Morgunblaðið - 10.04.2002, Side 13

Morgunblaðið - 10.04.2002, Side 13
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 13 UM 50 börn í 6. og 7. bekk í tveimur grunnskólum á Akureyri, Lundar- og Síðuskóla hafa síðustu vikur sótt námskeið í kvikmyndagerð en að því stendur Íþrótta- og tómstundaráð. Örn Ingi Gíslason kvikmyndagerðar- maður hefur umsjón með námskeið- inu, en markmið þess er alhliða þjálf- un þátttakenda. Námskeiðið er því að sögn Arnar Inga fjölþætt og víða komið við, en m.a. má nefna grunn- kennslu í myndatökum, klippingum, hljóðtökum og hljóðvinnslu og sam- setningu kvikmynda, auk þess sem fjallað er um ljósabúnað, leikmyndir og búninga og farið í grunnþætti handritsgerðar. Eitt af verkefnunum sem krakk- arnir hafa unnið að í vetur nefnist Víma á vettvangi og er það unnið í samtarfi við skóla og félagsmiðstöðv- ar á Akureyri. Þetta er forvarnar- verkefni og hafa þátttakendurnir sjálfir komið með hugmyndir og unn- ið úr þeim. Samstarf hefur verið við lögreglu á Akureyri þar sem krakk- arnir fengu hreint frábærar móttökur og framtaki þeirra fagnað mjög. Áfengis- og vímuvarnarnefnd Akur- eyrarbæjar styrkti þetta verkefni og eins hefur verið sótt um styrk frá Forvarnarsjóði. Námskeiðinu lýkur í lok þessa mánaðar með sýningu á afrakstrinum en hún verður í Ketilhúsinu við Kaup- vangsstræti 1. maí næstkomandi. „Krakkarnir hafa verið ótrúlega áhugasamir, hugmyndaríkir og skap- andi. Ég hef haft mjög gaman af því að starfa með þeim,“ sagði Örn Ingi, en það hafi fyrst og fremst verið áhugi Bergljótar Jónasdóttur sem veitir tómstundastarfi barna og ung- linga á Akureyri forstöðu varð til þess að unnt var að bjóða upp á þetta nám- skeið. Um 50 krakkar á kvikmyndanámskeiði Vinna við for- varnarverkefni í vímuvörnum Morgunblaðið/Kristján Mikael Magnússon og María Steingrímsdóttir, nemendur í 6. bekk Lundarskóla, skoða myndbrot sem þau tóku þátt í að gera á kvikmynda- námskeiði hjá Erni Inga Gíslasyni kvikmyndagerðarmanni. ÞEIR fengu óvenjulega „grá- sleppu“ í grásleppunetin fé- lagarnir á Konráði þegar risahá- karl kom í eina trossuna um 3 mílur suðaustur af Grímsey. Há- karlinn reyndist vera um 800 kg á þyngd og 4,5 metrar á lengd, hin mesta skepna og forvitnileg fyrir börn og fullorðna sem flykktust niður að bryggju til að fylgjast með. Þríburarnir Bjarni og Svafar Gylfasynir og Alfreð Garðarsson gera Konráð út á grásleppu þessa dagana og eru mjög ánægðir með veiðina, en úr hákarlaróðrinum komu þeir með hvorki meira né minna en 850 lítra af hrognum og er það með því mesta sem komið hefur á land í einni ferð hér í Grímsey. Þrír bátar gera út á grá- sleppu þetta vorið, tveir við Gríms- ey en sá þriðji austur við Kópa- sker. Þess má geta að menn eru nokkuð sáttir við hrognaverðið í ár miðað við síðustu árin. Risavaxinn hákarl í grásleppunetin BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að verja einni milljón króna til stuðnings við fram- boð til bæjarstjórnarkosninganna í vor. Upphæðinni skal skipta jafnt milli þeirra sem skila gildum fram- boðslistum til kjörstjórnar. Þegar er ljóst að fimm framboð verða í kjöri í bæjarstjórnarkosning- unum, sem þýðir að 200 þúsund krónur koma í hlut hvers þeirra. Með greiðslu á framlaginu fylgir að Akureyrarbær og stofnanir hans munu ekki greiða sérstaklega fyrir auglýsingar frá bænum, sem kunna að birtast í blöðum útgefnum af stuðningsmönnum framboðslist- anna. Bæjarráð styrkir framboðin ANNA Sigrún Rafnsdóttir, kennari í Síðuskóla, kynnir þróunarverkefnið Víðátta – gagnvirk kennsla í gegnum fjarfundabúnað. Anna Sigrún mun kynna hvað Víð- átta er og hverjir það eru sem eru þátttakendur í verkefninu. Hún mun sýna hvernig fjarfundatæki virka í kennslu, bæði með upptökum frá vinnu í skólanum og einnig með því, ef tök eru á, að ná sambandi við skóla úti á landi sem þátt taka í verkefn- inu. Kynningin fer fram í Síðuskóla, stofu 12, í dag, miðvikudaginn 10. apríl kl. 16–18, gengið er inn að sunnan um næst síðustu álmu frá bílastæði. Kynning á Víðáttu ♦ ♦ ♦ FYRSTU lóurnar í Eyjafirði sáust þegar á föstudag, 5. apríl, við Hjalteyri samkvæmt upplýsing- um frá Þorsteini Þorsteinssyni fuglaáhugamanni. Þá sáu fugla- áhugamenn lóur á Gásum og við Hjalteyri um helgina og Sigmund- ur Ófeigsson tók eftir stórum lóu- hópi á Eyrarlandsholti á Akureyri á sunnudag. Hann kvaðst aldrei áður hafa séð lóur hér norðan heiða svo snemma, en hefur skráð hjá sér komu þeirra undanfarin ár. Þorsteinn sagði að lóan væri snemma á ferðinni í ár, en hún hefði síðustu ár komið æ fyrr. Fyrir um 20-30 árum hefði lóa ekki sést fyrir norðan fyrr en á tímabilinu 15. til 20. apríl. Sagði Þorsteinn að sumir tengdu þetta hlýnandi loftslagi í veröldinni af völdum gróðurhúsaáhrifa. Þar sem hlýtt væri í veðri færu fugl- arnir fyrr af stað. Þá sagði hann að fuglaáhugamönnum hefði fjölgað mikið á liðnum árum og þeir hefðu yfir að ráða mun betri sjónaukum. Það gæti líka haft sitt að segja um að fuglarnir sjást fyrr nú en áður. Lóan óvenju snemma á ferðinni fyrir norðan FRYSTITOGARINN Sevrypa-2, sem Útgerðarfélag Akureyringa hf. keypti á dögunum, kom til Ak- ureyrar á laugardag. Skipið kom frá Hafnarfirði þar sem það var til skoðunar. Hið nýja skip kemur í stað frystitogarans Sléttbaks EA en það verður formlega afhent nýjum eigendum í vikunni. Sevr- ypa er fjögurra ára gamalt skip, smíðað í Danmörku. Skipið er 58 metra langt og 13,5 metra breitt og er vel tækjum búið til fryst- ingar á bolfiski. Morgunblaðið/Kristján Frystitogarinn Sevrypa-2 kem- ur til hafnar á Akureyri. Nýr frysti- togari ÚA til Akureyrar Til leigu er skrifstofuhúsnæði á annarri hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri (áður Lögmannsstofa Ingu Þallar). Húsnæðið er 53 fm, 2ja herbergja skrifstofurými með eldhúskrók. Húsnæðið er laust. Nánari upplýsingar gefur Björn Snæbjörnsson hjá Einingu-Iðju í síma 460 3600. Til leigu skrifstofuhúsnæði í Alþýðuhúsinu á Akureyri www.ef.is Skoðaðu þessa frábæru pönnu! Fást grunnar eða djúpar og sem grillpönnur. 24-26-28-30 sm. Feitislaus steiking. Hagstætt verð! 3 viðurk enningar „Frábær“ hjá þýskum neytenda samtöku m Besta steikarpannan í Evrópu.... samkvæmt dómi þýskra neytendasamtaka Samvera eldri borgara verður í Glerárkirkju fimmtudaginn 11. apríl kl. 15.00 Gestur samverunnar er Valgerður Bjarnadóttir, félagsfræðingur og framkvæmdastýra jafnréttisstofu. Kór eldri borgara á Akureyri syngur. Stjórnandi er Guðjón Pálsson. Samveran hefst með helgistund í kirkjunni og boðið verður upp á veitingar á vægu verði. Allir velkomnir. Vinafundur eldri borgara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.