Morgunblaðið - 10.04.2002, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra ætlar að beina því til
Seðlabanka Íslands að vextir verð-
tryggðra innstæðna og lána verði
fastir á lánstímanum en ekki breyti-
legir eins og verið hefur. Viðskipta-
ráðherra upplýsti þetta á Alþingi í
gær í umræðum utan dagskrár um
aukin vanskil og fjölgun fjárnáma.
Valgerður sagðist eiga erfitt með
að sjá rök fyrir því fyrirkomulagi að
verðtryggð lán skyldu yfirleitt hafa
breytilega vexti en ekki fasta. „Með
þessu eru lánveitendur bæði með
belti og axlabönd; þeir hafa varið sig
gegn verðbólgu en geta engu að síð-
ur breytt vöxtum eftir því sem vind-
ar blása,“ sagði Valgerður.
Beinir tilmælum
til Seðlabankans
Ráðherra vill/10
Viðskiptaráðherra vill að vextir
verðtryggðra lána verði fastir
MIKILL jakaburður og vöxtur var í
Blöndu í gær. Hvassviðri og helli-
rigning losuðu um stíflu í jökulánni
til móts við bæinn Fagranes í
Langadal. Heimamenn telja þetta
aðeins til marks um að vorið sé á
leið sinni norður og sumarið með
öllum sínum væntingum innan seil-
ingar. Lóan er komin að minnsta
kosti 10 dögum fyrr en menn eiga
að venjast og hettumávurinn kom,
lyginni líkast, 1. apríl sl.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Mikill vöxt-
ur í Blöndu
Blönduósi. Morgunblaðið.
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær
að leggja fyrir Alþingi frumvarp til
laga sem heimilar fjármálaráðherra
að ábyrgjast útgáfu skuldabréfa
vegna fjármögnunar Íslenskrar
erfðagreiningar ehf. á lyfjaþróunar-
fyrirtæki sem stefnt er að því að
staðsett verði á Íslandi. Í frumvarp-
inu er lagt til að fjármálaráðherra
verði heimilað að veita einfalda rík-
isábyrgð á skuldabréfum að fjárhæð
allt að um 20 milljörðum króna.
Áætlað er að uppbygging Ís-
lenskrar erfðagreiningar krefjist
fjárfestingar sem nemur um 35 millj-
örðum króna.
Gert er ráð fyrir að 250–300 ný
störf geti skapast hér á landi innan
tveggja til þriggja ára ef fyrirætlanir
fyrirtækisins ganga eftir.
„Þetta nýja fyrirtæki getur því
haft víðtæk áhrif á atvinnuþróun
hérlendis, ekki síst í hátækni og vís-
indagreinum, en ríkisstjórnin hefur
á stefnuskrá sinni að stuðla mark-
visst að uppbyggingu slíkra tæki-
færa á Íslandi,“ segir í yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar vegna þessa máls.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, segir full-
víst sé að ráðist verði í uppbyggingu
hinnar nýju lyfjaþróunardeildar
þegar á þessu ári, og að ákvörðun
ríkisstjórnarinnar geri að verkum að
líkurnar á að hún verði reist hér á
landi hafi aukist geysilega mikið.
Talið uppfylla skilyrði EES-
samnings fyrir ríkisábyrgðum
Samkvæmt ákvæðum EES-samn-
ingsins er stjórnvöldum heimilt að
veita aðstoð á sviði rannsókna- og
þróunarverkefna.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði að það væri mat stjórnvalda að
frumvarpið uppfyllti þær kröfur sem
gerðar væru í samningnum um skil-
yrði fyrir ríkisábyrgðum. Málið yrði
sent Eftirlitsstofnun EFTA sem
mundi fjalla um það efnislega.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
skuldabréfin verði gefin út með um-
breytingarskilmálum sem fela í sér
að ef gengi hlutabréfa í deCODE
nær ákveðnum viðmiðunarmörkum
breytast skuldabréfin í hlutabréf í
félaginu. Ef skuldabréfunum er
breytt í hlutafé teljast þau upp-
greidd og ríkisábyrgðin þar með nið-
urfallin. Um er að ræða einfalda
ábyrgð ríkissjóðs sem þýðir að de-
CODE ber fulla ábyrgð á greiðslu
skuldabréfanna og verður skuldar-
eigandi að fullreyna innheimtu hjá
fyrirtækinu áður en ábyrgð ríkis-
sjóðs verður virk.
„Verkefnið er það stórt að það
þarf tiltekinn opinberan atbeina í
þessu máli. Þarna er um það að tefla
að fá þetta fyrirtæki til landsins með
aðstoð í þessu formi eða horfa á eftir
þessum störfum til Bandaríkjanna
þar sem eflaust er sitthvað í boði fyr-
ir fyrirtæki af þessu tagi án þess að
ég viti það nákvæmlega.
Við teljum að þegar maður vegur
og metur kosti og galla, ávinning og
áhættu og þá gríðarlegu atvinnu-
sköpun og þau tækifæri sem því
fylgja í þessu vísindasamfélagi þá sé
ekki bara réttlætanlegt að gera
þetta heldur mjög skynsamlegt,“
sagði Geir.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra sagði að mikill ávinningur væri
af uppbyggingu lyfjafyrirtækisins
hér á landi, ekki síst ef litið væri á
málið út frá heilbrigðispólitísku sjón-
armiði. Í Hálffimmfréttum Búnaðar-
bankans í gær segir að fyrirtæki í
nýsköpun séu almennt talin mjög
áhættusöm. Þegar ríkisábyrgð komi
til líti fjárfestar fram hjá þessari
áhættu og langtímafjármögnun með
lánsfé verði möguleg. Óhætt sé að
gera ráð fyrir að ríkisábyrgðin
tryggi deCODE lánskjör sem séu
a.m.k. 3–4% hagstæðari en ella. Á
ársgrundvelli sé því um að ræða
vaxtasparnað sem nemur a.m.k.
600–800 milljónum króna.
Ríkisstjórnin vill styðja uppbyggingu lyfjaþróunarfyrirtækis á Íslandi
Ríkisábyrgð á 20
milljarða króna láni
Líkur / 30
Yfirlýsing / 30
RÚMLEGA eitt þúsund manns sótti
útifund á Austurvelli í gær til að
mótmæla hernaðaraðgerðum Ísr-
aelsmanna í garð Palestínumanna.
Kjörorð fundarins voru: „Stöðv-
um blóðbaðið – alþjóðlega vernd
strax – frið í Palestínu.“ Alþýðu-
samband Íslands, BSRB, Ör-
yrkjabandalag Íslands og félagið
Ísland-Palestína stóðu fyrir fund-
inum.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, sagðist í ræðu sinni virða rétt
Ísraelsmanna jafnt og Palest-
ínumanna til lands.
„En ég tel að hvorugur aðili geti
byggt kröfu sína á guðlegum rétti í
krafti þjóðernis síns eða trúar-
bragða,“ sagði biskup.
Hann sagði sjálfsmorðsárásir
Palestínumanna spretta úr jarðvegi
örvæntingar, vonleysis, niðurlæg-
ingar, kúgunar og ofstækis og að
kúgunaraðferðir Ísraelsmanna
sköpuðu tvo hryðjuverkamenn fyr-
ir hvern einn sem drepinn væri eða
niðurlægður.
Morgunblaðið/Kristinn
Útifundur til stuðn-
ings friði í Palestínu
Palestínumönnum/6
ARI Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins,
segir að sér sé ekki kunnugt um
hvernig Alþýðusambandi Ís-
lands sé ætlað aukið hlutverk
verði Þjóðhagsstofnun lögð nið-
ur. Ríkisstjórnin lagði fram
frumvarp þess efnis á mánudag
og sagði Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra og starfandi
forsætisráðherra í fjarveru
Davíðs Oddssonar, í Morgun-
blaðinu í gær að gott samstarf
hefði náðst við ASÍ þannig að
sambandið gæti tekið að sér
aukin verkefni á sviði efnahags-
mála við þessar breytingar.
Við okkur hefur ekkert
verið rætt
„Við okkur hefur ekkert ver-
ið rætt um þetta mál þannig að
ég átta mig ekki á því hvað í því
felst en ég geng út frá því að
stjórnvöld ætli ekki að mis-
muna aðilum vinnumarkaðar-
ins að þessu leyti.
Ég teldi það í hæsta máta
óeðlilegt að hagræn starfsemi á
vegum Alþýðusambandsins
nyti opinberra fjárframlaga en
samsvarandi starfsemi okkar
gerði það ekki. En það má alltaf
spyrja sig hvort ríkið eigi yfir
höfuð að styðja starfsemi slíkra
samtaka eða ekki, en geri ríkið
það er sjálfsögð krafa að jafn-
ræðis sé gætt,“ segir Ari.
Hann segist treysta því að
stjórnvöld sjái til þess að sam-
starf og þjónusta á sviði þjóð-
hagsrannsókna versni ekki
verði Þjóðhagsstofnun lögð nið-
ur.
Aðilum
verði
ekki mis-
munað
Ari Edwald, fram-
kvæmdastjóri SA