Morgunblaðið - 02.04.2002, Síða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002 13
Náttúrulegt B-vítamín ásamt
magnesíum og C- vítamíni
í jurtabelgjum.
Akureyri, sími 462 1889.
Fæst m.a. í Nýkaupi og
í Árnesapóteki, Selfossi.
www.islandia.is/~heilsuhorn
Póstsendum um allt land
Í dagsins önn
MEÐ aðkomu Vísis hf. í Grindavík
að Fiskiðjusamlagi Húsavíkur hf.
vonast heimamenn eftir meiri um-
svifum við höfnina. Fyrir skömmu
voru fyrstu merki þess sjáanleg
þegar línuveiðarinn Gissur hvíti
SF 55 frá Hornafirði kom hingað
inn til löndunar.
Pétur H. Pálsson, framkvæmda-
stjóri Vísis hf., var á bryggjunni
þegar fréttaritari Morgunblaðsins
var þar á ferðinni, Pétur sagði að
Gissur hvíti væri ekki gerður út á
vegum Vísis hf. Þeir Vísismenn
væru hins vegar í góðum tengslum
við útgerð skipsins þar sem þeir
væru með tvö skip í þeirra eigu,
Garðey SF 22 og Melavík SF 34 á
leigu.
Hefur undanfarna mánuði
veitt í Barentshafi
Gissur hvíti SF hefur undan-
farna mánuði verið á veiðum í Bar-
entshafi og afli skipsins úr þessari
veiðiferð er um 130 tonn af fryst-
um afurðum.
Ingólfur Hjaltalín, rekstrarstjóri
bolfiskdeildar Fiskiðjusamlags
Húsavíkur, sagði að af þessum 130
tonnum væru rúm 80 tonn þorsk-
ur.
Hann fer til vinnslu hjá Fisk-
iðjusamlaginu en annar afli skips-
ins fer í gáma og verður síðan
fluttur til vinnslu annars staðar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Torfi Aðalsteinsson vinnur við lönd-
un úr línuveiðiskipinu Gissuri hvíta
SF 55 á Húsavík.
Gissur hvíti landaði á Húsa-
vík eftir veiðar í Barentshafi
Húsavík. Morgunblaðið.
ÍSLENSK verðbréf hafa opnað
starfsstöð á Ísafirði í húsnæði
Sparisjóðs Vestfirðinga. Forstöðu-
maður Íslenskra verðbréfa á Ísa-
firði er Torfi Jóhannsson.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að Íslensk verðbréf hf. bjóða við-
skiptavinum sínum þjónustu á öll-
um helstu sviðum verðbréfavið-
skipta, s.s. á sviði fjárvörslu og
eignastýringar, verðbréfamiðlunar,
útgáfu verðbréfa, sjóðastýringar og
almennrar ráðgjafar við val á
sparnaðarleiðum.
Nýverið gerðu Íslensk verðbréf
hf. og Lífeyrissjóður Vestfirðinga
samning um að Íslensk verðbréf hf.
annist stýringu á hluta verðbréfa-
eignar Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Í
framhaldinu er stefnt á að auka
samstarf þessara aðila enn frekar.
Að sögn Sævars Helgasonar
framkvæmdastjóra Íslenskra verð-
bréfa hf. ætti samningurinn að
vera báðum aðilum til hagsbóta
auk þess sem Vestfirðingar ættu
að hafa nokkurn hag af honum í
formi aukinnar þjónustu á sviði
verðbréfaviðskipta á svæðinu.
Guðrún Guðmannsdóttir fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga segir að markmiðið með
þessu samstarfi við Íslensk verð-
bréf hf. sé m.a. að byggja upp öfl-
uga fjármálaþjónustu á Vestfjörð-
um ásamt því að fela sérfræðingum
á verðbréfamarkaði umsýslu á
eignum Lífeyrissjóðs Vestfirðinga.
Hún telur jafnframt að opnun
starfsstöðvarinnar á Ísafirði ætti
að leiða af sér betri fjármálaþjón-
ustu fyrir bæði sparifjáreigendur
og fyrirtæki og stofnanir á svæð-
inu.
Íslensk
verðbréf
opna starfs-
stöð á
Ísafirði