Morgunblaðið - 10.04.2002, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 2002 53
DAGBÓK
NÝJA JUNGLE BLOOMS
vor- og sumarlínan 2002
Kvikmyndir sem Max Factor hefur séð um förðun eru m.a. Charlotte Gray, Vanilla Sky, Moulin Rouge,
Bridget Jones’s Diary, Charlie’s Angels, Anna and the King, Notting Hill, Titanic, The English Patient, Evita,
Ever After, Bugsy Malone, Alien, Interview with a Vampire, Midnight Express..
KYNNINGAR
Lyf & heilsa Háaleitisbraut
miðvikudag 10. apríl kl. 14-17
Lyf & heilsa Glæsibæ
fimmtudag 11. apríl kl. 14-17
Förðunarfræðingur veitir
faglega ráðgjöf á
kynningunum
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert vinur vina þinna en
þarft engu að síður að læra
eitt og annað um þolinmæði
og samvinnu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Til þín er leitað með forustu í
ákveðnu máli. Taktu hana að
þér þótt það kunni að kosta
nokkra vinnu því það verður
þér bæði til gagns og gleði.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það getur reynst þér erfitt að
velja úr þá sem þú vilt vinna
með. Þú ættir að gefa þér
góðan tíma því mikið ríður á
samheldni ykkar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Skoðanir sem þú hefur lengi
haldið fram fá nú víðar hljóm-
grunn en þig hafði nokkurn
tíma órað fyrir. Þessu fylgja
skemmtileg kynni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér finnst athygli annarra
óþægileg og allt að því kæf-
andi. Þú þarft þitt olnboga-
rými svo þú getir um frjálst
höfuð strokið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að athuga vel hvern-
ig þú setur hlutina fram því
það skiptir sköpum að allir
skilji hvert þú ert að fara.
Annars gengur ekkert upp.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er úr vöndu að ráða þeg-
ar staðið er frammi fyrir
mörgum möguleikum. Láttu
ekki hugfallast heldur veldu
þér stefnu í rólegheitum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er ákaflega gefandi að
eiga sálufélaga sem skilur þig
og þekkir allar þínar þarfir.
Um leið og þú nýtur þessa þá
skaltu muna að slík vinátta
verður að vera gagnkvæm.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Búðu þig undir óvænt tíðindi
því það er betra að vera
viðbúinn en verða fyrir áfalli.
Þá verður líka eftirleikurinn
auðveldari.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það getur verið gaman að láta
gamminn geisa um allt milli
himins og jarðar en mundu að
viðmælandi þinn kann líka að
hafa margt skemmtilegt fram
að færa.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Grunnurinn þarf að vera góð-
ur til þess að það sem á hon-
um rís sé til frambúðar.
Gefðu þér nægan tíma til að
undirbúa hlutina.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þér finnst einhvern veginn
eins og þú náir ekki til fólks
og ættir því að endurskoða
með hvaða hætti þú talar til
þess. Finndu svo aðra heppi-
legri framsetningu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér líður eins og þú hafir orð-
ið undir valtara en átt nú
samt erfitt með að sjá hvað
olli því. Þú þarft að takast á
við vandann með hetjulund.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HRÚTUR
Árnað heilla
LJÓÐABROT
Ísland
Grænum lauki gróa túnin,
gyllir sóley hlíða syllur,
færa víkur flyðru á vori,
fuglar syngja í Trölladyngjum,
sauðir strjálast hvítir um heiðar,
hossar laxi straumur í fossi,
bella þrumur á brúnum fjalla,
blár er himinn, snarpur er Kári.
Þorleifur Repp
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. f3 e5
7. Rb3 Be6 8. Be3 Rbd7 9.
Dd2 Be7 10. 0-0-0 b5 11. Kb1
Rb6 12. Df2 Rfd7 13. Rd5
Bxd5 14. exd5 Rc4 15. Bxc4
bxc4 16. Rc1 0-0 17. g4 Hb8
18. h4 Da5 19. Re2 Da3 20.
b3 cxb3 21. axb3
Staðan kom upp á Síma-
skákmótinu, minningarmóti
um Dan Hansson,
sem Taflfélagið
Hrókurinn skipu-
lagði. Nick De
Firmian (2.536)
hafði svart gegn
Degi Arngríms-
syni (2.115). 21.
...Hxb3+! 22. cxb3
Dxb3+ 23. Kc1
Hc8+ 24. Kd2
Db4+ 25. Rc3
Slæmt væri að
leika 25. Kd3 þar
sem hvítur yrði
mát eftir 25.
...e4+ 26. fxe4
Re5#. Í framhald-
inu reynist sókn svarts hvít-
um of skeinuhætt. 25.
...Hxc3 26. Ke2 Rf6 27. Bd2
Rxd5 28. Bxc3 Rxc3+ 29.
Kd3 Rxd1 30. Hxd1 d5 31.
Ke2 Dc4+ 32. Ke1 Bb4+ og
hvítur gafst upp.
Skák
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
HIN tæknilega úrvinnsla í
sex spöðum suðurs er ekki
flókin – tveir möguleikar
blasa við: 3-3 lega í tígli eða
svíning fyrir hjartakóng.
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ ÁD72
♥ 9862
♦ ÁK94
♣K
Suður
♠ KG10864
♥ ÁD
♦ D76
♣D5
Vestur Norður Austur Suður
– 1 tígull Pass 1 spaði
Pass 3 spaðar Pass 4 hjörtu
Pass 6 spaðar Allir pass
Vestur trompar út og
sagnhafi aftrompar AV og
prófar tígulinn. En það kem-
ur í ljós að austur valdar lit-
inn, hefur byrjað með tíuna
fjórðu. Er þá nokkuð annað
að gera en að svína hjarta-
drottningu?
Það er eini tæknilegi
möguleikinn til vinnings, en
hins vegar sakar ekki að
taka mannlega þáttinn með í
reikninginn og leggja gildru
fyrir vestur:
Norður
♠ ÁD72
♥ 9862
♦ ÁK94
♣K
Vestur Austur
♠ 53 ♠ 9
♥ K1054 ♥ G73
♦ G3 ♦ 10852
♣ÁG764 ♣109832
Suður
♠ KG10864
♥ ÁD
♦ D76
♣D5
Fjórði tígullinn er tromp-
aður og laufdrottningu spil-
að að heiman! Vestur tekur
slaginn með ás og ef hann
trúir því að laufdrottningin
sé stök gæti hann óttast að
spila laufi í tvöfalda eyðu og
sent hjarta upp í gaffalinn.
Raunar ætti vestur ekki
að ganga í þessa gildru.
Hann veit að suður á sexlit í
spaða og þrjá tígla. Ef lauf-
drottningin er stök, þá á
suður þrílit í hjarta og græð-
ir ekkert á útspili í tvöfalda
eyðu. En tilraun sagnhafa er
góð, eftir sem áður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 10.
apríl, er sextugur Þorvaldur
Jónasson, Vesturbergi 183,
Reykjavík, kennari við
Réttarholtsskóla. Hann
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 10.
apríl, er Magnús Karel
Hannesson, sviðsstjóri
rekstrar- og útgáfusviðs
Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, fimmtugur. Af
því tilefni ætlar hann
ásamt eiginkonu sinni,
Ingu Láru Baldvinsdóttur,
deildarstjóra myndadeild-
ar Þjóðminjasafns Íslands,
og syni, Baldvin Karel, að
taka á móti vinum og
vandamönnum í samkomu-
húsinu Stað á Eyrarbakka
föstud. 12. apríl kl. 20 til
23. Rútuferð verður úr
Reykjavík kl. 19 frá Fé-
lagsstofnun stúdenta með
viðkomu á bensínstöðvum
Skeljungs við Kringluna og
við Vesturlandsveg.
40 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 10.
apríl, er fertugur Níels
Harðarson, Háaleitisbraut
18. Hann og eiginkona hans
Sigrún Birgisdóttir taka á
móti gestum að heimili sínu
milli kl. 19–21 í dag.
Borgfirðingar
reyna með sér
Föstudagskvöldið 5. apríl spiluðu
Bridsfélag Borgarness og Bridsfélag
Borgarfjarðar sinn árlega keppnis-
leik. Sjö sveitir spiluðu frá hverju fé-
lagi og er langt síðan keppnin hefur
verið jafnfjölmenn. Spilað var í
Skuggaborg í Borgarnesi og var
ekkert gefið eftir í glæsilegum veit-
ingum. Sjálf keppnin var hins vegar
lítt spennandi, slíkir voru yfirburðir
Borgnesinga. Þeir sigruðu með 147
stigum gegn 51. Það var einungis
sveit Hrefnu Jónsdóttur sem hafði
sigur á Borgnesingum, en þess má
geta að Hrefna er aðeins 12 ára.
Eins og jafnan þegar þessi lið
mætast er stutt í gleðina. Jón Þ.
Björnsson Borgnesingur er lista-
tækifærisskáld og í hálfleik var hann
krafinn um vísu. Hann spilaði á
fyrsta borði með landsliðskonunum
Öldu og Dóru og einhver hafði á orði
að sjálfur væri Jón sjálfkjörinn í
hvaða landslið sem væri. Þegar vísan
kom ekki strax var hann krafinn með
þessari vísu:
Nú er ég farinn að vilja vísu
vandlega gerða, strax.
Ekki eins og tvítuga togaraýsu
heldur tuttugu punda lax.
Þá svaraði Jón:
Landsliðssveitin sýnist mér
sigra eins og vera ber.
Þar er Jón Ágúst og þar erum vér,
„þetta er ungt og leikur sér“.
Þegar Kristján Snorrason heyrði
kveðskapinn varð honum hugsað til
þess að einn af andstæðingum Jóns
var Örn Einarsson bóndi í Miðgarði.
Þá sagði Kristján:
Á fyrsta borði var feikna törn,
fannst í hverju spili vörn.
Þar var Jón Ágúst og þar var Örn,
„þeir eru ekki lengur börn“.
Eftir þessa vísu Kristjáns kvödd-
um við Borgfirðingar og héldum út í
vornóttina, ákveðnir í að gera betur
að ári.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Bridsfélag
Reykjavíkur
Föstudaginn 5. apríl var spilaður
einskvölds Mitchell-tvímenningur
með þátttöku 22 para.
Í efstu sætum í norður-suður
lentu:
Jón St. Ingólfsson – Freyja Sveinsd. +54
Guðlaugur Bessason – Eyþór Haukss. +37
Þórður Sigfússon – Eggert Bergsson +26
Hallgrímur Hallgr. – Guðni Hallgrímss. +20
Í efstu sætum í austur-vestur
lentu:
Guðlaugur Sveinsson – Jón Stefánss. +42
Björn Árnason – Jakob Haraldsson +33
Unnur Sveinsd. – Inga Lára Guðm. +12
Hafþór Kristjánss. – Rafn Thorarensen +12
Spilaðir eru einskvölds tvímenn-
ingar á föstudögum og hefst spila-
mennskan kl. 19.00.
Að tvímenningnum loknum hefst
svo miðnætursveitakeppni fyrir þá
sem vilja.
Allir eru velkomnir. Aðstoðað er
við myndun para ef þess er óskað.
Íslandsmótið
í paratvímenningi
Mótið verður spilað í hátíðasal
Gagnfræðaskólans á Siglufirði
helgina 13.–14. febrúar.
Þetta er eitt vinsælasta mót ársins
og búist við góðri mætingu á Siglu-
fjörð enda eru Siglfirðingar góðir
heim að sækja.
Spilamennska hefst kl. 11 báða
dagana. Spilaður er barómeter, allir
við alla en fjöldi spila fer eftir þátt-
töku. Keppnisstjóri er Björgvin Már
Kristinsson.
Spilarar eru hvattir til að panta
gistingu tímanlega: Hótel Lækur, s.
467 1514, Gistiheimilið Hvanneyri,
467 1378.
Skráning í s. 587 9360 eða
www.bridge.is
Félag eldri borgara
í Hafnarfirði
Eldri borgarar í Hafnarfirði spila
brids, tvímenning, í Hraunseli,
Flatahrauni 3, tvisvar í viku, á
þriðjudögum og föstudögum. Það
vantar fleira fólk í brids. Mæting kl.
13:30.
Spilað var 2. apríl. Þá urðu úrslit
þessi:
Sævar Magnússon - Árni Bjarnason 95
Jón V. Sævaldsson - Guðm. Guðmundss. 92
Guðni Ólafsson - Kjartan Elíasson 91
Jóna Kristjánsd. - Sveinn Jensson 83
5. apríl:
Sigurlína Ágústsd. - Guðm. Guðmundss. 163
Sævar Magnússon - Árni Bjarnason 148
Jón Ó. Bjarnason - Jón R. Guðmudsson 121
Hera Guðjónsdóttir - Árni Guðmundss. 119
50 ÁRA afmæli. Í gær,þriðjudaginn 9. apríl,
varð fimmtug Þórkatla Þór-
isdóttir kennari og fé-
lagsráðgjafi. Hún verður
með opið hús fyrir vini og
vandamenn í Húnabúð,
Skeifunni 11, föstudags-
kvöldið 12. apríl kl. 20.30.
Ég veit hvað geng-
ur að manninum
mínum. En hann
vill endilega að þú
skoðir hann líka.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 10.
apríl, er fimmtugur Guð-
mundur Stefánsson land-
búnaðarhagfræðingur,
Hlíðarvegi 66, Kópavogi.
Hann og eiginkona hans
Hafdís Jónsdóttir eru á far-
aldsfæti í dag og er dvalar-
staður ókunnur.