Morgunblaðið - 28.04.2002, Síða 34

Morgunblaðið - 28.04.2002, Síða 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Reynaldo Bólstrun Karls s:587 7550 S t a n g a r h y l 6 áklæði Lið-a-mót FRÁ H á g æ ð a fra m le ið sla Tvöfalt sterkara með gæðaöryggi FRÍHÖFNIN M ik lu ó d ýr a ra Stöndum vörð um æskuna - Réttur barna til verndar Málþing um réttindi barna, haldið á vegum félagsmálaráðuneytis í samstarfi við Barnaheill í tilefni af Barnaþingi og aukaallsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Grand Hótel kl. 12.30–17.15 þriðjudaginn 30. apríl 2002 12.30–13.00 Skráning og afhending gagna Kl. 13.00 Setning: Páll Pétursson félagsmálaráðherra. Börn og alþjóðasamfélagið: Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. I. Fjölskyldan: Umhyggja, ást og agi Sjónarmið foreldris: Guðbjörg Björnsdóttir, formaður Barnaheilla. Foreldrahlutverk - réttur barna til sinnu og samveru: Sigrún Júlíusdóttir, félagsráðgjafi og prófessor við HÍ. Er agi andstæða frelsis?: Vilhjálmur Árnason, prófessor við HÍ. Fyrirspurnir. II. Umhverfi íslenskra barna – stofnanir og félagahópurinn Þátttaka barna í samfélaginu: Haukur Sigurðsson, nemi, fulltrúi Íslands á barnaþingi Sameinuðu þjóðanna. Samstarf heimila og skóla: Valgerður S. Jónsdóttir, skólastjóri Smáraskóla. Einelti í skólum – ábyrgðin er okkar: Stefán Karl Stefánsson, leikari. Fyrirspurnir. III. Réttur barna til verndar – lífsstíll og heilbrigði Áhrif fjölmiðla á lífsstíl ungs fólks: Nemarnir: Eva Rós Ólafsdóttir, J. Martin L.S., Karen D. Þórhallsdóttir, Karen E. Smáradóttir, Lára Ó. Hjörleifsdóttir og Sólveig Skaftadóttir. „Svona var ég og svona er ég“: Íris Ósk Traustadóttir, nemi, fulltrúi Íslands á Barnaþingi Sameinuðu þjóðanna. Kynheilbrigði, vernd eða frelsi: Sóley Bender, hjúkrunarfræðingur og dósent við HÍ. „Spegill spegill herm þú mér...“ Ríkjandi umræða og kynlífsreynsla íslenskra unglinga: Dagbjört Ásbjörnsdóttir, mannfræðingur. Fyrirspurnir. Fundarstjóri er Ingibjörg Broddadóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðuneyti. Aðgangseyrir er 1.000 kr. LISTIR og menn- ingarstarfsemi annars vegar og viðskipti og iðnaður hins vegar hafa hingað til verið nánast tveir aðskildir heimar. Annar snýst um frjálsa tjáningu, tilfinningar, sagna- hefð og speglun sam- félagsins en hinn ein- kennist af kaldri rökhyggju þar sem samkeppnislögmál eru allsráðandi og fram- boð er sniðið að ósk- um og þörfum neyt- enda. Margt er ólíkt á milli þessara heima en ýmislegt bendir þó til að báðum sé lífsnauðsyn að læra af hinum. Í fyrsta lagi eru menning og listir ört stækkandi hluti af hag- kerfi allra þjóða og Ísland er þar engin undantekning. Sem dæmi má nefna að menning (listir og af- þreying) er nú orðin stærsta út- flutningsvara Bandaríkjamanna og hefur vaxið frá því að vera 95 milljarðar dollara árið 1980 í 387 milljarða dollara árið 1998. Erfitt er að finna nákvæmar tölur um vöxtinn hérlendis en með tilkomu Bjarkar, Sigurrósar og íslensks kvikmyndaiðnaðar er óhætt að fullyrða að hann hefur verið að minnsta kosti jafnmikill. Í öðru lagi eiga listir og við- skipti samleið þegar kemur að vöruþróun og hönnun. Listaheim- urinn býr yfir sköpunarkrafti og þekkingu sem við- skiptalífið getur beisl- að ef brýr eru smíð- aðar á milli þessara heima. Í þriðja lagi eru menning og listir nauðsynlegar til að skapa umhverfi sem gerir íslenskum fyrir- tækjum kleift að keppa um menntað vinnuafl á alþjóðleg- um markaði. Samkeppnishæfni Íslands Fyrirtæki leita stöðugt með logandi ljósi að varanlegu samkeppnisfor- skoti. Engin ástæða er til annars en að þjóðir geri slíkt hið sama og þörfin verður æ brýnni með sívax- andi samkeppni á alþjóðamarkaði. Íslendingar njóta þess að eiga að- gengi að nokkrum ómetanlegum náttúruauðlindum sem hefur vald- ið því að atvinnuumhverfi þjóð- arinnar hefur lengi vel verið til- tölulega fábreytt. Stórkostleg breyting hefur orðið á síðasta ára- tug með tilkomu nýrra atvinnu- greina og það er íslensku atvinnu- lífi lífsnauðsynlegt að halda áfram á þeirri braut þar sem hinar hefð- bundnu atvinnugreinar, landbún- aður og sjávarútvegur, munu tæp- lega geta staðið undir áframhaldandi hagvexti. Þeir þættir sem þarf að styrkja í ís- lensku atvinnulífi eru nýsköpun, frumleiki og frjó hugsun. Þjóðin á sem leynivopn hið öfluga listalíf sem dafnar á landinu og býr þegar yfir þeim þáttum sem fyrirtækin þarfnast. Nágrannar okkar hafa áttað sig Danir hafa aldrei átt sambæri- legt aðgengi að auðlindum og Ís- lendingar og þar má segja að neyðin hafi kennt naktri konu að spinna. Árangurinn hefur verið sá að Danir byggja hagkerfi sitt á þúsundum smáfyrirtækja sem starfa í ótal mismunandi geirum. Þannig hefur áhættudreifing þeirra orðið margfalt betri en Ís- lendinga og líkurnar á áframhald- andi hagvexti eru meiri. Lista- menn hafa reyndar lengi verið stór hluti af dönskum iðnaði sem þekktur er um allan heim af fág- aðri og frumlegri hönnun en Danir eru enn í leit að varanlegu sam- keppnisforskoti og hafa nú mótað stefnu sem byggist á stórauknum tengslum lista og viðskipta. Árið 2000 sameinuðust þáver- andi menningar- og viðskiptaráð- herrar Danmerkur um stofnun á starfshópi til að rannsaka hvernig auka mætti enn frekar tengsl við- skipta og listalífsins. Niðurstöður hópsins voru síðan birtar í skýrsl- unni „Danmarks Kreative Poten- tiale“. Þar er mótuð stefna um stóraukna samvinnu, bent á hvar megi fjölga snertiflötum geiranna og ávinningur beggja útskýrður. Danir eru ekki þeir einu sem hafa áttað sig á breyttu umhverfi. Svíar hafa fyrir löngu áttað sig á verðmæti listsköpunar og í dag eru þeir þriðju stærstu tónlistar- útflytjendur heims. Áhrifanna er farið að gæta í sænsku viðskiptalífi og tveir prófessorar við við- skiptaháskólann í Stokkhólmi, Kjell Nordström og Jonas Ridd- erstråle, hafa nýlega gefið út bók- ina „Funky Business: Talent Mak- es Capital Dance“ sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Þar færa þeir rök fyrir því að í síbreyti- legum heimi, þar sem framboð á vörum og þjónustu yfirskyggir eft- irspurnina, séu það einungis frum- leiki og hugmyndaríki sem skilji á milli fyrirtækja sem eiga sér lífs- von og hinna sem eru feig. Hvers þarfnast viðskiptalífið? Íslensk fyrirtæki eru stöðugt að leita hugmynda. Vandi þeirra er hinsvegar sá að innan þeirra ríkir víðast hvar einvíð hugsun. Fyr- irtæki sem stjórnað er af verk- fræðingum einkennist af verk- fræðihugsun, viðskiptafræðingar eru þjálfaðir til að hugsa eins og viðskiptafræðingar og þannig mætti áfram telja. Fyrirtækin vita af þessum veikleika og því flykkj- ast stjórnendur þeirra á stjórn- endaþjálfunarnámskeið þar sem á örfáum dögum á að kenna þeim að „hugsa fyrir utan kassann“. Það gleymist að til er stétt í landinu sem fæst eingöngu við óhlutbundna hugsun – listamenn- irnir. Ef fyrirtækjunum tækist að virkja þá nýsköpun og þann frum- leika sem í þeim býr gæti skapast verulegt samkeppnisforskot til framtíðar. Það er hinsvegar til lítils að skapa slíkt forskot ef ekki er greitt aðgengi að vel menntuðum starfsmönnum. Ísland er nú í beinni samkeppni við alheiminn um vinnuafl og til þess að standast þessa samkeppni verður landið að geta boðið uppá aðlaðandi atvinnu- tækifæri og menningarumhverfi. Skýrasta dæmið um slíkt vinnuafl í seinni tíð er tvímælalaust stofnun Íslenskrar erfðagreiningar þegar tugir vel menntaðra íslendinga sem búsettir voru erlendis fluttust aftur til landsins. Stofnun fyrir- tækisins var í raun upphafið að hinu íslenska þekkingarhagkerfi sem flestir eru sammála um að sé lykillinn að framtíð þjóðarinnar. Vel menntað vinnuafl er horn- steinn slíks hagkerfis og öflugt menningarlíf er nauðsynlegt til að halda í slíkt vinnuafl í heimi án landamæra. Hvers þarfnast listalífið? Listir og menning eru sívaxandi hluti af íslenska hagkerfinu og út- flutningur t.d. tónlistar og kvik- mynda skapar þjóðarbúinu raun- verulegar tekjur. Enn þurfa listamenn þó að ganga um með betlistaf og hafa á sér þann stimpil að þeir séu baggi á þjóðarbúinu en ekki er seinna vænna að reka þetta slyðruorð af geiranum. Það sem lista- og menningarlífið þarfn- ast eru viðskiptamenntaðir fram- leiðendur og umboðsmenn til að koma afurðum á markað. Til að mæta alþjóðlegri samkeppni getur lista- og menningarstarfsemi lært mikið af viðskiptalífinu hvað varð- ar gerð viðskiptaáætlana, mat á samkeppnisumhverfi og raunsæja fjármálastjórnun. Að sjálfsögðu má listin þó aldrei stjórnast af lög- málum viðskiptanna, enda fráleitt að reyna að meta arðsemi listsköp- unar í krónum og aurum eingöngu, en þekking á aðferðafræðinni er nauðsynleg til áframhaldandi þró- unar. Slík þróun er fólgin í aukn- um útflutningi, bættu aðgengi að áhættufjármagni og aukinni sam- keppnishæfni. Hvað þarf að gera? Til þess að þessar breytingar geti átt sér stað þarf að hefjast handa við að rífa niður þær girð- ingar sem eru til staðar á milli geiranna og finna snertifleti á mögulegu samstarfi. Eðlilegt fyrsta skref væri að ráðherrar menningarmála og viðskipta skip- uðu þverfaglegan starfshóp til að hrinda upphaflegum viðræðum af stað en engin þörf er til að stofna sérstakar stofnanir, stjórnanir eða ráð. Nauðsynlegar stofnanir og samtök eru þegar til staðar en ein- göngu þarf að búa til ferla til sam- skipta. Stofnanir sem gætu tekið þátt í verkefninu eru meðal annars Samtök atvinnulífsins, Bandalag íslenskra Listamanna, Nýsköpun- arsjóður og Útflutningsráð. Lausnin er eingöngu fólgin í sam- ráði og breyttum hugsanagangi. Framtíð Íslands Hvort sem okkur líkar betur eða verr er Ísland nú í beinni og óvæg- inni samkeppni við allan umheim- inn bæði í menningarlegu og við- skiptalegu tilliti. Börnin okkar þekkja allar persónur sem Disney skapar en varla eina persónu úr sagnaarfinum. Unglingarnir lesa hvorki íslensk blöð né fylgjast með íslenskum fréttum heldur sækja sér þekkingu á internetið; þekkja færri en tíu blóm en yfir eitt þús- und vörumerki. Síðast en ekki síst er alls ekki sjálfgefið að vaxandi kynslóðir kjósi að lifa og starfa á Íslandi í framtíðinni. Það er sannfæring mín að það sé greinilegur ávinningur fyrir bæði lista- og viðskiptalífið að fulltrúar þeirra hefji viðræður um hvernig hátta megi samstarfi til að færa þjóðinni aukið samkeppnisforskot. Listir og viðskipti geta í samein- ingu ofið vef sem getur borið uppi blómlegt íslenskt mannlíf um ókomna framtíð LISTIR OG VIÐSKIPTI Magnús Ragnarsson Ef fyrirtækjunum tæk- ist að virkja þá nýsköp- un og þann frumleika sem í listamönnum býr, segir Magnús Ragn- arsson, gæti skapast verulegt samkeppn- isforskot til framtíðar. Höfundur er leikari og MBA-nemi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.