Morgunblaðið - 28.04.2002, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 51
DAGBÓK
Frambjóðendur
til sveitastjórnarkosninga
Rafræn kynning á stefnumiðum
sjá: www.vefkort.is/frambod
upplýsingar og verðskrá: vefkort@vefkort.is
Sandarar
Árshátíðin verður 4. maí nk.
Skuldabréf
1. og 2. flokkur 2002
á Verðbréfaþingi Íslands
Verðbréfaþing Íslands hefur samþykkt að taka
skuldabréf Sparisjóðsins í Keflavík á skrá.
Bréfin verða skráð 2. maí næstkomandi.
Helstu upplýsingar um 1. flokk 2002:
Nafnverð heildarútgáfu skuldabréfanna er allt að kr.
500.000.000 og eru bréfin skráð í 5.000.000 kr.
einingum
og eru kr. 100.000.000 þegar seldar.
Útgáfudagur 1. apríl 2002.
Grunnvísitala Vísitala neysluverðs í apríl 2002, 221,8 stig.
Lánstími Bréfin í flokknum eru til 5 ára með
árlegum greiðslum vaxta, fyrst þann
1. apríl 2003 og sú síðasta, ásamt
höfuðstól þann 1. apríl 2007. Engin
uppsagnarákvæði eru í bréfunum.
Helstu upplýsingar um 2. flokk 2002:
Nafnverð heildarútgáfu skuldabréfanna er
kr. 250.000.000 og eru bréfin skráð í 5.000.000 kr.
einingum.
Útgáfudagur 1. apríl 2002.
Grunnvísitala Vísitala neysluverðs í apríl 2002, 221,8 stig.
Lánstími Bréfin í flokknum eru greidd með jöfnum
greiðslum (annuitet) auk verðbóta á 25
árum með 25 afborgunum, fyrsta þann
1. apríl 2003 og í síðasta sinn þann 1. apríl
2027. Bréfin í flokknum eru innkallanleg,
fyrst 1. apríl 2005 og síðan á þriggja ára
fresti eftir það.
Skráningarlýsingar og önnur gögn s.s. samþykktir
og síðasta ársreikning er hægt að nálgast hjá
umsjónaraðila skráningarinnar; Sparisjóðnum í Keflavík,
Tjarnargötu 12, 230 Keflavík.
Auktu styrk þinn
Upplýsingar í síma 553 3934 og 897 7747.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
til að ná betri stj
órn á
lífi þínu og líðan
5 kvölda námskeið í Reykjavík
þann 1.-2. maí., 7.-8. maí. og 14. maí.
Námskeið til sjálfshjálpar í uppbyggingu á
persónustyrk þínum þar sem þú finnur út:
• Hver þú ert.
• Hvað þú getur.
• Hvað þú vilt og vilt ekki.
• Hvert þú vilt stefna.
Sérnámskeið fyrir unglinga 13-16 ára.
Námskeiðinu verður svo fylgt eftir með mánaðarlegum
fræðslu- og vinnufundum.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert áreiðanleg og trygg
manneskja. Þú ert óvenju
ákveðin(n) og hættir sjaldn-
ast við nokkuð af því sem þú
tekur þér fyrir hendur. Í ár
gæti eitthvað sem þú hefur
átt þátt í síðastliðin níu ár,
liðið undir lok.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þín á hvatvísum inn-
kaupum því þau geta komið
þér í vandræði. Þér hættir til
að eyða í vitleysu því það virð-
ist spennandi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagurinn í dag er kjörinn til
að reyna eitthvað nýtt og
kynnast nýju fólki. Þú þarft
ekki að leita langt yfir skammt
til að þetta gerist.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn í dag er kjörinn til
að takast á við gamalt vanda-
mál sem þér hefur ekki tekist
að leysa. Reyndu að nálgast
vandamálið frá nýrri hlið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Óvæntar hugmyndir koma
fram í samskiptum þínum við
aðra, jafnvel gamla vini sem
þú telur þig þekkja til hlítar.
Þetta staðfestir að þú gjör-
þekkir aldrei aðra manneskju.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú gætir átt spennandi sam-
ræður eða jafnvel vægt rifrildi
við maka þinn. Ef þú sýnir
sveigjanleika gæti þér þótt
þetta upplífgandi en ef þú sýn-
ir stífni mun þér sjálfsagt líða
illa yfir þessu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það verður truflun á hefð-
bundnum störfum þínum.
Þessi töf getur annað hvort
reynst þér ánægjuleg og
spennandi eða valdið pirringi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Leynilegt daður kryddar til-
veruna hjá þér í dag. Aðdáun
sem önnur manneskja sýnir
þér fyllir þig sjálfstrausti og
þú nýtur hennar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Eitthvað óvenjulegt og spenn-
andi brýtur upp daginn hjá
þér. Það er líkt og þú haldir af
stað í ákveðna átt en endar svo
allt annars staðar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samræður við samstarfsfólk
koma þér á óvart í dag. Þú
verður hissa að komast að því
að þú hefur vanmetið frum-
lega hugsun einhvers sem þú
hélst að þú þekktir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú færð óvænt tækifæri til að
skemmta þér. Þú skalt fyrir
alla muni grípa það.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Óvænt innkaup fyrir heimilið
munu gleðja þig í dag. Þessi
kaup geta verið allt frá nú-
tímalist til tækninýjungar.
Hver svo sem þau eru þá
munu þau lífga upp á heimilið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ert óvenju hress í anda í
dag. Þú heillast af öllum nýj-
um fyrirbærum sem verða á
vegi þínum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
ÍSLAND
Ísland, þér ætlar að hnigna,
eru þar merki til,
manndyggð og dugur vill digna,
dofna því laganna skil;
guð gæfi, að þú nú þekkir
(það er ósk hjarta míns)
fyrr en hefnd stærri hnekkir,
hvað heyrir til friðar þíns.
Hallgrímur Pétursson
LAUFDROTTNINGIN á
hug og hjarta sagnhafa í
slemmunni hér að neðan.
Settu þig í hans spor:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 98
♥ ÁDG6
♦ K96
♣ÁG97
Suður
♠ Á
♥ K10972
♦ Á82
♣K1054
Vestur Norður Austur Suður
-- -- Pass 1 hjarta
3 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu
5 spaðar 6 hjörtu Allir pass
Eftir þessar sviptingar í
sögnum spilar vestur út
smáum tígli. Sagnhafi tekur
tíu austurs með ás og af-
trompar vörnina í þremur
umferðum, en það sýnir sig
að vestur hefur byrjað með
þrjú hjörtu. Næst er tígli
spilað að blindum og það
kemur ekki á óvart þegar
vestur hendir spaða í þann
slag. Hvert er nú framhald-
ið?
Ef við sláum því föstu að
vestur sé með sjölit í spaða
þá er skipting hans 7-3-1-2.
Austur er sem sagt með þrjú
lauf og samkvæmt því ætti
hann að vera líklegri til að
halda á laufdrottningunni.
Sem markar þá stefnuna í
lauflitnum.
En með einum litlum
millileik er hægt að tryggja
vinning þó að vestur sé með
Dx í laufi. Sagnhafi trompar
spaða áður en hann spilar
laufi á ás og svínar tíunni til
baka:
Norður
♠ 98
♥ ÁDG6
♦ K96
♣ÁG97
Vestur Austur
♠ KDG7542 ♠ 1063
♥ 853 ♥ 4
♦ 7 ♦ DG10543
♣D3 ♣862
Suður
♠ Á
♥ K10972
♦ Á42
♣K1054
Vestur fær vissulega slag
á laufdrottningu, en verður
að spila spaða í tvöfalda
eyðu, en þá hverfur tapslag-
urinn í tígli.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Svipmyndir – Fríður
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 23. mars sl. í Grafarvogs-
krikju af sr. Vigfúsi Þór Árnasyni Edda Guðrún Heiðars-
dóttir og Stefán Ragnar Magnússon. Heimili þeirra er í
Álfaborgum 7.
Árnað heilla
1. g3 Rf6 2. Bg2 d5 3. Rf3 g6
4. c4 Bg7 5. cxd5 Rxd5 6.
O-O O-O 7. Rc3 c5 8. Rxd5
Dxd5 9. d3 Rc6 10. Be3 Bxb2
11. Hb1 Bg7 12. Da4 Rb4 13.
Rg5 Dd8 14. Bxc5 Rd5 15.
Bxd5 Dxd5 16. Bxe7 Bd7 17.
Dh4 h6 18. Re4 Bc6 19. Bxf8
Hxf8 20. f3 Dxa2 21. Hfe1
He8 22. g4 a5 23. Df2 Dd5
24. Kf1 a4 25. Hed1 a3 26. d4
Staðan kom upp á alþjóð-
legu móti í Argentínu sem
lauk fyrir skömmu í Pinam-
ar. Pablo Ricardi
(2.544) hafði svart
gegn goðsögninni
Bent Larsen
(2.486). 26...Hxe4!
27. fxe4 Dxe4 28.
Hd3 Staða hvíts
hefði einnig orðið
erfið eftir 28. Ke1
Ba4 en það hefði
boðið upp á betri
möguleika en texta-
leikurinn. Fram-
haldið varð:
28...Dh1+ 29. Dg1
Dxg1+ 30. Kxg1
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Be4 31. Hxa3 Bxb1 32. e3
Be4 33. Ha5 Kf8 34. d5 Ke7
35. Hb5 Kd6 36. Hxb7 Bxd5
37. Ha7 Be5 38. h3 Bg3 39.
Kf1 Ke5 40. He7+ Be6 og
hvítur gafst upp. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1.-3.
Pablo Zarnick (2.493), Ivan
Morovic (2.554) og Pablo
Ricardi (2.544) 5½ vinning af
9 mögulegum. 4.-5. Jaime
Sunye Neto (2.531) og And-
res Rodriguez (2.460) 5 v.
6.-7. Sergio Slipak (2.498) og
Dusko Pavasovic (2.547) 4½
v. 8. Georg Mohr (2.509) 4 v.
9. Ruben Felgaer (2.509) 10.
Bent Larsen (2.486) 2½ v.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Með morgunkaffinu
– Afsakið...