Morgunblaðið - 10.04.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.04.2002, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 16 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Lagastofnun Háskóla Íslands stendur fyrir ráðstefnu þar sem fjallað verður um þýðingu hugtakanna þjóðareign og þjóðlendur út frá sjónarmiðum stjórnskipunar, eignarréttar og hagfræði. Dr. Páll Sigurðsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar setur ráðstefnuna. Fundarstjóri verður Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild. Eiríkur Tómasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands Tillaga auðlindanefndar um eignarrétt þjóðarinnar að náttúruauðlindum og landsréttindum Ragnar Árnason, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands Þjóðlendur – eignarlendur: Hagfræðileg sjónarmið Þorgeir Örlygsson, ráðuneytisstjóri iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins Hugtakið þjóðlenda Fyrirspurnir – Kaffihlé Ólafur Sigurgeirsson, hæstaréttarlögmaður Lögfræðilegur grundvöllur krafna ríkisins Ólafur Björnsson, hæstaréttarlögmaður Lögfræðilegur grundvöllur krafna landeigenda Almennar umræður og fyrirspurnir Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 12. apríl 2002, kl. 14.00 –17.30, í A-sal Hótel Sögu (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin). Hægt er að nálgast úrskurði óbyggðanefndar á www.obyggd.stjr.is RÁÐSTEFNA Þjóðlendur og úrskurðir óbyggðanefndar Lagastofnun Háskóla Íslands Lagastofnun Háskóla Íslands Lögbergi Sími 525 4386 www.hi.is/stofn/lagast N O N N I O G M A N N I Y D D A • s ia .is NÝ stjórn var kjörin á aðalfundi Fjárfestingarfélagsins Straums í gær. Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, Kristín Guðmundsdótt- ir, fjármálastjóri Granda, og Ólafur B. Thors, fyrrverandi framkvæmda- stjóri Sjóvár-Almennra, voru kjörin í stjórn í stað þeirra Ara Edwald, framkvæmdastjóra Samtaka at- vinnulífsins, Bjarna Ármannssonar, forstjóra Íslandsbanka, og Jóns Halldórssonar lögmanns. Stjórnarformaður verður Ólafur B. Thors. Varastjórnarmaður var kjörinn Einar Örn Jónsson, fram- kvæmdastjóri Saxhóls, félags í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar. Fjórir buðu sig fram til setu í stjórn en Magnús Kristinsson, útgerðarmaður og frá- farandi varastjórnarmaður í Straumi, náði ekki kjöri. Í samtali við Morgunblaðið segir nýkjörinn stjórnarformaður Straums, Ólafur B. Thors, að hlut- verk stjórnarinnar verði að gæta hagsmuna hluthafa félagsins og vinna að þeim í hvívetna. „Nú koma að nýir menn og ég vona sannarlega að ný stjórn beri gæfu til að standa saman um þessi meginmarkmið,“ sagði Ólafur. Ari Edwald, fráfarandi stjórnar- formaður, flutti skýrslu stjórnar og gerði grein fyrir því að aðalstjórn- armenn gæfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu. „Það fer ekki illa á því að afloknu þessu mótunar- skeiði í starfseminni að nýir menn komi að því að leiða félagið, auk þess sem ég tel að það geti orðið erfitt til lengdar að samræma formennsku í Straumi mínu aðalstarfi sem fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins,“ sagði Ari m.a. Hann fór yfir síðasta starfsár og gat þess að hlutafjárútboð upp á einn milljarð króna að nafnvirði sem fram fór í júní á síðasta ári, hefði ekki farið hátt en hefði verið næststærsta hlutafjárútboð hérlendis á síðasta ári, á eftir útboði Bakkavarar hf. „Ég verð að játa að fyrir okkur stjórnarmennina hefur það ekki bara kosti í för með sér að Straumur eflist og nái að gegna virku hlutverki í ýmsum fjárfestingarverkefnum. Það er eðli slíkra verkefna að starfað er með mismunandi aðilum að ein- stökum málum eftir efnum og ástæð- um. Stundum eru aðrir fjárfestar og fyrirtækjastjórnendur ánægðir með Straum og stundum ekki. Þannig verður það áfram ef Straumur nær að gegna hlutverki sínu, sem ég hef fulla trú á að hann geri,“ sagði Ari einnig. Aukið sjálfstæði og fjarlægð frá Íslandsbanka Magnús Kristinsson kvaddi sér hljóðs á fundinum og þakkaði fyrri stjórn samstarfið. Hann sagðist telja sig fullfæran um að halda áfram stjórnarsetu. „Ég verð að segja þá sögu eins og hún er best sögð: Ráða- menn Íslandsbanka töldu það ekki vera. Þeir vildu fá annað blóð þarna inn og vildu endurnýja alla stjórnina eins og hún lagði sig. Ég tek því bara,“ sagði Magnús m.a. Í samtali við Morgunblaðið vildi Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís- landsbanka og fyrrverandi stjórnar- maður í Straumi, ekki tjá sig sér- staklega um ummæli Magnúsar. „Þetta er réttkjörin stjórn félagsins, á að gæta hagsmuna allra hluthafa, og ég óska henni velfarnaðar í störf- um sínum,“ sagði Bjarni. Hvað varðar ástæður þess að Bjarni gaf ekki kost á sér til áfram- haldandi stjórnarsetu sagði hann það mat sitt og annarra forráða- manna Íslandsbanka að rétt væri að auka sjálfstæði Straums og færa fé- lagið fjær Íslandsbanka. Skipt var um stjórnarmenn á aðalfundi Fjárfestingarfélagsins Straums í gær Nýir menn að af- loknu mótunarskeiði                        !      " #      $   %   &'  ( ) $%" "  !"  & '"   ! ""! ####!              $ ( ) * + , - . / $%        *+,-! ./*-! !,/-0 !.1-1 !2/-2 !22-2 !22-2 1+-2 3+-! 3.-2 & '0   $1,(%0% $1$.*0, (1.%*0,  2 ' "  "1  $  SJÁVARBYGGÐIR á Vestfjörðum fá um 1.424 þorskígildistonn af þeim 1.700 tonnum sem sjávarútvegsráð- herra hefur úthlutað til krók- aflamarksbáta í byggðum sem urðu fyrir verulegum skerðingum vegna kvótasetningar aukategunda hjá krókaaflamarksbátum á yfirstand- andi fiskveiðiári. Alls fá 11 byggð- arlög úthlutað kvóta til krókaafla- marksbáta samkvæmt tilsettum skilyrðum, þar af 6 á Vestfjörðum. Við upphaf þessa fiskveiðiárs, sem hófst 1. september 2001, komu til framkvæmda ákvæði laga um nýja skipan veiða krókabáta. Við það féll niður heimild þorskaflahá- marksbáta til frjálsra veiða á ýsu, ufsa og steinbít. Ljóst var að þetta gerði þeim sjávarbyggðum erfitt fyrir sem háðastar eru veiðum smá- báta. Til að koma til móts við þessar byggðir voru samþykkt á Alþingi 20. desember síðastliðinn lög er heimila sjávarútvegsráðherra að út- hluta allt að 1.000 lestum af ýsu, 1.000 lestum af steinbít og 300 lest- um af ufsa til krókaflamarksbáta sem gerðir eru út frá sjávarbyggð- um sem að verulegu leyti eru háðar veiðum slíkra báta. Við ákvörðun á því hvaða staðir koma til greina eru tvær forsendur lagðar til grundvallar og þurfa byggðarlögin að uppfylla þær báð- ar. Í fyrsta lagi er reiknað hversu hátt hlutfall úthlutað aflamark krókaaflamarksbáta á fiskveiðiárinu 2001/2002 er af heildarúthlutun allra skipa á viðkomandi stað í þorskígildum talið. Þeir staðir þar sem hlutfallið er 15% eða hærra koma til greina við úthlutunina. Í öðru lagi er reiknað hversu hátt hlutfall afli krókaaflamarksbáta á fiskveiðiárinu 2000/2001 er af heild- arfiskafla allra skipa sem skráðir voru á viðkomandi stað. Þeir staðir þar sem hlutfallið er 15% eða hærra koma til greina við úthlutunina. Þá var ákveðið að úthlutað magn til einstakra byggðarlaga skuli miðast við að ekkert byggðarlag hefði út- hlutað aflamark í ýsu, steinbít og ufsa, að viðbættum þorskafla á síð- asta fiskveiðiári, sem næmi lægra hlutfalli en 89,4% af heildarafla síð- asta fiskveiðiárs. Þó með þeim tak- mörkunum að ekkert byggðarlag fær hærri úthlutun en 400 þorsk- ígildistonn. Þannig fá bæði Tálkna- fjörður og Bolungarvík úthlutað 400 tonnum en ætla má að hlutdeild þessara byggða hefði orðið mun meiri ef ekki hefði verið sett þak á úthlutunina. Sömu aðferð var síðan beitt þeg- ar úthlutað var á einstaka báta inn- an hvers byggðarlags, að hámarki 50 þorskígildistonn á bát. Ætla má að í kringum 60 bátar fái úthlutað viðbótarkvóta með þessum hætti. Viðbótarkvótinn verður framseljanlegur Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, leggur á það áherslu að með þessu sé ekki verið að bæta umræddum byggðarlögum upp samdrátt í þorskafla, heldur sé ver- ið að koma til móts við þær byggðir sem orðið hafi fyrir hvað mestri skerðingu við kvótasetningu auka- tegunda og telur að úthlutunin end- urspegli mjög vel mikilvægi auka- tegunda í afla í byggðunum. Hann bendir á að viðbótarúthlutunin hafi það í för með sér að umrædd byggðarlög fái heimild til að veiða svipaðan afla í ýsu, steinbít og ufsa og fiskveiðiárið 1999/2000. Byggð- irnar 11 sem um ræðir fá á yf- irstandandi fiskveiðiári úthlutað 6.585 þorskígildistonna kvóta í aukategundum en heildarafla báta frá byggðunum í tegundunum á síð- asta fiskveiðiári var 8.951 tonn. Árni segir erfitt að miða við afla á síðasta fiskveiðiári, enda hafi trillukarlar þá keppst við að afla sér veiðireynslu vegna fyrirhugaðrar kvótasetning- ar. Heildarafli krókabáta frá byggð- arlögunum 11 á fiskveiðiárinu 1999/ 2000 í aukategundum var alls 6.782 tonn. Aflinn var 5.192 tonn fisk- veiðiárið 1998/1999 og 3.585 tonn fiskveiðiárið 1997/1998. Ráðherra hefur heimild til að setja skilyrði um að viðbótarúthlut- unin verði ekki framseljanleg. Hann hefur hinsvegar ákveðið að beita ekki þessu skilyrði, þar sem flókið yrði að greina á milli þessarar út- hlutunar og annarrar úthlutunar. Eins hafi úthlutunin dregist langt fram á fiskveiðiárið, enda hafi frum- varpið verið lengi í þingnefnd. Verði hinsvegar brögð að því að menn framselji þennan viðbótarkvóta frá byggðunum verði á því tekið við næstu úthlutun. Um 84% kvótans fara til Vestfjarða  3 " "2 4  "4"5 #0"  "  "    2 6  #   72  3       8 9  : 3  3  3        3   *%% *%% )// $-) $%* $%( +% ), $/ $) , 11 sjávarbyggðir fá úthlutað kvóta vegna kvótasetningar aukategunda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.