Morgunblaðið - 28.04.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 28.04.2002, Síða 30
w w w .d es ig n. is © 20 02 Skeifan 2 • 108 Reykjavík S. 530 5900 • Fax 530 5911 • www.poulsen.is Hjólið: Fundið upp u.þ.b. 30.000 árum f. krist. Gagnrýni þá: „Þessi ferkönntuðu eru betri, þau renna ekki í brekkum“. Vagnhjól Hvernig sem er. Hvar sem er. Sterk, örugg og endingargóð. Burðarþol 27-7025 kg. Bein... Snúnings... Bremsu... Nylon... Gúmmí... Hitaþolin... Úti... Inni... Styrkur, ending, gæði, LISTIR 30 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞÆR Brynhildur Þorgeirsdóttir og Ína Salóme voru samferða í Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands á átt- unda áratugnum. Hvort það hafði einhver áhrif til þess að þær ákváðu að sýna samtímis í Listasafni Kópa- vogs skal ósagt látið. Hvað með Guð- rúnu Einarsdóttur, sem hóf ekki nám við Myndlista- og handíðaskólann fyrr en tíu árum síðar? Skyldi tilvilj- un hafa ráðið því að þessar þrjár listakonur lögðu samtímis undir sig sali Gerðarsafns? Hér er auðvitað verið að fiska eftir því hvort líta beri á sýningar Bryn- hildar, Guðrúnar og Ínu Salóme sem samsýningu eða þrjár einkasýningar. Þótt allar séu þær mjög efnislægar eru þær einnig mjög ólíkar. Það er varla hægt að finna með þeim sam- nefnara svo heitið geti, enda koma þær upprunalega sín úr hverri átt- inni. Sjálfsagt mætti kalla Brynhildi súrrealistann í hópnum enda byggir hún verk sín á furðum náttúrunnar, einhvers konar lífi sem lifir og dafnar í steinaríkinu. Vissulega er margt í verkum henn- ar sem minnir á krossfiska, ígulker og kuðunga sjávar en skrímsli henn- ar í Kópavogi eru einnig hluti af jarð- eðlisfræðinni því sum þeirra fylgja lögmálum hverapolla. Í stað þess að draga athygli okkar að yfirborði sínu eru það innviðir þeirra og dýpt sem skipta öllu máli. Ef til vill undirbúa þessi verk okkur undir bestu verk Brynhildar á sýningunni, hin látlausu og tæru veggverk úr bræddu gleri. Þessi tilvísun til innri eiginleika endurspeglast ef til vill í dúkum Ínu Salóme, sem einnig leitast við að opna leið að einhverju sem undir býr. Text- íllitir gefa að vísu takmarkað svigrúm til köfunar, einkum þegar þeir þurfa að þekja jafnstóra fleti og yfirborð baðmullarstriganna í vestursalnum. Helmingi minni rammar hefðu ef- laust gert sama gagn og jafnvel dreg- ið betur saman áhrifin sem birtast í skyndilegri opinberun litarins innan úr miðjum grámanum umhverfis. Þessi tilraun til að takast á við dýpt er í algjörri andstöðu við málverk Guðrúnar Einarsdóttur af yfirborði litanna. Guðrúnu tekst að ganga ein- um lengra en yfirborðsmálarar sjö- unda og áttunda áratugarins – Rym- an og Poons – í því að vísa auganu frá því sem undir býr að hinu sem liggur ofan á undirstöðunni. Það er ekki lengur liturinn, heldur hreint yfir- borð hans sem skiptir öllu máli. Það er líkast því að horfa á úfið hafið og gleyma því um stundarsakir að undir ölduhæðinni býr ómælisdýpi. Með upphleyptu mynstrinu sem Guðrún laðar fram í olíumálverkum sínum skorar hún naumhyggjuna sumpart á hólm, eða gengur út frá forsendum hennar til að halda einum lengra. Þegar málverkið, eins og Frank Stella orðaði það, er ekki leng- ur annað en það sem er og verður numið blákalt með augunum, hættir það að vera gluggi en verður í raun lágmynd, eða áþreifanlegur listhlut- ur. Þessi rök færir Guðrún okkur með óvenjuskýrum og margslungn- um hætti í hrífandi málverkum sín- um. Þá fylgir hún sýningu sinni úr hlaði með vandaðri sýningarskrá. Af ofansögðu má ráða að sýningar þeirra Brynhildar, Ínu Salóme og Guðrúnar eru í reynd þrjár sérsýn- ingar, þótt fáein sameiginleg atriði megi finna ef grannt er skoðað. Andinn og efnið Verk eftir Ínu Salóme.Verk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur. Verk eftir Guðrúnu Einarsdóttur. Halldór Björn Runólfsson MYNDLIST Listasafn Kópavogs Sýningunni er lokið. MÁLVERK & HÖGGMYNDIR BRYNHILDUR ÞORGEIRSDÓTTIR, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR & ÍNA SALÓME mennri borg og við jafn- stutta götu og Skóla- vörðustíginn. Maður hefur jafnvel á tilfinningunni að sýningin á Mokka sé leifar sýning- arinnar í Galleríi Reykja- vík, þótt eflaust sé það missýn. Ef gera skal upp á milli verka Lafleur eiga margbrotamyndir hans mest erindi við okkur. Þetta eru óhlutbundnar púslumyndir, lausar við þá skreytiáþján sem eltir listamanninn úr glerinu yfir í málverkið. Þennan prismatíska stíl mætti hann að ósekju fjölfalda og sýna ein- an sér. Það væri eitthvert púður í slíku. Þá má líka hugsa sér hann vinna úr hringiðumyndunum, eins og þeirri sem blasir við á vinstri vegg kaffihússins þegar inn er komið. Sömuleiðis þyrfti Lafleur að hvíla lengur við hvert afbrigði stílforða síns, þótt ekki væri nema til að sanna fyrir sjálfum sér að hann geti slakað á í stöðunni. BENEDIKT S. Lafleur virðist vera mjög afkastamikill listamaður, og ekki eru liðnir nema fáeinir mán- uðir frá því hann sýndi í Galleríi Reykjavík, einnig við Skólavörðu- stíg. Ef til vill er þetta einum of þétt fyrir jafnlítið samfélag, í jafnfá- Slík slökun er guðsblessun hverj- um listamanni, og hefur reyndar óra- margt með sannleikann í listinni að gera. Að geta gleymt sér í dútlinu er á við það að geta horfið á vit fingr- umframspilsins í tónlist eða spunans í leiklistinni. Benedikt S. Lafleur mætti að ósekju læra að dvelja vel og lengi við list sína. Þá mundi honum farnast mun betur. Skreytilist MYNDLIST Mokka, Skólavörðustíg Til 27. apríl. Opið daglega frá kl. 9:30– 23:30. MÁLVERK BENEDIKT S. LAFLEUR Halldór Björn Runólfsson Verk eftir Benedikt S. Lafleur, á Mokka. Saga heimspek- innar er eftir Bryan Magee, prófessor í þýðingu Róberts Jacks. Bókin varpar ljósi á helstu við- fangsefni heim- spekinnar, beinir sjónum að grundvallaratriðum í tilveru mannsins og greinir frá öllum merk- ustu heimspekingum hins vestræna heims og lykilverkum þeirra. Meðal þeirra heimspekilegu mál- efna sem fengist er við eru spurningar á borð við „Hvað er frjáls vilji?“ og „Er hægt að sanna tilvist Guðs?“. Höf- undur lýkur upp heimi hugmyndanna svo hann verður öllum auðskiljanlegur og setur auk þess líf og starf heim- spekinganna í sögulegt samhengi. Prófessor Bryan Magee nam við há- skólann í Oxford og lauk prófi í sagn- fræði, en einnig í heimspeki, stjórn- málafræði og hagfræði. Hann kenndi við Yale-háskóla til ársins 1956 er hann sagði skilið við háskólasamfé- lagið og gerðist rithöfundur, gagnrýn- andi og fjölmiðlamaður. Prófessor Magee sneri sér aftur að háskólakennslu árið 1970 og er nú gestaprófessor við Kinǵs College í London. Af mörgum ritverkum hans má nefna Modern British Philosophy, Popper, The Philosophy of Schopen- hauer og hann hefur einnig gert tvær sjónvarpsþáttaraðir, Men of ideas og The Great Philosophers. Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 240 bls., prentuð í Kína. Verð: 5.990 kr. Heimspeki SÝNINGARVERKEFNI Önnu Jóa og Ólafar Oddgeirsdóttur, „Sófa- málverkið“, er eitt af 20 verkum sem valin voru úr hátt í 1.600 um- sóknum í opna mynd- listarsamkeppni EAST- international sem haldin er árlega í Nor- wich á Englandi og nýt- ur mikillar virðingar. Dómnefnd 2002 skip- uðu myndlistarmenn- irnir Laurence Weiner og John Baldessari, sem eru heimsþekktir á sínu sviði. Sýningin á verkum eftir þá 22 myndlist- armenn, sem valdir voru, verður opnuð laugardaginn 6. júlí nk. í Norwich Gallery og henni lýkur 24. ágúst. Slóð gallerísins er www.norwichgallery.co.uk. „Sófamálverkið“ var sýnt í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arhúsinu, í byrjun árs 2001 í tilefni af því að hundrað ár voru liðin frá því að fyrsta málverkasýningin var opnuð á Íslandi. 20. maí nk. er fyr- irhuguð ferð þeirrar Önnu og Ólaf- ar til Manitoba í Kanada þar sem þær hyggjast ljósmynda málverk sem þar hanga fyrir ofan sófa fólks sem er af íslensku bergi brot- ið, í þeim tilgangi að kanna skyld- leika vestur-íslenskra sófa- málverka og þeirra sem fyrirfinnast víða á íslenskum heim- ilum. Anna Jóa og Ólöf Oddgeirsdóttir eru sýningarstjórar Sófamálverksins. „Sófamálverkið“ til Englands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.