Morgunblaðið - 10.04.2002, Page 44
MINNINGAR
44 MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Okkur kæri vinur
Björgvin Haraldsson
múrarameistari lést 1.
apríl sl. langt um aldur
fram. Björgvin var
hamingjusamur maður
í sínu einkalífi. Hann kynntist konu
sinni, Arndísi, þegar þau voru ung að
árum. Þau eignuðust þrjú börn. Ing-
unni, Guðrúnu og Björgvin Arnar.
Hann var stoltur og góður faðir og afi
og ánægður með tengdabörnin sín.
Öll fjölskyldan umkringdi hann með
kærleika allt fram í andlátið. Megi
Guð styrkja ykkur öll í sorginni.
Allar minningar um Björgvin eru
ljúfar og skemmtilegar. Hann var
alltaf hrókur alls fagnaðar – nú er
hans sárt saknað. Hann var orðvar
maður og hallmælti engum. Björgvin
var hagleiksmaður til allra verka –
BJÖRGVIN
HARALDSSON
✝ Björgvin Har-aldsson fæddist
á Kolfreyjustað í Fá-
skrúðsfirði 14. maí
1938. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 1. apríl síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Bú-
staðakirkju 9. apríl.
einstaklega laginn í
flísalögnum og er okkar
heimili til vitnis um það.
Það var gaman að hafa
hann nálægt sér, alltaf
skapgóður og snyrtileg-
ur í umgengni. Margar
ljúfar minningar eigum
við hjónin úr sumarhúsi
Stínu og Sigga í Gríms-
nesinu með Björgvini
og Addý konu hans og
stundum Gunnari og
Hiddu. „Strákarnir“
dyttuðu að húsinu með-
an við „stelpurnar“
bjuggum til góðan mat,
lögðum á borð og gerðum allt huggu-
legt. Björgvin sá um að alltaf logaði
glatt í arninum. Við nutum þess að
borða saman í góðum félagsskap. Eft-
ir matinn spiluðu strákarnir bridds á
meðan við stelpurnar ræddum lífið og
tilveruna. Óli og Finney komu oft yfir
úr þeirra bústað og tóku þátt. Björg-
vin spilaði á harmonikuna gömlu góðu
lögin okkar og aldrei gleymdist Undir
bláhimni. Þá tókum við undir og döns-
uðum jafnvel úti á palli.
Vorið 2000 vorum við saman 18 vin-
ir á Mallorca í tilefni 60 ára afmælis
Addýjar og Stínu og einnig afmælis
Björgvins. Þar var mikið fjör og góð-
ar minningar eigum við þaðan.
En bráðum fer sumar að sunnan
og syngur þér öll þau ljóð
sem ég hefði kosið að kveða þér einn
um kvöldin sólbjört og hljóð.
Það varpar á veg þinn rósum
og vakir við rúmið þitt
og leggur hóglátt að hjarta þínu
hvítasta blómið sitt.
(Tómas Guðm.)
Blessuð sé minning Björgvins vin-
ar okkar.
Óskar og Rannveig.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
www.hvd-designskole.dk
HILLEVI VAN DEURS HÖNNUNARSKÓLINN
FREDERIKSBERG ALLÉ 6-6A, 1., 1820 FREDERIKSBERG C
SÍMI 0045 33 79 25 40
2JA ÁRA NÁM Í FATAHÖNNUN
LÁNSHÆFT
Bændur og hestamenn
Haldið verður 4ra daga námskeið í höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð á hestum og öðrum
ferfætlingum 4.—7. maí nk. Kennari verður Jim
Green frá Upledger Institute.
Nánari upplýsingar gefur Birgir í síma 864 1694,
einnig eru frekari upplýsingar á
www.craniosacral.is
TILKYNNINGAR
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats-
skyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/
2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Vatnsaflsvirkjun, 1,4 MW, í Hrútá,
Biskupstungnahreppi.
Lagning Ásbrautar frá Goðatorgi að
Kaldárselsvegi í Hafnarfirði.
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær
er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofn-
unar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til 8. maí
2002.
Skipulagsstofnun.
Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru
hér með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum eða breytingum á
deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík:
Grafarvogur, Fjörgyn/Grafarvogskirkja, breyting á deiliskipulagi v.
fjölgunar bílastæða.
Tillagan tekur til svæðis sem ætlað var undir leikvöll, milli húsanna nr. 20-22 við Logafold og
25-27 við Hverafold, norðan við Fjörgyn. Gerir tillagan ráð fyrir að svæðinu verði breytt í
bílastæði fyrir allt að 38 bíla. Þá tekur tillagan til hluta af lóð Grafarvogskirkju, á móts við húsin
að Logafold 20-22. Þar er gert ráð fyrir 10 nýjum bílastæðum.
Markmið tillögunnar er að fjölga bílastæðum við kirkjuna í samræmi við óskir íbúa þar um.
Grafarholt, austursvæði, breyting á deiliskipulagi Grafarholts austan
Jónsgeisla og Þorláksgeisla.
Tillagan tekur til austursvæðis Grafarholts þ.e. svæðisins austan Jónsgeisla og Þorláksgeisla.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að íbúðum á svæðinu fjölgi úr 751 í allt að 879. Um að ræða fjölgun
íbúða í fjölbýlishúsum á svæðinu. Húsagerðum er fjölgað þannig að húsagerð B breytist í B1,
B2 og B3. Bílastæðakröfu í húsagerðum A, B og C er breytt úr 2 stæðum á íbúð í 1,7. Þá er
gert ráð fyrir að tvær lóðir á svæðinu verði sérstaklega ætlaðar fyrir leiguíbúðir (lóðir með
húsagerðum merktum B2 og B3). Felld eru niður ákvæði um bílastæði neðanjarðar á þeim.
Þá eru lóðarmörk lóðar, austan leikskólans (með húsagerð B3), færð lítillega til austurs á
kostnað leiksvæðis. Lóðin er gerð að einni lóð í stað tveggja, skilmálum og byggingarreitum er
breytt þar sem á henni er gert ráð fyrir þremur húsum fyrir leiguíbúðir. Þar sem um er að ræða
nýtt deiliskipulag gerir tillagan ráð fyrir að eldra deiliskipulag falli úr gildi og tillagan verði
samþykkt í heild að nýju með framangreindum breytingum.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 – 16.00 frá 10. apríl 2002 til 22. maí 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila
skriflega til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 22. maí 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 10. apríl 2002.
Skipulags- og byggingarsvið.
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
HINN 23 ára gamli ungverski
stórmeistari Peter Leko (2.713) sigr-
aði á heimsbikarmótinu í Dubai eftir
að hafa lagt andstæðing sinn, hinn 19
ára rússneska stórmeistara Alexand-
er Grischuk (2.671). Leko hlaut þrjá
vinninga gegn tveimur vinningum
Grischuk. Eftir að báðum atskákun-
um lauk með jafntefli tefldu þeir tvær
hraðskákir. Þeim lauk einnig með
jafntefli. Þá var gripið til bráðabana
þar sem hvítur fékk 5 mínútur en
svartur 4 mínútur til að tefla skákina.
Svörtum dugði hins vegar jafntefli til
að teljast sigurvegari í keppninni.
Það var því ljóst, að úrslitin mundu
velta á þessari einu skák. Það kom
ekki á óvart að það var tíminn sem
réð úrslitum, en Grischuk féll þegar
Leko átti tvær sekúndur eftir á
klukkunni.
Í undanúrslitum sigruðu þeir Leko
og Grischuk sína andstæðinga eftir
framlengingu. Leko sigraði Georgiev
3–2 og Grischuk lagði Shirov 2½–1½.
Sigur Peter Leko var mjög tæpur líkt
og í úrslitunum, en hann átti einungis
sex sekúndur eftir á klukkunni í
bráðabana þegar hann náði að máta
Georgiev.
Þetta atskákmót var að mörgu
leyti sögulegt. Heimsmeistari
kvenna, Zhu Chen, sigraði FIDE-
heimsmeistarann Ruslan Ponomar-
iov í fyrstu umferð. Sigurganga henn-
ar var hins vegar stöðvuð strax í
næstu umferð af Anatoly Karpov sem
sigraði hana örugglega 2–0. Í annarri
umferð missti síðan FIDE-heims-
meistarinn fyrrverandi, Viswanathan
Anand, af lestinni þegar hann tapaði
fyrir Georgíumanninum Zuran
Azmaiparashvili. Það sama henti
reyndar einnig annan fyrrverandi
FIDE-heimsmeistara, Rússann Al-
exander Khalifman, sem tapaði fyrir
Búlgaranum Veselin Topalov. Í
þriðju umferð var síðan komið að
Karpov, sem varð að játa sig sigraðan
eftir að hafa leikið af sér skiptamun
gegn Búlgaranum Kiril Georgiev.
Lokaúrslit mótsins urðu þessi:
1. Peter Leko
2. Alexander Grischuk
3. Alexei Shirov
4. Kiril Georgiev
5. Anatoly Karpov
6. Zurab Azmaiparashvili 7. Vesel-
in Topalov 8. Etienne Bacrot 9. Visw-
anathan Anand 10. Alexander Khal-
ifman 11. Alexey Dreev 12. Teimour
Radjabov 13. Joel Lautier 14. Vassily
Ivanchuk 15. Nigel Short 16. Zhu
Chen
Mótið í Dubai var hið fyrsta í röð
fimm móta af þessu tagi sem FIDE
hefur ákveðið að halda á þessu ári.
Melaskóli marði sigur í æsi-
spennandi Íslandsmóti grunn-
skólasveita í stúlknaflokki
Melaskólinn í Reykjavík vann Ís-
landsmót grunnskólasveita í stúlkna-
flokki, sem fram fór um sl. helgi, eftir
æsispennandi baráttu við Hóla-
brekkuskóla. Melaskóli vann þetta
mót fremur auðveldlega í fyrra en nú
náði sveitin ekki fyrsta sæti fyrr en
eftir lokaumferðina. Sex sveitir tóku
þátt sem er fjölgun frá því í fyrra og
tefldu allar sveitirnar innbyrðis. Teflt
var á fjórum borðum.
Eftir fyrstu tvær umferðirnar var
sveit Digranesskóla efst með 8 vinn-
inga. Hólabrekkuskóli náði hinsvegar
að leggja stúlkurnar úr Kópavogi
3½–½ í þriðju umferð. Eftir það stóð
baráttan milli Hólabrekkuskóla og
Melaskóla. Fyrir síðustu umferð
hafði Hólabrekkuskóli 15 vinninga úr
16 skákum en Melaskóli var með 13½
vinning. Sveitirnar mættust í síðustu
umferð og mátti Hólabrekkuskóli
tapa 1½ –2½ en vinna samt mótið. En
Melaskóla tókst að vinna 3–1 og réði
þar miklu að Hallgerður Þorsteins-
dóttir náði að forðast pattgildru
fyrsta borðs stúlku Hólabrekkuskóla,
Steinunnar Kristjánsdóttur. Þetta
dugði Melaskóla til að vinna eins
nauman sigur og unnt var. Lokastað-
an varð þessi:
1. Melaskóli 16½ v. af 20
2. Hólabrekkuskóli 16 v.
3. Digranesskóli 13 v.
4. Borgarskóli 6½ v.
5. Hamraskóli 5½ v.
6. Víkurskóli 2 ½ v.
Í sigursveit Melaskóla voru Hall-
gerður Þorsteinsdóttir, Hlín Önnu-
dóttir, Hildur Hamíðsdóttir og syst-
urnar Margrét og Eva Þórisdætur. Í
Sveit Hólabrekkuskóla voru Stein-
unn Kristjánsdóttir, Elsa María Þor-
finnsdóttir, Agnes Eir Magnúsdóttir
og Iðunn Eva Magnúsdóttir.
Alls tefldu um um 30 stúlkur í
mótinu sem fram fór í húsnæði Skák-
skóla Íslands. Skákstjóri var Helgi
Ólafsson.
Íslandsmót grunnskólasveita
Íslandsmót grunnskólasveita í
skák 2002 fer fram dagana 12.–14.
apríl. Sigurvegari í þessari keppni
mun öðlast rétt til að tefla í Norð-
urlandamóti grunnskólasveita, sem
haldið verður í Finnlandi í haust. Um-
ferðataflan verður þannig:
1.–3. umf. föstud. 12. apríl kl. 19
4.–6. umf. laugard. 13. apríl kl. 14
7.–9. umf. sunnud. 14. apríl kl. 14
Mótið verður haldið í húsnæði Tafl-
félags Reykjavíkur, Faxafeni 12,
Reykjavík.
Skáksamband Íslands mun veita
aðstoð við skipulagningu vegna
Norðurlandamótsins og greiða fyrir
einn fararstjóra, en fjármögnun er að
öðru leyti á ábyrgð viðkomandi skóla.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á
skrifstofu Skáksambands Íslands alla
virka daga kl. 10–13 í síma 568 9141.
Skráning fer fram í sama síma og
með tölvupósti: siks@simnet.is
SKÁK
Dubai
FIDE GRAND PRIX
2.–9. apríl 2002
Tvær sekúndur réðu úrslitum
Daði Örn Jónsson
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.