Morgunblaðið - 28.04.2002, Side 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 57
Kramhússins í samvinnu
við Listahátíð í Reykjavík
11.-16.maí
sími 551 5103
www.tango.is
Tangónámskeið
Argentínskir dansarar úr sýningu
Cenizas de Tango og kennarar
Kramhússins kenna.
Byrjenda- og framhaldshópar.
Tangóball
Glæsilegt lokaball með hljómsveit
Reynis Jónassonar í Hafnarhúsinu
16. maí, kl. 22.00. Opið öllum.
ÞÁ eru Dolores O’Riordan og fé-
lagar í Cranberries búin að fá
kassameðferðina eins og svo marg-
ir aðrir. Eitt sinn voru þetta for-
réttindi ráðsettra listamanna eins
og Bítlanna og Dylans en nú virðist
önnur hver sveit lenda í þessari yf-
irhalningu.
Fjársjóðskistan eða The Treasue
Box inniheldur fjórar fyrstu plötur
Cranberries, Everybody Else Is
Doing It..., No Need to Argue, To
the Faithful Departed og Bury The
Hatchet í nýjum, íburðarmiklum
umslögum og með bættum, staf-
rænum hljómi. Að auki prýðir plöt-
urnar fjöldinn allur af óútgefnum
lögum.
Já, traust og trúverðug trönuber
þar á ferð, það má nú segja!
Dolores O’Riordan er söngkona
Cranberries.
Cranberries í kassa
SIGMAR Vilhjálmsson er 25 ára
gamall og frá Egilsstöðum, sonur
Vilhjálms Egilssonar, ólympíu-
bronshafa, og bróðir Einars spjót-
kastara. Eftir að hafa flutt pistla á
Rás 2 hófst ferillinn fyrir alvöru
1998 á útvarpstöðinni Mono 887.
Tók við morgunþættinum ásamt fé-
laga sínum Jóhannesi Ásbjörns-
syni í janúar 1999 en þeir færðu
sig yfir á skjáinn og byrjuðu með 70
mínútur á PoppTíví í október 2000.
Hvernig skyldi Sigmar hafa það?
Ég hef það gott, takk fyrir.
Hvað ertu með í vösunum?
Þúsundkall og lottómiða í rassvas-
anum, annars þoli ég ekki að vera
með eitthvað í vösunum.
Er mjólkurglasið hálftómt eða
hálffullt?
Hálffullt. Búinn með Brian Tracy og
Dale Carnegie þannig að það væri
hrein heimska að klikka á þessu!
Ef þú værir ekki sjónvarpsstjarna
hvað vildirðu þá helst vera?
Kennari - ef þeir nytu sömu virð-
ingar og í byrjun síðustu aldar - og
það topp kennari. Þeir eru bara því
miður alltof lágt launaðir.
Hefurðu tárast í bíói?
Auðvitað ætti ég að segja nei, en
fyrst við erum að tala saman undir
fjögur augu þá hef ég tárast. Síðast
yfir A Beautiful Mind. Verð oft klökk-
ur þegar fólki er sýnd virðing og við-
urkenning. Ekki segja neinum ...!
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Ef Stuðmenn í Atlavík telst til tón-
leika eru það mínir fyrstu. Var 8 ára
og Ringo Starr á svæðinu. Þetta
var „mega“-uplifun. Græddi líka 8
þúsund kall á að safna flöskum.
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Samviskusamur, metnaðargjarn,
hreinskilinn, skipulagður, nautna-
seggur.
Hver var síðasta bók sem þú last
tvisvar?
Hámarks árangur eftir Brian Tracy.
Og ég beiti „samlokunni“ óspart!
Hvaða lag kveikir blossann?
„Trouble“ með Coldplay.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Pottþétt Partý ... já og ekki hlæja!
Ég var í sumarbústað á Suðurlandi
og það vantaði tónlist. Fór því til
Hveragerðis og keypti þennan disk.
Hvert er þitt mesta prakkara-
strik?
Jólin 1986, allir bræðurnir komu
heim í Egilsstaði með fjölskylduna
(eins og í Home Alone). Þegar kom-
inn var tími á möndlugrautinn
fengu allir möndlu! Mamma skildi
ekki neitt, en ég var búinn að setja
18 möndlur í grautinn áður en hann
var borinn fram.
Hver er furðulegasti matur sem þú
hefur bragðað?
Í Portúgal nú um páskana fékk ég
mér froskalappir í forrétt og steikt-
an strút í aðalrétt. Mjög sérstakt
kjöt en rosalega gott. Þetta var á
veitingastaðnum Fabio’s í Algarve.
Mæli með honum.
Hverju sérðu mest eftir í lífinu?
Að hafa verið formaður ÍME ...!
Lærði reyndar mikilvæga lexíu þar.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já, ég held að það bíði okkar eitt-
hvað fallegt. „Game Over“ er bara í
tölvuleikjum. Annars er pottþétt
dauði eftir lífið.
Ég væri topp kennari
SOS
SPURT & SVARAÐ
Sigmar
Vilhjálmsson
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
Nicolas Cage er ömurlegur. Ókei,
hann var fínn í The Rock, en annars
er hann alltaf eins. Ég meina, hver
giftist fyrrverandi konu Michaels
Jacksons?
Hver er þinn helsti veikleiki?
Erfitt að velja úr - allir svo skemmti-
legir. Ég er dómharður og oft full
kröfuharður á mína nánustu (sér-
staklega vinnufélaga).
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Þetta er eins og að biðja rós um að
velja milli sólar og vatns. Ég get
ekki valið á milli. Jói félagi minn er
samt með bítlasjó á Hverfisbarnum
á fimmtudögum og það er snilld.