Morgunblaðið - 10.04.2002, Blaðsíða 52
DAGBÓK
52 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss kemur og fer í
dag. Dornum kemur í
dag. Víðir og Goðafoss
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss fer í dag.
Barði, Vasily Zaytsev,
Dornum og Sæviking
koma í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa
s. 551 4349, opin alla
miðvikud. kl. 14–17,
flóamarkaður, fataút-
hlutun og fatamóttaka,
sími 552 5277 eru opin
annan og fjórða hvern
miðvikud. kl. 14–17.
Mannamót
Norðurbrún 1 og Furu
gerði 1. Á morgun 11.
apríl verður farin vetr-
arferð að Gullfossi og
Geysi. Lagt af stað kl.
9 frá Norðurbrún 2 og
síðan teknir farþegar í
Furugerði 1. Leið-
sögumaður Anna Þrúð-
ur Þorkelsdóttir.
Skráning í Norðurbrún
1 í s. 568 6990 og í
Furugerði 1 í s.
553 6040.
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa og
postulínsmálning.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofan, kl.
13 spilað, kl. 13–16.30
opin smíðastofan. Allar
uppl. í síma 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–17
fótaaðgerð, kl. 10
banki, kl. 13 spiladag-
ur. Harmónikkuball
verður fimmtud. 11.
apríl kl. 16. Ragnar
Leví spilar á nikkuna.
Kaffi og meðlæti.
Skáning í síma
568 5052. Allir vel-
komnir.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið í
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga föstudaga kl. 11.
Kóræfingar hjá Vor-
boðum, kór eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Pútt-
kennsla í íþróttahúsinu
kl. 11 á sunnudögum.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslu- og handa-
vinnustofur opnar, kl.
10–10.45 leikfimi, kl.
14.30 banki.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18. Bingó í Gull-
smára 13 föstudaginn
12. apríl kl 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13 föndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
byrjendur.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Vorfagnaður
verður í Kirkjuhvoli 11.
apríl kl. 19.30 á vegum
Oddfellow í Garðabæ. Í
dag kl. 11.15 og 12.15
leikfimi, kl. 13.05 róleg
stólaleikfimi, kl. 13.30
handavinnuhornið, kl.
16 trésmíði.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Línu-
dans kl. 11, myndlist
og glerskurður kl. 13,
pílukast kl 13.30. Leik-
húsferð í dag kl. 14 að
sjá leikritin „Í lífsins
ólgusjó“ og „Fugl í
búri“. Rútan fer frá
Hraunseli kl. 13.15. Á
morgun fimmtudag
verður kvöldvaka í boði
Lions kl. 20. Skemmti-
atriði, kaffihlaðborð og
dans.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Miðvikud:
Göngu-Hrólfar fara í
göngu frá Ásgarði kl.
10. Söngfélag FEB,
kóræfing kl. 17. Línu-
danskennsla kl. 19.15.
Söngvaka fellur niður.
Fimmtud: Brids kl. 13.
Brids fyrir byrjendur
kl. 19.30. Leikfélagið
Snúður og Snælda sýn-
ir í Ásgarði Söng og
gamanleikinn „Í lífsins
ólgusjó“ og „Fugl í
búri“ Næstu sýningar:
Miðvikud 10. apríl kl.
14 næst síðasta sýning
og föstud 12. apríl allra
síðasta sýning. Miða-
pantanir í s: 588 2111
og 568 9082, miðar
seldir við innganginn.
Söguslóðir á Snæfells-
nesi og þjóðgarðurinn
Snæfellsjökull, 3 daga
ferð 6.–8. maí. Uppl. í
síma 588-2111.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30
fótaaðgerðir, opin
vinnustofa, postulín,
mósaik og gifsaf-
steypur, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 9–16 böð-
un. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–
16 blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá
hádegi spilasalur op-
inn, veitingar í veit-
ingabúð. Fimmtudag-
inn 18. apríl kl. 13.15,
félagvist í samstarfi við
Hólabrekkuskóla, allir
velkomnir. Upplýsingar
um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10 handavinna, kl.
10 boccia, kl. 11 hæg
leikfimi, kl. 13 fé-
lagsvist FEBK og gler-
list, kl. 15–16 viðtals-
tími FEBK, kl. 16
hringdansar, kl. 17
bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
róleg stólaleikfimi, kl.
13 keramikmálun.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, handa-
vinna, bútasaumur, kl.
9–12 útskurður, kl. 9–
17 hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir, kl. 11 banki,
kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9 böðun, föndur –
klippimyndir, kl. 9 og
kl. 10 jóga, kl. 14 dans,
kl. 15 frjáls dans, kl. 15
teiknun og málun.
Fótaaðgerðir, hár-
snyrting. Þjónusta fé-
lagsþjónustunnar er
öllum opin án tillits til
aldurs eða búsetu í
Reykjavík.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun
fimmtudag 11. apríl kl.
10 í keilu í Mjódd. Spil-
uð verður keila, spjall-
að og heitt á könnunni.
Allir velkomnir. Upp-
lýsingar veitir Þráinn í
s. 5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–16 fótaaðgerðir,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
10 sögustund, kl. 13
banki, kl. 14 félagsvist,
kaffi, verðlaun. Fé-
lagsstarfið er opið öll-
um aldurshópum, allir
velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9–16 fótaað-
gerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–16 postulíns-
málun og myndmennt,
kl. 13–14 spurt og
spjallað, kl. 13–16 tré-
skurður.
Vitatorg. Kl. 9 smíði
og hárgreiðsla, kl. 10
fótaaðgerðir, morg-
unstund, bókband og
bútasaumur, kl. 12.30
verslunarferð, kl. 13
handmennt og kóræf-
ing, kl. 13.30 bókband,
kl. 15.30 kóræfing.
Blóðgjafafélags Ís-
lands. Aðalfundurinn
verður haldinn í kvöld
kl. 20 í anddyri K-
byggingar Landspít-
alans. Dagskrá: Venju-
leg aðalfundarstörf.
Blóðgjöfum veittar við-
urkenningar. Önnur
mál. Fræðsluerindi.
Veitingar. Allir vel-
komnir.
Bústaðakirkja, starf
aldraðra. Spilað, föndr-
að, helgistund og gáta.
Gamanmál. Þið sem
viljið láta sækja ykkur
látið skrá ykkur hjá
kirkjuverði í síma
553 8500 eða Sigrúnu í
síma 864 1448.
Bókmenntaklúbbur
Hana-nú. Fundur verð-
ur í Bókmenntaklúbbi
Hana-nú á Lesstofu
Bókasafns Kópavogs
og hefst hann kl. 20.
Verið er að undirbúa
dagskrá úr verkum
Halldórs Kiljan Lax-
ness. Tilkynna þarf
þátttöku í kvöld. Soffía
Jakobsdóttir leikkona
kemur á fundinn.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar. Opið hús í
dag kl. 14. Gestir: Sig-
ríður Norðkvist harm-
ónikkuleikari og Vita-
torgskórinn. Sr.
Ragnar Fjalar Lár-
usson flytur hugvekju.
Bílferð fyrir þá sem
þess óska. Upplýsingar
í s. 510 1034. Allir vel-
komnir.
Í dag er miðvikudagur 10. apríl,
100. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Vona á Drottin, ver öruggur og hug-
rakkur, já, vona á Drottin.
(Sálm. 27, 14.)
LÁRÉTT:
1 dúnalogn, 8 lítil tunna,
9 seinka, 10 sjávardýr, 11
kind, 13 hitt, 15 beinpípu,
18 málms, 21 bókstafur,
22 hljómaði, 23 manns-
nafns, 24 farangur.
LÓÐRÉTT:
2 hljóðfæri, 3 bolflík, 4
smáa, 5 spakan, 6 risti, 7
aula, 12 háttur, 14 veið-
arfæri, 15 ófögur, 16
týna, 17 seinfæru, 18
borðað, 19 púkans, 20
sæti.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 vilpa, 4 þvarg, 7 gaufa, 8 ræðin, 9 rás, 11 rönd,
13 unna, 14 íbúar, 15 þjöl, 17 tagl, 20 eir, 22 koddi, 23
jaðar, 24 iðnað, 25 lamin.
Lóðrétt: 1 Vigur, 2 lausn, 3 afar, 4 þurs, 5 arðan, 6
gunga, 10 álúti, 12 díl, 13 urt, 15 þokki, 16 öldin, 18 auð-
um, 19 líran, 20 eirð, 21 rjól.
K r o s s g á t a
Ég alein sit og
allt er hljótt
VEGNA fyrirspurnar um
kvæði í þætti Velvakanda
26 mars sl. Ég tel að þetta
sé úr leikriti sem heitir að
mig minnir „Ása kryppling-
ur“. Þegar ég var í barna-
skóla í Flóanum var þetta
leikrit æft og sýnt, ég lék
Ásu, og þegar allt fólkið á
bænum var farið til kirkju á
nýársnótt sat Ása ein
heima og þá syngur hún
eftirfarandi vísur.
(Lag: Þú sæla heimsins
svalalind)
Ég alein sit og allt er hljótt
ég óskastundar bíð
en úti ríkir niðdimm nótt
og nöpur kuldatíð.
Já einstæðinginn allir smá
hann er sem visið blóm
sem freðin grein, sem fölnað
strá
sem fánýtt moldar hjóm.
Ég heyri í fjarska klukkna-
klið
þú kemur nýja ár
ó gef mér kærleik gef mér
frið
og græddu öll mín sár.
Þegar Ása hefir sungið
þetta koma álfar með kóng
og drottningu í fararbroddi
og þeir syngja og dansa og
með töfrum losa þeir Ásu
við herðakistilinn og tötrar
hennar breytast í skraut-
klæði. Ennþá man ég vel
hvernig það var útfært í
sýningunni.
Kveðja,
kona á Selfossi.
Talsetning
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma
eftirfarandi á framfæri.
Á ekki að setja íslenskt
tal á kvikmyndina ET?
Krakkar, sem ekki kunna
að lesa, hafa ekki gaman af
myndinni ef þeir skilja ekki
það, sem fram fer á tjald-
inu.
Gréta.
Frá James Addison
HINN 21. febrúar síðast-
liðinn birtist bréf frá James
Addison í Morgunblaðinu,
en hann bað blaðið að að-
stoða sig við leit að konu
sem hann kynntist þegar
hann var á Íslandi á vegum
breska hersins á árunum
1940 til 1942. Kona þessi
vann í verslun Baldvins
Ryel við Hafnarstræti á
Akureyri. Eftir að bréf
hans birtist í blaðinu hafði
kona nokkur samband við
hann og hafði ýmsar upp-
lýsingar. James Addison
hefur á ný haft samband við
Morgunblaðið því hann
langar að heyra aftur í
þessari konu, en láðist að
taka niður nauðsynlegar
upplýsingar. Hann biður
því umrædda konu um að
hafa samband við sig aftur.
James Addison
72 Newboundmill Lane
Pleasley Mansfield
Notts: NG197PT
England.
Sími: 0044-1623811711.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
MIKIÐ hefur verið fjallað umbyggðamál á ýmsum vettvangi
að undanförnu og ætlar Víkverji að
hætta sér örlítið inn á þá braut í dag.
Fyrir nokkru var kynnt áætlun um
byggðamál þar sem einkum var
fjallað um Norðurland. Í framhaldi
af því settu sveitarstjórnarmenn á
Vestfjörðum saman eigin byggða-
áætlun. Fannst þeim sem fjórðungur
þeirra hefði gleymst og vildu ekki
una við slíkt.
Í áætlun sinni taka Vestfirðingar
til umfjöllunar hvaðeina er snertir
sóknarfæri í atvinnulífi, eflingu
sveitarfélaga, búsetuskilyrði, eflingu
byggðakjarna og samgöngumál. Við
snöggan lestur þessarar áætlunar
virðist sem með henni séu Vestfirð-
ingar nánast að berjast fyrir tilveru-
rétti sínum. Allt miðar að því að efla
hvers kyns starfsemi heima fyrir
þannig að menn þurfi ekki að sækja
menntun, sérfræðiþekkingu, atvinnu
og annað út fyrir fjórðunginn. Vest-
firðingar vilja líka koma vegamálum
í það horf að þeir geti ekið um fjórð-
unginn nokkuð hindrunarlaust allt
árið.
Allt kostar þetta eitthvað og í
sumum tilvikum er sett fram kostn-
aðaráætlun en í öðrum ekki. Oftar en
ekki er sett fram tillaga um að yf-
irvöld beri ábyrgð á verkefnunum en
í mörgum tilvikum koma sveitar-
félögin einnig við sögu. Má einnig
lesa út úr áætluninni að stjórnvöld
leggi að miklu leyti fram nauðsyn-
legt fjármagn.
Byggðaáætlun sem þessi er ef-
laust nauðsynleg, þó ekki væri nema
til að minna á tilveru landsbyggðar-
innar. Og kannski ekki síður tilveru-
rétt.
x x x
LANDLÆKNIR minnti um síð-ustu helgi á herferð Alþjóða-
heilbrigðisdagsins um gildi þess að
hreyfa sig og njóta lífsins. Það virðist
sem sagt eitthvert samhengi þar á
milli sem hann er að benda okkur
letihaugunum á.
Á heimasíðu sinni nefnir hann
nauðsyn þess að allir hreyfi sig í það
minnsta hálftíma á dag. Ekki er nóg
að hreyfa sig eitthvað heldur verður
það að vera með hæfilegri áreynslu.
Hann nefnir dæmi: Rösk ganga,
hjólreiðar, sund, margvíslegir leikir,
dans, hreinsa til í garðinum eða bara
gera hreint heima. Hvað meinar
maðurinn? Er þá engin afsökun
lengur fyrir því að hreyfa sig ekki?
Við sem nennum ekki að hjóla,
ganga, hlaupa eða synda komumst
ekki hjá því að taka þátt í heilsurækt
fyrst að jafnvel hreingerningarnar
heima eru heilsubót. Því jafnvel löt-
ustu menn taka nefnilega stundum
til hendinni heima fyrir. Meira að
segja Víkverji á það til stöku sinnum.
En eru hreingerningar hæfileg
áreynsla? Fer það nú ekki eitthvað
eftir því hversu mikil óhreinindin eru
eða hversu vistarveran er stór? Ein-
hvern veginn finnst Víkverja þetta
allt vera létt verk og löðurmannlegt.
Að standa með ryksuguna, kústinn,
tuskuna smástund og dusta burt
óhreinindin – það getur nú varla ver-
ið mikið mál. Ekki það að Víkverji
hafi mikla reynslu eða þekkingu á
þessum málum. Hann þykist þó full-
komlega liðtækur á þessu sviði. Með
réttu græjunum er þetta leikur einn.
Menn þurfa ekki einu sinni að beygja
sig lengur. Sérhannaðar fægiskóflur,
ræstivagnar og alls konar léttitæki
sjá til þess og létta undir.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
ÉG er ein af þeim sem allt-
af gera krossgátuna í
Mogganum og í framhaldi
af því les ég stundum skrif
Víkverja þar fyrir neðan. Í
pistli hans miðvikudaginn
3. apríl sl. um örlög Keikós
kom fram viðhorf til gælu-
dýrahalds, þ.e. hunda-
halds, sem ég finn mig
knúna til að svara enda
þótt mótsagnirnar í þess-
um pistli dæmi sig að vísu
sjálfar. Orðrétt segir Vík-
verji: „Víkverji er hins-
vegar lítið fyrir dýragarða
eða heimilishundahald.
Finnst eðlilegra að skepn-
urnar fái að lifa sem eðli-
legustu lífi en ekki í búr-
um eða taumi,“ og seinna:
„Víkverji telur sig í flokki
dýravina en er það dýra-
vinátta að veiða þau til að
halda þeim föngnum um
áraraðir?“ Veiðum við
ekki einstök dýr til matar?
Eða ölum þau til matar
eða vegna annarra af-
urða?
Það má kannski segja að
ég sé búin að halda tíkinni
minni sem fanga í nærri 12
ár. En þessi fjölskyldu-
meðlimur hefur verið okk-
ur ómetanlegur félagi og
vinur, skokkað með okkur
um fjöll og fjörur og aldrei
hefur mér dottið í hug að
hún líti á sig sem fanga,
jafnvel ekki í taumi.
Þeim gleymist oft, sem
agnúast út í hundahald, að
hundurinn hefur fylgt
manninum frá fyrstu tíð
og mannleg samskipti eru
þeim mikilvægari en flest
annað. Þetta vita allir sem
hafa átt hund. Hundar
eiga ekki endilega heima í
sveit, þeir eiga heima hjá
okkur mannfólkinu hvort
sem við búum í sveit eða
þéttbýli. Og mannleg sam-
skipti, ferskt loft og næg
hreyfing er jafn heilsu-
samlegt fyrir þá og fyrir
okkur.
Bergljót Magnadóttir,
dýrafræðingur.
Gæludýrahald