Morgunblaðið - 02.04.2002, Síða 30
DAGBÓK
30 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
MIÐASALA á Listahátíð íReykjavík hefst í dag. Hátíðin
leggst vel í Víkverja í ár enda kennir
þar margra grasa. Einn af hápunkt-
unum er tvímælalaust sýningin á
Hollendingnum fljúgandi í Þjóðleik-
húsinu. Það er ekki á hverjum degi
að Wagner-ópera er færð upp hér á
landi og hugsa tónlistarunnendur sér
gott til glóðarinnar. Wagner á hér
mikið og traust fylgi eins og Richard
Wagner-félagið á Íslandi gefur til
kynna en Víkverja er ekki kunnugt
um að starfrækt sé félag um annað
tónskáld hér á landi. Félagið hefur
verið afar virkt frá því það tók til
starfa fyrir fáeinum árum og hefur
gengist fyrir ýmiskonar dagskrá
tengdri Wagner, efnt til myndbanda-
sýninga á óperum hans og staðið fyr-
ir ferðum á sýningar erlendis, eink-
um til Bayreuth, sem er eins konar
minningarmiðstöð Wagners.
Margt góðra manna kemur að
uppfærslunni í Þjóðleikhúsinu en
hún er samstarfsverkefni Listahátíð-
ar, Þjóðleikhússins, Íslensku óper-
unnar og Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands. Gaman er að sjá þessa
máttarstólpa í íslensku listalífi taka
saman höndum með þessum hætti en
Víkverji vildi að ósekju sjá það gerast
oftar. Möguleikarnir eru óþrjótandi,
þegar aðilar af þessari stærðargráðu
leggjast á eitt. Vonandi verður fram-
hald á.
Af mörgu öðru er að taka á
Listahátíð. Fiðluleikarinn Maxim
Vengerov og sópransöngkonan June
Anderson eru listamenn í fremstu
röð og Kronos-kvartettinn er kamm-
erhópur sem er óhræddur við að fara
ótroðnar slóðir. Af honum vill Vík-
verji helst ekki missa. Kronos heldur
tvenna tónleika og á öðrum þeirra
frumflytur kvartettinn meðal annars
tvær nýjar útsetningar á lögum Sig-
ur Rósar. Sigur Rós verður svo aftur
í aðalhlutverki á tónleikum sem
hverfast um Eddukvæðið Hrafna-
galdur Óðins. Forvitnilegt verkefni.
Þá telur Víkverji víst að Íslendingar
muni fjölmenna á tónleika sígauna-
sveitarinnar Taraf de Haïdouks.
x x x
VÍKVERJI hefur yndi af knatt-spyrnu. Þess vegna þykir hon-
um miður að Robert Pires skuli
missa af heimsmeistaramótinu í sum-
ar en franski landsliðsmaðurinn sleit
krossband í hné í leik með liði sínu,
Arsenal, á dögunum, og verður frá
keppni mánuðum saman. Pires hefur
að margra mati verið besti leikmað-
urinn í ensku úrvalsdeildinni í vetur
og hefði án efa sett mark sitt á HM í
Japan og Kóreu. Hann er óvenju út-
sjónarsamur leikmaður, fljótur og
flinkur og knötturinn flæðir afar vel í
gegnum hann, eins og oft er sagt.
Pires virðist með öðrum orðum alltaf
vita upp á hár hvenær hann á að losa
sig við þann hnöttótta. Félagi hans í
Arsenal-liðinu, Dennis Bergkamp,
lét þess líka getið í pistli á heimasíðu
sinni á Netinu nýverið að hann hefði
aldrei leikið með manni sem héldi
boltanum jafn vel og Pires. Það væri
varla vinnandi vegur að taka hann af
honum. Og hefur Bergkamp nú leikið
með þeim mörgum góðum.
Vart þarf að taka fram að þetta er
mikið áfall fyrir Pires sjálfan en á síð-
asta heimsmeistaramóti, í Frakk-
landi 1998, og á Evrópumeistara-
mótinu í Niðurlöndum 2000 var hann
að mestu varamaður. Nú átti hann að
vera í lykilhlutverki í liði heims- og
Evrópumeistaranna.
Salt eða nagladekk?
ÉG ER algjörlega orðlaus
yfir hinum gegndarlausa
saltaustri á göturnar. Lát-
um nú vera ef um er að
ræða mikla hálku í bröttum
húsagötum þar sem bíl-
stjórar myndu eiga í erfið-
leikum með að komast upp
götuna snemma að morgni
þegar kaldast er. En þann-
ig er nú ekki málið vaxið því
að nú síðustu daga (miður
mars) hafa allar götur
borgarinnar verið snjólaus-
ar, þurrar, hálkulausar og
hitastigið yfir frostmarki.
Samt sem áður hafa saltbíl-
arnir komið jafnvel tvisvar
að morgni, fyrst milli kl. 6
og 7 og svo aftur um kl. 9.
Er virkilega ekkert skipu-
lag á því á hvaða götur hver
bíll/bílstjóri dreifir salti?
Mér finnst að eftir saltaust-
urinn verði göturnar jafn-
vel hálli, sem getur valdið
slysum.
Það eru ekki bara göt-
urnar og bílarnir okkar sem
verða ataðir saltpækli held-
ur fötin manns líka, sér-
staklega ef vindur og
þurrkur fylgir í kjölfarið.
Einn daginn fyrir síðustu
áramót hvessti þegar á dag-
inn leið og eftir að hafa
komið við í búðinni á heim-
leið úr vinnu og barist gegn
vindinum á bílastæðinu þar
ók ég rakleiðis heim. Þegar
ég kom út úr bílnum var ég
öll þakin gráu dufti frá
hvirfli til ilja, hárið, andlitið,
úlpan, buxurnar, sokkarnir
og skórnir. Ég leit út eins
og vofa þar sem ég þreifaði
mig áfram upp tröppurnar
og reyndi að sjá þrepin með
því að skafa af augnhárun-
um og andlitinu. Og sú
spurning vaknaði hvað yrði
um alla þá eðju sem mynd-
ast á götunum eftir þennan
hömlulausa saltaustur. Hún
hlýtur að berast niður í nið-
urföllin og út í sjó! Er það
ekki líka mengun?
Mig langar að spyrja: Er
engin leið að fá skýr og klár
svör við því hvort sé betri
sú mengun sem nagladekk-
in valda eða sú sem salt-
dreifingin veldur. Þar sem
ég veit að fleiri íbúar en ég
á Reykjavíkursvæðinu eru
öskureiðir út í þennan tak-
markalausa saltaustur væri
afar gagnlegt að fá svör á
þessum sama vettvangi
(Velvakanda eða annars
staðar í Mbl.) frá þeim
ráðamönnum borgarinnar
sem þessum saltaustri ráða,
bæði hvað viðkemur skipu-
lagi, gagnsemi og mengun.
Þessi sífelldi saltaustur
gengur ekki lengur.
Saltvondur ökumaður.
Hver kaupir
gömul föt?
ER einhver búð í Reykjavík
sem kaupir gömul föt? Fyr-
ir jól er einhver staður sem
tekur á móti efnisafgöng-
um, gardínum, garni o.fl.
Er það eingöngu fyrir jól og
hver er það sem tekur við
svona?
Tapað/fundið
Alpahúfa týndist
á Bókhlöðustíg
SVÖRT alpahúfa tapaðist
fyrir utan Bókhlöðustíg 6 /
Stöðlakot að kvöldi 26.
mars. Skilvís finnandi vin-
samlegast hafi samband við
Sigrúnu, gsm 699-5206.
Dýrahald
Páfagaukur
í óskilum
PÁFAGAUKUR, blár,
fannst í Neðra-Breiðholti
sl. miðvikudag. Fuglinn er
mjög gæfur. Upplýsingar í
síma 557-4212 og 898-4070.
Kettlingur
í óskilum
KETTLINGUR, grár með
hvítar loppur, hvíta blesu
og gráan blett á trýni,
fannst á horni Barónsstígs
og Laugavegs. Uppl. í síma
867-2101.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÉG skrapp í Kringluna
fyrir stuttu í snyrti-
vöruverslunina Hygeu,
þar tók á móti mér kona
að nafni Jóna (ljóshærð)
og langar mig til að
þakka henni fyrir frá-
bæra þjónustu.
Ég kom til að spyrjast
fyrir um næturkrem og
langaði til að fá prufu hjá
henni til að prófa.
Ekki stóð á því hjá af-
greiðsludömunni og gaf
hún mér nokkrar prufur
algerlega óbeðin bæði af
kreminu sem ég hafði
verið að grennslast fyrir
um og síðan fleiri krem-
um frá sama framleið-
anda og bauð mér að
prófa. Á leiðinni út úr
versluninni bauð hún mér
líka prufu af nýju body-
lotion sem hún var að
taka upp, þetta er alveg
einstakt á Íslandi þar sem
venjulega þarf að gráta
út hverja einustu prufu
og maður hefur á tilfinn-
ingunni að þetta sé hreint
ekkert sjálfsagður hlut-
ur, sem það ætti að vera
þar sem snyrtivörur eru
munaðarvara og eru dýr-
ar. Þar sem ég var svo
ánægð með þjónustuna
ákvað ég að versla við
verslunina og fékk hún
mín viðskipti vegna frá-
bærrar þjónustu og lét
mig finna að þeim væri
annt um viðskiptavininn.
Takk fyrir, Jóna í
Hygeu.
Næturkremakonan.
Þakka frábæra þjónustu
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 grasflöt, 4 þvættings, 7
lestarop, 8 skordýr, 9
töngum, 11 anga, 13
óska, 14 hrafnaspark, 15
flugvél, 17 afkimi, 20
agnúi, 22 birgðir, 23
styrk, 24 rekkjan, 25
skepnurnar.
LÓÐRÉTT:
1 annmarki, 2 afkvæm-
um, 3 rusta, 4 brjóst, 5
svipaður, 6 slæða, 10 bera
sökum, 12 keyra, 13
mönduls, 15 gangfletir,
16 hreinum, 18 blæs köld-
um vindi, 19 rótartaugin,
20 flokkur konungs, 21
svöl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 holskefla, 8 labba, 9 tanna, 10 uxu, 11 róður, 13
raust, 15 brött, 18 sigur, 21 jók, 22 kauna, 23 afurð, 24
dularfull.
Lórétt: 2 ofboð, 3 staur, 4 ertur, 5 lendu, 6 hlýr, 7 batt,
12 urt, 14 ali, 15 baks, 16 önugu, 17 tjara, 18 skalf, 19
grufl, 20 rúða.
K r o s s g á t a
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Arnom-
endi P-63, Lagarfoss,
Arina Arctica, Dettifoss
og Gudrun II.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er Gemini vænt-
anlegt.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðju- og
fimmtudaga kl. 14–17.
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl. 10 boccia, kl.
10 enska, kl. 11 enska,
kl. 13 vinnustofa, postu-
línsmálning og bað.
Búnaðarbankinn verður
á Aflagranda 40 þriðju-
daginn 2. apríl kl. 10.15.
Verslunarferð í Hag-
kaup í Skeifunni mið-
vikudaginn 3. apríl kl.
10 frá Grandavegi með
viðkomu á Aflagranda.
Kaffiveitingar í boði
Hagkaups. Skráning í
afgreiðslu og í síma 562-
2571. Nýtt jóga-
námskeið hefst fimmtu-
daginn 4. apríl. Kennt
verður tvisvar í viku, á
þriðjud. og fimmtud.
Kennsla hefst kl. 9.
Skráning í afgreiðslu í
síma 562-2571. Opið hús
fimmtudaginn 4. apríl.
Húsið opnað kl. 19.30.
Félagsvist kl. 20. Léttar
kaffiveitingar.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa. All-
ar upplýsingar í síma
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9–9.45 leikfimi,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
9–16 handavinna, kl. 10–
17 fótaaðgerð, kl. 10
sund, kl. 13 leirlist.
Eldri borgarar Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga föstudaga kl. 11.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um, kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, á Hlað-
hömrum fimmtudaga kl.
17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu kl. 11 á
sunnudögum. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586 8014
kl. 13–16.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 10 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Í dag vinnu-
stofa, kl. 13.30 spilað í
Kirkjuhvoli, kl. 13 mál-
un, kl. 13.30 tréskurður.
3. apríl: Kl. 11.15 og kl.
12.15 leikfimi, kl. 13.05
róleg stólaleikfimi, kl.
13 vinnustofa, kl. 13.30
handavinnuhornið, kl.
16 trésmíði. 4. apríl: kl.
9.45 boccia, kl. 9 vinnu-
stofa, kl. 13 málun, ker-
amik og postulín.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 13
föndur og handavinna.
Söngstund í borðsal
með Jónu Bjarnadóttur.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Opið hús í
Gullsmára 13 laug-
ardaginn 6. apríl kl. 14.
Dagskrá: Upplestur,
hljóðfæraleikur o.fl.
Kaffi og meðlæti.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag:
brids, nýir spilarar vel-
komnir. Saumur undir
leiðsögn og frjáls
handavinna kl. 13:30.
Spænskukennsla kl.
16:30. Á morgun mið-
vikudag línudans kl.
11:00, myndlist og pílu-
kast kl. 13:30. Upplýs-
ingar í Hraunseli, sími
555-0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin alla virka daga frá
kl. 10.00–13.00. Kaffi –
blöðin og matur í há-
degi. Þriðjudagur: Skák
kl. 13.00 og alkort spil-
að kl. 13.30. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu frá
Hlemmi kl. 9.45. Söng-
félag FEB kóræfing kl.
17.00. Línudanskennsla
Sigvalda kl. 19.15.
Söngvaka kl. 20.45, um-
sjón Sigurbjörg Hólm-
grímsdóttir.
Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir í Ásgarði í
Glæsibæ á morgun kl.
14. Miðapantanir í
síma: 588-2111 og 568-
9082.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar
á skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag kl. 9–16.30 vinnu-
stofur opnar. Frá há-
degi spilasalur opinn.
Kl. 13 boccia. Veitingar
í veitingabúð. Allar
upplýsingar á staðnum
og í síma 575-7720.
Leikhúsferð í Ásgarð á
morgun kl. 14. Leikhóp-
urinn Snúður og
Snælda sýnir Í lífsins
ólgusjó og Fugl í búri.
Skráning á staðnum og
í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 gler-
skurður, kl. 10 handa-
vinna, kl. 14
þriðjudagsganga og
boccia, kl. 16.20 og kl.
17.15 kínversk leikfimi,
kl. 19 brids. Einmán-
aðarfagnaður verður í
Gjábakka 4. apríl kl. 14.
Fjölbreytt sköpunar- og
skemmtidagskrá sem er
samstarfsverkefni
Digranesskóla, leikskól-
ans Marbakka og Gjá-
bakka. Vöffluhlaðborð.
Allir velkomnir. Hand-
verksmarkaður verður
fimmtudaginn 4. apríl.
Vinsamlega pantið borð
sem fyrst í síma 554-
3400.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
19 gömlu dansarnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og leikfimi, kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13 handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Kl. 10.30
söngstund við píanóið.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskurður og tré-
málun, kl. 10 boccia, kl.
11 leikfimi, kl. 12.15
verslunarferð í Bónus,
kl. 13–17 hárgreiðsla.
Kl. 13 myndlist.
Háteigskirkja eldri
borgar á morgun mið-
vikudag, samvera, fyr-
irbænastund í kirkjunni
kl. 11, súpa í Setrinu kl.
12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10 boccia,
kl. 9–17 hárgreiðsla. Fé-
lagsstarfið er opið öllum
aldurshópum, allir vel-
komnir.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–16 bútasaumur,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 11 leikfimi, kl.
13 spilamennska. Í dag
kl. 13–14 verður Lands-
banki Íslands hf. með
almenna bankaþjónustu.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskuður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 hand-
mennt og körfugerð, kl.
14 félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í síma 552 6644 á
fundartíma.
ITC-deildin Fífa Kópa-
vogi, fundur á morgun
kl. 20.15–22.15 í Safn-
aðarheimili Hjalla-
kirkju. Allir velkomnir.
Upplýsingar gefur Guð-
björg í síma 586-2565.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Fundur í kvöld
kl. 20. Avon-snyrtivöru-
kynning. Félagsvist og
kaffi. Mætum allar.
Í dag er þriðjudagur 2. apríl, 92.
dagur ársins 2002. Orð dagsins: Jes-
ús sagði við hann: „Þú trúir, af því
þú hefur séð mig. Sælir eru þeir,
sem hafa ekki séð og trúa þó.“
(Jóh. 20,29.)