Morgunblaðið - 28.04.2002, Page 12

Morgunblaðið - 28.04.2002, Page 12
12 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ FÆREYINGAR ganga til mjög mikilvægra kosninga á þriðjudag. Snúast þær umfram annað um þjóðréttarlega stöðu landsins, hvort það verði áfram hluti af danska ríkinu eins og Sam- bandsflokkurinn vill, eða hvort lýst verði yfir sjálfstæði sem fyrst eins og Þjóðveldisflokkurinn berst fyr- ir. Talsmenn þessara tveggja flokka leggja áherslu á, að um þetta snúist kosningarnar og ann- að ekki en jafnaðarmenn vilja, að kjósendur taki einnig afstöðu til ýmissa samfélagsmála. Vísa þeir í því sambandi til góðrar stöðu rík- issjóðs en staða hans vegur einnig þungt í umræðunni um sjálfstæð- ismálin. Skoðanakannanir sýna, að nokk- uð jafnt er með fylkingunum, sem vilja ýmist áframhaldandi sam- band við Danmörk eða lýsa yfir fullveldi eyjanna. Þær fá 15 þing- menn hvor. Að núverandi stjórn standa Fólkaflokkurinn með An- finn Kallsberg í broddi fylkingar, Þjóðveldisflokkurinn undir forystu Høgna Hoydals og Sjálfstjórnar- flokkurinn en formaður hans er Eyðun Elttør. Stóru stjórnarand- stöðuflokkarnir, sem vilja halda sambandinu við Danmörk, eru Sambandsflokkurinn með Lisbeth L. Petersen í forystu og Jafnaðar- flokkurinn með Jo- annes Eidesgaard við stýrið. Hugsanlegt er, að Miðflokkurinn, sem er spáð tveimur þingmönnum, komist í oddaaðstöðu eftir kosningar. Hann leggur áherslu á, að þjóðréttarleg staða landsins skipti ekki öllu máli, heldur hitt að bæta lífskjörin. Hatrömm deila klýfur þjóðina Síðasta skoðana- könnun, sem birt var á fimmtudag, sýnir, að sjálfstæð- issinnar hafa örlítið forskot í pró- sentum, 51,7%, en þá höfðu 13% kjósenda ekki gert upp hug sinn. Langflestir flokkanna sex telja, að fá verði einhvern botn í deiluna um þjóðréttarlega stöðu landsins á næsta kjörtímabili. Lisbeth L. Petersen, leiðtogi Sam- bandsflokksins, bendir á, að hún standi í vegi fyrir umræðu um önnur mikilvæg mál en þótt hún sé hlynnt sambandinu við Dan- mörku vill hún og hennar flokkur breyta því í takt við nýja tíma, meðal annars með því, að Fær- eyingar taki smám saman á sínar herðar ýmis mál, sem nú eru í höndum Dana. Høgni Hoydal og Þjóðveldis- flokkurinn stefna að sjálfstæði eft- ir fimm ár og vilja, að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um fær- eyska stjórnarskrá fyrir lok næsta kjörtímabils. Samstarfsflokkar Þjóðveldis- flokksins í stjórn, Fólkaflokkurinn og Sjálfstjórnarflokkurinn, vilja raunar fara sér hægar í sjálfstæð- ismálunum en hann. Kallsberg, leiðtogi Fólkaflokksins, segir, að sjálfstæði og efnahagslegt öryggi verði að fara saman og hann telur ekki rétt að stefna að sjálfstæði á allra næstu árum. Jafnaðarmenn, sem leggja mikla áherslu á félagsmálin, vilja ný sjálfstjórnarlög fyrir Færeyjar en að sambandinu við Danmörku verði ekki slitið. Telur Eidesgaard, leiðtogi þeirra, að fá verði ein- hverja niðurstöðu í þessu máli enda ekki viðunandi, að þessi ágreiningur yfirskyggi allt annað í samfélaginu árum saman. Segist hann viss um, að miðjuflokkarnir geti komið sér saman um þetta og vísar þá til Sambandsflokksins, Sjálfstjórnarflokksins og nokkru til Fólkaflokksins. Honum finnst hins vegar ólíklegt, að jafnaðar- menn og þjóðveldismenn geti orðið ásáttir í þessu máli. Sterk staða landssjóðsins Í kosningabaráttunni hafa jafn- aðarmenn lagt áherslu á kjör aldr- aðra og á mennta- og heilbrigð- ismál. Afkoma færeyska landssjóðsins hefur aldrei verið betri en á síðasta ári og á hann nú í handraðanum um 30 milljarða ísl. kr. Heldur stjórnarandstaðan því fram, að hin hliðin á afganginum sé niðurnídd sjúkrahús og mikill skortur á húsnæði fyrir aldraða en Þjóðveldisflokkurinn fullyrðir á móti, að stjórnarandstaðan muni tæma landssjóðinn, komist hún til valda. Kjósendur í kosningunum á þriðjudag eru 33.357 og langflestir eða 12.578 á suðurhluta Straum- eyjar, í Þórshöfn og nágrenni. Minnsti kjörstaðurinn er Syðri- Dalur á Kallsey. Þar eru kjós- endur sjö. Mikilvægar kosningar í Færeyjum á þriðjudag Sjálfstæðismál- in í brennidepli Morgunblaðið/Þorkell Þórshöfn. Meira en þriðjungur kjósenda býr þar og í næsta nágrenni. Høgni Hoydal Joannes Eidesgaard Þórshöfn. Morgunblaðið. Jafnræði með stjórn og stjórn- arandstöðu í könnunum GALÍNA Margojeva býr á áttundu hæð háhýsis í úthverfi Kabúl, höf- uðborgar Afganistans. Byggingin er litlaus steinkumbaldi, afar lík húsum sem finnast víðast hvar í löndum er áður tilheyrðu Sov- étríkjunum. Margojeva hefur hins vegar ekkert út á híbýli sín að setja. Raunar er hún fyllilega sátt við að búa í einmitt slíkum stein- kumbalda – ef aðeins það væri ekki hér heldur alls annars stað- ar. Margojeva er 35 ára gömul. Hún er af rússnesku bergi brotin. Hún kom til Afganistans fyrir fjórtán árum þegar Sovétríkin voru ennþá til og stríðsrekstur þeirra í Afganistan um það bil að fjara út. Margojeva ílengdist og hefur marga fjöruna sopið. Lifði af blóðuga borgarastyrjöld og valdatíma talibana í landinu. Núna þarf hún hins vegar að sætta sig við að stjórnvöld í Moskvu, sem hún áleit sína höf- uðborg, vilja ekkert með hana hafa; hún er ríkisfangslaus. Vandi Margojevu er sá að ná- grannar hennar í Blakhay Qasaba Kargari-hverfinu í Kabúl líta á hana og börn hennar sem svarinn óvin. Raunar hefur tveggja her- bergja íbúð í háhýsinu marg- umtalaða verið henni sem fangelsi um margra ára skeið. Þar hefur hún haldið sig og í tíð talibana þorði hún ekki annað en fela allt sem minnti á uppruna hennar, s.s. bókmenntir eins og meistaraverk Tolstojs, Önnu Karenínu. Getu hennar til að tala móð- urmál sitt, rússnesku, hefur hrak- að, dari – sem töluð er alls staðar í kringum hana – hefur smám saman tekið við. Allt er þetta afleiðing ástar hennar á afgönskum manni. Hugðust eyða ævinni í Sovétríkjunum Margojeva er af rússnesku bergi brotin en fæddist í Tadjík- istan, einu sovétlýðveldanna fyrr- verandi sem landamæri á að Afg- anistan og sem nú er sjálfstætt ríki. Margojeva kynntist verðandi eiginmanni sínum, Haji Hussein, um miðjan níunda áratuginn en hann var þá við nám í Tadjíkistan. Þau hugðust eyða ævi sinni í Sov- étríkjunum. Hussein þurfti hins vegar að hverfa aftur til Afganistans að námi loknu og gat síðan ekki snú- ið til baka sökum stríðsins sem geisaði. Stjórnin í Kabúl, sem hliðholl var sovéska innrás- arhernum, hafði þá skikkað Huss- ein til að berjast gegn skæruliðum mújaheddín og þar við sat. Ákvað Margojeva að elta eig- inmann sinn til Kabúl árið 1987. Þar er hún enn, umkringd fólki sem fyrirlítur hana. Aldrei hefur hún litið á Afganistan sem heimili sitt. Tilraunir Margojevu og bónda hennar til að komast aftur til Sov- étríkjanna fóru í upphafi út um þúfur vegna peningaleysis hjónanna. Síðar gerði það þeim erfitt fyrir að Sovétmenn höfðu lokað sendiráði sínu í Kabúl eftir að herinn yfirgaf landið 1989. Núna er svo komið að vegabréf Margojevu er útrunnið. Börnin uppnefnd Margojeva þorir sjaldnast að ferðast of langt frá íbúð sinni. Hún þekkir aðeins örfáa og á enga vini. Orðrómur um að barið sé á konum, sem voga sér að vera utandyra án búrku til að hylja andlit sitt, vekur hjá henni ugg. „Þegar ég notaði búrkuna í fyrsta sinn fannst mér niðurlæging mín alger. Það var eins og ég væri neydd til að setja poka á höfuðið. Líkt og að konur séu ekki mennskar,“ segir hún. Margojeva á tvö börn með manni sínum; synirnir Farid og Khomed eru rússneskir í útliti en bera afgönsk nöfn á meðan dætur hennar, Lína og Marína, bera rússnesk nöfn en líta út fyrir að vera afganskar. Margojeva hefur nú orðið jafn mikla ímugust á nágrönnum sín- um og þeir á henni og kemur það ekki til af góðu. Stundum hafa þeir sturtað rusli við inngang íbúðar hennar, til að sýna andúð sína, og fjögur börn hennar mega una því að vera uppnefnd „shur- avi“ – en það voru sovésku her- mennirnir kallaðir sem hernámu landið á níunda áratugnum. Sagt að gerast Afgani Í mars á þessu ári keyptu þau hjón sjónvarp, komu gervi- hnattamóttakara fyrir á húsþak- inu – sem aldrei hefði verið heim- ilað í tíð talibana – og gátu í fyrsta skipti í tíu ár horft á rúss- neskt sjónvarp. Fögnuður Margoj- evu var mikill. Þegar Rússar opnuðu sendiráð í Kabúl í desember sl. flýtti hún sér þangað í því skyni að komast yfir vegabréf svo að hún og fjölskylda hennar gætu yfirgefið Afganistan. Henni var hins vegar tjáð að tím- inn hefði séð til þess að hún hefði fyrirgert rússneskum ríkisborg- ararétti sínu. Hún væri rík- isfangslaus. Var henni sagt að hún yrði fyrst að gerast afganskur rík- isborgari áður en hún gæti sótt um rússneskt ríkisfang á ný. „Ég trúði ekki mínum eigin eyr- um. Ég sagði við þá að mig lang- aði ekki til að gerast afganskur ríkisborgari. Ég hefði búið við þennan hrylling í fjórtán ár og alla tíð beðið þess að Rússar opn- uðu hér sendiráð svo ég gæti yf- irgefið þennan stað. Nú þegar þeir voru loksins komnir, þá sögðu þeir mér að gerast Afgani!“ Margojeva gaf sig ekki og var á endanum leyft að sækja um rúss- neskt ríkisfang. Hún bíður nú úr- skurðar frá Moskvu. Saga hennar er ekki ósvipuð fjölda Rússa sem bjuggu í öðrum lýðveldum Sov- étríkjanna við fall þeirra 1991. Mörgum þeirra tókst hins vegar að flytjast búferlum til Rússlands – ólíkt Galínu Margojevu. Los Angeles Times/Júrí Kozyrev Galína Margojeva, önnur frá vinstri, með börnum sínum, Línu, Marínu, Farid og Khomed. Ríkisfangslaus meðal óvinveittra Kabúl. Los Angeles Times. ’ Ég sagði við þá að mig langaði ekki til að gerast afganskur ríkisborgari. ‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.