Morgunblaðið - 10.04.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Því miður, herra, við kunnum engin ráð, þetta er bara eitthvað í framsóknar-genunum.
♦ ♦ ♦
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur í bréfi til aðstandanda nem-
anda í 10. bekk ótilgreinds grunn-
skóla hafnað beiðni um að nemand-
inn, sem er með lesblindu á háu
stigi, fái að taka samræmd próf
munnlega. Sótt var um heimild fyr-
ir því að nemandinn fengi aðstoð
við að lesa prófin og að svör mætti
skrifa fyrir hann eða taka upp á
segulband.
Í svarbréfinu vísar ráðuneytið til
reglugerðar um samræmd próf, þar
sem miðað sé við að þau séu þreytt
á sama tíma og við sömu eða sam-
bærilegar aðstæður. Talin eru upp
nokkur frávik frá þessari reglu,
m.a. þau að bjóða má nemendum
með lesblindu upp á snældu þar
sem lesinn er upp sá hluti prófanna
sem ekki prófar lesskilning.
Frávikin gera ekki ráð fyrir að
prófin fari fram munnlega og á
þeirri forsendu er beiðninni hafnað
af ráðuneytinu.
Óheimilt að
taka sam-
ræmd próf
munnlega
GJALDÞROT þýska fjölmiðlafyrir-
tækisins KirchMedia hefur engin
áhrif á fyrirhugaðar sjónvarpsút-
sendingar Stöðvar 2 og Sýnar frá HM
í knattspyrnu í sumar að sögn Sig-
urðar G. Guðjónssonar, starfandi for-
stjóra Norðurljósa. Hann segir að
ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af
fjárhagsvandræðum móðurfélags
Kirch enda séu Norðurljós ekki með
samning um sýningar frá knatt-
spyrnuleikjum við það, heldur við
dótturfyrirtæki þess.
Segir hann ennfremur að Alþjóða
knattspyrnusambandið, FIFA, hafi
staðfest það við Norðurljós að mál þar
ytra væru í öruggum farvegi. Sam-
kvæmt þessu verða því allir 64 leikir
keppninnar í sumar sýndir í beinni út-
sendingu ýmist á Stöð 2 eða Sýn.
Gjaldþrot Kirch
bitnar ekki
á útsendingum
Stöðvar 2
af 30 gerðum af
hurðarhúnum
27.399 24.928
Innihurðir
á tilboðsverði
Sími 525 3000 • www.husa.is
kr. kr.
Fjögurra spjalda 80 cm
furufulningahurð, 10 cm
breiður furu karmur
og gerefti.
Tveggja spjalda 80 cm
hvítfulningahurð, 9,5 cm breiður
MDF karmur og gerefti.
25% afsláttur
Hver er ávinningur upplýsingatækninnar?
Svið sem snert-
ir okkur öll
HVER ER ávinning-ur upplýsinga-tækninnar“ er yf-
irskrift mikillar ráðstefnu
sem TölvuMyndir hf.
standa fyrir í vikunni. Ráð-
stefnan er margþætt og
verður tekið á málefninu á
víðum grundvelli. Áslaug
Pálsdóttir er upplýsinga-
fulltrúi TölvuMynda og
hún svaraði nokkrum
spurningum Morgunblaðs-
ins.
– Aðeins meira um ráð-
stefnuna?
„Já, það eru Tölvu-
myndir hf. og dótturfyrir-
tæki þess sem halda ráð-
stefnuna á Grand hóteli í
Reykjavík á morgun,
fimmtudag, klukkan 13.30
til 17.05. Yfirskriftin er
„Hver er ávinningur upplýsinga-
tækninnar.“
– Hvað eru TölvuMyndir?
„TölvuMyndir eru eitt stærsta
þekkingar- og hugbúnaðarfyrir-
tæki landsins. Megináhersla er
lögð á þróun, sölu og þjónustu eig-
in hugbúnaðar sem er seldur und-
ir vörumerkjum dótturfyrirtækja.
Dótturfyrirtæki TölvuMynda
mynda eina stjórnunarlega heild
með móðurfyrirtækinu. Hjá
TölvuMyndum, dóttur-
fyrirtækjum og hlutdeildarfélög-
um starfa um 400 manns í fimm
löndum á mismunandi sviðum at-
vinnulífs.
– Hvernig er ráðstefnan byggð
upp?
„Ráðstefnan hefst með sameig-
inlegri dagskrá klukkan 13.10
með setningu Ara Edwald, fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnu-
lífsins. Þorkell Sigurlaugsson,
stjórnarformaður Tölvumynda hf.
og framkvæmdastjóri þróunar-
sviðs Eimskipafélags, mun því
næst fjalla um „arðsemi upplýs-
ingatækninnar fyrir íslenskt at-
vinnulíf“. Friðrik Sigurðsson, for-
stjóri TölvuMynda hf., fjallar um
„Útflutning hugbúnaðar“, Hákon
Guðbjartsson, framkvæmdastjóri
upplýsingatæknisviðs Íslenskrar
erfðagreiningar hf., fjallar um
„Hlutverk upplýsingatækni í líf-
tækni“ og Svavar G. Svavarsson,
framkvæmdastjóri Skyggnis hf.,
fjallar um „Áhættustjórnun við
gerð rekstrarþjónustusamninga“.
Að sameiginlegri dagskrá lokinni
og kaffihléi klukkan 14.40 velja
ráðstefnugestir sér eina af fimm
áhugaverðum dagskrám dóttur-
fyrirtækja Tölvumynda hf., þar
sem innlendir sem erlendir sér-
fræðingar flytja erindi.“
– Hverjar eru helstu áherslurn-
ar?
„Yfirskrift ráðstefnunnar segir
hver áherslan er, en við spyrjum
hver ávinningur upplýsingatækni-
nnar sé. Við leitumst við að svara
þeirri spurningu á morgun. Dótt-
urfyrirtæki Tölvumynda eru
fimm og verða þau öll með sína
eigin dagskrá eftir hina sameig-
inlegu. Dótturfyrirtæki Tölvu-
mynda starfa hvert um sig á sjálf-
stæðum kjörsviðum;
Libra ehf. sérhæfir sig
í hugbúnaðarlausnum
fyrir fjármálamarkað,
Maritech ehf. í
hugbúnaðarlausnum
fyrir sjávarútveg, sveitarfélög og
sölu á Navison Attain, Origo ehf.
sérhæfir sig í netlausnum og sér-
hæfðum tölvukerfum, Theriak
ehf. í hugbúnaðarlausnum fyrir
heilbrigðissvið og Vigor ehf. í við-
skiptalausnum fyrir orkuveitur og
sölu á Vigor-viðskiptahugbúnaði.“
– Forsenda(ur) og tilgangur
ráðstefnunnar?
„Með ráðstefnunni viljum við
sýna að upplýsingatæknin er ekki
eitthvert hugtak sem snertir ein-
göngu þá aðila sem við hana
starfa. Í því upplýsingasamfélagi
sem við búum og störfum í nú
snertir upplýsingatæknin okkur
öll hvort heldur sem er í starfi eða
leik. Íslenskur hugbúnaður er
mikilvæg og vaxandi atvinnugrein
á Íslandi þó svo að enn sé stór
hluti hugbúnaðarstarfsemi á Ís-
landi ósýnilegur, innan ríkisstofn-
ana, banka og fyrirtækja. Á síð-
ustu misserum virðist sem sjónir
manna hafi beinst meira að gamla
hagkerfinu, þ.e.a.s. rótgrónum at-
vinnugreinum sbr. álframleiðslu
og sjávarútvegi. TölvuMyndir
töldu því vera brýna þörf á því að
vekja athygli á þeim ávinningi
sem upplýsingatæknin færir ís-
lensku samfélagi og íbúum þess. Á
fundi Samtaka íslenskra hugbún-
aðarfyrirtækja sem haldinn var 3.
mars sl. kom fram að útflutnings-
tekjur hugbúnaðarfyrirtækja
námu 2.409 milljónum króna árið
2000, en sama ár nam heildarvelt-
an 15,9 milljörðum
króna. Þegar þetta er
borið saman við þró-
unina á Norðurlöndun-
um og í Bretlandi kem-
ur fram að
útflutningsverðmæti hugbúnaðar-
geirans mælt sem hlutfall af heild-
arútflutningi, er mun minna hér á
landi en annars staðar.“
– Fyrir hverja er ráðstefnan?
„Ráðstefnan er öllum opin, en
tilkynna þarf þátttöku í dag,
skráning fer fram á www.t.is. Hún
er ætluð stjórnendum og öllum
áhugamönnum í upplýsinga-
tækni.“
Áslaug Pálsdóttir
Áslaug Pálsdóttir fæddist í
Reykjavík 4. mars 1973. Stúdent
frá Menntaskólanum við Sund
1993 og BA próf í stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands
1997 og útskrifaðist með meist-
aragráðu í almannatengslum frá
Boston University College of
Communication 2001. Lokaverk-
efnið fjallaði um krísustjórnun
og samskipti á krísutímum.
Starfaði við almannatengsl hjá
ýmsum fyrirtækjum hér á landi,
GSP-almannatengsl, Inntaki,
KOM, Mekkano og Weber Group
Europe svo eitthvað sé nefnt á
árunum 1996 til 2001. Var þá
ráðgjafi ýmissa fyrirtækja og
stofnana. Var ennfremur frétta-
maður hjá Íslenska útvarpsfélag-
inu um skeið. Er varaformaður
Almannatengslafélags Íslands og
ráðin fyrir ári sem upplýsinga-
og markaðsstjóri TölvuMynda
hf. Áslaug er í sambúð með Þóri
Kjartanssyni verkfræðingi og á
hann einn son, Kjartan, sem er
sex ára.
Á eftir grann-
löndum í út-
flutningi