl. 10–12 í
umsjá Hrundar Þórarinsdóttur, djákna.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir
börn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Samvera á morgun
laugardag kl. 11.15 í Víkurskóla. Fjölmenn-
um.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í Varm-
árskóla kl. 13.15–14.30.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Flóamarkaður
frá kl. 10–18.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma kl. 21.
Boðunarkirkjan, Hlíðasmára 9. Samkomur
alla laugardaga kl. 11–12.30. Lofgjörð,
barnasaga, prédikun og biblíufræðsla.
Barna- og unglingadeildir á laugardögum.
Létt hressing eftir samkomuna. Allir vel-
komnir. Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10,
13 og 22 á FM 105,5.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Gavin Anthony. Safnaðar-
heimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík:
Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Eric Guðmundsson.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40,
Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjón-
usta kl. 11. Ræðumaður Maxwell Ditta.
Samlestrar og bænastund á mánudags-
kvöldum kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna-
eyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðumaður Brynjar Ólafsson. Sam-
lestrar og bænastund er í safnaðarheim-
ilinu á fimmtudögum kl. 17. Allir hjartan-
lega velkomnir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Ræðu-
maður Elías Theodórsson. Biblíurannsókn/
bænastund á miðvikudagskvöldum kl. 20.
Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 1. febr-
úar, er áttræð dr. Valborg
Sigurðardóttir, fyrrverandi
skólastjóri Fósturskóla Ís-
lands, Aragötu 8, Reykja-
vík.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Smælki
Auðvitað er ég með
minn. Ég nota þennan
bara sem beitu.
Garðatorgi, sími 565 6550
JOHA fyrir börnin
Bómullarbolir, samfellur,
náttföt og ullarnærföt
Bómullargallar, skokkar og skyrtur
Stærðir 60-120
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert jarðbundinn, hug-
rakkur og stórhuga og átt
auðvelt með að tileinka þér
nýja hluti. Á árinu mun nán-
asta samband þitt verða
innilegra og veita þér mikla
hamingju.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Háleitar hugsjónir ýta við
þér í dag. Það er stórkost-
legt hvernig orð viturra
manna geta fengið okkur til
að sjá hlutina í öðru ljósi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú nýtur loks uppörvunar
og fjárhagslegs stuðnings til
að gera það sem þig langar
til. Aðrir samgleðjast þér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Góður vinur gæti vakið
áhuga þinn á nýjan hátt.
Stundum verða góðir vinir
að elskhugum og elskhugar
að góðum vinum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert mjög ástríðufullur og
munt því gera allt af ástríðu
í dag. Það er ekkert hálfkák.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú munt hugsanlega hefja
óvenju ástríðufullt ástar-
samband í dag. Sambandið
gæti reynst örlagaríkt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þig langar til að koma á
breytingum í vinnunni. Þú
ert svo upptekinn af hug-
myndum þínum að þú vilt að
allir hlusti á þær.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú gætir gert þér grein fyr-
ir dýpt tilfinninga þinna og
hafið nýtt samband í dag.
Margar vogir munu gera
sér grein fyrir tilfinningum
sem þær hefur ekki órað
fyrir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú sættir þig ekki við neina
yfirborðsmennsku í dag. Ef
þú ert með fólki sem vill
komast hjá uppgjöri muntu
þrýsta á þar til þú kemst að
hinu sanna.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Vinur reynir að gefa þér góð
ráð varðandi útlitið. Reyndu
að halda stillingu þinni í
stað þess að rjúka upp.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir komið auga á betri
leið til að sjá fyrir þér. Það
má alltaf finna nýjar leiðir
til að afla fjár. Maður þarf
bara að hafa trú á því að
maður geti það.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samband þitt við vin gæti
tekið algerum stakkaskipt-
um í dag. Þú sérð að þú hef-
ur dregið ályktanir sem eiga
ekki við rök að styðjast.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef þú gefur þér tíma til að
endurskoða líf þitt gætirðu
komist að óvæntri niður-
stöðu. Þú sérð að þú hefur
tækifæri til að fara inn á
nýjar brautir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VATNSBERI