Morgunblaðið - 10.04.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.04.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isÓlafur Kristjánsson ráðinn aðstoðarþjálfari AGF / B1 Barcelona og Leverkusen áfram í Meistaradeildinni / B3 4 SÍÐUR Sérblöð í dag Þetta er annað alvarlega slysið sem verður í Kömbunum á árinu, en 1. janúar varð banaslys við árekstur metra meðfram henni. Tildrög slyss- ins sæta nú rannsókn hjá lögregl- unni á Selfossi. 24 ÁRA gamall karlmaður hrygg- brotnaði í alvarlegu bílslysi neðst í Kömbunum í gær, þegar fólksbifreið hans fór út af veginum og féll niður 70–80 metra áður en hún staðnæmd- ist ofan við svokallaðar Hrauntung- ur. Hinn slasaði var fluttur á Land- spítalann í Fossvogi og lagður inn á gjörgæsludeild þar sem hann liggur alvarlega slasaður. Slysið var tilkynnt klukkan 14:30 til lögreglunnar á Selfossi sem kom að hinum slasaða um 15–20 metrum ofan við bifreiðina. Hann var einn í bifreiðinni og virðist sem hann hafi ekki verið í bílbelti og því kastast út úr bifreiðinni. Maðurinn var á leið niður Kambana og var kominn í næstneðstu beygjuna við enda veg- riðs, þegar hann fór yfir á öfugan vegarhelming og því næst út af veg- brúninni eftir að hafa ekið um 30 þriggja bifreiða ofarlega í Kömbun- um. Var það fyrsta banaslysið í Kömbunum í um 20 ár. Morgunblaðið/Sverrir Bifreiðin er mikið skemmd ef ekki ónýt eftir hátt fallið niður af vegbrúninni. Alvarlega slasaður eftir slys í Kömbunum ASÍ mun taka að sér aukið hlutverk á sviði efnahagsmála í tengslum við þær breytingar sem verða þegar Þjóðhagsstofnun verður lögð niður og verkefni hennar flutt m.a. til Seðlabanka, fjármálaráðuneytis og Hagstofunnar. Skv. upplýsingum Gylfa Arnbjörnssonar, fram- kvæmdastjóra ASÍ, komu samtökin áhyggjum sínum á framfæri við stjórnvöld þegar umræða stóð yfir um að leggja ætti Þjóðhagsstofnun niður. Samtök launafólks hefðu talið mikilvægt í gegnum tíðina að geta haft aðgang að sjálfstæðri efna- hagsráðgjöf Þjóðhagsstofnunar. Sl. föstudag höfðu stjórnvöld samband við forystumenn ASÍ og báru undir þá hvort samtökin gætu unað við að Seðlabankinn tæki að sér aukið hlutverk við efnahagsráð- gjöf í stað Þjóðhagsstofnunar. Gylfi sagði við Morgunblaðið að ASÍ hefði lýst skilningi á að slíkt gæti hentað t.d. Alþingi og stjórnmála- flokkunum en bent á að samtökin ættu hins vegar mjög erfitt með að fallast á þá leið. Ástæðan væri sú að Seðlabankinn tæki ákvarðanir um framkvæmd peningamálastefnunn- ar, ASÍ ætti oft á tíðum í hagfræði- legri umræðu við bankann og það fengi ekki samrýmst ef bankinn væri á sama tíma ráðgjafi ASÍ um ákveðin mál. Slíkt myndi leiða til árekstra. ,,Við töldum að gæta yrði þess að við hefðum áfram sjálfstæða að- komu, annaðhvort í gegnum sjálf- stæða stofnun eða að okkur yrði gert kleift að gera þetta sjálf,“ sagði Gylfi. Í samskiptum við Halldór Ásgrímsson yfir helgina Forystumenn ASÍ voru yfir alla helgina í samskiptum við Halldór Ásgrímsson, starfandi forsætisráð- herra, vegna málsins og að sögn Gylfa telur ASÍ sig hafa fengið fyr- irheit stjórnvalda, sem geri ASÍ kleift að sinna þessum verkefnum sjálft og efla starfsemi hagdeildar samtakanna. Aðspurður hvað felist í þessu fyr- irheiti og hvort um verði að ræða t.d. föst framlög til ASÍ á fjárlögum ríkisins, sagði Gylfi að ekki væri bú- ið að útfæra hvernig þetta yrði gert. ,,En það er ljóst að við þurfum að efla okkar þekkingu í hagdeildinni á því sem viðkemur þeim þáttum sem við höfum hingað til haft aðgengi að í Þjóðhagsstofnun við gerð þjóð- hagsáætlana,“ sagði hann. ,,Við teljum það fagnaðarefni og mikilvægt að fá það viðurkennt í frumvarpinu að það skipti máli að verkalýðshreyfingin og hennar sjónarmið komi að umræðu um efnahagsmál og mótun efnahags- stefnunnar,“ sagði Gylfi. ASÍ fær aukið hlutverk í efnahagsmálum við niðurlagningu Þjóðhagsstofnunar Telja sig hafa fengið fyrirheit stjórnvalda BORGARRÁÐ samþykkti í gær með fjórum atkvæðum meirihlutans að taka tilboðum verktaka í sjö lóðir undir fjölbýlishús í Grafarholti. Að undangengnu forvali fengu tíu verk- takar að taka þátt í lokuðu útboði á sölu byggingarréttar fyrir allt að 198 íbúðir. Borgarráð samþykkti að taka tilboðum fimm verktaka fyrir alls tæplega 213 milljónir króna. Í útboðinu voru lóðir fyrir 168 blokkaríbúðir samkvæmt sam- þykktu skipulagi en samkvæmt til- lögu um fjölgun gætu íbúðirnar orðið 198 á þessum sjö lóðum. KS-verktakar fá byggingarrétt á 24–28 íbúðum við Katrínarlind fyrir 33,8 milljónir, Byggingarfélag Gylfa og Gunnars er með jafnmargar íbúð- ir við sömu götu fyrir 29 milljónir, Járnbending kaupir byggingarrétt á 26–32 íbúðum við Þorláksgeisla fyrir 38,4 milljónir og við Þórðarsveig fá Íslenskir aðalverktakar fjölbýlis- húsalóðir undir 50–58 íbúðir á 56 milljónir og Byggingarfélagið Breki með 44–52 íbúðir á 55,6 milljónir króna. Verktakarnir þurfa að greiða fyrir lóðirnar innan mánaðar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í minnihluta borgarráðs sátu hjá við afgreiðslu málsins og lögðu fram bókun. Þar segir að enn á ný valdi lóðarskortur í borginni því að bygg- ingarfyrirtæki bjóði í lóðirnar langt umfram hefðbundin gatnagerðar- gjöld. Hæstu tilboðin séu 100% hærri. „Þetta þýðir að gatnagerðar- gjöld fyrir meðalstóra íbúð í fjölbýli er u.þ.b. 1,5 m.kr. Þessi uppboðs- stefna hækkar byggingarverð, sölu- verð íbúða, fasteignaskatta og hol- ræsagjöld, sem eigendur íbúða og atvinnuhúsnæðis í Reykjavík greiða,“ segir í bókun sjálfstæðis- manna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri lagði fram bókun á móti þar sem hún segir að enginn skortur sé á lóðum í Reykjavík. Það sjáist best á því að stefnt sé að því að út- hluta lóðum fyrir um 500 íbúðir í Grafarholti á þessu ári, auk lóða víð- ar í borginni. „Staðreyndin er ein- faldlega sú, að þau fyrirtæki sem taka þátt í útboðinu eru að framleiða íbúðir fyrir markað og hljóta því í til- boðum sínum að taka mið af mark- aðsaðstæðum hverju sinni. Þau vita hvaða markaðsverð er á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og hvað eðli- legt er að bjóða í byggingarréttinn,“ segir að endingu í bókun borgar- stjóra. Lokað útboð á sjö lóðum undir fjölbýlishús í Grafarholti fyrir allt að 198 íbúðir Byggingarréttur seld- ur á 213 milljónir ALLT tiltækt lið slökkviliðsins á Akranesi var kallað út að fjöl- býlishúsi við Höfðabraut sídeg- is í gær. Eldur kom upp í íbúð á fyrstu hæð eftir að húsráðandi hafði gleymt potti með hamsa- tólg á eldavélinni. Lögreglan var fyrst á vettvang og tókst að koma húsráðanda út. Var hann fluttur á sjúkrahúsið á Akra- nesi með snert af reykeitrun. Aðrir íbúar urðu að yfirgefa fjölbýlishúsið. Slökkviliðinu tókst fljótt að ráða niðurlögum eldsins og stigagangurinn var einnig reykræstur. Talsverðar reyk- og vatnsskemmdir urðu í íbúð- inni. Eldsvoði á Akranesi Kviknaði í út frá hamsatólg AFTAKAVEÐUR var á fjall- vegum á Holtavörðuheiði og sunnanverðum Vestfjörðum í gær og fram á kvöld. Lentu nokkrir ökumenn í vandræðum í hvassri suðvestanátt og misstu bíla sína út af veginum. Þannig var lögreglan í Hólmavík í tví- gang kölluð út vegna bíla sem fuku út af á Steingrímsfjarðar- heiði og Ennishálsi. Slys urðu ekki á fólki. Mjög blint var á fjallvegunum og hálka á köflum. Í verstu hvið- unum fór vindhraði upp undir 40 metra á sekúndu á Steingríms- fjarðarheiði og um 30 metra á Holtavörðuheiði. Upp úr hádegi í gær voru snjóruðningstæki frá Vegagerð- inni send upp á Holtavörðuheiði til að draga bíla upp á veginn og moka snjó. Í gærkvöldi voru ökumenn varaðir við því að fara um þessa fjallvegi. Bílar fuku útaf í aftaka- veðri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.