Morgunblaðið - 28.04.2002, Side 35
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 35
Án efa glæsilegasta íþróttabók
sem komið hefur út á Íslandi.
Allt sem þú þarft að vita
um Formúlu 1.
Formúla 1 – Sagan öll
Sagan
Brautirnar
Ökumenn
Liðin
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
mánudagskvöld kl. 20.
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borg-
ara í Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis
mánudag kl. 13. TTT–klúbburinn kl. 17.
Lifandi og fjöbreytt starf fyrir börn úr 4.–6.
bekk í umsjón Andra, Gunnfríðar, Guðrún-
ar Þóru og Jóhönnu. Öll börn velkomin og
alltaf hægt að bætast í hópinn.
Laugarneskirkja. 12 spora hópar koma
saman mánudag kl. 20 í kirkjunni. Mar-
grét Scheving sálgæsluþjónn er við stjórn-
völinn. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl. 14. Öll
börn í 1. bekk velkomin.TTT–starf (10–12
ára) mánudag kl. 16.30. Öll börn í 4. og 5.
bekk velkomin. Bænastund kl. 18 í kap-
ellu. Litli Kórinn, kór eldri borgara, þriðju-
dag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Back-
man. Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Sunnudagur: Æskulýðs-
fundur kl. 20. Mánudagur: TTT–klúbburinn
frá kl. 17–18.
Fella– og Hólakirkja. Mánudagur: Fjöl-
skyldumorgnar (mömmumorgnar) mánu-
dag í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 10–12
í umsjón Lilju djákna. Samvera, kaffi, og
spjall. Opið hús fyrir fullorðna í safnaðar-
heimilinu kl. 13.30–16. Samvera og
bænastund. Birna Hjaltadóttir kemur og
segir frá dvöl sinni og fjölskyldu sinnar í
Kuwait. Umsjón hefur Lilja G. Hallgríms-
dóttir djákni. Þeir sem vilja fá akstur til og
frá kirkjunni láti vita fyrir hádegi á mánu-
dag. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 17–
18. Starf fyrir 9–10 ára drengi kl. 17–18.
Unglingastarf á mánudagskvöldum kl.
20.30.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bænahóp-
ur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9–17 í síma 587 9070.
Mánudagur: KFUK fyrir stúlkur 9–12 ára
kl. 17.30–18.30. KFUM yngri deild í
Borgaskóla kl. 17–18. Kirkjukrakkar fyrir
7–9 ára í Korpuskóla kl. 17.30–18.30.
TTT (10–12 ára) kl. 18.30–19.30 í Korpu-
skóla.
Hjallakirkja. Mánudagur: Æskulýðsfélag
fyrir unglinga 13–15 ára kl. 20. Þriðjudag-
ur: Prédikunarklúbbur presta í Reykjavík-
urprófastsdæmi er í Hjallakirkju kl. 9.15–
10.30. Umsjón Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fundur fyrir
stelpur á aldrinum 9–12 ára kl. 17.15 í
kirkjunni. Fjölbreytt fundarefni. Allar stelp-
ur velkomnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf
fyrir 9–12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánu-
dögum kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagskvöld
kl. 20–22 eldri félagar.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon fund-
ur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á mánu-
dagskvöldum í Lágafellskirkju kl. 20.
Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla kl.
13.15–14.30. TTT-fundir í safnaðarheimili
kl. 16–17. Fundir í æskulýðsfélaginu Sánd
kl. 17–18.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld kl. 19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf kirkj-
unnar í Hrakhólum mánudag kl. 17.30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Mánudag-
ur: Kl. 17.30 æskulýðsstarf fatlaðra, eldri
deild.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30 í
umsjón kvenna sem eru að koma af
Kvennamóti. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu
leiðir söng. Allir hjartanlega velkomnir.
KEFAS, Vatnsendavegi 601. Sunnudagur:
Samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Helga
R. Ármannsdóttir. Bænastund fyrir sam-
komu kl. 16.
Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf
fyrir börn frá eins árs aldri. Þriðjud: Bæna-
stund kl. 20.30. Miðvikud.: Samveru-
stund unga fólksins kl. 20.30. Mikil lof-
gjörð og orð guðs rætt. Allir velkomnir.
Vegurinn. Fjölskyldusamkoma kl. 11. Létt
máltíð og samfélag að samkomu lokinni.
Bænastund kl. 19.30. Samkoma kl. 20.
Högni Valsson prédikar. Lofgjörð, fyrir-
bænir og samfélag. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Matar- og skemmtikvöld vorsins verður 4.
maí. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Vegarins á skrifstofutíma í síma
564 2355.
Kristskirkja í Landakoti. Næsti og síðasti
biblíulestur sr. Halldórs Gröndal þennan
vetur er mánudaginn 29. apríl og hefst kl.
20 í safnaðarheimilinu í Landakoti. Allir
sem hafa áhuga eru hjartanlega velkomn-
ir.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Jim Smart
Neskirkja
PRÓFASTUR Reykjavíkurpró-
fastsdæmis vestra, séra Jón Dalbú
Hróbjartsson, vísiterar Ne-
sprestakall nk. sunnudag, 28. apríl
og þjónar við messu kl. 11 ásamt
séra Frank M. Halldórssyni, sókn-
arpresti og séra Erni Bárði Jóns-
syni, sem prédikar. Kór Neskirkju
syngur undir stjórn Elíasar Davíðs-
sonar, tónskálds sem hleypur í
skarðið fyrir Reyni Jónasson, org-
anista kirkjunnar. Inga J. Back-
man syngur einsöng. Tinna Ágústs-
dóttir og Hákon Atli sýna dans.
Barnastarf er á sama tíma og
hittast börnin í messunni en fara
síðan í safnaðarheimilið til frekari
fræðslu undir stjórn Guðmundu
Ingu Gunnarsdóttur, Rúnas Reyn-
issonar, Auðar Olgu Skúladóttur
og Elsu Bjarnadóttur. Ari Agn-
arsson leikur á píanó í barnastarf-
inu.
Vísitasía er sérstök heimsókn
prófasts og er embættisverk sem
unnið er í umboði biskups en pró-
fastar gegna m.a. eftirlitshlutverki
í kirkjunni. Prófastur hefur þegar
átt fund með prestum og formanni
sóknarnefndar, skoðað eignir og
farið yfir ýmislegt er tengist vísi-
tasíugjörðinni.
Að messu lokinni er safn-
aðarfólki boðin hressing í safn-
aðarheimilinu og loks er fundur
með sóknarnefnd, prestum og
starfsfólki. Þar gefst tækifæri til
„að meta gæði starfsins og hvernig
samstarfið gengur milli sókn-
arnefndar og presta, sókn-
arnefndar og annars starfsfólks og
starfshópsins innbyrðis“, segir í
gögnum frá prófasti. Formaður
sóknarnefndar flytur skýrslu um
starfið og sóknarprestur gerir
grein fyrir safnaðarstarfi. Prestur,
organisti og annað starfsfólk segir
fréttir af sínum starfsvettvangi en í
Neskirkju fer fram fjölþætt safn-
aðarstarf fyrir alla aldurshópa. Þá
skoðar prófastur einnig kirkju- og
fundargerðabækur.
Sóknarbörn eru hvött til að fjöl-
menna í messuna og fagna góðum
gesti.
Síðasta Tómasar-
messan að sinni
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til fjórðu
messunnar á þessu ári í Breiðholts-
kirkju í Mjódd í kvöld, sunnudag-
inn 28. apríl, kl. 20.
Tómasarmessan hefur vakið
mikla ánægju þeirra sem þátt hafa
tekið og virðist hafa unnið sér fast-
an sess í kirkjulífi borgarinnar, en
slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu fjögur árin. Verður
þetta því síðasta Tómasarmessan
að sinni, en þær hefjst síðan vænt-
anlega að nýju í haust. Það er
a.m.k. von okkar, sem að Tóm-
asarmessunni stöndum, að hún
megi áfram sem hingað til verða
mörgum til blessunar og starfi ís-
lensku kirkjunnar til eflingar.
Framkvæmdaaðilar að þessu
messuhaldi eru Breiðholtskirkja,
Kristilega skólahreyfingin, Félag
guðfræðinema og hópur presta og
djákna.
Súðvíkingar í
Dómkirkjunni
EFTIR almenna messu í Dómkirkj-
unni í dag kl. 14 hefur Félag Álft-
firðinga vestra í Reykjavík árlegt
kaffisamsæti sitt.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
messar, Hrönn Helgadóttir, org-
anisti og Kammerkór Dómkirkj-
unnar sjá um tónlist. Allir Álftfirð-
ingar hér syðra eru hvattir til að
sýna sig og sjá aðra..
Vísitasía í Nes-
kirkju – með
söng og dansi!
FRÉTTIR
ÞAÐ ER kalt og vetrarlegt norð-
an heiða þessa dagana, en eigi að
síður verða nokkur þekkt veiði-
svæði opnuð 1. maí nk. Ber þar
hæst Litluá í Kelduhverfi, en
annar leigutaka árinnar, Pálmi
Gunnarsson, verður með einvala-
lið á bökkum árinnar og verða
fyrstu dagarnir notaðir til að
veiða og merkja, sem er framhald
á umfangsmiklum rannsóknum
sem Jóhannes Sturlaugsson,
fiskifræðingur Veiðimálastofnun-
ar, hefur gengist fyrir í samvinnu
við leigutaka. Búast má við góðri
veiði þótt svalt sé, því mjög mikill
fiskur var í ánni á síðustu vertíð.
Auk Litluár verður Vest-
mannsvatn opnað, en í upphafi
vertíðar geta menn vænst þess að
fá góða urriðaveiði, urriðinn er
jafnan afar gráðugur strax eftir
að ísa leysir. Dæmi voru um að
tveir félagar hefðu fengið allt að
200 silunga á stuttum tíma, mest
urriða á bilinu 1 til 3 pund.
Fréttir héðan og þaðan
Góð veiði var í Skógtjörn við
Skóga sumardaginn fyrsta eftir
því sem fregnir herma, einhverjir
tugir silunga.
Mest bleikja, 1-2,5 pund.
Enn sem komið er veiðist lítið á
Þingvöllum og í Vífilsstaðavatni
eru smáskot, en ekki mikið meira.
Þá hefur veiði dofnað í Varmá.
Eystra hefur ekki rofað til á sjó-
birtingsslóðum, þar er aðeins í
besta falli kropp og nú fer sú
stund að renna upp að sjóbirting-
ur verður allur horfinn til sjávar.
Elliðavatn verður opnað nk. mið-
vikudag. Þar var vorið komið á
góðan skrið á dögunum, en mikið
hefur kólnað og við þessar að-
stæður er þess ekki að vænta að
veiði verði umtalsverð. Eitthvað
gæti þó gefið sig af urriða.
Eitthvað hefur verið um að
veiðimenn við Hörgsá á Síðu hafi
bætt sér upp tregveiði í ánni með
því að draga væna urriða úr
Hæðargarðsvatni. Einn fékk t.d.
fimm stykki, 3-4 punda, og beitti
með makríl. Annar fékk tvo, ann-
að á spón og hinn á flugu. Þetta
eru fréttir sem berast manna í
millum, lítið er skráð í veiðibók
hvað veiðist í vatninu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Þessi óvenjulega mynd er reyndar síðan í fyrra, en þessi væna
Brunnárbleikja varð fyrir því óláni að púpufluga veiðimannsins
kræktist í gotraufaruggann!
Stefnir í
kaldrana-
legar opnanir
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?