Morgunblaðið - 28.04.2002, Page 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRÍL 2002 45
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali,
Suðurlandsbraut 54, 108 Rvík. Sími 568 2444, fax 568 2446.
Netfang asbyrgi@asbyrgi.is
STÆRRI EIGNIR
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, MILLI KL. 14 og 16
ÁLFHÓLSVEGUR 79
Opið hús í dag á milli kl. 14.00 og 16.00. Um er að ræða ca 160 fm raðhús á þrem-
ur hæðum. Í kjallara er óinnréttað rými sem hæglega er hægt að gera að ca 60 fm
íbúð en hluti af rýminu er ekki inni í fmtölu. Aðkoma er góð, búið að leggja hita í
planið og gera ráð fyrir bílskýli. Verð 17,9 millj. Tilv. 4974.
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17 - Sími 520 2600
ARNARHRAUN NR. 4-6, HF. - MEÐ BÍLSKÚR
Íbúðin er 102 fm, ásamt 26 fm
bílskúr. Hægt er að bæta við
herbergi. Ný gólfefni og ný eldhús-
innrétting. Fallegt útsýni. Sameign
er góð og búið að klæða tvær hliðar
á húsinu. Gott útsýni. Verð 11,9
millj. Jörgen er í síma 565 2408.
VERIÐ VELKOMIN.
LYNGMÓAR NR. 8 - GARÐABÆ
Falleg 3ja til 4ra herb. íbúð á 2. hæð í
litlu fjölbýli. Bílskúrinn er 22 fm og
íbúðin 96 fm. Björt og opin íbúð á
góðum stað. Verð 13,9 millj.
Áhvílandi 7,7 millj. bankalán, ekkert
greiðslumat. Íbúðin er laus 15. júní.
Vilhelm er í síma 892 4305. VERIÐ
VELKOMIN.
STANGARHOLT NR. 4 - RVÍK - ENDURNÝJUÐ
Falleg 93 fm SÉRHÆÐ, hæð og ris í
góðu tví/fjórbýli. Íbúðin er töluverð
stærri í fermetrum, þar sem hún er
töluvert undir súð. Verð 12,9 millj.
Benidikta og Runólfur sýna og eru í
síma 561 5901. VERIÐ VELKOMIN.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 0G 17Ásendi
Hjallasel
Háaleitisbraut - Með aukaíbúð
Ljósavík 52a – Opið hús í dag
Vandað 170 fm raðh. með auka-
íbúð. Nýstandsett bað, fallegt eld-
hús, nýlegur sólpallur og gróinn
garður. Endurn. þak.
V. 22,5 m. (2947)
Fallegt 270 fm parh. á 3 hæðum
með innb. 24,7 fm bílskúr. Mögu-
leiki að gera aukaíb. með sérinng.
á neðstu hæð. Áhv. 1,1 m. V.
22,9 m. (3237)
Fallegt 284 fm einbýli á 2 hæð-
um. Húsið er vel skipulagt að inn-
an, hannað af Gunnari Magnús-
syni. Vandaðar innr., parket og
flísar. Gróðurh. og gufub., hiti í
bílastæði og stéttum. Arkitekt
Helgi Hjálmarsson. Stór garður,
teiknaður af Reyni Vilhjálmssyni, í
góðri rækt. Einfalt að gera tvær
íbúðir. Innbyggður bílskúr. V. 29
m. (3469)
WWW.EIGNAVAL.IS
OPIÐ Í DAG MILLI KL. 12 OG 14
Rúmg. 3ja herb. íb. á 3ju hæð í litlu
fjölb. 2 herb., glæsileg beykiinnr.
Glæsilegt útsýni. Þvottaherbergi í
íbúð. Áhv. 7 m. V. 12,8 m.
Ægir og Lísa taka vel á móti
ykkur á milli kl. 14 og 16 í dag.
(3456)
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
HRÍSRIMI 26 - MEÐ BÍLSKÚR
Opið hús í dag frá kl. 14-17
OPIÐ Á LUNDI Í DAG MILLI KL. 12 OG 14
Í þessu vandaða og fallega tvíbýlishúsi er neðri hæðin til sölu. Um er
að ræða 140 fm sérhæð auk 23 fm bílskúrs. M.a. stofur, 3 svefnher-
bergi, gestasnyrting o.fl. Fallegur garður með heitum potti.
KARÓLÍNA OG SVAVAR SÝNA ÍBÚÐINA Í DAG MILLI KL. 14 OG 17.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði VESTURBÆR - ÁLFTAN. - EINB.
Glæsileg húseign, 174 fm auk bílskúrs og vinnustofu, 93 fm, samtals 267 fm. Eignin
stendur á 3.400 fm lóð með útsýni til allra átta. Glæsileg arkitektahönnun af Guð-
mundi Kr. Kristinssyni arkitekt sem var eigandi hússins. Eignin þarfnast standsetningar.
Verðtilboð.
EYVINDARHOLT - ÁLFTAN. - EINB.
Nýkomið í einkas. tvílyft einb. með sólskála
og innb. bílskúr, samtals ca 160 fm. Eignar-
landið sem fylgir er ca 2.500 fm og að hluta
skógivaxið. Húsið þarfnast endurnýjunar og
lagfæringar við að hluta. Einstök staðsetning
og útsýni. 89602
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Fé-
lagsþjónustunni í Reykjavík,
Íþrótta- og tómstundaráði Reykja-
víkur, Fræðslumiðstöð Reykjavík-
ur, Lögreglunni í Reykjavík og
SAMFOK:
„Samræmdu prófunum lýkur
þriðjudaginn 30. apríl hjá nemend-
um í 10. bekk grunnskólanna. Með
samstilltu átaki margra aðila und-
anfarin ár hefur tekist að draga
stórlega úr hópamyndun og drykkju
meðal barna á þessum tímamótum.
Það var ánægjulegt að sjá við lok
samræmdra prófa sl. ár að í mið-
bænum mátti sjá fleiri fullorðna
einstaklinga en börn. Þessir ein-
staklingar komu frá ýmsum aðilum,
s.s. Félagsþjónustunni, foreldrarölti
úr skólum, ÍTR, lögreglunni, kirkj-
unni o.fl. Tilgangurinn með veru
þeirra var að vera til staðar og að-
stoða þá sem hugsanlega væru í
reiðuleysi í bænum að „fagna“ próf-
lokum.
Við lok prófanna ætla flestir skól-
ar að fara í ferð til að fagna tíma-
mótunum, margir að frumkvæði og
með þátttöku foreldrafélaganna. Við
hvetjum foreldra til að styðja börn-
in til þátttöku í slíkum ferðum, þar
sem því verður viðkomið, þannig að
þau megi eiga ánægjulegar minn-
ingar um þennan áfanga. Við hvetj-
um annars foreldra til að verja deg-
inum og kvöldinu með börnunum
sínum. Mörg dæmi eru um að á
þessum degi eða næstu helgar neyti
börn áfengis í fyrsta skipti.
Enn og aftur viljum við minna
foreldra á að leyfa ekki foreldralaus
partí. Ótímabær ábyrgð er lögð á
barn að halda slík samkvæmi og þar
sem engir fullorðnir eru til staðar
getur margt borið upp á. Einnig
viljum við koma á framfæri til allra
fullorðinna að það er grikkur en
ekki greiði að kaupa eða gefa barni
eða ungmenni undir 20 ára aldri
áfengi, enda ólöglegt. Nú má sjá í
áfengisverslunum víðsvegar um
land ábendingar þess eðlis og því
framtaki ber að fagna.
Foreldrar elskum börnin okkar,
foreldrar eru besta forvörnin, elsku-
legir og ákveðnir.“
Foreldrar styðji börn
sín við próflok
STOFNUN Vigdísar Finnbogadótt-
ur í erlendum tungumálum og Þýð-
ingasetur Háskólans standa fyrir
stuttum málþingum um tungumál og
atvinnulífið og er ætlunin að haldið
verði eitt slíkt á hverju misseri.
Í sívaxandi samkeppni skiptir
meginmáli að ná til viðskiptavina
milliliðalaust og er ætlunin á þessum
málþingum að líta á hlutverk tungu-
mála við markaðssetningu og kynn-
ingu sem og almenna þörf atvinnu-
lífsins fyrir tungumálaþjónustu og
þýðingar, segir í fréttatilkynningu.
Fyrsta málþingið verður haldið
þriðjudaginn 30 apríl kl. 10–13 í stofu
101 í Odda. Erindi halda: Gauti
Kristmannsson, aðjúnkt við HÍ,
Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögmaður
Samtaka atvinnulífsins, Keneva
Kunz þýðandi og Vilhelm Steinsen
þýðandi.
Málþing um
tungumál og
atvinnulífið
NÝ fyrirlestraröð hefst þriðjudaginn
30. apríl á vegum Karuna og stendur
fjögur þriðjudagskvöld. Kennt er frá
klukkan 20 í stofu 101 í Odda, Há-
skóla Íslands, samkvæmt tilkynn-
ingu frá Karuna.
„Yfirskrift fyrirlestranna er „Ess-
ential Meditations“ og verður farið í
grundvallartilgang lífsins, hvernig
við getum öðlast innri frið og ham-
ingju og hvernig við getum raun-
verulega gagnast öðrum,“ segir enn-
fremur.
Kennari er búddanunnan Gen Ny-
ingpo og kennir hún á ensku. Hver
fyrirlestur er sjálfstæður og kostar
1.000 krónur, en 500 krónur fyrir
nema, öryrkja og atvinnulausa.
Allir velkomnir.Nánari upplýsing-
ar: www.karuna.is.
Fyrirlestra-
röð um til-
gang lífsins
NEMENDASÝNING Dansskóla
Dansíþróttafélags Hafnarfjarðar
verður haldin í dag, sunnudaginn 28.
apríl, frá kl. 12–14 á Flatahrauni 1,
jarðhæð, Hafnarfirði.
Yngstu nemendurnir eru 3–5 ára
og hafa allir lokið prófi í stjörnu-
merkjakerfi Dansráðs Íslands.
„Dansmömmur“ verða við útigrillið
og bjóða upp á grillaðar pylsur og
svala.
Farandverðlaun verða veitt einni
dömu og einum herra fyrir besta
fótaburðinn í samkvæmisdönsum en
það verða listaverk eftir listakonuna
Áslaugu Jónu Sigurbjörnsdóttur.
Danskennari frá Dansráði Íslands
dæmir og afhendir verðlaunin.
Enginn aðgangseyrir, allir vel-
komnir, segir í fréttatilkynningu.
Danssýning
í Hafnarfirði