Morgunblaðið - 28.04.2002, Side 40
MINNINGAR
40 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"#$%&
✝ Halldóra Sigfús-dóttir fæddist á
Hofströnd á Borgar-
firði eystra 26. júní
1909. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Eir 16. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Valborg
Elísabet Svensdóttir
Tærgesen og Sigfús
Gíslason, bóndi á
Hofströnd. Halldóra
var alin upp á Hof-
strönd hjá föður sín-
um og eiginkonu
hans, Herborgu Halldórsdóttur, og
var kjördóttir þeirra, en Valborg
var þar einnig við heimilisstörf.
Herborg dó 1935, en Valborg átti
síðan heimili hjá Halldóru dóttur
sinni eftir að hún stofnaði heimili.
Valborg lést 1960. Halldóra átti
eina hálfsystur sammæðra, Inger
Laufeyju Ólafsdóttur, gift Blöndal,
en fóstursystkini átti hún mörg,
sem alin voru upp á Hofströnd
samtíma henni, mörg frá barn-
æsku, bæði skyld og óskyld.
Hinn 17. apríl 1928 giftist Hall-
dóra Halldóri Stefánssyni, þá
bónda og alþingismanni á Torfa-
stöðum í Vopnafirði. Fyrri kona
Halldórs, Björg Halldórsdóttir frá
Skriðuklaustri, lést 1921. Með fyrri
konu sinni átti Halldór fimm börn,
sem öll eru látin. Halldóra var góð-
ur vinur stjúpbarna sinna. Barna-
börn Halldórs voru jafnframt
barnabörn Halldóru og þau köll-
uðu hana ömmu. Þeim Halldóru og
Halldóri varð tveggja barna auðið:
utan af landi. Þá voru daglega
gjarnan 12–15 manns í mat.
Halldóra gekk í barnaskóla á
Bakkagerði. Þá var þar skólastjóri
Þorsteinn M. Jónsson. Einnig sótti
hún skóla á Höfn, sem er næsti bær
utan við Hofströnd. Þar kenndi far-
kennari heimabörnum. Halldóra
fékk síðan menntun hjá skóla-
stjórahjónunum Sigrúnu P. Blön-
dal og manni hennar Benedikti
Blöndal. Þá ráku þau skóla í Mjóa-
nesi. Þetta var skólaárið 1925–26.
Þau Blöndalshjón stofnuðu skól-
ann á Hallormsstað árið 1930. Þær
Sigrún og Halldóra tóku miklu ást-
fóstri hvor við aðra og urðu ævivin-
ir. Halldóra fór einnig í húsmæðra-
skóla í Noregi og bjó þá hjá
föðurbróður sínum Magnúsi og
norskri eiginkonu hans Berthu.
Halldóra var mikil félagsvera og
starfaði að félagsmálum fram eftir
aldri. Sat hún jafnan í stjórn þeirra
félaga sem hún starfaði í og gaf
mikið af sér, svo sem í Félagi aust-
firskra kvenna frá stofnun þess.
Einnig tók hún þátt í stofnun Kven-
félags Laugarnessóknar og starf-
aði þar, uns hún flutti í Háteigs-
sókn 1948. Síðan starfaði hún í
þeirri sókn, bæði í kvenfélaginu frá
stofnun, þar sem hún var stjórnar-
maður, og einnig í sóknarnefnd um
árabil. Þetta var á þeim árum, sem
Háteigskirkja var byggð. Halldóra
var fulltrúi félaganna hjá Banda-
lagi kvenna og sat þar mörg þing.
Halldóra hélt heimili til ársins
1998 er hún flutti á Hjúkrunar-
heimilið Eir. Halldóra hafði yndi af
söng. Hún fékk tilsögn í orgelleik á
Seyðisfirði og síðan leiðsögn hjá
Páli Ísólfssyni.
Útför Halldóru verður gerð frá
Háteigskirkju á morgun, mánu-
daginn 29. apríl, og hefst athöfnin
klukkan 15.
1) Ragnar Stefán, f. 1.
sept. 1929. 2) Herborg
Halldóra, f. 10. sept.
1933. Ragnar er
kvæntur Margréti
Kristínu Sigurðardótt-
ur. Þau eiga Kristínu
Völu, maki Bernhard
J. Wood, Halldór Pál,
maki Jóhanna Hulda
Jónsdóttir, Sigurð
Ragnar, maki Kristín
Magnúsdóttir, og Mar-
gréti Dóru, maki
Hjálmar Gíslason. Þau
eiga sex barnabörn.
Herborg er gift Hreggviði Þor-
geirssyni. Þau eiga Halldóru, maki
Árni Geirsson, Þráin Val, maki
Hugrún Gunnarsdóttir, og Snorra,
maki Olga Björk Guðmundsdóttir.
Þau eiga sjö barnabörn.
Árið sem Halldóra giftist Hall-
dóri var hann skipaður forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins og
Brunabótafélags Íslands. Fluttu
þau Halldóra og Halldór þá heimili
sitt til Reykjavíkur og stóð það þar
síðan. Halldór gegndi þessu starfi
til 1936. Þegar þessar stofnanir
voru aðskildar varð hann forstjóri
Brunabótafélagsins. Hann fór á
eftirlaun 1946. Eftir það stundaði
Halldór ýmiss konar ritstörf, mest
varðandi ættfræði og ritun heim-
ilda um Austurland.
Halldóra rak alla tíð mannmargt
heimili. Vann ekki utan þess, nema
tvö ár, þegar heimili dóttur hennar
og tengdasonar stóð hjá þeim hjón-
um. Um árabil seldi Halldóra fæði
og leigði herbergi námsmönnum
Þegar komið er að kveðjustund
hrannast upp minningar liðinna ára.
Kynni okkar Halldóru stóðu í 50 ár og
fyrir þau vil ég þakka. Það var ekki
hátt á mér risið þegar ég var kynnt
fyrir tengdamóður minni sem við
kveðjum nú.
Ég gerði mér þó enga grein fyrir
því þá, að til mikils var ætlast þegar
einkasonurinn kæmi með heitmey
sína. Mér var vel tekið frá fyrsta degi.
Löngu síðar sagði Halldóra mér að
ég hefði staðist fyrstu prófraunina,
þegar hún bauð mér að reykja, en ég
afþakkaði boðið. Ég var alls óvön að
reykt væri heima hjá mér. Síðar vissi
ég að það var heldur ekki siður á
þessu heimili.
Við Ragnar bjuggum fyrstu hjú-
skaparár okkar erlendis, en þegar
heim kom og ekkert húsnæði var að fá
þá var málið strax leyst, þar sem
henni fannst ekkert sjálfsagðara en
að bæta okkur, sem vorum orðin fjög-
ur, við í heimilishaldið þar, en þar
voru níu manns fyrir. Tíminn sem við
bjuggum með tengdaforeldrum mín-
um var mér lærdómsríkur. Þar lærði
ég mikið í heimilishaldi, sem hefur
komið sér vel um ævina. Það var ekk-
ert mál þó svo 15–20 manns væru í
mat. Þetta var aðeins skipulagsatriði
og þurfti stærri potta. Hún gat töfrað
fram mikinn og góðan mat á ótrúlega
stuttum tíma. Á þessum árum voru
hjá henni skólapiltar í fæði, flestir
ættaðir austan af landi, sem hún var
beðin fyrir af vinum og ættingjum.
Þar tengdist hún vináttuböndum við
marga góða drengi, sem héldu tryggð
við hana ævilangt.
Halldóra giftist 18 ára Halldóri
Stefánssyni alþingismanni, en hann
hafði þá verið ekkjumaður í nokkur ár
og átti fimm börn. Hún var yngri eða
jafnaldra stjúpbörnum sínum. Ég hefi
oft hugsað til þess hve þetta hlýtur að
hafa verið erfitt hlutverk, en það
leysti hún með sóma, varð amma
stjúpbarnanna og langamma barna
þeirra. Þegar ég kom í fjölskylduna
var þetta stór hópur, sem kom saman
á jólum og gladdist saman hjá ömmu
og afa.
Hún var alltaf trausti kletturinn í
fjölskyldunni, vildi öllum vel og alls
staðar koma að liði þar sem hún gat.
Stjórnsöm var hún og hélt vel utan
um alla fjölskylduna, en erfði það ekk-
ert við mig þó svo ég léti stundum illa
að stjórn. Helst vildi hún, þegar
Ragnar þurfti mikið að ferðast, að ég
færi með í hverja ferð. Það var ekki
alltaf mögulegt, en alltaf var hún boð-
in og búin að taka við heimili okkar
þegar við vorum erlendis.
Hún var mikil félagsvera og var
stofnandi og starfaði mikið með Fé-
lagi austfirskra kvenna, Kvenfélagi
Laugarnessóknar og síðar Kvenfélagi
Háteigssóknar, í stjórn þar svo og
sóknarnefnd. Á þeim árum héldu
kvenfélögin basara og var hún
óþreytandi að afla muna fyrir þá og
vinna við söluna. Einnig seldu kven-
félögin kaffi við ýmis tækifæri. Þá var
mikið bakað og staðið við kaffikönn-
una allan tímann og ekkert talið eftir
sér við fjáröflun félaganna. Á þessum
tíma var hún oft fulltrúi kvenfélag-
anna á þingum Bandalags kvenna í
Reykjavík. Síðar á ævinni þegar um
hægðist naut hún þess að ferðast með
Húsmæðraorlofi Bandalagsins bæði
hér á landi og erlendis, en til slíkra
ferða hafði áður ekki gefist mikill tími
frá stóru heimili. Þá fór hún einnig í
heimsóknir til ættingja og vina í Kan-
ada og naut þess að fá þá í heimsókn.
Með þá fór hún margar hringferðir
um landið, ætíð með áfangastað í
Borgarfirði eystra til þess að sýna
þeim fallegustu sveit á Íslandi, en
þangað áttu þeir líka ættir að rekja.
Heimasveit sinni Borgarfirði
eystra unni hún mjög. Ætíð hlustaði
hún á veðurfregnir og gladdist ætíð
yfir góðu veðri þar, þá skipti ekki máli
veðurlag hér á suðvesturhorninu.
Síðustu þrjú til fjögur árin, þegar
kraftar hennar voru mjög þrotnir,
dvaldi Halldóra á hjúkrunarheimilinu
Eir. Þar naut hún einstaklega góðrar
aðhlynningar starfsfólks heimilisins.
Starfsfólkið á miklar þakkir skildar
fyrir alúð og umhyggju, sem það
sýndi henni. Í röðum starfsmanna eru
margir nýbúar. Það sem á vantar ís-
lenskukunnáttu þeirra var margfalt
bætt upp með vingjarnlegu viðmóti
og umhyggjusemi.
Halldóra var hvíldinni fegin eftir
langa starfsævi. Ég samgleðst henni
að vera búin að fá hana og bið Guð að
styrkja þá sem syrgja.
Margrét K. Sigurðardóttir.
„Ég get róið eins og hinir strák-
arnir“ varð henni ömmu að orði, þeg-
ar hún fimm ára gömul vildi fylgja
með til fiskjar og faðir hennar mald-
aði í móinn. Þessi orð einkenndu
ömmu, því hún gat allt og ekkert var
henni óviðkomandi. Dugnaður, hjálp-
semi og stjórnsemi var henni ömmu í
blóð borin.
Ömmu þótti vænt um sveitina sína
og sagði margar skemmtilegar sögur
frá veru sinni á Hofströnd á Borg-
arfirði eystri. Hofströnd kúrir undir
Geitfellinu, sem eins og margir
þekkja hefur skartað litskrúði sínu á
mörgum myndum Kjarvals. Hvergi
eru eins fallegir litir í fjöllum eða
steinar í fjöru. Einhverju sinni var
amma send af stað með stóran brodd-
staf til að fylgja Jóhannesi Kjarval yf-
ir Fjarðará, sem þá var í klakabrynju.
Gekk hún á undan til að finna trygga
leið yfir ísinn og fylgdi Kjarval fast á
eftir. Að launum fékk hún það sem
Kjarval þótti fallegast, steina í öllum
regnbogans litum, sem hann hafði
safnað í fjörunni við Hofströnd.
Aldrei féll ömmu verk úr hendi.
Hún var ævinlega vöknuð fyrir allar
aldir. Í nokkra áratugi til að sinna
kostgöngurum, sem aðallega voru
ungir skólapiltar utan af landi. Í
seinni tíð hófst hins vegar dagurinn á
því að aka í sund. Iðulega ók hún
hring fyrir sundið og fyllti þá bílinn
sinn af fólki. Stundum fengum við að
vera með í þessum fjörugu ferðum og
eru margir fylgdarmenn hennar okk-
ur eftirminnilegir, sérstaklega þó
Þórarinn frá Eiðum. Ömmu vegna sá
Þórarinn til þess að undirrituð gæti
alls ekki slegið slöku við í líffræðitím-
um hans í Kvennó.
Ríkur þáttur í lífi ömmu var að
halda sambandi við skyldmenni afa og
hennar, í Vesturheimi, bæði með
heimsóknum þangað og móttökum
þeirra hér heima. Hún skipulagði
langar hringferðir um landið á sínum
fólksbíl, jafnvel áður en vegir buðu al-
mennilega uppá slíkt. Á þessum
ferðalögum urðu ýmsar uppákomur
og ekki laust við að hún skyti okkur
og ferðafélögum sínum skelk í bringu
með ævintýrum sínum. Gilti þá einu
hvort bíllinn lenti í alvarlegum áföll-
um eða á leið yrðu fjallvegir sem voru
öðrum ófærir. Lengi verður í minnum
höfð ferð ömmu með fullan fólksbíl af
Vestur-Íslendingum yfir Lónsheiði.
Þegar niður á þjóðveg var komið,
hittu þau fyrir lögreglu umdæmisins,
sem búin var að loka heiðinni vegna
ófærðar. Á leið yfir heiðina voru Vest-
ur-Íslendingarnir aldrei almennilega
vissir um hvort nokkur vegur væri til
staðar yfirleitt. Í annarri frægri ferð
var hennar eigin bifreið skilin eftir í
óökufæru ástandi vegna umferðar-
óhapps á Akureyri og enn haldið
áfram eins og ekkert hefði í skorist á
bílaleigubíl austur fyrir land. Sjálf var
amma fámál um þessi ævintýri, sem
við fréttum um af tilviljun hjá sam-
ferðarmönnum hennar. Amma hélt
þessu starfi sínu sem leiðsögu- og
ökumaður áfram fram undir níræð-
isaldur. Ekki er nokkur vafi á því að
fjöldi Vestur-Íslendinga á góð kynni
sín af gamla landinu fyrst og fremst
ömmu að þakka.
Sem börn álitum við að það væri
náttúrulegur þáttur í þroska hvers
einstaklings að ná tökum á bridds-
spilamennsku þegar fullorðins aldri
væri náð. Iðulega sátu amma og afi
með gestum sínum yfir spilum langt
fram á kvöld. Fyrsta skrefið á þessu
þroskaferli væri einfaldlega að læra
vist og síðan kæmi hitt með árunum.
Stóðum við oft hjá og fylgdumst með
spilamennskunni í lotningu og gætt-
um þess vel að láta alls ekkert á okkur
kræla, til að trufla ekki einbeitingu
spilamanna. Löngu eftir andlát afa
hélt amma áfram að skipuleggja
spilaklúbba og var þetta hennar
helsta áhugamál á meðan að einhvers
staðar var jafnaldra að finna, sem
brúklegir voru til leiksins. Enn var
það bíllinn sem spilaði stórt hlutverk,
enda bæði sótti amma og skilaði spila-
félögunum heim.
Amma vissi að matur er mannsins
megin. Hana munaði ekki miklu hvort
hún hafði fimm eða tuttugu og fimm
manns í mat. Heimili hennar var
ávallt fullt af matargestum og eru þau
óteljandi matarboðin og stórveislurn-
ar, sem við höfum þegið hjá henni
ömmu. Fyrstu árin bjuggu foreldrar
okkar hjá ömmu og afa og sá hún þá
alveg um matinn. Þegar við fluttum í
eigið húsnæði kom það æði oft fyrir að
amma kom við eftir sundferð, með
fangið fullt af bláberjum og rjóma eða
kótilettum eða einhverju því öðru sem
hún taldi að myndi gleðja okkur
systkinin. Og ekki var það bara matur
sem hún bar í okkur og aðra afkom-
endur sína. Hún var frumherji í dreif-
ingu náttúrulyfja og fæðubótarefna,
sama hvort um var að ræða hvítlauks-
töflur, blómafræfla, kamfóru, laxerol-
íu (mjög góð við vörtum) eða norska
brjóstdropa, svo þau helstu séu nefnd.
Sérstaklega var ömmu umhugað um
eðlilegan hárvöxt afkomenda sinna og
lumaði á ýmsu í þeim efnum. Dreif-
ingakerfi samtímans hafa ekki enn
náð þeirri fullkomnun sem kerfi
ömmu hafði, enda þurftu móttakend-
ur aldrei að greiða fyrir efnin og ávallt
voru þau send heim. Skipti þá ekki
máli í hvaða heimsálfu við vorum
stödd þegar amma áleit að við þyrft-
um á efnunum að halda. Ekki veigraði
hún sér við að senda heilan kassa af
fjallagrösum vestur um haf þegar
undirrituð voru í námi þar og frést
hefur af sambærilegum sendingum
a.m.k. í Danmörku, Svíþjóð og Bret-
landi. Við máttum ekki svo ræskja
okkur að amma væri ekki komin með
kamfóruflöskuna á loft, bæði til lækn-
inga innvortis og útvortis. Reyndum
við því að gæta þess að láta lítið bera á
veikindum í hennar návist. Amma
skipulagði líka heilsubótaferðir hér-
lendis sem erlendis, meðal annars til
Reykhóla og Bretlands. Ekki er okk-
ur þó kunnugt um hvort amma tókst
sjálf á við akstur í Bretlandi.
Þegar undirrituð kom heim úr
námi 1990 og var heimavinnandi,
bundin í báða skó með tvö lítil börn,
var amma fljót að finna að við svo búið
mætti ekki standa. Þá munaði hana
ekki mikið um að bruna við hjá mér á
bílnum sínum eftir sundið og gæta
krílanna, svo ég kæmist út í búð í friði.
Þessara frístunda naut ég til hins ýtr-
asta á meðan hún var heima og dáðist
að börnunum mínum, las fyrir þau og
söng.
Svo fór þó að lokum að ellin náði yf-
irhöndinni og amma varð að selja bíl-
inn, enda óhöppunum farið að fjölga
mjög. Ekki er okkur þó örgrannt um
að amma hafi meðvitað ekið einu ári
lengur en skírteinið leyfði. Það var
mikið frá henni tekið þegar hún hætti
að ráða sínum ferðum alveg sjálf og
varð uppá strætó og leigubíla komin.
Amma var góður félagi og fyrir það
erum við henni þakklát.
Þráinn Valur og Halldóra.
Þegar ég horfi í spegil þessa dag-
ana sé ég Halldóru ömmu horfast í
augu við mig. Ég líkist mjög ömmu
eins og hún leit út þegar ég fyrst man
eftir henni fyrir rúmum fjörutíu ár-
um. En ég líkist henni ekki bara í út-
liti. Ég erfði marga góða eiginleika frá
ömmu minni: ákveðni og stjórnsemi.
Við höfum líka átt sameiginleg áhuga-
mál eins og t.d. næringarfræði og
mikilvægi hollrar fæðu fyrir heilsu
fólks. Það sem skilur okkur hins veg-
ar að er sú staðreynd að á okkur er
tveggja kynslóða munur og ég fékk
tækifæri til að ganga menntaveginn
en ekki hún. Svona hafa tímarnir
breyst á þeim 45 árum sem skildu
okkur að í aldri.
Mínar fyrstu minningar af ömmu
voru stóru fjölskylduboðin sem hún
stóð fyrir. Þar voru mætt börn, stjúp-
börn, systir, uppeldisbræður, gamlir
vinir og þeirra fjölskyldur. Fram voru
bornar miklar og góðar krásir og
aldrei minnst á fyrirhöfn. Enda var
amma gestum vön því hún tók reglu-
lega unga námsmenn utan af landi í
„fóstur“ og veitti þeim fæði og hús-
næði.
Þess vegna voru sjaldan færri í mat
hjá ömmu en tíu manns. Og oft fór tal-
an upp í tuttugu og fleiri. Þar lærði ég
að það er engin fyrirhöfn að elda mat
fyrir stóran hóp. Það þarf bara stærri
pott! Á meðan ég var á barnaskóla-
aldri vorum við Halldór bróðir oft hjá
ömmu og Halldóri afa ef foreldrar
okkar fóru í veislu eða ferðalög. Þá
var mikið spiluð vist og lögðu bæði
amma og afi mikla rækt við að kenna
okkur að spila. Ég man líka eftir að
amma söng fyrir okkur og spilaði á
orgelið sitt. Hún kenndi mér marga
söngva og ég var einmitt að rifja upp
einn af þessum söngvum helgina áður
en amma kvaddi þennan heim. Amma
hafði fallega rödd og mér fannst alltaf
gaman að hlusta á hana syngja.
Á þeim tíma fórum við líka yfirleitt
í sumarfrí með afa og ömmu auk Pét-
urs frænda, Stefaníu ekkju stjúp-
barns ömmu og Stefáns sonar henn-
ar.
Minnisstæðast er ferðalagið til
Stykkishólms árið 1964 og var ákveð-
ið að kíkja eftir berjum. Amma hafði
veður af berjum úti í Öxney á Breiða-
firði og var trillueigandi fenginn til að
flytja okkur þangað. Þegar að
bryggju kom var amma áköf að kom-
HALLDÓRA
SIGFÚSDÓTTIR
!
"#
$"% & %%' ' " ()*+%,%' #